Morgunblaðið - 05.07.2005, Side 37
MIKIL SALA - VANTAR ALLAR STÆRÐIR EIGNA Á SKRÁ
ÁLFASKEIÐ - HAFNARFIRÐI
HRAUNTUNGA Í KÓPAVOGI
FAGRIHJALLI - KÓPAVOGUR
VIÐARÁS
HÁALEITISBRAUT
DALSEL
SPORÐAGRUNN - SÉRHÆÐ
Vorum að fá í sölu stórglæsilega hæð í Laugarásnum.
Eignin hefur öll verið uppgerð á síðustu árum, t.d. náttúru-
steinn á forstofu og gestasnyrtingu með hita í gólfi, gegn-
heilt eikarparkett á stofum og svefnherbergjum, eldhús
endurnýjað með hvítum HTH innréttingum og nýjum tækj-
um, sérrafmagnstafla fyrir eldhús, halógenlýsing, baðher-
bergi endurnýjað með sérsmíðaðri innréttingu úr hnotu og
náttúrusteini á gólfi. Hjónaherbergi með sérsmíðuðum
fataskáp með rennihurðum, tvö barnaherbergi með skáp-
um, tvennar svalir. Húsið hefur verið lagað að utan líka,
sprunguviðgert og málað. Ný hellulögn í sérbílastæði.
Húsið var teiknað af Sigvalda Thordarsyni. Í heild glæsi-
leg íbúð að öllu leyti á vinsælum stað.
GRÆNIHJALLI - FRÁBÆR EIGN
Stórglæsilegt og mjög mikið endurnýjað 255 fm raðhús á 2 hæðum, m. innb. 48 fm bílsk. Allt tréverk nýlegt, flísar og
parket á gólfum. Nýtt bað og eldhús. Arinn. 4 svefnherb. Nýstandsettur glæsilegur garður, steypt plön framan við
húsið og stórir sólpallar og skjólveggir á suðurlóð. Í heild frábært hús með miklu útsýni. Verð 45,8 millj.
FJÓLUHVAMMUR - HAFNARFIRÐI - EINBÝLI/TVÍBÝLI
Þetta fallega og einstaklega vel staðsetta 355,7 fm einbýli er á 2 hæðum með 2 sjálfstæðum íbúðum en einnig má
auðveldlega nýta húsið í einni heild. Bæði sérinngangar í báðar íbúðir og innangengt. Húsið er sérlega vandað í
grunninn og bæði vel umgegnið og töluvert endurnýjað, s.s. baðherbergi og gólfefni. Tvöf. bílsk. m.góðri lofthæð.
Óviðjafnanlegt útsýni. Fallegur garður og stór sólpallur.
LÆKJARGATA Í HAFNARFIRÐI
ÁLFASKEIÐ HFJ.
HVERFISGATA
LINDARGATA - ÞAKÍBÚÐ
RAUÐAGERÐI
AUSTURBERG
HVAMMABRAUT HF.
TJARNARMÝRI - SELTJARNARNESI
ÞÓRSGATA - MIÐBÆR REYKJAVÍKUR
LANGHOLTSVEGUR
FISKISLÓÐ
DUGGUVOGUR - ATVINNUHÚSNÆÐI
TVÖ HÚS TIL FLUTNINGS
HVASSALEITI - ENDARAÐHÚS
TUNGUBAKKI - RAÐHÚS
HOLTSGATA - STÓR EIGNARLÓÐ
HEIÐARHJALLI
SÆLUREITUR VIÐ LÆKINN!
BARÐASTAÐIR
KLEIFARVEGUR - EINSTAKT TÆKIFÆRI
LINDARGATA - 101 SKUGGAHVERFI
Stórglæsileg 97,2 fm íbúð á 6. hæð í 101 Skuggahverfi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er sérlega björt með meiri
lofthæð en almennt gerist. Góð hljóðeinangrun er á milli íbúða enda hefur verið leitast við að skapa íbúðir með kost-
um sérbýlis. Íbúðin er innréttuð með eikarinnréttingum frá Borgum. Íbúðin skiptist í rúmgóða stofu, tvö herbergi, eld-
hús, þvottahús og baðherbergi. Fallegt útsýni er úr íbúðinni. Staðsetning 101 Skuggahverfis er frábær með fallegri
tengingu við sjávarsíðunna annars vegar og miðbæ Reykjavíkur hins vegar.Verð 32,9 milljónir.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2005 37
MENNING
Þriðjudagstónleikar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
5. júlí kl. 20:30
Tríó Trix
Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir
fiðla, Vigdís Másdóttir víóla og
Helga Björg Ágústsdóttir selló
flytja Serenöðu op. 10 eftir
Dohnányi og Strengjatríó
í a moll eftir Max Reger.
Í GÆR hófst fjögurra vikna alþjóð-
legt sumarnámskeið í íslensku í Há-
skóla Íslands. Námskeiðið er eink-
um ætlað erlendum háskólastúd-
entum. Stofnun Sigurðar Nordals
gengst fyrir námskeiðinu í samvinnu
við hugvísindadeild Háskóla Íslands
og annast skipulagningu þess.
Þátttakendur eru 35 að þessu
sinni og koma frá 12 löndum, flestir
frá Bandaríkjunum, Bretlandi og
Þýskalandi. Úlfar Bragason, for-
stöðumaður stofnunar Sigurðar
Nordals, hefur fundið fyrir auknum
áhuga á íslensku og Íslandi almennt
og á ári hverju berast fleiri umsókn-
ir um hvers konar íslenskunám fyrir
útlendinga hér á landi.
Ástæður fyrir þátttöku á nám-
skeiðinu eru af ýmsum toga. Að sögn
Úlfars hafa hljómsveitir eins og
Björk og Sigur Rós aukið áhuga
fólks á Íslandi. „Sumir koma af al-
mennum menningaráhuga, aðrir eru
í sérstöku námi sem tengist Íslandi
en flestir eru í íslenskunámi er-
lendis,“ segir Úlfar. Þátttakendum
er skipt í tvo hópa í íslenskunáminu
eftir kunnáttu en allir hafa þegar
lagt stund á íslensku heima fyrir,
annaðhvort hjá sendikennurum í ís-
lensku eða með aðstoð vefnám-
skeiðsins Icelandic Online I.
Mikið er gert fyrir þátttakendur á
námskeiðinu en auk þess að nema ís-
lensku gefst stúdentunum tækifæri
til að hlýða á fyrirlestra um náttúru
Íslands, sögu Íslendinga, menningu
á Íslandi og íslensk stjórnmál og
heimsækja menningarstofnanir og
skoða sig um á sögustöðum.
Þetta er í sautjánda skiptið sem
stofnunin sér um undirbúning al-
þjóðlegs sumarnámskeiðs í íslensku
en um þrisvar sinnum fleiri stúd-
entar sækja um námskeiðið en unnt
er að sinna. Á annað þúsund nema
stunda íslenskunám annars staðar
en 14 íslenskulektorar eru starfandi
í 8 Evrópulöndum og einn í Kanada.
Stofnun Sigurðar Nordals annast
umsjón með þessari kennslu.
Úlfar Bragason forstöðumaður stofnunar Sigurðar Nordals.
Áhugi á Íslandi og á
íslensku fer vaxandi
TRÍÓIÐ Drýas mun halda hádegis-
tónleika í bókasal Þjóðmenningar-
hússins, þriðjudagana 5., 12. og 19.
júlí frá kl. 12.15–12.45.
Í Drýas eru þær Herdís Anna Jón-
asdóttir, sópran, Þorbjörg Daphne
Hall, selló, og Laufey Sigrún Har-
aldsdóttir, píanó, og stunda þær all-
ar tónlistarnám við Listaháskóla Ís-
lands. Í sumar starfa þær sem
skapandi sumarhópur hjá Hinu hús-
inu.
Á efnisskránni eru aðeins íslensk
verk, m.a. sönglög eftir Atla Heimi
Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson
og Jórunni Viðar, þjóðlög í útsetn-
ingum Hafliða Hallgrímssonar og
Jónasar Tómassonar og verk eftir
Hreiðar Inga Þorsteinsson.
Hádegistónleikar
Í KVÖLD kl. 19 verða haldnir tón-
leikar í Norræna húsinu í
tengslum við opinbera heimsókn
Valgerd Svarstad Haugland,
menningar- og kirkjumálaráð-
herra Noregs. Það eru klarínettu-
leikarinn Andjei Maevski frá Nor-
egi, lágfiðluleikarinn Helga
Þórarinsdóttir og píanóleikarinn
Joachim Kjelsaas Kwetzinsky,
einnig frá Noregi, sem leika verk
eftir Johann Sebastian Bach, Olav
Anton Thommessen, Robert Schu-
mann, Atla Heimi Sveinsson, Pál
Ísólfsson, Edvard Grieg, Max
Bruch, Rodion Sjtsjedrin og Dar-
ius Milhaud.
Tónleikarnir eru hlut af aldar-
afmæli friðsamlegra sambandsslita
Noregs og Svíþjóðar 1905.
Norsk-íslenskt
klarinettutríó í
Norræna húsinu
Fréttasíminn
904 1100