Morgunblaðið - 05.07.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 25
DAGLEGT LÍF
Bónus í Holtagörðum var oft-ast með lægsta verðið íverðkönnun verðlagseftir-lits ASÍ í ellefu matvöru-
verslunum sl. laugardag eða í 19 til-
vikum. Þá fengust ekki í Bónus
þrettán vörutegundir sem kannað
var verð á.
Henný Hinz, verkefnisstjóri hjá
verðlagseftirliti ASÍ, segir að líkt og
undanfarna mánuði hafi verið mjög
mikill munur á hæsta og lægsta verði
ýmissa vörutegunda. Til dæmis
reyndist 1.058,3 % verðmunur á
hæsta og lægsta verði pylsubrauða
og 569,9% verðmunur á morgun-
korninu Special K. Krónan Bílds-
höfða var næst oftast með lægsta
verðið eða í 10 tilvikum og fengust 14
vörutegundir ekki í versluninni.
Hæsta verðið var oftast í verslun 10–
11 í Grímsbæ í 21 tilviki og voru 13
vörutegundir ekki fáanlegar þar.
11–11 var næst oftast með hæsta
verðið, eða í 13 tilvikum, og voru 12
vörutegundir ekki til í versluninni.
Mesta vöruvalið í Samkaupum og
Fjarðarkaupum
Kaskó í Vesturbergi átti fæstar
vörurnar í könnuninni en þar voru 15
vöruliðir ekki fáanlegir. Mesta vöru-
úrval var í Samkaupum í Miðvangi,
Hafnarfirði og Fjarðarkaupum í
Hafnarfirði þar sem aðeins ein vara
var ekki til í hvorri verslun.
Könnunin var gerð í verslununum:
Krónunni Bíldshöfða, Bónus Holta-
görðum, Kaskó Vesturbergi 76,
Nettó í Mjódd, Hagkaup Skeifunni
15, Fjarðarkaup Hólshrauni 1b, Nóa-
túni Austurveri, Samkaupum Mið-
vangi 41, Gripið og greitt Skútuvogi
4, 10–11 Grímsbæ og 11–11 Lauga-
vegi 116. Sparverslun Bæjarlind 1
neitaði þátttöku í könnuninni. Að lok-
um vill verðlagseftirlit ASÍ taka fram
að aðeins sé um beinan verðsam-
anburð að ræða en ekki var lagt mat
á gæði eða þjónustu söluaðila.
VERÐKÖNNUN|Verðlagseftirlit ASÍ kannar verð í ellefu matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu
Alls 1.058% munur á hæsta og
lægsta verði pylsubrauða
$4# -
24 -
- I - "
J1#B B B '(!4&'**+
&
2- / " ( :
#
""( :
#
!" 1//(
% H#( ,;""
%-
P %( #
4 8(( #
4 .-" H#(
2/(#( ,;""
9;" ( ,;""
'
A--
#
A
9 #
*%"# *-""# #
*-""# .-
" * #
*-""# .-
" *
#
*-""# ) #
#
,#%#"" 4 #
B- 2-
#
! ( ) %
*@ -Q #
-" #
,- "& % #
,- "& % #
PH(3% #
6-
? #"" #
-" ;%& #
,-" - - # 0
. / , "
"- #
*
"" <-"" % / 0 #
"" %
#
9 D H: "F # D5&7 F
2- *%Q #
2- # D5&7 F
.; # D5&7 F
1(;"#0% 8 ""- Q #
.% 9 %#"- # %" #
<5/ 3 &5 2%R S"- #
<5/ 3 &5 # D5&7 F
! ("" 8 : &5 #
J"3"3 ! " - /"
<5/ 5 2- %T #
<5/ 5 2%R
#
BC 5 2%R # %" #
9;" %%- .. #
9;" %%- .. /"
!
"#
$$
!
$
%
"
#
&
%
$
'
&
"#
(
%
'
)
!"#
$!#
%&%#
'(#
)$#
&&!#
"%#
)*(#
&+,*!#
!'#
),$#
&,*#
*(#
*',#
&&$#
%'#
&&'#
&"'#
&%%#
&($#
''#
&*%#
&"'#
%)#
*"#
"*#
)*)#
"*#
&'*#
&(,#
&*"#
&*)#
&*&#
!$#
&%"#
&(&#
&"*#
$*#
&,,#
'"#
)&&#
*)#
(,#
-
-
*
%
Yfir 100% munur var á
hæsta og lægsta verði á 25
af þeim 43 vörutegundum
sem kannað var verð á sl.
laugardag. Minnsti verð-
munurinn í var tæp 30%.
Lífskraftur er yfirskrift verk-efnis, sem hefjast mun ánæstunni og er ætlað aðhöfða til unglinga á aldr-
inum 12 til 15 ára. Það eru þau Ragn-
heiður Guðfinna Guðnadóttir, feg-
urðardrottning Íslands 2001, og Arnar
Grant, núverandi Íslandsmeistari í
hreysti (fitness), sem standa að nám-
skeiðunum, sem ganga munu út á
skemmtun og útivist. Námskeiðs-
staður er ekki einhver einn, heldur
verða unglingarnir við leik og störf úti
um alla borg og næsta nágrenni henn-
ar þar sem markmiðið er að vera sem
mest úti. „Við verðum sem sagt í fjöri
úti um borg og bý. Við ætlum að virkja
krakkana til að stunda heilbrigðan lífs-
stíl og fá þau til að geisla af vellíðan og
heilbrigði,“ segir Ragnheiður í samtali
við Daglegt líf.
„Þessir krakkar fá litla sem enga
hvatningu í dag til að stunda hreyf-
ingu og það er lítið fyrir þau að gera.
Margir unglingar hafa engin ákveðin
áhugamál eða ekki þorað að byrja í
einhverju og einmitt þess vegna tek-
ur námskeiðið á mörgum ólíkum þátt-
um svo að þau geti haft tækifæri til að
prófa sem mest. Alltof margir ung-
lingar stríða við yfirþyngd og litla
sem enga hreyfingu sem leitt getur af
sér mikla vanlíðan. Á unglingsárun-
um er sjálfsmatið og sjálfsvirðingin
að myndast að miklu leyti og því
skiptir hreyfing, hollt mataræði og
vellíðan máli á þessum aldri, en því
miður gera fæstir krakkar sér grein
fyrir því. Þar sem mikil þroskaskipti
eiga sér stað á þessum árum og ýmis
vandamál banka á dyrnar þótti okkur
tilvalið að huga sérstaklega að þess-
um aldurshópi,“ segir Ragnheiður.
Ragnheiður og Arnar standa sam-
eiginlega að námskeiðunum, en þau
eru í samvinnu við Adidas, Vífilfell,
Kea-skyr, Subway og Salatbarinn, en
þessir aðilar koma til með að færa
krökkunum íþróttagalla og mán-
aðarbirgðir af heilsusamlegum mat.
Námskeiðin eru haldin í samvinnu
við sjálfsstyrkingu.is og verða íþrótt-
ir, fjallganga, þrautir, hjólreiðatúrar,
línuskautatúrar, útiblak í Nauthóls-
vík, hestaferðir, veggjaklifur, sjálfs-
styrking og sjálfsvörn meðal við-
fangsefna. Foreldrum unglinganna
verður jafnframt boðið í fyrirlestur
tvö kvöld á vegum sjalfsstyrking.is
þar sem farið verður m.a. yfir það
hvernig best sé að kaupa í ísskápinn,
hreyfingu, sjálfsmyndina og hvernig
beri að virkja börnin og virða þau á
þessum aldri. „Foreldrar eiga að vera
fyrirmyndir barna sinna, en oft er
það einmitt fáviska foreldra um
mataræði og vellíðan sem veldur því
að unglingum tekst ekki nógu vel
upp,“ segir Ragnheiður.
Fyrsta námskeiðið er hafið og
verða tvö námskeið keyrð saman í
tvær vikur til að byrja með, annað
fyrir hádegi frá klukkan 9–12 og hitt
eftir hádegi frá klukkan 13–16. Um
það bil fimmtán krakkar komast á
hvert námskeið. Miðað við þau góðu
viðbrögð sem námskeiðshaldarar
hafa nú þegar fengið má búast við því
að framhald geti orðið á námskeiðs-
haldinu, jafnvel bæði sunnan og norð-
an heiða. Námskeiðið kostar 22 þús-
und krónur á hvern ungling.
HEILSA|Hreyfing og hollt mataræði kemur öllum til að líða vel
Í fjöri um borg og bý
Morgunblaðið/ÞÖK
Arnar Grant og Ragnheiður Guð-
finna Guðnadóttir standa að ung-
linganámskeiðunum.
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
ragga@sjalfsstyrking.is
grant@internet.is
smáauglýsingar
mbl.is