Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 19
MINNSTAÐUR
AKUREYRI
SUÐURNES
Garður | Um 450 gestir komu í
Byggðasafnið á Garðskaga og út-
sýnis- og veitingastaðinn Flösina
um helgina. Safnið var opnað í nýju
húsnæði á laugardag og þá var
Flösin jafnframt opnuð.
„Þetta byrjar vel, það er ekki
hægt að fara fram á meira. Og mér
fannst fólk vera undrandi á þessari
aðstöðu og ánægt,“ segir Ásgeir
Hjálmarsson, forstöðumaður
Byggðasafnsins á Garðskaga.
Við opnunina var lesið upp gjafa-
bréf frá hjónunum Guðna Ingi-
mundarsyni og Þórunni Ágústu
Sigurðardóttur fyrir vélasafni
Guðna sem er til sýnis í safninu og
GMC trukknum sem hann notaði
við vinnu sína. Jafnframt færði
Þórunn Ágústa safninu peninga-
gjöf. Guðni var á sínum tíma feng-
inn til að taka fyrstu skóflustung-
una að byggingu safnahússins og
hann lauk verkinu með því að
klippa á borða til marks um opnun
safnsins.
Þá var að sögn Ásgeirs góð að-
sókn að myndlistarsýningu Dag-
marar Róbertsdóttur sem sýnir
verk sín í nýja Byggðasafnshúsinu.
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Klippt á borðann Ásgeir Hjálmarsson forstöðumaður aðstoðar Guðna Ingimundarson við að opna Byggðasafnið á
Garðskaga. Sigurður Jónsson sveitarstjóri er ekki langt undan.
450 gestir í safnið um opnunarhelgina
GRÓÐURRÆKT
Í ELLIÐAÁRDAL
Þriðjudagskvöldið 5. júlí verður farin göngu-
og fræðsluferð í Elliðaárdal undir leiðsögn
Jóhanns Pálssonar grasafræðings.
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
R
K
2
89
03
07
/2
00
5
Gróðurfar í Elliðaárdal er að hluta tilkomið
vegna ræktunar af mannavöldun. Skoðaðar
verða blóm- og trjáplöntur og hugað að þeim
breytingum sem hafa orðið síðustu áratugi.
Gangan hefst kl. 19.30 við Minjasafnið
í Elliðaárdal.
BISKUP Íslands hefur auglýst laus
til umsóknar tvö prestsembætti í
Akureyrarprestakalli. Annars vegar
er um að ræða embætti sem séra
Jóna Lísa Þorsteinsdóttir gegnir í
dag og hins vegar nýtt embætti við
kirkjuna með sérstaka áherslu á
barna- og unglingastarf. Séra Jóna
Lísa lætur af störfum í haust en hún
hefur starfað sem prestur í Akur-
eyrarprestakalli sl. 6 ár en þrjú ár
þar á undan starfaði hún sem
fræðslufulltrúi kirkjunnar í Hóla-
stifti með aðsetur á Akureyri.
Séra Jóna Lísa sagðist vera með
ýmislegt á prjónunum og hún ætlar
ekki alveg að segja skilið við Akur-
eyrarkirkju. Hún verður með vetur-
setu á Kanaríeyjum og mun starfa
þar í hlutastarfi á vegum Sumar-
ferða. „Mig langar að veita þeim fjöl-
mörgu Íslendingum sem eru á Kan-
aríeyjum einhverja prestsþjónustu.
Ég dvaldi þarna að vetri til þegar ég
var að skrifa bókina mína og sá þá að
það veitti ekkert af svona þjónustu.
Mig langar að bjóða upp á helgihald
og gefa fólki kost á viðtalstímum og
þetta get ég boðið því sænska kirkj-
an hefur lýst sig fúsa til að vera mér
innan handar. Ég fer þarna út á eig-
in vegum en með vitund Biskups-
stofu.“
Sem fyrr sagði ætlar Jóna Lísa
ekki að segja alveg skilið við Akur-
eyrarkirkju, því innan kirkjunnar er
verið að vinna að því að bjóða upp á
aukna þjónustu við ferðamenn yfir
hásumarið. „Þarna er um að ræða
þriggja mánaða verkefni enda er
Akureyrarkirkja trúlega fjölsóttasti
ferðamannastaðurinn á Akureyri.
Það t.d. streymir hingað fólk upp úr
skemmtiferðaskipunum og það væri
gaman að geta boðið upp á þjónustu
við þá á hinum ýmsu tungumálum og
jafnvel kvöldviðveru fyrir ferða-
menn almennt. Þetta kostar auka-
lega en við erum að leita eftir stuðn-
ingi við þetta verkefni, sem er enn í
mótun.“
Prestur ráðinn til að sinna
barna- og unglingastarfinu
Séra Svavar Alfreð Jónsson
sóknarprestur og séra Jóna Lísa
hafa starfað saman í Akureyrar-
kirkju undanfarin ár en með haust-
inu verða prestar kirkjunnar þrír,
þar sem einnig á að ráða prest með
sérstaka áherslu á barna- og ung-
lingastarf. Jóna Lísa sagði það alveg
stórkostlegt. „Barna- og unglinga-
starfið hefur verið blómlegt í gegn-
um tíðina. Akureyrarprestakall er
hins vegar það þungt prestakall og
það mikið álag á báðum prestunum,
að við höfum ekki getað sinnt barna-
og unglingastarfinu eins og við hefð-
um viljað.“
Jóna Lísa sagðist óendanlega
þakklátt fyrir tímann sem hún hefur
starfað við Akureyrarkirkju. „Þetta
hefur verið góður tími og ég er þakk-
lát mínu samstarfsfólki og eins söfn-
uðinum sem hefur verið mér góður.
Það er einmitt þess vegna sem ég vil
búa áfram á Akureyri og fá aðeins að
þjóna við kirkjuna á sumrin, því mér
þykir svo vænt um hana.“
Tvö prestsembætti auglýst
Séra Jóna Lísa
hættir í haust
Morgunblaðið/Kristján
Séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir í
kapellu Akureyrarkirkju.
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
HEIMAMENN í Þór gerðu sér lítið
fyrir og sigruðu á árlegu Pollamóti
félagsins, sem fram fór á fé-
lagssvæðinu við Hamar um helgina.
Þór lagði Hrafnkel Freysgoða að
velli í úrslitaleik en lið IFC hafnaði í
þriðja sæti. Pollamót Þórs er árlegt
knattspyrnumót fyrir 30 ára og
eldri og er keppt í tveimur aldurs-
flokkum karla, Polladeild 30–39 ára
og Lávarðadeild 40 ára og eldri og í
Ljónynjudeild kvenna. Ríflega 60
lið mættu til leiks, sem er svipaður
fjöldi og undanfarin ár. Tvö erlend
lið tóku þátt í því, kvennalið frá
Hollandi og karlalið frá Frakk-
landi.
Í Lávarðadeild fór Magni frá
Grenivík með sigur af hólmi, eftir
sigur á ÍR í úrslitaleik en úrslitin í
báðum karlaleikjunum réðust í víta-
spyrnukeppni. Í Ljónynjudeild fóru
Valsstúlkur með sigur af hólmi eftir
að hafa lagt Bónusbolta að velli í úr-
slitaleik en KR hafnaði í þriðja sæti.
Barátta Ragnheiður
Víkingsdóttir leik-
maður Vals í baráttu
við einn leikmanna
hollenska liðsins sem
kom til Íslands til
þess að taka þátt í
Pollamótinu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Meistarar Jón Stefán Ingólfsson
fyrirliði Magna lyftir bikarnum á
loft sem lið hans fékk fyrir sigur í
Lávarðadeild Pollamótsins.
Fagmannlegir Viðar
Sigurjónsson, starfs-
maður Íþrótta- og
ólympíusambandsins
á Akureyri og leik-
maður með sigurliði
Þórs fellur fagmann-
lega í leik gegn
Breiðabliki en ekki
er alveg ljóst hvaða
dans Blikinn stígur.
Þórsarar urðu Polla-
meistarar, í fyrsta
skipti í sögu félags-
ins, en þeir héldu
Pollamótið nú í 17.
sinn.
Heimamenn
sigruðu á
Pollamótinu