Morgunblaðið - 21.04.2005, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 2005 B 23
Skjálfti á mörkuðum í Evrópu
HLUTABRÉFAMARKAÐIR í
Evrópu hafa greinilega orðið fyrir
áhrifum af falli markaða í Banda-
ríkjunum síðastliðinn föstudag en
þá létu fjárfestar í ljós óánægju
sína með lítinn hagvöxt og lægri
hagnað fyrirtækja. Þetta hefur leitt
til þess að margir hafa selt áhættu-
mikil hlutabréf og keypt öruggari
ríkisverðbréf en þessu ferli fylgir
jafnan lækkun á hlutabréfamörk-
uðum og hækkun á verðbréfamörk-
uðum.
Sérfræðingar hafa að undanförnu
spáð góðum hagvexti í stærsta hag-
kerfi heims, Bandaríkjunum, en ný-
útkomnar tölur benda til þess að
þessar spár hafi verið rangar. „Það
virðist vera sem sérfræðingar hafi
verið of bjartsýnir um þrautseigju
hagvaxtarins,“ segir Peter Oppen-
heimer, yfirmaður áætlanadeildar
Goldman Sachs í London, í samtali
við Financial Times.
Leiðarahöfundur FT veltir því
fyrir sér hvort bandaríska hag-
kerfið sé nú að súpa seyðið af auð-
veldu aðgengi að fjármagni, hús-
næðisverðsprengju sem á ekki við
neitt að styðjast og lágum vöxtum.
Hann telur þó svo ekki vera heldur
séu skammvinn áhrif olíuverðs-
sprengjunnar að koma í ljós.
ÞAÐ hefur ekki verið skemmti-
legt að fylgjast með hlutabréf-
unum sínum í vikunni, a.m.k. ekki
fyrir þá sem eiga bréf á norrænu
mörkuðunum og þeim breska þar
sem vísitölur hafa fallið um 1,78–
4,58%.
Ástæðuna má rekja beint til falls
á mörkuðum vestanhafs fyrir helgi
en það hefur haft í för með sér
taugatitring á mörkuðum um allan
heim og virðast markaðir í Banda-
ríkjunum og Evrópu ekki vera að
rétta úr kútnum enn um sinn þótt
það muni væntanlega gerast brátt.
3 ) 2 2 0 ) 3,
&
&
& &
479 > -337?5
<*@ A;% #
3 ) 2 2 0 ) 3,
479 >& ;+ @BA;% #
3 ) 2 2 0 ) 3,
479 >
45790
;*A;% #
3 ) 2 2 0 ) 3,
479 >2 *A;% #
3 ) 2 2 0 ) 3,
479 >, 23
<*@,C A;% #
479 > -337?5
*"
3F
& !
;/GH48
479>& *"
3F
& !
@CH388
479>, 23
*"
3F
& !
;/GH.79
479>2 *"
3F
& !
;C?G
479 >
45790
*"
3F
& !
G
47D0 3BCE-BFE4>
9L$
2#G
$
0"K
Y2
O'",
,
#
,"5#<
'1#K 9
D-#
< 2-G G27H33
>34795 .+
!
' / &
< 2-G G2H33
>34795 *+
!
' / &
)"##"VY)Q
> <- $
I"" $
""$G
"(
;+ @B
<*@
;*
*
<*@,C
I"#
#"
, #
.$
+5$"#
"#G1 5 5
;+ @B
<*@
;*
*
<*@,C
1''
I #
+G$#" P
+#G"
6
"#
,G#="
,(
, 2
."-"
2 #
2( #
"(
"#G
@ ,"
B#(
>9#"
B #
,$ $"
@"#
'
I #=#
C,,
! (' (
!5 $
Áhrif frá Bandaríkjunum greinileg
ERLENDIR MARKAÐIR
Þegar Íslandsbanki keyptiSjóvá-Almennar fyrir einu oghálfu ári sagði Bjarni Ár-
mannsson, bankastjóri Íslandsbanka,
m.a. í samtali við Morgunblaðið hinn
19. september árið 2003:
„Meginástæðan fyrir kaupunum er
trú okkar á því, að framtíð-
arsamkeppnishæfni á innanlands-
markaði felist í því að þekkja heild-
arþarfir viðskiptavinanna og geta
veitt þeim fulla þjónustu. Með því að
hafa heildstætt vöruframboð, bæði á
sviði bankaafurða og trygginga-
afurða teljum við okkur geta veitt
betri ráðgjöf og búið til betri vörur
fyrir viðskiptavinina heldur en völ er
á í dag.“
Um 18 mánuðum seinna segir
Bjarni Ármannsson í samtali við
Morgunblaðið í gær:
„Með sölunni á hlutnum í Sjóvá
teljum við okkur halda þeim ávinn-
ingi, sem við höfum af eignarhaldi í
Sjóvá, þó við eigum félagið ekki að
fullu, en jafnframt losa fjármuni til
vaxtar. Svigrúm ætti að skapast til
allt að 200 milljarða króna útlána-
vaxtar.“ Bankinn telur sem sagt nú
að hann geti með takmörkuðum hlut í
Sjóvá náð þeim markmiðum, sem
hann stefni að varðandi þjónustu við
viðskiptavini en fyrir 18 mánuðum
var það mat bankans að til þess þyrfti
hann að eiga fyrirtækið allt. Auðvitað
getur þetta allt gengið upp en óneit-
anlega vekja breytt viðhorf á svo
skömmum tíma umræður.
Það er þó ekki þessi stefnubreyt-
ing Íslandsbanka, sem vakið hefur
mesta athygli vegna sölu á tveimur
þriðju hlutum Sjóvár heldur hörð
gagnrýni á þessi viðskipti frá
Straumi.
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri
Straums, upplýsir í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að bankinn hafi gert
forstjóra og stjórn Íslandsbanka
grein fyrir því, að Straumur vildi fá
tækifæri til að bjóða í hlutinn í Sjóvá.
Um þetta segir Þórður Már í Morg-
unblaðinu í gær:
„Straumur lagðist gegn því, að
stjórnin (þ.e. bankaráð Íslands-
banka) tæki ákvörðun um að hefja
viðræður við einn hluthafa bankans
án þess að gefa öðrum hluthöfum eða
fjárfestum kost á að bjóða í Sjóvá.
Taldi Straumur ljóst að með því að
gefa fleiri aðilum kost á því að bjóða í
Sjóvá fengist að öllum líkindum
hærra verð fyrir eignina.“
Niðurstaðan varð sú, að Straumur
fékk ekki tækifæri til að bjóða í hlut-
inn í Sjóvá, sem var til sölu. Þar sem
um almenningshlutafélag er að ræða
með mikinn fjölda hluthafa og hlut-
hafar hafa hagsmuni af því að sem
hæst verð fáist fyrir eignir bankans,
sem eru til sölu, hlýtur þessi ákvörð-
un bankaráðsins að vekja spurningar
um hvers vegna svona var staðið að
málum. Forráðamenn bankans verða
að leggja fram sannfærandi rök fyrir
því, hvers vegna ekki var leitað fleiri
tilboða úr því, að fyrir lá áhugi
stærsta hluthafa bankans á því að
bjóða í hlutinn. Er það ekki sjón-
armið banka að selja eigi á hæsta
verði?!
Í fjármálaheiminum var um það
rætt í gær og í fyrradag að þessi
ákvörðun tengist þeim átökum, sem
staðið hafa í hluthafahópi Íslands-
banka í nokkur síðustu ár. Með því að
selja öðrum stærsta hluthafa bank-
ans ráðandi hlut í Sjóvá sé núverandi
meirihluti bankaráðs og bankastjórn
í raun að styrkja stöðu sína í þeim
átökum.
Fjárhagsstaða Straums er mjög
sterk um þessar mundir. Raunar er
það mat sérfróðra manna, að hún sé
svo sterk, að Straumur gæti gert yf-
irtökutilboð í Íslandsbanka.
Er salan á Sjóvá einn liður í við-
leitni stjórnenda Íslandsbanka til
þess að koma í veg fyrir það?
Hvað liggur að
baki sölu Sjóvár?
Innherji@mbl.is
’Auðvitað getur þetta allt gengið upp en
óneitanlega vekja breytt
viðhorf á svo skömmum
tíma umræður.‘
INNHERJI SKRIFAR …
HAGVÖXTUR í Kína var 9,5% á
fyrsta ársfjórðungi. Í Morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka segir að
helstu ástæður fyrir miklum hag-
vexti séu aukning í útflutningi og
fjárfestingu. Fjárfesting jókst veru-
lega, eða um 23% á fyrsta fjórðungi.
Áætlað er að kínverska hagkerfið
hafi staðið á bak við um tíunda hluta
af hagvexti í heiminum í fyrra. Spáð
er 8,5% hagvexti í Kína á þessu ári.
Hagvöxtur í Kína