Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 7 FRÉTTIR ����� ����� ��� �� �������� ��� ���������� �� �������� ��� ����� ����� ���������� ��� ������ ������ ����� ��� �� ���������� � ����� �� ����������� � ����� ������� ��� ��� ������ ��� ���� � �������� ������ � ���������� � ��� � ���� � � ��� � ����� ����������� ��� ����� ��� ��������� �������� �������� �������������������� SUMARTILBOÐ NÆSTUM fjórir af hverjum tíu Ís- lendingum telja að tækni og vísindi muni finna lausnir til að koma í veg fyrir að auðlindir jarðar gangi til þurrðar. Þetta er meðal niðurstaðna í viðhorfskönnun á afstöðu íbúa 32 Evrópulanda til vísinda og tækni. Könnunin var framkvæmd í janúar og febrúar sl. Aðeins Tyrkir eru bjartsýnni en Ís- lendingar í þessum efnum en helm- ingur þeirra telur vísindin geta komið í veg fyrir uppþornun náttúru- auðlinda. Til samanburðar má geta þess að aðeins tveir af hverjum tíu Dönum eru á þessari skoðun. Íslendingar eru vantrúaðri en aðr- ar Evrópuþjóðir á að vísindi geti með tímanum svarað til fulls spurningum um lögmál náttúrunnar og alheimsins en 24% eru á þeirri skoðun. Engin önnur þjóð er efafyllri en Íslendingar í þessum efnum en um helmingur Evrópubúa telur að vísindin muni finna svörin. Möltubúar virðast bjart- sýnastir en rúmlega sjö af hverjum tíu sögðust sammála fullyrðingunni. Íslendingar hafa aftur á móti mikla trú á vísindin finni lækningu við ýms- um erfiðum sjúkdómum eins og al- næmi og krabbameini en 95% þjóðar- innar er á þeirri skoðun. Aðeins Hollendingar eru bjartsýnni með 97% en meðaltalið í Evrópu er 88%. Kostirnir meiri en skaðsemin Rúmlega helmingur Evrópubúa er á því að kostir vísindanna séu meiri en skaðinn sem þau geta valdið. Af- staða Íslendinga er mjög nálægt meðaltalinu en aðeins 15% þjóðar- innar eru ósammála fullyrðingunni. Íslenska þjóðin sker sig úr hvað varðar hugmyndir um áhuga ungs fólks á vísindum en við erum ósam- mála því að ungt fólk sé áhugalausara um vísindi og tækni en það var fyrir tuttugu árum. Íslendingar efast um mátt vísindanna Reuters Tæpur fimmtungur Evrópubúa telur að vísindin komi í veg fyrir að nátt- úruauðlindir gangi til þurrðar. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ALLS sóttu 23 einstaklingar um starf forstjóra Landbúnaðarstofnun- ar, að því er fram kemur á vef land- búnaðarráðuneytisins. Landbúnað- arstofnun mun taka til starfa 1. janúar næstkomandi og verða höfuð- stöðvar hennar á Selfossi. Ný lög um stofnunina voru samþykkt á síðasta löggjafarþingi. Í henni verða sam- einaðar stofnanir, embætti og verk- efni á sviði eftirlits og stjórnsýslu innan landbúnaðarins. Landbúnaðarráðherra skipar for- stjóra Landbúnaðarstofnunar til fimm ára í senn. Skal hann skipaður frá 1. ágúst 2005. Umsóknarfrestur um stöðuna var til 21. júní síðastlið- inn. Umsækjendur um stöðu for- stjóra Landbúnaðarstofnunar eru: Arinbjörn Kúld rekstrarfræðing- ur, Ásgeir Harðarson fóðurráðgjafi, Bergþóra Þorkelsdóttir, markaðs- og sölustjóri, Björgvin Njáll Ingólfs- son, bóndi og verkfræðingur, Björn Steinbjörnsson, héraðsdýralæknir og framkvæmdastjóri, Eiríkur Ein- arsson deildarstjóri, Elín Guð- mundsdóttir, matvælafræðingur og forstöðumaður, Guðmundur Valur Stefánsson framkvæmdastjóri, Hall- dór Runólfsson yfirdýralæknir, Ingi- leif Steinunn Kristjánsdóttir, Agronomie doktor, Jón Gíslason að- stoðarskrifstofustjóri, Jónas Yngvi Ásgrímsson framkvæmdastjóri, Katrín Helga Andrésdóttir héraðs- dýralæknir, Ólafur Guðmundsson forstöðumaður, Ólafur Oddgeirsson, dýralæknir og framkvæmdastjóri, Ólafur R. Dýrmundsson, Ph D ráðu- nautur, Ragnhildur Hrund Jónsdótt- ir deildarstjóri, Sigurður Ingi Jó- hannsson, dýralæknir og oddviti, Sigurgeir Ólafsson forstöðumaður, Valur Þorvaldsson, héraðsráðunaut- ur og framkvæmdastjóri, Þorvaldur Hlíðdal Þórðarson dýralæknir, Þór- arinn E. Sveinsson mjólkurverk- fræðingur, og Þuríður E. Péturs- dóttir, líffræðingur og sviðsstjóri. Eftirsótt staða í Landbún- aðarstofnun SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurð- að að Haukur Vagnsson hafi brotið gegn ákvörðun samkeppnisráðs með því að láta ekki afskrá lénið play- station2.is að kröfu Sony Computer Entertainment Europe Ltd. Hauki er gert að greiða 300 þúsund kr. stjórnvaldssekt sem skal greiðast innan tveggja mánaða. Þetta var síðasta mál á dagskrá samkeppnisráðs sem nú hefur verið lagt niður eftir að Samkeppniseftir- litið tók til starfa 1. júlí sl. Hauki var bönnuð öll notkun léns- ins fyrr á þessu ári og var gefinn tveggja vikna frestur til þess að af- skrá lénið frá birtingu ákvörðunar- innar. Hinn 6. maí var Haukur ekki búinn að afskrá lénið og í bréfi sem hann sendi samkeppnisráði kvaðst hann ekki fara að niðurstöðu sam- keppnisráðs, sem ekkert réttlæti væri í. Í stað þess að hlíta ákvörðun samkeppnisráðs endurnýjaði Hauk- ur skráningu lénsins til eins árs 14. júní sl. Sekt fyrir að afskrá ekki lén ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.