Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Besta mynd ársins
Besti Leikstjóri - Clint Eastwood
Besta Leikkona - Hillary Swank
Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman
Kvikmyndir.isDV
H.J. Mbl.
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Bráðfyndin gamanmynd frá Wes
Anderson, framleiðenda Royal
Tenenbaums með Bill Murray, Owen
Wilson, Cate Blanchett og Anjelicu
Huston í aðalhlutverkum.
i
, l i l
ill ,
il , l j li
í l l .
Mrs. Congeniality 2 kl. 5.40 - 8 -10.20
Life Aquatic kl.5.30 - 8 - 10.30 b.i. 12
Phantom of the Opera kl.5.30 - 8 b.i. 10
Les Choristes (Kórinn) kl. 6 og 8
Million Dollar Baby (4 Óskarsv.) kl. 5.30 - 8 -10.30 b.i. 14
The Aviator (5 Óskarsv.) kl.10 b.i. 12
Ray (2 Óskarsv.) kl.10,30 b.i. 12
in a new comedy by
Wes ANDERSON
Hrin
hefu
hám
H
Brjál
DV
HJ. MBL
Sandra Bullock mætt aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin af spennu og gríni!
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
Sandra Bullock mætt
aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin
af spennu og gríni!
K&
SEGJA má að Vertu svalur (Be Cool)
sé að mörgu leyti ósvöl kvikmynd.
Fyrst ber að nefna þá staðreynd að
það er alls ekki svalt að vera tíma-
skekkja, en framhaldsmynd sem
kemur tíu árum á eftir forveranum
getur sannarlega talist sein á ferð-
inni. Þá vill Vertu svalur fremur líkj-
ast raunverulega svölum myndum
eins og Pulp Fiction (Reyfari) en
sjálfum forveranum, þ.e.
Get Shorty (Náum þeim stutta)
sem var ágæt afþreying, en alls ekki
svöl.
Og það að myndin reyni svo ber-
sýnilega að líkjast gömlum svölum
myndum er hreint ekki svo svalt.
John Travolta er að venju eins og
klipptur út úr tískutímariti, stíl-
hreinn og yfirvegaður, en end-
urtekur sig að sama skapi í hlutverki
aðalsöguhetjunnar Chili Palmer.
Engu að síður er nærvera Travolta í
myndinni það helsta sem hún hefur
upp á að bjóða. Heilmikil ánægja
felst nefnilega í því að sjá Travolta
gera það sem Travolta gerir best,
þ.e. að vera Travolta, og dansa. En
ástæður þess að hann gerir nokkurn
skapaðan hlut í myndinni eru í raun
helsta ráðgátan þar sem orsaka-
samhengi og skiljanlegt hegð-
unarmynstur persóna er víðsfjarri,
einkum þegar að Palmer kemur.
Þegar myndin hefst lifir hann ljúfa
lífinu, hefur náð velgengni sem kvik-
myndaframleiðandi í Hollywood en
langar nú til að verða tónlistarfram-
leiðandi. Gullið tækifæri býðst þegar
gamall vinur og tónlistarmógúll, leik-
inn af James Woods er myrtur og
Palmer virðist hljóta bæði tónlistar-
fyrirtækið og eiginkonu mógúlsins,
sem er leikin af Umu Thurman, í arf.
Hlutirnir eru reyndar sjaldnast ein-
faldir í skáldsögum Elmore Leonard en
báðar myndirnar um Chili eru aðlag-
anir á skáldsögum hans. Leonard leik-
ur sér að því að útbúa þvælda sögu-
þræði með alltof mörgum persónum
sem alltaf ganga upp. Í kvikmyndinni
er söguþráðurinn hins vegar bara
þvældur og persónurnar alltof margar.
Söguþráðurinn, með öðrum orðum,
reynist kvikmyndinni ofviða.
Vertu svalur gerir (að eigin skip-
an) það sem hún getur til að vera svöl
kvikmynd, handritið er uppfullt af
vísunum í Hollywood samtímans og
ástand afþreyingariðnaðarins, Trav-
olta leikur Travolta (og dansar), og
hvert einasta aukahlutverk er vermt
af heimsfrægum leikara. Allt kemur
þó fyrir ekki, myndin er eins konar
Geirfugl, maður gerir ráð fyrir að
fyribærið geti flogið en svo reynist
ekki, samsetningin er of klunnaleg
og ólöguleg til að geta uppfyllt lág-
markskröfur sem gerðar eru til
formsins. Og sú staðreynd að leik-
araliðið er í megindráttum það sama
og í Pulp Fiction eftir Quentin Tar-
antino, dregur aðeins fram takmark-
anirnar myndarinnar. Það er ekki
nóg að skipa leikurum niður og skipa
þeim að vera svalir. Gott handrit er
nauðsynlegt og leikstjóri sem veit
hvað hann er að gera, þ.e. ber skyn-
bragð á talað mál, húmor, og hvernig
stjörnum er best beitt, er sömuleiðis
ákjósanlegur. Í þessu tilviki skortir
hvort tveggja. Myndin er vonbrigði
fyrir þá sem kunnu að meta fyrri
myndina, og þá er mikið sagt.
Ófleyg tímaskekkja
KVIKMYNDIR
Be Cool / Vertu svalur
Leikstjórn: F. Gary Gray. Aðalhlutverk:
John Travolta, Uma Thurman, Vince
Vaughn, Harvey Keitel, Christina Milian.
118 mín. Bandaríkin, 2005.
Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó
Heiða Jóhannsdóttir
TILKYNNT hefur verið að þema-
myndir Alþjóðlegu íslensku kvik-
myndahátíðarinnar (Iceland Int-
ernational Film Festival) verði
myndir frá Troma Entertainment,
sem telst vera elsta starfandi óháða
kvikmyndaver heimsins. Það hefur
starfað í tæpa þrjá áratugi og sent
frá sér myndir sem þekktar eru fyrir
að vera hlaðnar ofbeldi, kynlífi, nekt,
ljótu orðbragði og sjúklegri kímni-
gáfu.
Hátíðin hefst á fimmtudaginn í
næstu viku og sýndar verða sex
Troma-myndir, en eftirtaldar fimm
fara í þema-flokkinn:
Citizen Toxie – The Toxic Aven-
ger IV, eftir Lloyd Kaufman (2000).
Terror Firmer, eftir Lloyd Kauf-
man (1999).
Tromeo & Juliet, eftir Lloyd
Kaufman (1996).
Cannibal! The Musical, eftir Trey
Parker (1996).
The Toxic Avenger, eftir Lloyd
Kaufman og Micael Herz (1985).
Að auki verður sýnd splunkuný
mynd frá Troma, en hún verður í
miðnæturflokki. Hún heitir Trailer
Town og er eftir leikarann góðkunna
Giuseppe Andrews (Independence
Day, Cabin Fever) og að sögn að-
standenda hátíðarinnar er hún alls
ekki fyrir viðkvæma.
Í tengslum við þetta kemur stofn-
andi og forsprakki Troma, Lloyd
Kaufman, til landsins og verður
gestur hátíðarinnar 8.–10. apríl.
Verða „Spurt og svarað“ sérsýn-
ingar í Regnboganum á myndum
hans fyrstu helgi hátíðarinnar þar
sem hann kynnir myndir sínar og
svarar spurningum áhorfenda eftir
sýningarnar.
Kaufman stofnaði Troma á átt-
unda áratugnum ásamt Michael
Herz og var yfirlýst markmið þeirra
félaga með stofnuninni að koma á
heimsfriði í gegnum myndir sínar.
Vinnubrögð við Troma-myndir eru
einstök, allt er gert eins hratt og
ódýrt og hægt er, og hefur Kaufman
talað opinberlega gegn hug-
myndafræði Hollywoodmynda, segir
fjárausturinn, sem þar er ástund-
aður, eyðileggja fyrir hinni sönnu
sköpun.
Kaufman fer héðan beint til Prag
til að koma fram í feluhlutverki í nýj-
ustu mynd Eli Roth, Hostel. Eli er
mikill Íslandsvinur og aðalsöguper-
sónan í nýju myndinni er íslensk,
leikin af Eyþóri Guðjónssyni.
Kvikmyndir | Sex Troma-myndir á Alþjóðlegu íslensku
kvikmyndahátíðinni
Elsta óháða
kvikmyndaver heims
Lloyd Kaufman við tökur á mynd sinni Citizen Toxie.
!
"#
$ &'
'
('
)'
*'
+'
,'
-'
.'
&/'
! " #$
VÉLMENNIN héldu fyrsta sætinu á íslenska kvik-
myndalistanum þessa vikuna, með rúmlega 4.000 gesti,
en myndin var frumsýnd á fimmtudaginn fyrir tveimur
vikum. „Stóru“ myndirnar tvær sem frumsýndar voru
um þessa helgi, Be Cool og Miss Congeniality 2, náðu
ekki að velgja Vélmennunum undir uggum, en náðu þó
ágætis árangri og voru nokkuð jafnar í öðru og þriðja
sæti listans.
Christof Wehmeier hjá Samfilm, sem dreifir Miss
Congeniality 2, er ánægður með viðtökur myndarinnar
hér á landi. „Sandra Bullock á sér trygga aðdáendur og
það er langt síðan að við höfum séð til hennar síðast því
hún lék á móti Hugh Grant í Two Weeks Notice fyrir
tveimur árum. Fólk hefur því tekið vel á móti Miss
Congeniality 2 og um 2.400 manns sáu hana í bíó um
páskahelgina, en alls hafa um 6.500 manns séð hana nú,“
segir hann.
Guðmundur Breiðfjörð hjá Senu, sem sér um dreif-
ingu á Be Cool og Vélmennum, er ekki síður ánægður
með velgengni þeirra mynda. „Be Cool, framhaldið af
Get Shorty, fékk fínar viðtökur bíógesta um helgina. Yfir
löngu páskahelgina sáu tæplega 4.000 manns myndina
en hún var frumsýnd miðvikudaginn fyrir páska. Þess
má geta að Be Cool fékk fleiri opnunargesti en Get
Shorty gerði í mars 1996 með rúmlega 2.200 manna að-
sókn.“
Kvikmyndir | Sama mynd á toppi íslenska bíólistans og í síðustu viku
Vélmennin eru vinsæl hér á landi um þessar mundir.
Vélmennin enn við völd