Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 20

Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 20
 20 B FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ „VOÐALEGA hafið þið stór eyru,“ verður Þórði Ólafssyni, sér- fræðingi hjá Alþjóðagjaldeyr- issjóðnum, að orði þegar hann svar- ar í símann og er inntur eftir því hvort hann sé að taka sig upp frá Washington þar sem höfuðstöðvar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eru en þar hefur Þórður starfað í að verða sjö ár. Með aðsetur á Barbados „Jú, það er rétt ég er að taka við nýju starfi hjá CARTAC (Caribbean Regional Technical Assistance Center), hinn 1. júlí nk. CARTAC hefur það meginhlutverk að veita nánast öllum eyjunum í Karíbahaf- inu auk Belize og Guyana, ráðgjöf á sviði efnahags og fjármála- starfsemi. Ég mun taka að mér að hafa umsjón með og veita tækni- lega ráðgjöf á sviði fjármála- starfsemi. Ég flyt mig tímabundið um set til Barbados þar sem CAR- TAC hefur aðsetur. Þetta er staða sem er veitt til eins árs en er fram- lengjanleg tvisvar sinnum eða lengst til þriggja ára. Að dvölinni lokinni mun ég snúa aftur til Wash- ington. CARTAC er liður í þróunarverk- efni Sameinuðu Þjóðanna og á Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn aðild því og annast framkvæmd verkefn- isins. Starfsemin er fjármögnuð af ýmsum aðilum, auk Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og Alþjóðabankans eins og t.d. ESB, Kanada, Bret- landi, Bandaríkjunum o.fl.“ Þórður segir verkefni af þessu tagi vera mjög svipuð þeim sem hann hefur verið að starfa við und- anfarin ár. „Ég er búinn að fara víða um heiminn í þessari tæknilegu ráðgjöf síðan ég hóf störf hjá Sjóðnum. Að- albreytingin verður sú að þarna verð ég að vinna á tiltölulega af- mörkuðu svæði. Hins vegar fylgja starfinu óhjákvæmilega töluverð ferðalög á milli eyjanna. Þess má til gaman geta að aðeins tvö af þessum löndum, eða eyjum eru land- fræðilega stærri en Ísland (Guyana og Suriname) en fólksfjöldinn er meiri í sex af 20 aðildarríkjunum en á Íslandi. Það getur vel verið að mín reynsla að heiman, frá litlu landi, muni nýtast mér vel á þessu svæði.“ Ekki sami útsynningurinn „Við erum bara tvö hjónin, börnin og barnabörnin eru heima á Íslandi þannig að það er tiltölulega auðvelt mál fyrir okkur að flytja frá Wash- ington til Barbados. Mér er sagt að það sé ekki sami útsynningurinn og kuldin á Barbados eins og stundum vill vera heima á Íslandi og reyndar líka hérna í Washington. Þannig að það má ætla að það verði þægilegt loftslag þarna. Maður getur hins vegar alltaf átt von á fellibyljum á þessu svæði, á vissum árstíma amk.“ Þórður segir að stór hluti fjármála geirans falli undir hans starfssvið, s.s. bankar, aðrar lána- stofnanir, verðbréfafyrirtæki, lífeyris sjóðir o.s.frv. „Þetta er bæði á sviði löggjafar og reglna í sam- bandi við starfsemi fjármálastofn- ana, ráðgjöf við uppbyggingu á bankastarfsemi, eftirlit með fjármálastofnunum, málefni seðla- banka eða flest allt sem lýtur að fjármálastarfsemi og fjármála- stöðugleika. Samstarf eftirlitsaðila með fjármálastofnunum er eitt af því sem ég mun horfa sérstaklega á.“ Þórður segir mikið um aflands fjármálamiðstöðvar í Karíbahafinu, þ.e. alþjóðleg bankastarfsemi sem hafi verið flutt til þessara eyja af ýmsum ástæðum og þær muni því einnig falla undir hans verksvið. En er ekki komin heimþrá í Þórð? „Það er alltaf viss heimþrá. Ég get ekki tímasett það en það stendur alltaf til að koma heim, hvenær sem það nú verður.“ „Búinn að vera úti um allan heim“ Morgunblaðið/Golli Fjármál í Karíbahafinu Þórður Ólafsson, sérfræðingur hjá Alþjóðagjald- eyrissjóðnum er á leið til Karíbahafsins. UMSKIPTI virðast hafa orðið í þýsku efnahagslífi á fyrstu mánuð- um þessa árs eftir slaka á síðasta ársfjórðungi liðins árs, að því er Her- mann Remsperger, aðalhagfræðing- ur þýska seðlabankans, áætlar. Þýska hagkerfið er hið stærsta á svokölluðu evrusvæði álfunnar. Remsperger sagði seðlabankann áætla að tölur um verga landsfram- leiðslu fyrir fyrsta ársfjórðung muni sýna talsverðan bata frá síðasta árs- fjórðungi. Landsframleiðslan minnkaði um 0,2% á tímabilinu frá október til desember 2004. Remsperger nefndi ekki bein- harðar tölur um áætlaðan hagvöxt en samkvæmt þýsku efnahagsstofn- uninni DIW er ætlað að þýska hag- kerfið hafi vaxið um 0,7% frá janúar til mars á þessu ári, aðallega vegna góðs gengis í iðnaði og verslun. Remsperger segir þýska seðla- bankann halda sig við fyrri spár um að hagvöxtur yfirstandandi árs verði um 1% þrátt yfir olíuverðshækkanir. Hagvöxtur í Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.