Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 47

Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 47 HLJÓMSVEITINA Vinyl þarf vart að kynna fyrir þeim er fylgst hafa með hinni íslensku tónlistarflóru síð- ustu árin, en sú ágæta hljómsveit hefur einmitt verið þar einn af helstu vaxtarbroddunum. Hljómsveitin var stofnuð árið 1997 og hefur á þeim tíma gengið í gegnum ýmis tímabil, en frá upphafi hafa bræðurnir Guð- laugur og Kristinn Júníussynir verið aðaldriffjaðrir sveitarinnar. Í núver- andi mynd hefur hún starfað um all- nokkurt skeið, og fyrsta afurð þess samstarfs leit dagsins ljós síðastlið- inn vetur er hin firnasterka fjögurra laga smáskífan EP kom út, og gaf hún fögur fyrirheit um það sem koma skyldi. Það sem koma skyldi er platan sem hér um ræðir, breið- skífan LP. Það verður að segjast að plata þessi bætir ekki miklu við það sem EP skilaði. Öll fjögur lög EP er að finna á þessari plötu, sem er mið- ur, því öll hafa þau fengið að hljóma vel og lengi og EP raunar öðlast sjálfstætt líf sem miklu meira en smáskífa. Skemmtilegra hefði verið að fá að heyra meira af nýju efni, enda greinilegt að hér fara menn sem hafa alla burði til að búa til al- vörurokk. Lögin „Miss Iceland“, „Nobody’s fool“, „Le Ballad“ og „Who get’s the Blame“ standa hér fyllilega fyrir sínu líkt og þau gerðu á EP, en besta lag plötunnar er þó tví- mælalaust hið afar kraftmikla „Dev- ils old hole“, með glæsilegum hljóm- borðsleik Þórhalls. Hljómborðið spilar einmitt stóra rullu í lögum þessarar plötu og er það í flestum til- vikum smekklega gert og eykur á þéttleika tónlistarinnar, en er þó kannski eilítið á kostnað gítarsins sem gjarnan mætti heyrast aðeins meira í. Hljóðfæraleikur er annars að mestu með ágætum, bassaleikurinn er þó heldur veiklulegur fyrir tónlist sem þessa og því verður grunnurinn ekki eins massífur og hann gæti ver- ið. Yfir fléttast svo kraftmikill söng- ur Kristins, sem hefur einkar góða rokkrödd en verður samt á köflum svolítið tilgerðarlegur. Í heildina séð er þetta hin þokka- legasta plata, þó að hún standi ekki undir þeim væntingum sem EP kveikti. Hér er á ferðinni rokk, und- ir talsverðum áhrifum – í jákvæðum skilningi orðsins – frá tónlist 9. ára- tugarins, borið fram af mönnum sem greinilega hafa gaman af því sem þeir eru að gera. Hér er þó fátt sem ekki hefur heyrst áður, sem þarf alls ekki að vera slæmt ef með fylgir smáhluti af tónlistarmönn- unum. Sú er því miður ekki raunin hér, því talsvert skortir upp á kar- akterinn. Þetta gæti því sem næst verið hvaða hljómsveit sem er, hvað- an úr heiminum sem er, svo sér- kennalítil er tónlistin í raun. Það breytir þó ekki því að hér er um að ræða kraftmikið rokk í áferðar- fallegri og snyrtilegri vínylklæðn- ingu. TÓNLIST Íslenskar plötur Hljómsveitin Vinyl hefur sent frá sér plöt- una LP. Hljómsveitina skipa þeir Kristinn Júníusson (söngur), Egill Tómasson (gít- ar), Arnar Davíðsson (bassi), Þórhallur Bergmann (hljómborð) og Guðlaugur Júníusson (trommur). Upptökustjórn: Vinyl, Silli Geirdal og Sölvi B. Útgefandi: btb ehf. Vinyl – LP  Áferðarfalleg vínylklæðning Grétar Mar Hreggviðsson HIN alþjóðlega skemmtisýning sem frumsýnd var í Borgarleikhúsinu á miðvikudaginn fyrir páska er að mörgu leyti kærkominn glaðningur. Fyrir það fyrsta þá gerist það alltof sjaldan að sjónhverfingamenn sýni listir sínar við fullkomnar aðstæður hér á landi. Í annan stað þá eru slíkar skemmtisýningar sem höfða til allrar fjölskyldunnar ennþá fátíðari og í þriðja stað þá er hér um að ræða heillandi gamaldags skemmtun sem mikið hefur verið lagt í. Metnaður er ætíð af hinu góða en hér hefur miklu verið tjaldað til til að gera sýninguna sem best úr garði. Öll umgjörð, sviðsmyndin, búningar o.fl. bera þess glögg merki. Eflaust hafa margir átt erfitt með að ímynda sér hvernig sýning er hér á ferð, enda fátíður viðburður hér á landi, eins og áður segir. Má reyndar leiða að því líkum – með þeim fyrir- vara reyndar að sá er þetta ritar hef- ur því miður ekki nægilega yfirgrips- mikla þekkingu á sambærilegum erlendum sjónhverfingasýningum – að hún sé býsna sérstök uppbygg- ingin á þessari sýningu. Eflaust hafa sumir – og undirritaður þar á meðal – búist við fleiri og svakalegri sjón- hverfingum, einhverju í ætt við það sem maður hefur verið að sjá á því sviði í sjónvarpsþáttum, með gaurum eins og Derren Brown, David Blane, Penn og Teller og hvað þeir nú heita. En við nánari íhugun þá áttar maður sig á því að sá var aldrei tilgang- urinn, heldur sá að kynna verk og brautryðjendastarf Harry Houdinis á sviði sjónhverfinga og aflrauna hugans. Það er líka ágætlega vel til fundið að tvinna sjónhverfinga- skemmtun saman við stutt ágrip á sögu frægasta sjónhverfingamanns sögunnar. Í raun mætti orða það þannig að hér séu á ferð sýnishorn af helstu og sögufrægustu sjónhverf- ingum Houdinis, endursköpuð með tilheyrandi ýktum töktum hinna lit- ríku sjónhverfingamanna Dean Gunnarssonar og Ayala. Ómögulegt að koma auga á það hvar þeir Dean og Ayala standa að vígi gagnvart öðr- um sjónhverfingamönnum samtím- ans en þeir komust ágætlega frá sínu, héldu athygli manns – einkum þó yngri áhorfenda – með nettum stælum og nokkru vel útfærðum og illútskýranlegum sjónhverfingum sem Houdini kynnti fyrstur til sög- unnar. Þá standa aðrir sig einnig með prýði, einkum trúðarnir Olga og Marcel (Abi Collins og David Cass- el), sem fóru á kostum í fyrsta atrið- inu eftir hlé, sýndu fimi sína og fengu að launum hávær hlátrasköll úr saln- um. Þá er ónefndur sjálfur sýningar- stjórinn, sögumaður og furðufyrir- bæri, glæsilega leikinn af Ólafi Darra Ólafssyni. Maðurinn, eins íturvaxinn, ógnvekjandi en bangsalegur, fyndinn en brjóstumkennanlegur allt í senn er sniðinn í hlutverkið og heldur sýn- ingunni uppi á köflum, gerir hana annað og meira en óbreytta skemmt- un með töfrabrögðum, trúðum og til- heyrandi. Sem heildstæð leiksýning þá er hún reyndar svolítið brokkgeng, missir á stundum taktinn, að hluta vegna glufa í fremur losaralegu handriti. En slíkt má væntanlega lagfæra með fleiri rennslum. Þetta er kannski ekki rétta sýn- ingin fyrir þá sem fýsir helst að sjá röð af sláandi sjónhverfingum og öðrum óútskýranlegum kraftaverk- um, þeir ættu kannski að kynna sér sýninguna betur áður en þeir láta til skarar skríða. En aðrir, fjölskyldur sem langar með börnin á öðruvísi skemmtun, og þeir sem áhugasamir eru um sögu sjónhverfinga og þá einkum meistara þeirra, Houdini, ættu að fá heilmikið fyrir sinn snúð en eftir því sem næst verður komist þá verður aukasýning á föstudaginn. Þið munið hann Houdini LEIKLIST Borgarleikhúsið Sjónhverfinga- og skemmtisýningin The Return of Houdini. Leikstjóri Wayne Harrison. Aðalhlutverk Ólafur Darri Ólafs- son, Ayala, Dean Gunnarsson, David Cassel, Abi Collins. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson. Búningar Filippía Elísdóttir. Leikmynd Stígur Steinþórsson. Lýsing Joachim Barth. The Return of Houdini Dean Gunnarsson framkvæmir eitt af erfiðustu brögðum Houdinis.Skarphéðinn Guðmundsson Sýnd kl. 4 Ísl. tal. ATH! verð kr. 500. Nýr og betriHverfisgötu ☎ 551 9000 553 2075 - BARA LÚXUS   ☎ Sýnd kl. 8 og 10.10 S.V. MBL. SIDEWAYS Þ.Þ. FBl J.H.H. kvikmyndir.com  SV mbl Will Smith er Yfir 22.000 gestir! Sýnd kl. 5.30 ,8 og 10.30 Sýnd kl. 10.15 Síðasta sýning  S.V. Mbl.  K&F X-FM ÓÖH DV Sýnd kl. 4 m. íslensku tali 400 kr. í bíó!*  Kvikmyndir.is. HÆTTULEGASTA GAMANMYND ÁRSINS I R E E S E W I T H E R S P O O N Stjarnan úr Legally Blonde og Sweet Home Alabama í yndislegri mynd. VANITY THE SUMPTUOUS NEW FILM FROM MIRA NAIR  S.V. MBL ÓÖH DV Kl. 6 og 10 með ensku tali Kl. 4 og 6 með íslensku tali  K&F X-FM Sýnd kl. 5.45 8 og 10.30   Frábær grínmynd fyrir alla fjölskylduna r r rí f rir l fj lsk l    S.V. MBL.  K&F X-FM Hann trúir ekki að vinur hennar sé til þar til fólk byrjar að deyja! CLOSER Sýnd kl. 8 B.i. 14 ára. Síðasta sýningSýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 B.i. 16 ára. Frábær grínmynd fyrir alla fjölskyldunar r rí f rir ll fj l l Eileen Atkins, Jim Broadbent, Gabriel Byrne, Romola Garai, Bob Hoskins, Rhys Ifans, James Purefoy, Jonathan Rhys Meyers    Ó.H.T Rás 2  Ó.H.T Rás 2   FRAMHALDIÐ AF GET SHORTY 400 kr. í bíó!* * Gildir á allar sýningarmerktar með rauðu Sýnd kl. 6 m.ísl. taliSýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára.  ÓÖH DV    SK DV

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.