Morgunblaðið - 28.05.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2005 31
DAGLEGT LÍF | FERÐALÖG
Kaffihúsaflóran í San Franciscoer ekki síður fjölbreytt enmannlífið í þeirri líflegu en þóvinalegu borg. Kaffihúsin eru
óteljandi og eins misjöfn og þau eru
mörg. Fyrir þá Íslendinga sem eru
sólgnir í gott kaffi og ætla að leggja leið
sína til borgarinnar, hvort sem það er
með nýja beina fluginu sem Icelandair
býður upp á í sumar eða með einhverjum
öðrum hætti, er vert að benda á lítið
kaffihús sem ekki lætur mikið yfir sér en
leynir á sér í framboði á frumlegu og
fjölbreyttu kaffi sem og öðru góðgæti.
Kaffihús þetta heitir Blue Front Cafe og
er að finna í hinu svokallaða hippahverfi
(Haight Ashbury) og stendur við götuna
Haight Street númer 1430. Eigandi
þessa kaffihúss kemur frá Palestínu og
ber matseðillinn og kaffiúrvalið þess
merki. Hægt er að velja á milli tuttugu
heitra drykkja og þar á meðal er krydd-
að og sérlega gómsætt te sem vert er að
mæla með og heitir Masala Chai. Það er
ljóst á lit og borið fram í stútfullu háu
glasi og bragðið er frískandi blanda af
kanil og chilli auk annarra krydda.
Matseðillinn, sem hægt er að skoða á
netinu, er stútfullur af smáréttum eins
og vera ber á kaffihúsi og ber þess líka
merki að staðarhaldarar koma frá Pal-
estínu. Þar eru nokkrir réttir sér-
staklega kenndir við Mið-Austurlönd
með hummus og öðru góðgæti, falafel
eru líka á boðstólum, samlokur, græn-
metisréttir þar sem avocado og eggaldin
ráða ríkjum, beyglur, eggjakökur, salöt
og súpur.
Stemningin er heimilisleg á Blue
Front Cafe, verðið lágt og alveg þess
virði að staldra þar við þegar farið er um
hippahverfið.
SAN FRANCISCO
Himneskt kaffi í hippahverfinu
Morgunblaðið/Þorkell
Á Blue Front Cafe í San Francisco er fjöldi heitra
drykkja og girnilegra smárétta í boði.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Það er óneit-
anlega nota-
legt að dýfa
köku í rjúkandi
masala chai.
Blue Front Cafe 1430 Haight Street, San
Francisco, CA 94117
Símanúmer: (415) 252-5917
Faxnúmer: (415) 252-5955
Veffang: www.bluefrontcafe.com
Fréttir
í tölvupósti
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga
Bílar frá dkr. 1.975 vikan
Bílaleigubílar
Sumarhús í
DANMÖRKU
www.fylkir.is sími 456-3745
Innifalið í verði: Ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgreiðslugjöld á flugvöllum.)
Höfum allar stærðir bíla, 5-7 manna
og minibus, 9 manna og rútur með/
án bílstjóra.
Sumarhús
Útvegum sumarhús í Danmörku af
öllum stærðum, frá 2ja manna og
upp í 30 manna hallir. Valið beint af
heimasíðu minni eða fáið lista.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshverfi
Danskfolkeferie orlofshverfi
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk gsm-símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á
heimasíðu; www.fylkir.is
Stafganga er góð leið til heilsubótar
sem hægt er að stunda hvar sem er
og hvenær sem er! Nýttu tækifærið
og kynntu þér þessa frábæru íþrótt.
Stafgönguleiðbeinendur standa fyrir kynningu í
hópum fyrir byrjendur á eftirfarandi stöðum:
Staður Tími
Skautasvellið í Laugardal 12:00, 13:00 og 14:00
Árbæjarlaug 12:00 og 13:00
Akranestorgi 10:30
Gamla Essóstöðin 10:30
Kjarnaskógur 14:00
Sjúkraþjálfunarstöðin 14:00
Nokkur pör af stöfum verða til láns en þeir sem
eiga stafi eru hvattir til að taka þá með sér.
Einnig verður boðið upp á klukkutíma göngu fyrir
vant stafgöngufólk (með eigin stafi), undir leiðsögn
þjálfara, á eftirfarandi stöðum:
Staður Tími
Skautasvellið í Laugardal 14:00
Seleyrin 12:00
Kjarnaskógur 13:00
Við Goðafoss 14:00
Stafgöngudagur ÍSÍ
Laugardaginn 28. maí
F
A
B
R
I
K
A
N
Reykjavík
Reykjavík
Akranes
Borgarnes
Akureyri
Höfn
Reykjavík
Borgarnes
Akureyri
Þingeyjarsveit
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Ítalía kemur á óvart
við hvert fótmál. Í
þessari ferð kynnumst
við nýjum slóðum
í þessu stórkostlega
landi undir einstakri
fararstjórn
Ólafs Gíslasonar
listfræðings.
Margar af helstu
perlum Ítalíu
í einni ferð.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Perlur Ítalíu
28. júlí - 11. ágúst
Verð kr. 159.990
á mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug, skattar, gisting
í 14 nætur með morgunverði,
5 kvöldverðir, 10 kynnisferðir,
akstur milli staða og fararstjórn..
Með Ólafi Gíslasyni
Einstök ferð