Morgunblaðið - 21.04.2005, Side 24
H
örður Bender hefur búið utan Íslands um
helming ævinnar og selt bæði hraðbáta og
hringitóna og margt þar á milli. Einn af
þeim sem unnið hafa með Herði lýsir hon-
um einmitt sem mjög miklum sölumanni.
„Ég er stoltur af því,“ segir Hörður.
Hörður kynntist konunni sinni, Þórunni Jónsdóttur
gigtarlækni, á æskuárunum í Hvassaleitisskóla en þau
rugluðu saman reytum eftir að Hörður kom úr meist-
aranámi í alþjóðaviðskiptum í Heidelberg í Þýskalandi
árið 1994 og hafa verið gift á sjötta ár. Hörður og Þórunn
eiga fimm börn á aldrinum 1½ árs til 8 ára og býr fjöl-
skyldan nú í Stokkhómi.
Hörður var skiptinemi í Ekvador, bjó síðan á Spáni og í
skútu í Portúgal þar sem hann var fasteignasali. Hann
lærði stjórnmálafræði og fjölmiðlafræði í Virginíu í
Bandaríkjunum og bjó um hríð í Kanada þar til hann
fluttist til Þýskalands í eitt ár. Að námi loknu starfaði
hann hjá Flugleiðum á Íslandi, í Noregi og Svíþjóð.
Árið 2000 stofnaði hann fyrirtækið Mr. Jet sem velti
miklu í netviðskiptum. Árið 2001 var Hörður ráðinn for-
stjóri Schibsted Telecom og kom því af stað. Hann stofn-
aði svo eigið fyrirtæki í samstarfi við Metro árið 2002,
m.a. á sviði SMS-þjónustu. Þetta fyrirtæki var sameinað
finnska fyrirtækinu Jippii Entertainment og selt sl. haust
þegar Hörður gekk aftur til liðs við Metro til að víkka
starfsemi þess út á Netið. „Ég var alltaf með þetta í huga
en það var bara ekki rétti tíminn fyrir tveimur árum. Nú
er rétti tíminn,“ segir athafnamaðurinn Hörður Bender.
Hann hefur ekki staldrað lengi við í hverju starfi og
segir það helgast af því að styrkur hans felist í að koma
fyrirtækjum af stað. Vinur og viðskiptafélagi orðar það
svo að Hörður gangi beint til verks: „Hörður er skapandi
og fylginn sér. Hann er fljótur að sjá tækifæri, hefur
sterka sýn og gengur beint til verks ... á meðan Svíarnir
fara kannski meira á hlið.“
Hörður hlær og segir að Svíarnir hafi ótrúlega hæfi-
leika til að gera áætlanir til langs tíma eins og dæmin
sanni. Þegar kemur að áætlunum til styttri tíma má segja
að Íslendingurinn bæti Svíana upp. „Ég á erfitt með að
hugsa lengra fram í tímann en tvö til þrjú ár en það getur
svo sem vel verið að ég verði lengur í þessu starfi. Þetta
hentar mér vel núna,“ segir Hörður.
„Hörður er skemmtilegur að vera með og góður fé-
lagi,“ segir einn. „Hörður er vinur vina sinna og fé-
lagslega sterkur,“ segir annar. Þeir sem þekkja Hörð
hrósa honum einnig fyrir framkvæmdagleði og sjálfs-
öryggi. „Hann er hörkuduglegur og mjög mikill sölumað-
ur. Hefur mikið sjálfstraust og kemur alltaf niður á fæt-
urna.“ Annar segir að þótt ákafi geti verið jákvæður geti
Hörður kannski verið of bráður og það e.t.v. bitnað á fjöl-
skyldunni.
„Ég er að minnsta kosti enginn níu til fimm pabbi,“
segir Hörður. „En ég reyni að setja ákveðnar grundvall-
arreglur. Skipulegg til dæmis vinnuferðir í kringum fót-
boltaæfingar sona minna sem ég mæti alltaf á. En ég
þrífst á því að hafa mikið að gera. Þeim mun meira kaos
og brjálæði í vinnunni, þeim mun skemmtilegra. Það er
náttúrlega stanslaust prógramm frá sex á morgnana og
langt fram á kvöld. Mér finnst skemmtilegt að koma heim
eftir strangan vinnudag og fara beint í bleiuskipti og
barnauppeldi. Við hjónin erum líka samhent í þessu og þá
verður þetta nokkuð létt,“ segir Hörður. „En það er rétt
að ég á það til að taka ákvarðanir fljótt og finnst það ekki
erfitt. Ég er óendanlega óþolinmóður og það getur
kannski bitnað á samstarfsfólki mínu,“ segir Hörður.
En það er ekki nóg að sinna vinnu og stórri fjölskyldu
því áhugamál fjölskyldunnar eru líka fyrirferðarmikil.
Tengdafjölskylda Harðar á jörð í Fljótshlíð og þar finnst
fjölskyldunni gott að eyða sumarfríinu „í eins mikilli ein-
angrun og hægt er“. Hrossarækt á Íslandi og skútusigl-
ingar í sænska skerjagarðinum komast líka inn í dag-
skrána. „Og svo veit ég fátt betra en að standa úti í á með
flugustöng,“ segir Hörður Bender að lokum.
Óendanlega óþolinmóður
SVIPMYND
Ljósmynd/Lotta Imberg
Mikill sölumaður Hörður Bender segist stoltur af því
að honum sé lýst sem miklum sölumanni.
steingerdur@mbl.is
Hörður Bender, framkvæmda-
stjóri Metro International og for-
stjóri Metro Modern Media, er 37
ára í dag. Steingerður Ólafsdóttir
bregður upp svipmynd af honum.
DAGBÓK | VIÐSKIPTI
Við hjálpum þér
að láta það gerast
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
9
7
6
Tilboðið gildir til 15. maí.
ISDN POSAR
Fyrirtæki og verslanir sem nýta posa í starfsemi sinni geta
breytt venjulegri símalínu í ISDN stafræna símatengingu.
Með ISDN stafrænni símatengingu stóraukast afköstin á
álagspunktum og þar af leiðandi gæði þjónustunnar.
Fáðu nánari upplýsingar í síma 800 4000 eða á siminn.is.
Heimildarbeiðni tekur aðeins 3-5 sek. í stað 20-30 sek.
Allt að átta posar í einu
Hver heimild kostar aðeins 1 kr. í stað 4 kr.
3 sekúndur
í staðinn fyrir 30 sekúndur
Frábært
posatilboð
Nú er ódýrara að skipta yfir í ISDN posa
Fjármögnun í takt við þínar þarfir
ll INNLENT
Ráðstefna
26. apríl | Stjórnunarráðstefna
IMG undir yfirskriftinni „Spiral
Dynamics, innsæi og forysta á
tímum breyt-
inga,“ verður
haldin nk.
þriðjudag kl. 13
til 17 á Hótel
Loftleiðum.
Don Edward
Beck, Guðbjörg
Andrea Jóns-
dóttir og Frið-
rik H. Jónsson
flytja erindi.
Don Edward Beck fjallar á ráð-
stefnunni um Spiral Dynamics og
hvernig hægt er að beita kenn-
ingunni á lausn vandamála í sam-
félaginu og í skipulagsheildum.
Þá mun Guðbjörg Andrea kynna
niðurstöður rannsóknar um gildi
Íslendinga og Friðrik bregður
upp heildarmynd af lífsskoðunum
Íslendinga.
Don Edward
Beck
28. apríl | Nýjar tilskipanir Evrópu-
sambandsins um opinber innkaup er
yfirskrift ráðstefnu um breytingar í
lagaumhverfi opinberra innkaupa.
Ráðstefnan verður haldin á Grand
hóteli Reykjavík og hefst kl. 9:20. Á
ráðstefnunni, sem ætluð er bæði lög-
fræðingum og stjórnendum, verður
farið yfir breytingar í nýjum tilskip-
unum Evrópusambandsins um op-
inber innkaup. Fjallað verður m.a.
um innleiðingu og gildistöku tilskip-
ananna á Íslandi, meginbreytingar í
útboðsferlinu, ábyrgð vegna brota á
útboðsreglum o.fl. Fyrirlesarar eru:
Sue Arrowsmith, háskólanum í
Nottingham, Steen Treumer við-
skiptaháskólanum í Kaupmanna-
höfn, Skúli Magnússon, héraðsdóm-
ari, og Othar Örn Petersen hjá
LOGOS.
26. apríl | Hádegisverðarfundur
Skýrslutæknifélagsins um skrán-
ingu léna og forræði yfir þeim verð-
ur á Grand hóteli Reykjavík kl.
12:00–14:00.
SKÝRR hf. hefur keypt allt
hlutafé í Skríni ehf. á Akureyri
og á nú fyrirtækið að fullu. Fyrir
átti Skýrr 42% hlutafjár, en aðrir
hluthafar voru Tækifæri hf., Ný-
sköpunarsjóður atvinnulífsins,
Framtakssjóður Landsbankans
og Brim hf. Skrín sérhæfir sig í
rekstri tölvukerfa, Internetþjón-
ustu, hýsingu, gagnaflutningi og
hvers konar fjarvinnslu. Skýrr
er dótturfélag Kögunar hf.
Í tilkynningu frá Skýrr er haft
eftir Hreini Jakobssyni, for-
stjóra fyrirtækisins, að stjórn-
endur þess telji að Skrín sé góð-
ur fjárfestingarkostur.
Fyrirtækið sé vel rekið, hafi
traustan grunn viðskiptavina og
starfsemin falli sérlega vel að
starfsemi Skýrr.
„Við leggjum þunga áherslu á
að efla þjónustu okkar við lands-
byggðina og kaupin á Skríni eru
markviss liður í þeirri stefnu. Við
ætlum í kjölfarið að styrkja
starfsemina norðan heiða enn
frekar. Það er mat okkar að með
kaupunum
verði kleift að
bæta mjög
þjónustu við
núverandi við-
skiptavini
Skríns,“ segir
Hreinn.
Með kaup-
unum á Skríni
hefur Skýrr
nú aðgang að hátt í tuttugu
manna starfsliði á Norðurlandi.
Skýrr keypti á síðasta ári Ele-
ment á Sauðárkróki, sameinaði
fyrirtækin og rekur þar nú útibú.
Fram kemur í tilkynningunni
að meðal helstu viðskiptavina
Skríns séu ýmis sjávarútvegsfyr-
irtæki, sveitarfélög og heilbrigð-
isstofnanir, ásamt Fasteignamati
ríkisins og Landskerfi bóka-
safna. Rögnvaldur Guðmundsson
er framkvæmdastjóri Skríns, en
stjórnarformaður fyrirtækisins
er Atli Arason, sem jafnframt er
framkvæmdastjóri Hugbún-
aðarlausna Skýrr.
Skýrr kaupir Skrín
Hreinn Jakobsson