Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 45 MENNING M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 0 3 . 0 5 VESTUR-ÍSLENDINGAR eru í sviðsljós- inu í Reykjavík um þessar mundir, í Borgarleikhúsinu er verið að sýna Híbýli vindanna, í Þjóðminjasafninu er ljósmynda- sýning úr Vesturheimi og í gallerí Skugga sýna þær Anna Jóa og Ólöf Oddgeirsdóttir listaverk sem fjalla um Vestur-Íslendinga í Manitóba og Norður-Dakóta en á þær slóðir ferðuðust listakonurnar sumarið 2002. Sýn- ing þeirra nefnist Mæramerking II, en áður sýndu þær muni tengda sama efni á sam- sýningu í Mosfellsbæ. Hér er það hins veg- ar myndband sem er í aðalhlutverki, tvö myndbönd reyndar, sem sýnd eru hlið við hlið á vegg. Auk þess eru á staðnum hlutir, minjagripir o.fl. og ljósmyndaalbúm. Mynd- böndin eru þó fyrirferðarmest og sýna ann- ars vegar daglegt umhverfi, en hins vegar er fókusinn á hlutum og listaverkum sem tengjast uppruna Vestur-Íslendinganna. Anna Jóa og Ólöf bregða sér þarna í hlut- verk mannfræðingsins eins og bandaríski hugmyndalistamaðurinn Joseph Kosuth mælti mjög með á áttunda áratug síðustu aldar. Átti þá listamaðurinn að starfa líkt og mannfræðingur í eigin samfélagi en þessi kenning hefur haft mikil áhrif á starf fjölda listamanna sem skoða samfélagið og birta niðurstöður sínar í listrænu formi. Listamenn af þessum toga hér á landi væru til að mynda Ósk Vilhjálmsdóttir og Þor- valdur Þorsteinsson þó að hvorugt þeirra leitaðist við að myndskreyta kenningar Kosuth í verkum sínum. Það gera Anna Jóa og Ólöf ekki heldur, þær leyfa fyrst og fremst myndefninu að tala sjálfu og láta áhorfandanum það eftir að mynda sér skoð- un á því sem fyrir augu ber. Ekki er margt sem kemur á óvart við skoðun myndefnis eða muna á sýningunni, maður á ekki von á öðru en að Vestur-Íslendingar reyni að halda tengslum við eða jafnvel skapa ný tengsl við uppruna sinn. Það er þess vegna áhugaverðara að skoða þessa sýningu sem dæmi um víðtækara fyrirbæri, hinn brott- flutta einstakling og samfélag brottfluttra, en slík samfélög eru jú svo ótalmörg í dag, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Julia Kristeva hefur skrifað áhugaverð bók um þetta efni sem nefnist á frummálinu Etr- angers á nous-memes, eða eitthvað á borð við Hinn framandi í okkur sjálfum. Julia Kristeva var sjálf aðflutt í Frakklandi en skrifaði bækur sínar á frönsku. Málefnið þekkir hún því af eigin raun og skrifar af mikilli innlifun um efni á borð við heimþrá, að læra nýtt tungumál, viðhorf innfæddra til hins aðflutta, flest sem lýtur að því að skapa sér nýjan heim í ókunnu landi. Það eru iðulega ljúfsárar tilfinningar sem fylgja umfjöllun um þetta efni, og sýning þeirra Önnu Jóa og Ólafar nær m.a. að fanga þær tilfinningar. Þær nálgast efnið af mikilli virðingu og án sleggjudóma, leyfa hinu smáa og persónulega að lifa án þess að ganga of nærri fólki. Þær nýta sér tungu- mál myndlistarinnar til þess að leyfa myndefninu að tala en auk þess skrifar Anna Jóa mjög greinargóðan pistil um ferðina í bæklingi með sýningunni. Mynd- efnið lifir þó alveg án lesefnis, því skír- skotanir þess eru almenns eðlis og auð- skiljanlegar. Það er hins vegar álitamál hvort að persónulegri útfærsla af hálfu listakvennanna sjálfra hefði ef til vill skilað sýningu sem veitti sterkari listræna upp- lifun, reynsla áhorfandans hér markast helst af því að móttaka upplýsingar og lifa sig inn í sammannlegar aðstæður, nokkuð sem einnig gerist t.d. við lestur blaðagrein- ar eða ritgerðar í félagsfræði, nema áhorf- andinn hér tekur á móti efninu í myndrænu formi. Leiði maður slíkar vangaveltur hjá sér stendur áhugaverð og upplýsandi sýn- ing eftir, sem er mjög þess virði að heim- sækja. Heim, heim Áhugaverð og upplýsandi sýning. MYNDLIST Gallerí Skuggi Til 3. apríl. Sýningin er opin fimmtudaga til sunnu- daga frá kl. 13–17. Mæramerking II, blönduð tækni, Anna Jóa og Ólöf Oddgeirsdóttir Ragna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.