Morgunblaðið - 05.07.2005, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
● KB BANKI vill ekki tjá sig um orð-
róm um að bankinn hyggist kaupa
norska Storebrand-fjármálafyr-
irtækið, en sagt var frá slíkum vanga-
veltum í norrænum fjölmiðlum fyrir
helgi. Voru viðskipti með bréf í Store-
brand stöðvuð á föstudag eftir að
þau hækkuðu um 7,7% frá gengi
dagsins á undan. Sænska blaðið
Dagens Nyheter sagði mega rekja
hækkunina til orðróms um vænt-
anlega yfirtöku KB banka á Store-
brand. Jónas Sigurgeirsson, for-
stöðumaður fjárfestatengsla hjá KB
banka, segir það stefnu bankans að
tjá sig ekki um orðróm á markaði,
hvort heldur er til að staðfesta hann
eða neita.
Tjáir sig ekki um
yfirtökuorðróm
● HEILDARVELTA í Kauphöll Íslands í
gær nam tæplega 11,6 milljörðum
króna, þar af var velta með hlutabréf
fyrir um 9,5 milljarða.
Mest hækkun varð á bréfum Burð-
aráss, 1,9%, en mest lækkun varð á
bréfum Kögunar,1%.
Úrvalsvísitala aðallista lækkaði
um 0,22% og er nú 4.141 stig.
Mest velta
með hlutabréf
!" #
!"#
!$
%&
' "%& (%
)(%
*+ %# %
*#%
$%& (% ' "%&
,-"
.'!
./ !0 - %#(
1
! / ' "%&
2/ 0%
$34% 05 %% ,
! %
67-0
8# 0
9:! "%
9-"-/
./-0 ."/ ;
<;## %#/ %
= %% " %
!"
( ! -"& >;00 $%& 3/ ' "%&
." ?"# ."%&
<4 4
! #$ %
@A>B
.3
-
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
-; %#
; -
C
C
C
C
C C C C
C
C
C
C
C
C
C C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
D EF
D EF
D EF
D EF
C
C
C
C
D C
EF
D CEF
D CEF
C
C
C
D EF
C
C
C
C
D C
EF
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
2- "&
&# %
< "( 3 " &# G
* ."
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
= 3 +H
<2 I #%" !0"&
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
C
<2C J / /"&%& " "0
<2C .;"& " "-##0 / ; "( - %
<2C =-#% ; / 0 /#%% ?"#
<2C (- % H#--%&
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● FL Group hefur fest kaup á 2,12
milljónum hluta í easyJet, sem sam-
svarar 0,53% af heildarhlutafé í fé-
laginu. Fyrir átti FL Group 10,97%
hlutafjár og er eign félagsins í
easyJet því orðin 11,5% af heildar-
hlutafé. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu til kauphallarinnar í London og
til Kauphallar Íslands.
Kaupverð kemur ekki fram í til-
kynningunni.
FL Group bætir við
hlut sinn í easyJet
SAMSKIP hafa gengið frá kaupum
á breska skipafélaginu Seawheel
og verður rekstur þess sameinaður
gámaflutningastarfsemi Samskipa
í Evrópu. Þetta kemur fram í
fréttatilkynningu frá Samskipum.
Kaupin eru háð samþykki sam-
keppnisyfirvalda en áreiðanleika-
könnun hefur þegar farið fram.
Kaupverðið er ekki gefið upp.
13 milljarða velta
Seawheel er stofnað árið 1969 og
hefur tólf gámaskip í siglingum á
milli Bretlandseyja og meginlands
Evrópu. Áætluð velta félagsins á
yfirstandandi ári er 13 milljarðar
króna en félagið hefur til umráða
ríflega 7 þúsund gáma og flytur
um 300 þúsund gámaeiningar á ári
hverju. Til samanburðar má geta
þess að velta Geest North Sea
Line, sem Samskip keyptu í mars,
var ríflega 20 milljarðar króna á
ári.
1,1 milljón gámaeininga
Í kjölfar sameiningarinnar er
floti Samskipa 36 gámaflutninga-
skip og flytja þau um 1,1 milljón
gámaeiningar á milli evrópskra
hafna erlendis. Áætluð velta fé-
lagsins eykst úr 45 í 58 milljarða
króna en starfsmönnum félagsins
fjölgar um 200 og verða þeir nú um
1.550.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam-
skipa, að töluverð hagkvæmni
stærðar náist með kaupunum. „Við
erum nú komnir með markaðs-
svæði sem nær frá Spáni og Portú-
gal í suðri til Íslands, Skandinavíu,
Rússlands og Eystrasaltslandanna
í norðri. Þetta er gífurlega stórt
markaðssvæði og við ætlum að ein-
beita okkur að því að ná sem
mestri skilvirkni á okkar leiðum.
Kaupin eru hluti af skýrri stefnu-
mótun sem við höfum unnið að,“
segir Ásbjörn en að hans sögn
voru Geest og Seawheel áður
keppinautar í gámaflutningum á
milli Bretlandseyja og meginlands
Evrópu og leiðandi aðilar á sínu
markaðssvæði.
Samskip
kaupa breskt
skipafélag
Rúmlega milljón Með tilkomu Seawheel fjölgar fluttum gámaeiningum
Samskipa verulega. Gámum fjölgar um 7 þúsund.
NORRÆNU hlutabréfavísitöl-
urnar hafa hækkað mest á öðrum
ársfjórðungi samkvæmt sam-
antekt greiningardeildar KB
banka sem birtist í hálffimm-
fréttum bankans. Samantektin
tekur til stórra vísitalna í Evrópu
auk þeirra stærstu í Bandaríkj-
unum og Japan.
Að þessu sinni er það finnska
hlutabréfavísitalan HEX sem hef-
ur hækkað mest, um tæp 10%.
Næst í röðinni kom danska vísital-
an KFX sem hækkaði um 8,6%.
Úrvalsvísitala hækkar minnst
Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands
hækkaði um 5,5% á tímabilinu og
hækkar hún minnst af norrænu
vísitölunum. Að sögn Haraldar
Yngva Péturssonar, sérfræðings
hjá greiningardeild KB banka, er
ekki hægt að draga neinar álykt-
anir um aukið heilbrigði mark-
aðarins miðað við þennan eina
fjórðung. „Íslenski markaðurinn
er óþroskaður, hér eru fá fyr-
irtæki á markaði og markaðs-
aðilar fáir. Það þarf ekki mikið að
gerast til þess að hann sveiflist
hressilega til,“ segir Haraldur
Yngvi.
Norræn-
ar vísitöl-
ur hækka
mest
$%
&
'(
!) '**+
, -.
",.
/ 0$.
1
&!) 02.
34
0
#
56-.7+
8
.
$ ,91-
:-
(+*
$ -(
, 66
$/ /
;<(
$/ 1=>+**
$/ /
;7**
2165
&
: /
$/ ?:
@ABC*
@CBD'
@EBDF
@DBED
@DBG'
@+B+G
@+BGD
@GBGE
@GB7'
@GB*+
@FBFE
@'BCF
@*BA7
@*BEG
H*B'7
H*BEF
H'B7C
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
ÍSLAND hefur verið að ná forystu-
hlutverki á flugmarkaði í heiminum,
að mati Jon Woolf sem er ráðgjafi hjá
Airport Strategy & Marketing en
það sér um stefnumótunarráðgjöf til
flughafna. Woolf segir í frétt TV2
Fyn að á síðustu sjö til átta mánuðum
hafi orðið mjög mikill vöxtur í flug-
geiranum af hálfu Íslendinga. Gildi
íslensku flugfélaganna þriggja, þ.e.
Sterling, Avion Group og FL Group,
hafi aukist mikið á flugmarkaði í
heiminum.
Samruni Sterling og Mærsk Air er
merki þess að flugfargjaldastríði sé
lokið, er þó mat sérfræðinga á þess-
um markaði í Danmörku. „Ein helsta
ástæða samrunans er vitanlega sú, að
félögin tvö þurfi ekki að keppa sín á
milli um nokkra áfangastaði. Ég tel
að flugfargjöld muni ekki lækka frek-
ar,“ hefur Politiken eftir Stig Elling,
sölustjóra Star Tour, en Star Tour er
meðal þeirra sem talið er að samrun-
inn geti komið illa við en félagið hefur
um árabil egnt Sterling og Mærsk
Air saman til að fá sem hagstæðust
flugfargjöld.
Steven Booker, sérfræðingur á
hlutabréfamarkaði, tekur í sama
streng og segir verðið ekki lækka
meira. Hann dregur þó í efa að hækk-
un flugfargjalda muni eiga sér stað
enda sé samkeppnin við Ryanair og
Easyjet of hörð.
Nýtt fyrirtæki byggt upp
Almar Örn Hilmarsson, forstjóri
Sterling, mótmælir þessari frétt
Politiken, segir samkeppnina það
harða að fyrirtækin yrðu undir ef
verð yrði hækkað verulega.
Hann dregur heldur ekki dul á það
í Fyens Stiftstidende að hin harða
samkeppni á markaðnum hafi meira
eða minna orðið til þess að þvinga
fram samruna Sterling og Mærsk
Air. Segir hann markmið hins sam-
einaða félags vera að vaxa, en arð-
semin hafi úrslitaþýðingu. Hvað
varðar fækkun stjórnenda hjá félag-
inu upplýsir hann að byggt verði upp
nýtt fyrirtæki undir nýju nafni og þar
geti hver og einn sóst eftir ráðningu.
Þá kemur fram hjá Politiken að
Sterling hafi lagt til hliðar áform um
flug til Bandaríkjanna þar til sam-
runinn er um garð genginn, eftir eitt
ár.
Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn
stendur frammi fyrir vanda í kjölfar
kaupa Sterling á Mærsk Air, að því
er segir í Börsen. Lággjaldaflug-
félögum sé gjarnt að draga úr kostn-
aði með því að flytja a.m.k. hluta
starfseminnar á flugvelli sem bjóði
lægri flugvallargjöld, til að halda far-
miðaverðinu niðri.
Haft er eftir Almari Erni að eðli-
legt sé að félaginu sé umbunað fyrir
aukna umferð um flugvöllinn. Marg-
ar flughafnir hafi nú áhuga á að hýsa
starfsemi félagsins. Þá skapist hætta
á starfsemin flytjist frá Kastrup flug-
velli. Hann vísar því hins vegar á bug
að öll starfsemin verði flutt frá Kast-
rup.
Í forystu á flugmarkaði
Flugfargjaldastríði í Danmörku lokið
L
MN
8N
N
MO