Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 179. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Fimm stjörnu
fornsöngur
Flytjendur geta óhikað státað
af músíkölskum stórsigri | 35
Laxness er
heimsflakkari
Sjálfstætt fólk hefur komið út í
yfir 500 útgáfum | 21
Guðjón Valur annar bestur
Björn bætti sig Engir
nýir leikmenn til Roma í ár
„VIÐ höfum áhyggjur af því þegar verið er að
auglýsa eftir 10 ára stúlku til að gæta tveggja
ára barns. Við viljum vekja athygli á því að
þetta er alls ekki æskilegt,“ segir Sigurveig Þ.
Sigurðardóttir, formaður Félags íslenskra
barnalækna. Hún segir barnalækna hérlendis
vilja vekja athygli foreldra á þessu því að þeir
telja þetta ekki vera siðferðilega rétt, þ.e. að
börn skuli vera að gæta barna, nema þá í
umsjá fullorðinna. Aðspurð segir Sigurveig að
dæmi séu um að alvarleg slys og jafnvel
dauðsföll hafi komið fyrir við svona aðstæður.
Sigurveig segir að foreldrar verði að spyrja
sig alvarlega að því hvort það sé viðeigandi að
t.d. 10 eða 12 ára gömul börn séu fengin til
þess að bera ábyrgð á tveggja ára óvita því
slysin geri ekki boð á undan sér. „Við verðum
að átta okkur á því að 10 ára barn er barn.
Það hefur ekki alltaf yfirsýn yfir hlutina og
ekki þann þroska til þess að koma í veg fyrir
að slysin eigi sér stað,“ segir Sigurveig. Að-
spurð segist hún ekki vita til þess að alvarlegt
slys hafi komið fyrir með þessum hætti á
þessu ári en hún áréttar að slysin geri ekki
boð á undan sér. Hún segir að þetta hafi við-
gengist lengi í þjóðfélaginu en oftast þó með
þeim hætti að foreldri barnsins sé í nágrenn-
inu. „En það að ungir krakkar séu að passa
börn einir úti í bæ eða jafnvel yfir nótt finnst
okkur alls ekki vera við hæfi,“ segir Sigurveig
og bendir á að ýmsar hættulegar aðstæður
geti komið upp sem jafnvel fullorðnir ein-
staklingar myndu fyllast skelfingu yfir. Það sé
eitthvað sem ekki eigi að leggja á herðar svo
ungra einstaklinga.
Hún bendir á að skv. lögum taki atvinnu-
rekendur almennt ekki börn í vinnu fyrr en
þau séu orðin 16 ára gömul og oft sé um að
ræða störf sem fylgi engin sérstök ábyrgð.
Hins vegar fylgi gríðarleg ábyrgð því að gæta
lítilla barna. „Ég tel að foreldrar verði að gera
þá kröfu til sín sjálfra, og þeirra sem bera
ábyrgð á börnum þeirra sé fólk sem geti
brugðist við ýmsum aðstæðum og komið í veg
fyrir að alvarlegir hlutir gerist.“
Börn passi
ekki börn
Barnalæknar hafa
áhyggjur af auglýsingum
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
TILKYNNING barst lögreglunni
í Reykjavík á fimmta tímanum í
gær þess efnis að lík væri í sjón-
um í Grafarvogi við Gullinbrú en
sjónarvottar sögðust hafa séð lík-
ið reka inn Grafarvoginn.
Talsverður viðbúnaður var
vegna þessa en samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu var megnið af
þeim mönnum sem voru á vakt í
gær kallaðir á vettvang auk sér-
sveitar ríkislögreglustjóra. Einn-
ig var mikill viðbúnaður hjá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
en þeir sendu tvo körfubíla á
vettvang auk þess sem björgun-
arsveitir voru kallaðar til. Alls
voru um sjötíu manns á svæðinu
við leit þegar mest var og stöðv-
aði fjöldi fólks bifreiðar sínar á
svæðinu í því skyni að fylgjast
með leitinni.
Ekkert fannst þrátt fyrir mikla
leit en átta bátar og tveir kajakar
voru í sjónum við Gullinbrú þegar
mest var auk fjölda kafara. Þá
voru fjórir sjúkrabílar á staðnum.
Slökkviliðið og sérsveit ríkis-
lögreglustjóra drógu sig í hlé um
áttaleytið í gær en menn frá lög-
reglunni í Reykjavík og björg-
unarsveitum héldu áfram leit.
Um miðnætti var strengt net yfir
Grafarvoginn við Gullinbrú en þá
fjarar út.
Þegar Morgunblaðið fór í
prentun hafði leit verið formlega
hætt og ætla lögregla og björg-
unarsveitir ekki að halda henni
áfram í dag.
Að sögn lögreglu er hugsanlegt
að sjónarvottum hafi missýnst en
tveir ungir drengir sem voru að
leik við Gullinbrú sögðust hafa
séð líkið reka inn Grafarvoginn.
Morgunblaðið/Júlíus
Net var strengt yfir Grafarvog við Gullinbrú á miðnætti í gær en um það leyti fjaraði út.
Mikill viðbúnaður við
líkleit í Grafarvogi
JACQUES Chirac Frakklands-
forseti hæddist að breskri mat-
argerð á fundi sem hann átti um
helgina með leiðtogum Rússlands
og Þýskalands. Franska dagblaðið
Liberation greindi frá ummælum
Chiracs í gær. Fylgdi fréttinni að
þeir Gerhard Schröder Þýskalands-
kanslari og Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti hefðu haft gaman af
ummælum franska forsetans og
hlegið dátt.
„Það er einfaldlega ekki hægt að
treysta fólki sem býr til svo vondan
mat,“ heyrðu blaðamenn forsetann
segja er talið barst að breskri mat-
argerðarlist. „Það eina sem þeir
[Englendingar] hafa lagt til land-
búnaðar í Evrópu er kúariða,“ bætti
forsetinn við. „Breskur matur er sá
versti í heimi, á eftir þeim finnska,“
sagði hann og uppskar hlátur félaga
sinna.
Þekkt er sú skoðun að Bretar geti
gortað sig af flestu öðru en afrekum
á sviði matreiðslu en að undanförnu
virðist sú afstaða hafa náð hylli með-
al evrópskra stjórnmálamanna að
matur í Finnlandi sé sérlega ólyst-
ugur. Á dögunum lét Silvio Berlus-
coni, forsætisráðherra Ítalíu, afar
neikvæð orð falla um finnska mat-
argerð sem hann kvaðst hafa „orðið
að þola“ er hann var í heimsókn þar.
Chirac og aðrir leiðtogar helstu
iðnríkja heims koma saman til fund-
ar í Skotlandi á morgun, miðviku-
dag. Matseðillinn hefur ekki verið
birtur en fyrir liggur að Gleneagles-
hótelið þar sem leiðtogarnir snæða
státar af því að bjóða upp á aðeins
það besta í skoskri matargerð.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur sagt að tvennt muni hann ekki
gera á leiðtogafundinum. Hann
muni ekki setja skoska þjóðarrétt-
inn „haggis“ inn fyrir varir sínar og
skotapilsi muni hann aldrei klæðast.
Nokkur hefð er fyrir því að G8-
leiðtogarnir klæðist að sið gesta-
þjóðarinnar á óformlegum stundum
sem gjarnan eru skipulagðar á fund-
um þeirra.
Liberation sagði og frá því að
Pútín Rússlandsforseti hefði á fund-
inum um liðna helgi spurt Chirac
hvaða álit hann hefði á hamborg-
urum. Chirac svaraði að þeir teldust
munaðarfæði bornir saman við
breskan mat. Raunar lýsti Chirac
því yfir í blaðaviðtali fyrir tveimur
árum að hann væri mikill aðdáandi
„ruslfæðis“.
Jacques Chirac hæðist
að breskri matargerð
Reuters
„Það er ekki hægt að treysta fólki
sem býr til svona vondan mat.“
Chirac lætur einn flakka við góðar
undirtektir Schröders.
ÞAÐ reyndist 1.058,3% munur á
hæsta og lægsta verði pylsu-
brauða og 569,9% munur á morg-
unkorninu Special K þegar verð-
lagseftirlit ASÍ gerði verðkönnun
í ellefu matvöruverslunum sl.
laugardag.
Yfir 100% munur var á hæsta
og lægsta verði á 25 af þeim 43
vörutegundum sem kannað var
verð á. Minnsti verðmunurinn
nam tæpum 30%. Bónus var oft-
ast með lægsta verðið og Krónan
næst oftast með lægsta verðið.
Hæsta verðið var á hinn bóginn í
verslun 10–11 og næst oftast í
verslun 11–11. Mest var vöruúr-
valið í Samkaupum og Fjarðar-
kaupum en fæstu vörutegundirn-
ar fengust í Kaskó. | 25
Verðkönnun ASÍ
á matvörum
Yfir 100%
verðmunur á
25 tegundum
BÚIÐ er að úthluta Pétri Guð-
geirssyni, héraðsdómara við
Héraðsdóm Reykjavíkur, Baugs-
málinu svokallaða sem þingfest
verður hinn 17. ágúst næstkom-
andi. Jafnframt hefur verið
ákveðið að nýta heimild í 5. gr.
laga um meðferð opinberra mála
til þess að hafa fjölskipaðan dóm
en ekki er hægt að gefa upp að
svo stöddu hverjir hinir tveir
dómararnir eru. Þetta staðfesti
Helgi I. Jónsson, dómstjóri við
Héraðsdóm Reykjavíkur, í sam-
tali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
Ekki óeðlilegt
Helgi segir það ekki óeðlilegt
hve langur tími líði í þessu tilviki
á milli þess að ákærur voru gefn-
ar út þar til málið verður þing-
fest. „Ég geri ráð fyrir að það sé
vegna þess hve málið er stórt og
málsskjöl umfangsmikil. Menn
verða að kynna sér þetta ítarlega
og það getur tekið langan tíma að
fara í gegnum þetta svo að þeir
séu undirbúnir þegar málið verð-
ur þingfest,“ segir Helgi og bend-
ir auk þess á að það kunni að hafa
áhrif að málið beri upp á sum-
arleyfistíma.
Helgi segir að samkvæmt lög-
um sé miðað við að fjórar vikur
líði á milli þess að ákæra er gefin
út og þar til málið er þingfest.
„Það er í sjálfu sér ekki hægt að
fara alltaf eftir því að öllu leyti,“
segir Helgi og bendir á að séu
þetta umfangsmikil mál séu þessi
tímamörk „teygð aðeins til“.
Þetta hafi engar réttarfarslegar
afleiðingar í för með sér og sé að
hans mati í eðlilegum farvegi.
Fjölskip-
aður dóm-
ur í máli
Baugs
Baugsrannsóknin | 10
♦♦♦
Íþróttir í dag