Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 43
DAGBÓK
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Kl. 9 vinnustofa, bað
og jóga, kl. 10 boccia, myndlist kl. 13,
vídeóhornið kl. 13.15, allir velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, myndlist,
bókband, söngur, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–11 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10–
14 handavinnustofan opin, kl. 11.15–
12.15 matur, kl. 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Stafgöngunámskeið hefst kl. 9 í Ás-
garði, Glæsibæ, leiðbeinandi Halldór
Hreinsson. Margrét Margeirsdóttir
formaður FEB verður með viðtals-
tíma frá kl. 10–12 brids í dag kl. 13 og
félagsvist kl. 20.
Félag kennara á eftirlaunum | Bók-
menntaklúbbur í KÍ-húsi kl. 14.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Bridsdeild FEBK Gullsmára 13 spilar
mánu- og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi. Eldri borgarar vel-
komnir. Þátttökugjald 200 kr.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Karlaleikfimi kl. 13, opið í Garðabergi
frá kl. 12.30–16.30.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30
helgistund, umsjón sr. Svavar Stef-
ánsson. Kl. 12.30 vinnustofur opnar,
m.a. myndlist. Kl. 13.15 ,,Kynslóðir
saman í Breiðholti“, félagsvist í sam-
starfi við Seljaskóla, ESSO veitir
verðlaun. Veitingar í Kaffi Bergi.
Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður, handavinna, kl.
13.30, boccia.
Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa-
vinna – bútasaumur, keramik, perlu-
saumur, kortagerð og nýtt t.d. dúka-
saumur, dúkamálun, sauma í plast.
Hjúkrunarfræðingur á staðnum, hár-
greiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl.
12 hádegismatur, kl. 14 félagsvist, kl.
15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl.
9, pútt kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsinu
kl. 11.20, glerbræðsla kl. 13, bingó kl.
13.30.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
bútasaumur o.fl. kl. 9–13 í umsjón Sig-
rúnar, boccia kl. 10–11, hannyrðir hjá
Halldóru kl. 13–16.30, félagsvist kl.
13.30 kaffi og meðlæti, böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja
kl. 9–16: Handverk og glerskurður.
Sönghópur kl. 13.30. Skráning í fram-
sögn og túlkun. Nýr hópur kl. 13
mánudag 4. apríl. Kennari Soffía Jak-
obsdóttir. Allir velkomnir. Nánari upp-
lýsingar um félagsstarfið í síma 568–
3132.
Korpúlfar, Grafarvogi | Vatnsleikfimi
í Grafarvogslaug á morgun, föstudag,
kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Bingó í
dag klukkan 15.
Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 leir, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa, kl. 10 ganga og
smíði, kl. 13–16.30 leir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14 aðstoð v/
böðun, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl.
9–10 boccia, kl. 10.15–11.45 enska, kl
10.15–11.45 spænska, kl. 11.45–12.45
hádegisverður, kl. 13–14 leikfimi, kl.
13–16 kóræfing, kl. 13–16 glerbræðsla,
kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband, handmennt og hár-
greiðsla kl. 9, morgunstund og fóta-
aðgerðir kl. 9.30, boccia kl. 10, gler-
skurður og frjáls spil kl. 13.
Þórðarsveigur 3 | Bingó kl. 13.30.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrir-
bænastund kl. 12. Léttur hádegis-
verður á eftir.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 14–17,
samsöngur undir stjórn organista,
kaffi og meðlæti. TTT-starf, samvera
milli kl. 17 og 18. Ten-Sing starfið, æf-
ingar leik– og sönghópa milli kl. 17 og
20.
Biblíuskólinn við Holtaveg |
Fræðslukvöld fyrir almenning um Jó-
hannesarguðspjall kl. 20 í húsi KFUM
og K við Holtaveg. Ragnar Snær
Karlsson mun fjalla um guðspjallið en
markmiðið er að auðvelda fólki lestur
þess. Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur kl. 20 í
umsjá dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar
héraðsprests. Tekið er fyrir efnið til-
vist og trú. Athugið að þetta er síð-
asta samvera vetrarins.
Bústaðakirkja | Foreldramorgnar kl.
10–12. Þar koma foreldrar saman
með börn sín og ræða lífið og til-
veruna. Allar nánari uppl. eru á
www.kirkja.is.
Digraneskirkja | Foreldramorgnar kl.
10–12. Umsjón Anna Arnardóttir.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10 ( sjá nánar www.digra-
neskirkja.is).
Fella- og Hólakirkja | Helgistund í
Gerðubergi í umsjá presta Fella- og
Hólakirkju alla fimmtudaga kl. 10.30.
Stelpustarf 3–5. bekkur kl. 16.30–
17.30. Foreldramorgnar alla fimmtu-
daga kl. 10–12. Allir foreldrar, afar eða
ömmur sem eru heima með barn eða
börn (ekki bara ungabörn) eru vel-
komin.
Garðasókn | Kyrrða–og fyrirbæna-
stund í Vídalínskirkju kl. 22. Tekið er
við bænarefnum af prestum og
djákna. Boðið upp á kaffi í lok stund-
arinnar.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar
samverustundir, ýmiss konar fyr-
irlestrar. Alltaf heitt á könnunni, djús
og brauð fyrir börnin. Kirkjukrakkar í
Húsaskóla kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9
ára. Kirkjukrakkar í Grafarvogskirkju
kl. 17.30–18.30 fyrir 7–9 ára.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund í há-
degi alla fimmtudaga kl. 12. Orgel-
leikur, íhugun. Léttur málsverður í
safnaðarheimili eftir stundina.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6–9
ára börn á fimmtudögum kl. 16.30–
17.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Eld-
urinn kl. 21 fyrir fólk á öllum aldri. Lof-
gjörð, vitnisburðir og kröftug bæn.
Allir velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 12 kyrrðar-
stund í hádegi. Léttur málsverður á
eftir. Kl. 14 samvera eldri borgara.
Tveir ferðalangar segja frá Afríkuferð
sinni. Kaffiveitingar. Kl. 17.30 KMS-
æfing í Áskirkju og félagshúsi KFUM
& K við Holtaveg. Annað kvöld hefst
Samtals- og bænahelgi safnaðarins í
Vatnaskógi.
Njarðvíkurprestakall | Spilakvöld
aldraðra og öryrkja kl. 20 í Ytri-
Njarðvíkurkirkju í umsjá félaga úr
Lionsklúbbi Njarðvíkur, Ástríðar
Helgu Sigurðardóttur, Natalíu Chow
organista og sóknarprests.
AFTUR og aftur leita leikarar í smiðju Tsjekhovs til þess
að spinna í kringum helstu persónur hans og nota búta úr
verkum hans. Það er svo auðvelt af því að persónurnar
eru svo áhugaverðar og tímalausar en það er líka erfitt og
þess vegna spennandi. Persónur Tsjekhovs hafa margar
hliðar en eru líka svo augljósar. Svo er það andblærinn
sem hvergi er til nema hjá Tsjekhov og kannski hjá Gorki.
Þessi andvarpandi blær þar sem undirtextinn segir allt og
þar sem enginn er virkilega glaður nema skamman tíma í
senn, þar sem ást er ekki endurgoldin en allir elska af
krafti og allir eru alltaf alveg að fara en enginn fer neitt.
Þetta er náttúrlega bara brot af því sem lesa má út úr
verkum Antons Tsjekov en þennan blæ reyna þær Edda
Björg og Marta að fanga með hinum flinku og geislandi
leikurum Stúdentaleikhússins og tekst nokkuð vel upp.
Verk Tsjekhovs eru tragikómedíur af því þau fá okkur
til að hlæja að veikleikum mannanna. Mávurinn er senni-
lega þekktasta verk hans og það velur hópurinn sem mið-
punkt og persónur þess aðalpersónur þessa spunaverks.
Verkið er látið gerast í nútímanum og mjög frjálslega far-
ið með texta skáldsins. Margt er látið kyrrt en miklu bætt
við og breytt, þau nota persónur úr Þremur systrum, úr
Vanja frænda og inn læðast kunnuglegar týpur sem finna
má í flestum leikritunum. Léttur og notalegur blær ríkir á
leiksviðinu sem er gólf salarins en áhorfendur sitja á þrjá
vegu. Ástin er sterk en sjálfsblekking og værukærð per-
sónanna skilar sér vel. Og sorgin. Sorg Konstantíns og
sorg Nínu, sorg umboðsmanns og vonbiðils Arkadínu/
Írenu, leikkonunnar sjálfhverfu. Og það má hafa gaman
af þessum leik og hrífast með. Hins vegar er of mikið sagt
sem ætti aðeins að vera í undirtextanum, of mikið af
Tsjekov er hér túlkað fyrir áhorfendur. Þar sem er bland-
að saman mörgum persónum í eina hættir henni til að
verða of flókin til þess að tilfinningatengsl hennar við
aðra skili sér. Stundum skortir líka dýptina sem aðeins
fæst með því að vera trúr persónum Tsjekhovs í text-
anum.
Að þessu slepptu var gaman á sýningu Stúdentaleik-
hússins og alveg sérstaklega að fylgjast með einstökum
leikurum. Bjartur Guðmundsson var einlægur sem
Konstantín og Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýrfjörð var
yndisleg Nína sem hreif áhorfendur í gleði og sorg.
Tryggvi Gunnarsson var sannfærandi vingull sem rithöf-
undurinn Alex/Trígorín og Margrét Óskarsdóttir afar
sterk sem leikkonan fræga. Melkorka Óskarsdóttir var
dimm og sorgmædd sem Massja og Halldór Marteinsson
fyndinn og aumkunarverður sem kennarinn. Hannes Óli
Ágústsson var kómískur í hlutverki hins afslappaða,
heimspekilega og eilítið hrokafulla læknis og Ástbjörg
Rut Jónsdóttir vakti mikla samúð í hlutverki Pálínu sem
elskar lækninn sinni vonlausu ást. Hinrik Þór Svavarsson
var kröftugur í hlutverki vonbiðils og þjóns leikkonunnar
og Snorri Hergill Kristjánsson var fallega lífsþreyttur
sem bróðir hennar. Þjóninn Firs lék Gísli Rúnar Harðar-
son á þann eina veg sem með réttu er hægt að kalla
tsjekhovskan, angurvær og þögull.
Það er margt fallegt og skemmtilegt í leik Stúdenta-
leikhússins með Tsjekhov og gaman að geta litið inn í leik-
hús sem er óhrætt við tilraunir og rannsóknir.
Rússneska skáldið Anton Tsjekhov.
LEIKLIST
Stúdentaleikhúsið
Unnið upp úr verkum Antons Tsjekhovs.
Leikstjórar: Edda Björg Eyjólfsdóttir og Marta Nordal.
Sýning í Tónlistarþróunarmiðstöðinni, Hólmaslóð, 21. mars
2005.
Tilbrigði við sjófugl
Hrund Ólafsdóttir