Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.04.2005, Blaðsíða 8
8 B FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ  V axtarmöguleikar Senu liggja helst í því að stækka heildarkökuna á afþreying- armarkaðinum, að sögn Björns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra fyr- irtækisins. Hann segir að Sena hafi nú þegar stóra markaðshlutdeild hér á landi á öllum þeim sviðum sem fyrirtækið starfar á. Því sé meðal annars verið að huga að útrás á erlenda markaði. „Við erum að skoða þá möguleika sem við höfum á erlendum mörkuðum, aðallega á Norðurlöndum og annars staðar í Evrópu,“ segir Björn. „Við tökum þessi skref eitt í einu og förum okkur hægt. Þetta á við um flest það sem við erum að fást við en þó með áherslu á tónlist og kvikmyndir. Við höfum til að mynda verið að kanna þann möguleika að opna kvikmyndahús í öðrum löndum. Við höf- um einnig verið að vinna að því að koma ís- lenskum hljómsveitum á framfæri erlendis í samstarfi við ýmis erlend fyrirtæki sem við störfum með. Áhuginn fyrir Íslandi er mikill og við ætl- um okkur að nýta það brautryðjendastarf sem unnið hefur verið af ýmsum á þessu sviði. Við gerum okkur hins vegar fyllilega grein fyrir því að það útheimtir gríðarlega mikinn dugnað og mikla peninga að fylgja þessu eftir alla leið. Þröskuldarnir eru marg- ir. Þess vegna tökum við eitt skref í einu.“ Björn segir að auk fyrirhugaðrar útrásar Senu hyggist fyrirtækið einnig ráðast í frek- ari uppbyggingu hér á landi. „Við höfum ver- ið í viðræðum við þrjá aðila um byggingu á nýju kvikmyndahúsi á höfuðborgarsvæðinu. Ég get ekki á þessu stigi sagt hvar það mun rísa, en það verður í anda Smárabíós, sem hefur frá opnun verið vinsælasta bíó landsins. Við teljum að það sé þörf fyrir annað bíó í líkingu við það. Kvikmyndahúsin hafa verið að breytast með nýrri tækni og betri hús koma í stað þeirra sem eldri eru. Þetta er því bara þróunin.“ Afþreying í víðri merkingu Björn hóf störf hjá Skífunni á árinu 1988 og hefur starfað samfellt hjá fyrirtækinu frá árinu 1995. Hjá Senu starfa nú um 25 manns, en þar fyrir utan eru um 100 starfsmenn hjá kvikmyndahúsum fyrirtækisins, aðallega lausráðið starfsfólk. „Sena nær yfir tónlist, bæði innflutning á erlendri tónlist og útgáfu á innlendri tónlist. Innflutningur á tölvuleikjum og umboð fyrir PlayStation-tölvuna heyrir einnig undir Senu. Síðan eru það kvikmyndirnar, þ.e. kvik- myndadreifing, rekstur bíóhúsanna Smára- bíós, Regnbogans og Borgarbíós á Akureyri sem við rekum í samstarfi við Myndform, og dreifing á kvikmyndum á myndbandaleigur, sölumyndir og sala í sjónvarp. Þá höfum við hjá Senu nýlega tekið við umboðum fyrir Sony og Panasonic sjónvarpstæki, DVD- spilara og annað þess háttar. Sena er því dreifingaraðili á afþreyingarefni í sinni víð- ustu merkingu.“ Aldrei meiri innlend útgáfa Fyrir um það bil tveimur til þremur árum byrjaði sala á erlendri tónlist að minnka nokkuð hér á landi, væntanlega að stærstum hluta fyrir tilstuðlan Netsins. Segir Björn að svo virðist sem botninum í þessum efnum sé náð því salan sé aftur farin að glæðast. Það ánægjulega sé þó það að samdrátturinn í plötusölu á umliðnum árum hafi verið veginn upp með aukinni sölu á innlendri tónlist. „Og við ætlum að auka söluna á íslenskri tónlist enn meir því við munum gefa út meira á þessu ári en nokkru sinn fyrr, eða hátt í 60 titla. Eitt af því sem er ánægjulegt við útgáfuna í ár er hvað hún dreifist vel yfir ár- ið, en um þriðjungur af þeim geisladiskum sem við gefum út verður kominn í verslanir fyrir haustið, sem er óvenju hátt hlutfall. Tónlistarárið í ár verður mjög fjölbreytt. Bubbi verður með plötu í júní, en í ár eru 25 ár liðin frá því hann steig fyrst fram með Ís- bjarnarblúsinn. Þá má nefna plötur með þeim Hildi, Heiðu og Davíð Smára úr Idol- keppninni, en hvert þeirra verður með sína plötu. Svo verður það Eurovision-lagið, tón- listin úr Kalla á þakinu, Björgvin Hall- dórsson, Nylon, Bjarni Ara, Sálin, Írafár, Diddú, og svo mætti lengi telja. Við teljum því að það sé mjög bjart framundan í tónlist- arútgáfunni hjá okkur, þrátt fyrir þær ógn- anir sem eru til að mynda í sambandi við Netið og fleira. Þetta er nefnilega bara spurning um að breyta þessum ógnunum í tækifæri og nýta þau.“ Vilja frekar fræða Að sögn Björns er mjög mikill vöxtur á tölvu- leikjamarkaðinum. Hann segir að þetta sé spennandi markaður en umræðan um tölvu- leikina sé hins vegar oft mjög neikvæð vegna þess hve ofbeldisfullir sumir leikirnir séu. Hjá Senu hafi verið farin sú leið að setja ald- urstakmark á leikina, sé þörf á því, eftir al- þjóðlegu kerfi sem heitir PEGI, í samvinnu við Smáís, sem er félag rétthafa á myndefni. Stefnan sé hins vegar frekar í þá veruna að fræða en að banna. Þannig sé rík áhersla lögð á að hvetja starfsfólk verslana til að fara eftir þeim leiðbeiningum um aldursmörk sem fyrirtækið leggur til. „Ég held að við Íslendingar eigum heims- met í sölu á PlayStation-leikjatölvunni, sem er komin á um 30% heimila í landinu eftir því sem ég kemst næst. Þá horfum við björtum augum til næstu mánaða en þá mun svokölluð PSP-handtölva frá PlayStation koma á mark- aðinn. Þetta er leikjatölva og MP3-spilari í sama tækinu. Henni mun án efa verða vel tekið. Annars er helsta verkefnið hjá okkur í leikjatölvugeiranum að fá nóg magn af tölv- um og leikjum til landsins til að anna eft- irspurninni á hverjum tíma.“ Bjartsýn á framtíðina Björn segir að bíóárið í ár verði líklega eitt það stærsta hjá Senu (Skífunni) frá upphafi. Fleiri myndir verði heimsfrumsýndar en nokkru sinni fyrr. „Kvikmyndamarkaðurinn er mikið að breytast. Líftími mynda er miklu skemmri en áður. Kvikmyndaverin eru farin að frumsýna myndirnar víða um heim á sama tíma til að ná sem mestum tekjum af þeim í gegnum kvikmyndahúsin á sem skemmstum tíma. Innan fárra mánaða eru myndirnar svo komnar á DVD. Oft á tíðum kemur tónlistin einnig út og jafnvel tölvuleikir byggðir á kvikmyndunum. Við erum því í góðri aðstöðu til að samnýta hina mismunandi starfsemi fyrirtækisins vegna þess að á öllum þessum sviðum starfar Sena. Og þegar haft er í huga að afþreyingariðnaðurinn fer stöðugt vaxandi með aukinni velmegun höfum við hjá Senu enga ástæðu til annars en að vera bjartsýn á framtíðina,“ segir Björn Sigurðsson. Sena tekur eitt skref í einu Sena, afþreyingarsvið Dags Group, sem áður hét Skífan, annast útgáfu og dreifingu á kvikmyndum, tónlist og tölvuleikjum og rekur kvik- myndahús og hljóðver. Björn Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Senu, segir í samtali við Grétar Júníus Guð- mundsson að Sena sé stærsta afþreyingarfyrirtæki lands- ins. Þessi iðnaður fari vax- andi og því séu fjölmörg tækifæri fyrir Senu til að auka umsvif sín. Morgunblaðið/RAX Aukin umsvif Björn Sigurðsson segir að útrás, nýtt kvikmyndahús og meiri útgáfa á innlendri tónlist sé það sem blasi við Senu á næstunni. gretar@mbl.is /  &     0,   & > 5?'7# , #*" 2# 5(-:5 $78#,        !" ##$ !  %&%#$ #'( #) !#*  " %! # ##  '( ' #*#  '(" #+    #,  #'(" #+ -" #".  

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.