Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 05.07.2005, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ RANNSÓKNIN Á BAUGI GROUP HVORKI verjendur né sakborning- ar í Baugsmálinu hafa fengið afhent málsskjöl vegna ákæru ríkislög- reglustjóra. Að sögn Gests Jónsson- ar hrl., verjanda Jóns Ásgeirs Jó- hannessonar, verður ekki greint frá efni ákærunnar, af hálfu skjólstæð- ings hans, fyrr en gögnin berast og þeir fá tækifæri til að kynna sér þau. Skjöl málsins voru send Héraðs- dómi Reykjavíkur ásamt ákærunni og hefur Gestur óskað eftir að fá þau afhent. Á hann von á að skjölin berist á allra næstu dögum. Í samtali við Morgunblaðið sagði Gestur að væntanlega skiptu máls- skjölin þúsundum blaðsíðna. „Ég mun hvorki afhenda né fjalla um ákæruna fyrr en ég fæ þessi gögn. Ég tel mig einfaldlega ekki í stakk búinn til þess,“ sagði hann. Málið verður þingfest hinn 17. ágúst nk. Spurður hvort búast mætti við að ákæran yrði gerð opinber fyrr sagði Gestur að ákvörðun um það hefði ekki verið tekin. Þórunn Guðmundsdóttir hrl., verjandi endurskoðendanna Stefáns Hilmarssonar og Önnu Þórðardótt- ur, tók í sama streng, ekki væri hægt að birta ákæruna fyrr en málsskjöl yrðu afhent. Þegar búið væri að birta ákæru mætti búast við að ýmsum spurningum yrði beint til sakborninga og lögmanna og til þess að geta svarað þeim yrðu þau að hafa kynnt sér málsskjölin rækilega. Ríkislögreglustjóri hefur ekki viljað afhenda ákæruna en í frétta- tilkynningu frá embættinu á föstu- dag sagði að það yrði gert svo fljótt sem fært væri. Leiðbeiningar um afhendingu ákæruskjala Ekki er til lagaákvæði eða reglu- gerð um hvenær ákæruvaldið má af- henda ákærur en ríkissaksóknari hefur á hinn bóginn gefið út leið- beiningar „ákærendum til eftir- breytni“ um aðgang fjölmiðla að ákæruskjölum. Þar segir að rétt sé að afhenda ákæruna þegar hún hafi verið birt og lesin í heyranda hljóði, þ.e. þingfest. Þetta á þó ekki við um lokuð réttarhöld. Reglur ríkissaksóknara eiga að- eins við um ákæruvaldið en ekki þá sem eru ákærðir. Verjendur sakborninga í Baugsmálinu ætla ekki að birta ákærurnar að svo stöddu Bíða eftir að málsskjöl berist Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is BJARNI Ármannsson, forstjóri Ís- landsbanka, vildi í gær ekki tjá sig um viðskipti bankans við Baug vegna fjárfestingarfélagsins A-Holding S.A. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðsson, forstjóra Kaupþings banka, vegna þessa í gær. Í bréfi Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar til ríkislögreglustjóra segir að eitt af rannsóknarefnum ríkislög- reglustjóra lúti að meintum fjár- drætti upp á 95 milljónir sem greidd- ar voru félaginu FBA-Holding S.A. Þetta segir Jón Ásgeir að sé greiðsla til Gaums vegna kaupa á hlut Gaums í A-Holding. Fjárfestingarfélagið A-Holding var stofnað árið 2001 til að fjárfesta í Arcadia. Aðrir stofnhluthafar voru Baugur, Kaupþing og Íslandsbanki. Í bréfi Jóns Ásgeirs segir að samið hefði verið um að Baugur keypti hina hluthafana út á ákveðnum tímapunkti og á fyrirfram ákveðnu verði. Þegar gengi hlutabréfa Arcadia fór hækk- andi hafi Baugur hafið viðræður við forstjóra Arcadia um kaup á Top- shop-hluta félagsins. Í þeim tilgangi hafi Baugur viljað kaupa út hluthaf- ana í A-Holding fyrr og á verulega lægra verði en þeir áttu rétt á. Í bréf- inu segir að bæði Kaupþing og Ís- landsbanki hafi fengið sérstaka þókn- un fyrir að falla frá betri rétti sínum en þóknun Gaums verið hlutfallslega lægri en bankanna. Jóni Ásgeiri reiknast til að Gaumur hafi fengið 320 milljón krónum minna í sinn hlut en um var samið og að alls hafi Baugur sparað rúmlega 500 milljónir með þessum viðskiptum. Samkvæmt þessu má því gera ráð fyrir að Kaupþing og Íslandsbanki hafi samtals gefið eftir yfir 180 millj- ónir króna. Ekki náðist í Hreiðar Má Sigurðs- son, forstjóra Kaupþings, vegna þessa máls í gær og Bjarni Ármanns- son, forstjóri Íslandsbanka, sagðist ekki geta tjáð sig um viðskipti ein- stakra viðskiptamanna. Í ársskýrslu Baugs fyrir árið 2001 kemur fram að Baugur hafi átt 13,3% af hlutafé í A-Holding. Baugur hafi í maí 2001 keypt aðra hluthafa út úr fé- laginu með því að gefa út nýtt hlutafé. Var hlutafé aukið um 463 milljónir króna að nafnverði á geng- inu 12,6 eða samtals ríflega 5,8 millj- arða króna. Jón Ásgeir Jóhannesson segir Kaupþing og Íslandsbanka hafa fallið frá betri rétti sínum við sölu á A-Holding Íslandsbanki tjáir sig ekki um einstök viðskipti Jón Ásgeir Jóhannesson Bjarni Ármannsson ENN var fjallað um Baugsmálið svonefnda í breskum fjölmiðlum í gær og áhrif ákæra embættis ríkislögreglustjóra á hendur for- svarsmanna Baugs á viðræður fyrirtækisins um kaup á bresku verslunarkeðjunni Somerfield. Blöðin hafa það eftir talsmanni Baugs að fyrirtækið ætli að halda sínu striki í viðræðunum um kaup- in á Somerfield og hafi ekki boðist til að draga sig út úr þeim. Í netútgáfu Daily Telegraph er því þó enn haldið fram að Baugur hafi boðist til að draga sig út úr viðræðum um kaupin á Somerfield og að tilkynning þess efnis sé væntanleg. Í frétt blaðsins hafnar talsmaður Baugs þessu. Er einnig haft eftir talsmanninum að ákær- urnar snúi að einstaklingum tengdum Baugi en ekki fyrirtæk- inu sjálfu og að allir hinna ákærðu neiti sakargiftum. Þá segir tals- maður Baugs einnig að lögfræð- ingar á vegum fyrirtækisins séu að undirbúa málsókn á hendur ís- lenskum stjórnvöldum vegna skaða sem fyrirtækið hefur orðið fyrir á meðan tæplega þriggja ára löng lögreglurannsókn hafi staðið yfir. Tilboðshópurinn réði ráðum sínum á sunnudag Í netútgáfu Financial Times er haft eftir Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs, að fyrir- tækið ætli að halda sínu striki varðandi viðræður um kaupin á Somerfield ásamt hópi annarra fjárfesta. Sagt er frá orðrómi um að Baugur hafi ætlað að draga sig út úr kaupunum í kjölfar ákæra ríkislögreglustjóra á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra fyrirtækisins. Einnig er sagt frá því að tilboðshópurinn hafi hist á sunnudagskvöld til að ráða ráðum sínum. Þá er haft eftir heimildar- manni sem sagður er standa nærri tilboðshópnum, að líklegt væri að niðurstaðan yrði sú að Baugur myndi draga sig út úr viðræðunum og tilkynning þess efnis gæti kom- ið á næstu dögum. Í netútgáfu Times er í gær sagt frá því að Baugur heiti því að berjast gegn ákærum á hendur forstjóra fyrirtækisins sem væru runnar af pólitískum rótum. Haft er eftir talsmanni Baugs að Jón Ásgeir væri ákærður fyrir meint svik við Baug, „en fjölskylda hans á fyrirtækið svo hann er í raun ákærður fyrir að svíkja sjálfan sig“. Blaðið hefur eftir Kevin Stand- ford, öðrum stofnenda Karen Mill- en og hluthafa í Baugi, að allir hafi vitað af lögreglurannsókninni lengi og að málið snúist um pólitík. „Við treystum Jóni algjörlega og styðj- um hann og fjölskyldu hans,“ segir hann í viðtali við blaðið. Umfjöllun Guardian í gær er á sömu nótum og hinna blaðanna og er þar m.a. sagt frá því að ef Baugur dragi sig út úr viðræðun- um um kaupin á Somerfield sé það í annað sinn sem þeir sem rann- saka fjársvik á Íslandi kæmu í veg fyrir útþenslu fyrirtækisins í Bret- landi. Breskir fjölmiðlar fjalla áfram ítarlega um Baugsmálið og áhrif þess á viðræður um kaup á Somerfield Baugur segist halda sínu striki í viðræðunum MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yfirlýsing frá KPMG Endurskoðun hf.: „Vegna ákæru Ríkislögreglu- stjóra í svonefndu Baugsmáli á hendur starfsmanni KPMG Endurskoðunar hf. vill félagið koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Það sem starfsmanni KPMG er gefið að sök er að hafa áritað árs- reikninga Baugs hf. fyrir árin 2000 og 2001 án fyrirvara en Ríkislög- reglustjóri telur að tilteknar upp- lýsingar í ársreikningunum hafi ekki verið settar fram í samræmi við lög. Hlutverk endurskoðenda er að láta í ljós álit á því hvort reikningsskil gefi glögga mynd af afkomu og efnahag. Það er mat KPMG að endurskoðendur Baugs hf. hafi sinnt starfsskyldum sínum í samræmi við lög. Álit KPMG er að áritun á framangreinda árs- reikninga Baugs hf. hafi verið með eðlilegum hætti. KPMG Endurskoðun hf. mun ekki tjá sig frekar um málið með- an það er til meðferðar hjá dóm- stólum.“ Yfirlýsing frá KPMG Endurskoðun hf. Áritun ársreikninga með eðlilegum hætti SAMKVÆMT upplýsingum frá embætti saksóknara í Lúxemborg er það alsiða hjá embættinu, vegna mála sem unnin eru í samvinnu við erlend lögreglulið, að taka fram að gögn sem lögreglan í Lúxemborg aflar, megi einungis nota í tengslum við þau sakarefni sem til- greind voru þegar óskað var eftir aðstoð hennar. Hægt er að óska eftir undantekningu frá þessari reglu. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, segir í bréfi til ríkis- lögreglustjóra frá 30. júní sl. og birt var í Morgunblaðinu á laugar- dag, að það veki sérstaka athygli að saksóknarinn í Lúxemborg hafi hinn 3. ágúst 2004, séð ástæðu til þess að senda ríkislögreglustjóra sérstakt bréf þar sem áréttað sé að upplýsingar sem fengist hafi úr húsleit hjá Kaupthing Bank, megi eingöngu nota í tengslum við rann- sókn þeirra brota sem sérstaklega voru tilgreind í beiðni um aðstoð við húsleit, en ekki annarra brota, sér í lagi ekki skattalagabrota. Í bréfinu segir að samkvæmt upplýs- ingum lögmanna í Lúxemborg sé afar sjaldgæft að þarlend yfirvöld sjái ástæðu til slíkra áminninga og telur Jón Ásgeir að með þessu hafi þau lýst ákveðnu vantrausti á starfshætti ríkislögreglustjóra. Málið snýst um húsleit sem lög- reglan í Lúxemborg gerði hjá bankanum 28. apríl 2004, að ósk efnahagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra. Í fyrrnefndu bréfi seg- ir Jón Ásgeir að ríkislögreglustjóri hafi óskað eftir heimild til húsleitar vegna brota sem Tryggvi Jónsson, þáverandi forstjóri, átti að hafa framið. Í Lúxemborg gildi afar strangar reglur um trúnað banka- stofnana og vernd trúnaðarupplýs- inga. Til að fá heimild til leitar hafi ríkislögreglustjóri „greinilega talið sig þurfa að vísa til laga og reglna um peningaþvætti og innherja- svik,“ segir ennfremur í bréfinu. Hvorki honum né Tryggva hafi á hinn bóginn verið kynntar þær ásakanir. Má ekki gefa upplýsingar Martine Solovieff hjá embætti saksóknara í Lúxemborg sagðist í samtali við Morgunblaðið í gær ekki mega tjá sig um einstök mál, hún gæti því ekki greint frá hugs- anlegum bréfaskiptum við lög- regluyfirvöld á Íslandi. Spurð um hugsanlega áminningu til ríkislögreglustjóra sagði hún að þegar lögreglan í Lúxemborg lyki rannsókn mála og sendi upplýs- ingar til lögreglu í öðrum löndum, væri ávallt tekið fram að einungis mætti nota upplýsingarnar til að rannsaka brot sem tilgreind voru í upphafi rannsóknarinnar. Hún kvaðst ekki geta sagt til um hvort ástæða hefði verið til að senda sér- stakt áminningarbréf um þetta efni, jafnvel þó hún hefði upplýs- ingar um slíkt handbærar mætti hún ekki greina frá þeim við blaða- menn. Solovieff sagði að þrátt fyrir fyrrnefnda reglu gætu erlend dómsyfirvöld farið fram á það við yfirvöld í Lúxemborg að fá leyfi til að nota gögnin vegna rannsóknar á öðrum brotum. Embætti saksóknara í Lúxemborg um húsleit hjá Kaupthing Bank Notkun gagna alltaf takmörkunum háð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.