Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 32
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
GRETTIR! ÞAÐ ER EKKI
EINS OG ÉG
GETI BARA
HÆTT AÐ FARA
ÚR HÁRUM
ÉG FER ÞÁ BARA HEIM ÞAÐ RÍKIR HAMINGJA
HEIMA HJÁ MER...
ÞAÐ VILL
ENGINN
SKAUTA
MEÐ MÉR
BLÓM ERU
SVO VITLAUS
EN NÚ HALDA ÞAU AÐ
ÞAÐ SÉ RIGNING
ÞAÐ ER
SVO GAMAN
AÐ RUGLA ÞAU
SJÁÐU,
ÞAÐ ER SÓL
OG HEIÐUR
HIMINN!
JÁ!
HANN
BENDIR
ÞEGAR HANN
SÉR ÓMERKI-
LEGT FÓLK
GETUR ÞESSI ÓMERKILEGI
BLENDINGUR ÞINN LEIKIÐ
EINHVERJAR LISTIR?
VANTAR YKKUR
STAÐ TIL AÐ
GISTA STRÁKAR?
ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI Í
LAGI, EN BARA Í NÓTT!
ÉG ER FLÓA
GISTIHEIMILI
EF ÉG ÆTLA AÐ STAN-
DA MIG BETUR Í STARFI
ÞÁ ÞARF ÉG AÐ LEGGJA
HARÐAR AÐ MÉR
ÞÚ LEGGUR
NÚ ÞEGAR
HART AÐ ÞÉR
ÞESSI TÍMI
SAMANSTENDUR
HINSVEGAR AF 5
MÍNÚTNA HLÉUM
ÞAÐ
VERÐUR AÐ
HAFA ÞAÐ
STUNDUM
NOKKRA
KLUKKUTÍMA
ÉG HEF VERIÐ AÐ FARA YFIR
DAGBÓKINA MÍNA OG KOMIST AÐ
ÞVÍ AÐ ÉG HEF TÖLUVERÐAN
ÓNÝTTAN TÍMA Á HVERJUM DEGI.
NÚ VEIT ÉG
HVERNIG HANN
BREYTTI
TÖLVUNNI!
EN VIÐ
ATHUGUÐUM...
EN
SKOÐUÐUÐ
ÞIÐ MÁLM-
HENDINA
HANS?
HÚN ER
ÖÐRUVÍSI
VIÐKOMU
EN ÁÐUR
HANN HEFUR
BREYTT HENNI!
Dagbók
Í dag er þriðjudagur 5. júlí, 186. dagur ársins 2005
Víkverji þurfti illuheilli að vera í
nokkra daga með ann-
an fótinn á líknardeild
Landspítalans í Kópa-
vogi fyrir skemmstu
þar sem hann fylgdi
nánum fjölskyldu-
meðlim hinsta spölinn.
Víkverji hefur ekki
komið á téða deild í
annan tíma og til að
gera langa sögu stutta
féll hann í stafi yfir öll-
um aðbúnaði á staðn-
um og viðmóti starfs-
fólks. Það er einstakt.
Þvílík umhyggja og
mannkærleikur er
vandfundinn í þessu samfélagi.
Þarna er bersýnilega valinn maður í
hverju rúmi. Mikið hæfileikafólk í
mannlegum samskiptum. Vissulega
má gera ráð fyrir fagmennsku á
svona stað. En þetta fólk gerir svo
miklu, miklu meira. Fer langt fram
úr þeim kröfum sem gera má til
vandalausrar manneskju við þessar
erfiðu aðstæður.
Víkverji má til með að þakka
þessu einstaka fólki viðgjörninginn
og hjálpina þessa löngu og erfiðu
daga. Framkoma þess var fjölskyldu
hans mikill styrkur í glímunni við hið
óumflýjanlega.
Víkverji fylgist ekkigrannt með tennis
en sperrir þó alltaf
eyrun þegar Wimble-
don-mótið ber á góma.
Hann ber einhverja
óskilgreinda virðingu
fyrir því. Um liðna
helgi gerðist það að
svissneski tennisleik-
arinn Roger Federer
vann umrætt mót
þriðja árið í röð og er
þar með kominn í fé-
lagsskap með ekki
ómerkari mönnum en
Pete Sampras og Birni
Borg en fátítt er að
sigurganga manna
standi svo lengi á stórmóti af þessu
tagi.
Federer, sem er bráðungur að ár-
um, lýtur helst ekki í gras. Er séní á
því undirlagi og því liggur Wimble-
don svona vel við höggi. Fróðlegt
verður að fylgjast með þessum mikla
afreksmanni í framtíðinni.
Víkverji gleðst ekki síður með
öðrum afreksmanni, Guðmundi
Benediktssyni knattspyrnukappa,
sem öðlast hefur nýtt líf hjá Val í
efstu deild karla í sumar. Víkverji
óttaðist að þetta skæra ljós í hinu ís-
lenska sparkmyrkri væri slokknað.
Öðru nær.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Sviss | Djasshátíðin í Montreux í Sviss þykir með mestu viðburðum ársins í
djassinum. Hátíðin stendur yfir um þessar mundir, en í ár eru 39 ár frá því
hún var fyrst haldin. Allar mestu stjörnur djassins koma jafnan fram á hátíð-
inni, en á sérstöku Rokkkvöldi hátíðarinnar í fyrrakvöld var söngkonan Patti
Smith meðal gesta. Patti Smith leggur leið sína til Íslands síðsumars og verð-
ur með tónleika á Nasa ásamt hljómsveit sinni 6. september.
Reuters
Rokkgyðja á Montreux
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Trúin á nafn Jesú gjörði þennan mann, sem þér sjáið og þekkið styrkan.
Nafnið hans og trúin, sem hann gefur, veitti honum þennan albata fyrir
augum allra. (Post. 3, 16.)