Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 52

Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Opið 8-24 alla daga í Lágmúla og Smáratorgi ÍSLANDSBANKI hefur gengið frá lánssamningi til stærsta AquaChile-fyrirtækisins í laxeldi í Chile, AquaChile í samvinnu við þarlendan banka. Um er að ræða fjármögnun á veltufjármunum fyrirtæk- isins. Heildarupphæð lánsins er 1,5 milljarður króna og lánar Íslandsbanki meirihluta þeirrar upphæðar, eða um 900 milljónir króna. „Mikil ánægja er hjá Íslandsbanka með sam- starfið við AquaChile, sem er eitt af leiðandi fyr- irtækjum í laxeldi í heiminum og það fyrirtæki sem aðrir framleiðendur bera sig saman við í Chile, seg- ir Jón Garðar Guðmundsson, viðskiptastjóri í Al- þjóðlegu sjávarútvegsteymi Íslandsbanka. Stærst í Chile AquaChile er annað stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi og það stærsta í Chile. Fyrirtækið er einnig þekkt fyrir góðan rekstur og hafa stjórnendur fé- lagsins lengi verið í framvarðasveit laxeldissam- taka Chilemanna. Velta AquaChile árið 2004 var 250 milljónir dollara og áætluð velta árið 2005 er 270 milljónir dollara. Markaðshlutdeild fyrirtæk- isins í framleiðslu á laxfiski í Chile er um 13%. /12 Íslandsbanki lánar 900 millj- ónir til Chile EIGINNAFNIÐ Blær er samkvæmt þremur úrskurðum mannanafnanefndar karlmanns- nafn og því má ekki gefa stúlkum það. Blær Guðmundsdóttir hefur þó borið nafnið í 30 ár og kveðst ánægð með það, en hún er eina konan með þessu nafni á landinu. Fjórir drengir hafa Blær sem eig- innafn, en nafnið er algeng- ara sem millinafn hjá karl- mönnum. Að sögn Blævar hefur hún aldrei lent í vandræðum með nafnið. María H. Þorsteinsdóttir, móðir Blævar, segir tillöguna að nafninu komna frá Halldóri Kiljan Laxness rithöf- undi, en María vann á þessum tíma í Mosfells- sveit. Halldór hafi stungið upp á nafninu Blær en það er heiti á sögupersónu í Brekkukots- annál. „Halldór Kiljan sagðist alltaf halda að þetta nafn ætti bara við sérstaka tegund af stúlku og ég sagðist halda að dóttir mín væri þannig,“ segir María. /4 Ber ein nafnið Blær ÞAÐ hefur löngum verið iðja ungviðisins að gefa öndunum á Tjörninni brauð. Veturnir eru þó harðir fuglunum og þá má gjarnan sjá starfsmenn borgarinnar gefa fuglunum þegar minna er um æti. Andrés Bragason, matreiðslumaður í Iðnó, var að gefa önd- unum brauð þegar ljósmyndari átti þar leið um. Andrés segist ávallt baka aukaskammt fyrir fuglana samhliða öðrum bakstri í Iðnó. Morgunblaðið/ÞÖK Andrés gaf öndunum brauð VIÐHORF íslenskra unglinga í efstu bekkjum grunnskóla til ný- búa eru mun neikvæðari en fyrir nokkrum árum ef marka má nýja rannsókn sem unnin var fyrir Rauða kross Íslands. Um 41% svarenda telur of marga nýbúa vera á Íslandi og telja 27% að nýbúar hafi ekki jákvæð áhrif á samfélagið. Stúlkur eru almennt jákvæðari en piltar gagnvart nýbúum. Ómar H. Kristmundsson, for- maður Reykjavíkurdeildar RKÍ, segir áhyggjuefni hversu ört við- horfin hafa breyst. Sigrún Árna- dóttir, framkvæmdastjóri RKÍ, segir niðurstöðurnar sýna að efla þurfi enn fræðslu og forvarnir bæði í leikskólum og grunnskól- um í því skyni að auka umburð- arlyndi og draga úr fordómum. Í rannsókninni kom einnig fram að fylgni var milli umburð- arlyndis unglinga og menntunar- stigs foreldra og jákvæðra við- horfa unglinganna til náms. Ungt fólk sem Morgunblaðið tók tali segir fordóma ekki síst beinast að fólki sem nýkomið er til landsins, en í minna mæli að þeim sem hafa náð að aðlagast og læra tungumálið. Meiri einangrun fólks af erlendum uppruna leiði þannig af sér aukna fordóma. Spurning um aðlögunartíma „Það er samt tímaspursmál hvenær Íslendingar verða tilbún- ir og fordómarnir minnka,“ segir Kjartan Pétursson, einn af við- mælendum blaðsins. „Þetta lagast þegar krakkarnir eru búnir að alast upp hér og aðlagast sam- félaginu. Þetta er bara spurning um aðlögunartíma bæði innflytj- enda og Íslendinga. Þeir sem flytja hingað þurfa að aðlagast skráðum og óskráðum reglum um það sem er gott og rétt í samfélag- inu. Auðvitað verða menn að að- lagast aðstæðum. Maður verður að gefa af sér til að geta tekið út.“ Grunnskólanemarnir Guðrún Erna Leví og Guðrún Erla Bjarnadóttir segja rangt að for- dæma fólk vegna litarháttar og segja fólk verða að takast á við fordóma sína. Unglingar neikvæðari í garð nýbúa en áður Eftir Jóhannes Tómasson og Svavar Knút Kristinsson  Meira um/6 ÖKUMAÐUR vinnuvélar í Ós- hlíð, milli Bolungarvíkur og Ísa- fjarðar, slapp á ótrúlegan hátt í geysilegu grjóthruni sem eyði- lagði þungavinnuvél hans síðdeg- is í gær. Sigurgeir Jóhannsson vinnuvélastjóri var að hreinsa rásir á Óshlíðinni þegar grjót- hrunið hófst og voru þar engir smásteinar á ferð og atburða- rásin var mjög hröð. „Við vorum langt komnir með að moka rásina þegar grjóthrunið hófst,“ sagði hann. „Fyrsti steinninn var 3–5 tonn að þyngd og lenti inni í miðri vélinni og gerði hana óökuhæfa. Annar steinninn var álíka stór og lenti framan á vélinni og sprengdi hjólbarðann. Þá varð mér litið upp og sá gríðarlegt bjarg steypast niður. Það stefndi beint á húsið á vélinni og ég hélt að þetta væri mitt síðasta. En þá beygir steinninn frá og lendir beint ofan á moksturstækjunum og brýtur vélina. Þetta var gríð- arlegt högg, enda steinninn um 8–10 tonna þungur.“ Sigurgeir segir að hefði steinninn ekki breytt um stefnu hefði hann eflaust lent undir honum þar sem hann gat ekki fært sig um set. „Fyrsta hugs- unin var sú að reyna opna dyrn- ar upp í hlíðina en ég sá að það var ekki möguleiki. Þá ætlaði ég að reyna opna glugga en tókst það ekki.“ Eins og rússnesk rúlletta Sigurgeir marðist á fótum og skrámaðist en slapp við alvar- legri meiðsli. Sem von er var honum nokkuð brugðið en segir áfallið þó kannski meira fyrir vegavinnuverkstjórann Guð- mund Björgvinsson sem horfði á atganginn og reyndi að vekja at- hygli Sigurgeirs á hættunni. „Óshlíðin er eins og rússnesk rúlletta og oft hefur staðið tæpt þar. Það er gríðarlegt álag á yf- irmönnum Vegagerðarinnar vegna alls þess þrýstings sem er á þeim um að halda Óshlíðinni opinni við mismunandi að- stæður.“ Vinnuvélastjóri slapp naumlega í miklu grjóthruni í Óshlíð „Hélt að þetta væri mitt síðasta“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Vinnuvél Sigurgeirs skemmdist mikið, eins og glöggt sjá má. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is SÍF hf. hefur selt 55% hlut í dótturfélagi sínu, Ice- land Seafood International ehf., sem stofnað var í nóvember í fyrra um hefðbundið sölu- og markaðs- starf félagsins með sjávarafurðir. Kaupandi hlut- arins er fjárfestingafélagið Feldir ehf. Jafnframt hefur SÍF selt allan eignarhlut sinn í Trosi ehf. í Sandgerði sem hefur sérhæft sig í út- flutningi á ferskum sjávarafurðum og verður Tros dótturfélag Iceland Seafood International. Feldir ehf. er í eigu Mundils ehf. (í eigu Samskipa), Bene- dikts Sveinssonar, Kristjáns Þ. Davíðssonar, Bjarna Benediktssonar og Hjörleifs Jakobssonar. Samhliða þessum kaupum hafa tekist samningar milli nýrra eigenda og eigenda fiskútflutningsfyr- irtækisins B. Benediktssonar ehf. um sameiningu félaganna undir nafni Iceland Seafood Inter- national. Eftir breytingarnar verður Iceland Sea- food International með veltu upp á liðlega 30 millj- arða íslenskra króna. /B4 SÍF selur Iceland Seafood International

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.