Morgunblaðið - 05.07.2005, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 33
DAGBÓK
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6
5. Rc3 b5 6. Bd3 d6 7. 0-0 Rf6 8. a3 Bb7
9. f4 Rbd7 10. Kh1 Be7 11. De1 Rc5 12.
b4 Rxd3 13. cxd3 Rd7 14. Be3 0-0 15. f5
e5 16. Rb3 Hc8 17. Ra5 Ba8 18. a4 Rf6
19. axb5 d5 20. Ra4 axb5 21. Rb6 Hc7
22. Rxa8 Dxa8 23. Dg3 Bxb4 24. Bh6
Rh5 25. Dg4 f6 26. Rc4 Ha7 27. Hxa7
Dxa7 28. Re3 dxe4 29. Rd5 Bd6 30.
Dxh5 exd3 31. Dg4 Hf7 32. Bxg7 Hxg7
33. Rxf6+ Kh8 34. Df3 d2 35. Re4 Bb4
36. f6 Hg6 37. f7 Bf8 38. Rxd2 Da2 39.
Re4 b4 40. h4 b3 41. h5 Hg7 42. Rc3
Da6 43. Hd1 Db6 44. Hd7 e4 45. Df4
Dc5 46. h6 Hg6 47. Hd8 Dh5+ 48. Kg1
Dc5+ 49. Kf1 He6
Besta skák Hannesar Hlífars Stef-
ánssonar (2.573) á Evrópumóti ein-
staklinga sem lauk fyrir skömmu í
Varsjá í Póllandi var gegn ofurstór-
meistaranum Viktor Bologan (2.700).
Hannes blés til sóknar með hvítu en
varð við það peði undir. Andstæðing-
urinn fórnaði svo manni en Hannes gaf
hann til baka til að halda sókninni
áfram. Þegar hér er komið við sögu
hafði Hannesi tekist að stýra sókn
sinni farsællega og lauk henni með
snyrtilegum leik. 50. Dg5! og svartur
gafst upp þar sem eftir 50. – Dxg5 mát-
ar hvítur eftir 51. Hxf8+ sem og eftir
50. – Dc4+ 51. Re2 Db4 52. Dg7#. Af
229 keppendum lenti Hannes í 69.–105.
sæti með 7 vinninga af 13 mögulegum,
Stefán Kristjánsson (2.461) lenti í 130.–
167. sæti með 6 vinninga og Bragi Þor-
finnsson (2.441) lenti í 207.–215. sæti
með 4½ vinning.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
80 ÁRA afmæli. Í dag, 5. júlí, eráttræður Kristján Krist-
jánsson (Danni). Danni tekur á móti
gestum í Félagsheimilinu við Elliðaár
milli kl. 17–19 í dag.
Gangið í
hollvinasamtökin
SÉRA Sigurður Rúnar Ragnarsson,
sóknarprestur í Norðfjarð-
arprestakalli, skrifar á dögunum í
Morgunblaðið varðandi Hollvina-
samtök Fjórðungssjúkrahússins í
Neskaupstað. Þar telur hann að fé-
lögum þurfi að fjölga. Ég vil taka
undir það og skora á alla brottflutta
Norðfirðinga að veita þessum fé-
lagsskap lið og ganga til liðs við um-
rædd samtök.
Gunnar G. Bjartmarsson,
Hátúni 10, Rvík.
Stórsöngvarar, skáld
og dagskrá Sjónvarpsins
HVAÐ hefur orðið af Kristjáni Jó-
hannssyni stórsöngvara? Ekkert
hefur heyrst í honum í útvarpi eða
sjónvarpi svo mánuðum skiptir og
sakna ég þess að heyra ekki í hon-
um, hann er einn af okkar stór-
söngvurum.
Þá er það þessi einkennilega notk-
un á orðinu skáld. Það virðist vera
alveg sama um hvern er að ræða,
það virðist hver sem er getað kallað
sig skáld. Þetta er titill sem að mínu
mati er ofnotaður. Sama gildir um
orðið stórsöngvari, það eru alls kon-
ar raularar sem eru titlaðir stór-
söngvarar. Það er mikil misnotkun á
íslensku máli.
Og svo er það þátturinn Hjá
Hemma Gunn. Sá þáttur fer að
mestu fram á ensku, það er varla að
þarna komi fyrir lag á íslensku.
Þetta á ekki að eiga sér stað.
Síðast en ekki síst. Það er ósvífni
hjá Sjónvarpinu að taka út fasta
dagskrárliði til að koma inn beinum
útsendingum, eins og t.d. fótbolta.
Það á ekki að líða það að dagskránni
sé gjörbreytt með litlum fyrirvara.
B.H.
Pallbílar án ljósa
ÉG hef tekið eftir því undanfarið að
þessir nýju pallbílar sem er verið að
flytja inn frá Bandaríkjunum virðast
vera án dagljósabúnaðar því þeir eru
allir meira og minna ljósljósir þegar
maður mætir þeim en sá búnaður
fylgir nýjum bílum sem eru seldir
hér á landi.
Og svo finnst mér eins og að
bílbeltanotkunin sé alltaf að minnka
hjá ökumönnum.
Einar.
Duran Duran-trefill týndist
HVÍTUR Duran Duran-trefill með
bláum og rauðum röndum tapaðist á
tónleikunum í Egilshöll. Skilvís finn-
andi er vinsamlega beðinn að hafa
samband við Guðrúnu í s. 862 3708.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 5. júlí, erfimmtug Elísabet Jónsdóttir,
féhirðir hjá Íslandsbanka, Núpalind 8,
Kópavogi. Elísabet verður í vinnunni á
afmælisdaginn.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Ath. farið að Skógum
kl. 9.30 á morgun 6. júlí frá Afla-
granda.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Leikfimi kl.
9. Boccia kl. 9.30. Gönguhópur kl.
13.30. Púttvöllur kl. 10–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, hárgreiðsla, fótaaðgerð, farið í
sund. Út að pútta með Jónu Þórunni
kl. 13.30.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, Kl. 9–14 baðþjónusta, Kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15–
12.15 matur, kl. 14.30– 15.30 kaffi.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Ferð FEBK 7. júlí nk - Land-
mannalaugar - Sigalda - Þjórsárdalur.
Brottför frá Gjábakka kl. 8.30 og Gull-
smára kl. 08.45 Leið: Selfoss, Land-
vegur, Dómadalsleið, Land-
mannalaugar/-hellir. Eigið nesti
snætt. Ljótipollur, Sigalda. Áð í
Hrauneyjum. Þjórsárdalur, Hjálp-
arfoss o.fl. Kvöldmatur í Árnesi.
Skráningarlisti í Gjábakka, sími
554 3400 og hjá Þráni 554 0999
/Boga 560 4255.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd Strandir 15.–17. júlí. Brottför frá
Gullsmára kl. 08.30 og Gjábakka kl.
08.45. Leið m.a. Brú, Hólmavík,
Drangsnes, Klúka, Djúpavík, Gjögur,
Norðurfjörður, Ingólfsfjörður o.fl. Gist
á Laugarbóli og Hólmavík. Ekin
Tröllatunguheiði í Króksfjarðarnes,
Dalir, Bröttubrekka. Skráning Gjá-
bakka í s. 554 3400 eða Þráinn
554 0999 / Bogi 560 4255.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Far-
þegar í Laugafellsferð 21.–25. júlí
þurfa að greiða ferðina upp. Dagsferð
í Landmannalaugar 14. júlí, eigum
laus sæti. Upplýsingar í síma
588 2111. Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar ganga frá Hlemmi kl. 10.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og
dagblöðin. Kl. 9 hárgreiðsla. Kl. 10
boccia og pútt. Kl. 12 hádegismatur.
Kl. 12.15 ferð í Bónus. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Brids kl. 13. Pútt á Hrafnistuvelli kl.
14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Bankaþjónusta
kl. 9.45. Böðun virka daga fyrir há-
degi. Hádegisverður. Fótaaðgerðir
588 2320. Hársnyrting 517 3005.
Minnum á sumarferðina fimmtudag-
inn 7. júlí, skráið ykkur sem fyrst.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
opið í allt sumar. Betri stofa og Lista-
smiðja kl. 9–16. Handverk og trésmíði.
Sniglarnir í gönguferð kl. 10. Bónus
12.40. Bókabíll 14.15–15. Hárgreiðslu-
stofa 568 3139. Ferð í Bása, Þórs-
mörk, miðvikudaginn 7. júlí kl. 9, ár-
degis. Nesti. Kíktu við eða fáðu nánari
upplýsingar í síma 568 3132.
Norðurbrún 1 | Norðurbrún – Furu-
gerði. Farið verður í nestisferð
fimmtudaginn 7. júlí að Básum í Þórs-
mörk. Leiðsögumaður: Anna Þrúður
Þorkelsdóttir. Upplýsingar í síma:
Norðurbrún 568 6960 og Furugerði
553 6040.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa-
vinna. Kl. 13–16 postulínsmálun (júní).
Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–
16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, leikfimi kl. 10, fé-
lagsvist kl. 14. Farin verður dagsferð á
Snæfellsnes 13. júlí, skráning og allar
upplýsingar í síma 411 9450. Allir vel-
komnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9.
Garðasókn | Opið hús í sumar í
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, á þriðju-
dögum, kl. 13 til 16. Við spilum lomber,
vist og bridge. Röbbum saman og
njótum samverunnar. Kaffi á könn-
unni. Vettvangsferðir mánaðarlega,
auglýstar hverju sinni. Akstur fyrir þá
sem vilja, upplýsingar í síma:
895 0169. Allir velkomnir.
Stokkseyrarkirkja | Aðalfundur safn-
aðarins verður í kirkjunni mánudag-
inn 11. júlí kl. 20.30. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Sóknarnefnd.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
EM á Tenerife.
Norður
♠DG3
♥Á865 A/NS
♦K10875
♣7
Vestur Austur
♠Á1074 ♠5
♥1092 ♥DG73
♦32 ♦ÁDG964
♣KDG3 ♣105
Suður
♠K9862
♥K4
♦--
♣Á98642
Sigursveit Hollendinga á EM lenti í
kröppum dansi á móti Dönum í 8 liða
úrslitum. Hollendingar unnu með 12
IMPa mun (76-64) og þar af komu 15
IMPar í síðasta spilinu.
Á báðum borðum varð suður sagn-
hafi í fjórum spöðum dobluðum:
Vestur Norður Austur Suður
Madsen Bakkeren Madsen Bertens
-- -- 1 tígull 2 lauf
Pass 2 grönd Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 spaðar
Dobl Allir pass
Tromp út er banvænt, en Bertens
fékk út tígulþrist. Hann notaði sam-
ganginn vel til að trompa lauf þrisvar í
borði og eitt hjarta og annan tígul
heima. Í lokastöðunni átti suður K9 í
trompi og tvö lauf, en vestur Á1074 í
spaða. Bertens spilaði laufi og fékk tí-
unda slaginn á spaðakóng: 790 í NS.
Í hinum salnum gengu sagnir þannig
fyrir sig:
Vestur Norður Austur Suður
Verhees Clemmensen Jansma Graversen
-- -- 1 tígull 2 lauf
Pass 2 grönd Pass 3 spaðar
Pass 3 grönd Pass 4 lauf
Dobl 4 spaðar Dobl ! Allir pass
Eftir þessar sagnir er nokkuð aug-
ljóst að blindur er stuttur í laufi og á
þeim forsendum trompaði Verhees út.
Sagnhafi stakk eitt lauf og reyndi svo
að sækja trompið, en missti þá allt vald
á spilinu og endaði tvo niður: 500 í AV.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
BÍLALEIGAN AKA
Vagnhöfða 25 • 112 Reykjavík • Sími 567 44 55 • Fax 567 44 53
VIÐ HÖFUM
ALLAR
GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA