Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.2005, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HRYÐJUVERK Í LONDON Vitað var með vissu að 38 manns týndu lífi og mörg hundruð særðust í sprengjutilræðum í þrem jarðlestum og strætisvagni í London í gær- morgun. Strætisvagninn, sem var tveggja hæða, sprakk í loft upp og tættist þakið af honum. Árásirnar voru allar gerðar á innan við klukku- stund en ekki er vitað hvort í ein- hverjum tilfellum var um sjálfs- morðsárás að ræða. Miklar truflanir urðu á samgöngum og urðu margir að eyða nóttinni á hótelum í mið- borginni. Yfirlýsing um ábyrgð á tilræð- unum frá hópi sem kennir sig við „heilagt stríð al-Qaeda í Evrópu“ var send út á Netinu og sérfræðingar segja að tilræðin beri mörg einkenni samtakanna. Leiðtogar um allan heim fordæmdu tilræðin og sama gerðu samtök múslíma í Bretlandi. Neitar þátttöku í Fjárfari Sigfús R. Sigfússon, fyrrv. for- stjóri Heklu, neitar að hafa átt hlut í Fjárfari ehf. þótt hann hafi verið stjórnarformaður félagsins. Hann segist aldrei hafa lagt fram peninga í félagið og aldrei hafi verið haldnir stjórnarfundir í því. Stærstur í Finnlandi Björgólfur Thor Björgólfsson verður stærsti hluthafinn í 165 millj- arða símafyrirtæki í Finnlandi. Þetta gerðist þegar tilkynnt var í gærkvöldi um samruna minnsta finnska farsímafyrirtækisins og næststærsta símafyrirtækis Finn- lands. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Minningar 35/41 Viðskipti 15 Skák 45 Erlent 16/21 Brids 45 Minn staður 22 Dagbók 44/47 Höfuðborgin 23 Myndasögur 44 Akureyri 24 Víkverji 44 Suðurnes 24 Staður og stund 45 Daglegt líf 26/26 Af listum 47 Menning 27 Leikhús 48 Umræðan 27/34 Bíó 50/53 Bréf 34 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 54 Viðhorf 30 Staksteinar 54 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju- starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                 ! " # $ %           &         '() * +,,,                                  MUGGUR KE, handfærabátur frá Keflavík, strandaði í gær undir Króksbjargi, u.þ.b. 8 mílur norður af Skagaströnd. Einn maður var um borð og sakaði hann ekki. Blíðskaparveður var þegar strandið átti sér stað og kom Húna- björgin, björgunarskip Skaga- fjarðar, á staðinn skömmu eftir að skipstjóri Muggs kallaði eftir aðstoð. Góðar aðstæður voru á strandstað og gat Húnabjörgin dregið Mugg úr fjörunni og til hafnar á Skagaströnd. Báturinn var síðan tekinn á land til að athuga skemmdir og reyndust þær ekki verulegar. Skrúfan er ónýt og örlítill leki kom að bátnum. Morgunblaðið/ÓB Húnabjörg dregur Mugg KE til hafnar á Skagaströnd í gær. Um borð í bátnum var tæpt tonn af fiski sem var land- að strax eftir að Muggur kom að bryggju. Að því búnu var báturinn tekinn á land til að athuga skemmdir. Muggur dreginn til hafnar EKKI varð nein röskun á flugi til og frá London að sögn forsvarsmanna Icelandair og Iceland Express í gær í kjölfar hryðjuverka í borginni. Bæði félögin tóku þá ákvörðun að fella niður breytingargjald fyrir þá sem vildu fresta eða breyta flugáætl- unum sínum vegna ástandsins í London. Flug gekk þó sinn vana- gang og ekki voru margir sem sóttu eftir því að breyta flugmiðum sínum, að sögn þeirra Guðjóns Arngríms- sonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, og Birgis Jónssonar, framkvæmda- stjóra Iceland Express. „Langflestir þeirra sem áttu bók- að flug mættu og flugu samkvæmt áætlun,“ segir Guðjón og aðspurður sagði hann að aðeins fjórir farþegar hefðu ekki komist í flugið frá Heat- hrow í gærkvöldi þrátt fyrir að al- menningssamgöngur hafi legið að mestu niðri. Hann sagði sárafáa hafa ákveðið að snúa samdægurs við eftir að hafa flogið til London í gær. Birgir Jónsson, framkvæmda- stjóri Iceland Express, sagði allt flug hafa gengið eftir áætlun. „Ég myndi segja að þetta hafi gengið eins og ekkert hefði í skorist.“ Hann sagði eitthvað hafa verið um færslu á far- þegum, þ.e. að þeir sem hafi átt bók- að far í gærkvöldi hafi fengið að flýta för með vélinni sem fór í hádeginu í gær. Aðspurður sagði hann að átta manns hefðu ekki skilað sér í flug eftir því sem hann komst næst. Hann telur þó að inni í þeirri tölu séu jafn- vel einhverjir einstaklingar sem hafi verið færðir um flug þannig að talan eigi eftir að lækka sem því nemi. Birgir sagðist ekki hafa vitað til þess að einhverjir flugfarþegar hafi ákveðið að snúa við samdægurs. Bæði flugfélögin segja að eitthvað hafi orðið um frestanir hjá flugfar- þegum til London en það hafi verið í minna mæli, eða innan við 20 manns. Birgir segir að það hafi fyrst og fremst stafað af ótta fólksins við að geta ekki komist inn í borgina og á hótel. Engin röskun varð á flugi til og frá London„GUÐ ætlaði manni greinilega ekkiað fara þarna,“ segir Bragi Magn- ússon, sem starfar hjá ferðaskrif- stofunni Markmönnum sem sérhæf- ir sig í Lundúnaferðum. Litlu mátti muna að hann ásamt Þór Bæring hefðu verið staddir í neðanjarð- arlest á leiðinni á Liverpool St. í London skömmu áður en sprenging varð þar í gærmorgun. Bragi segir að hann og Þór hafi verið á leiðinni að taka lest þegar hann hafi gleymt símanúmeri á hótelinu sem þeir gista á. Hann sneri því við til að ná í símanúmerið en þegar þeir komu til baka var búið að loka neðanjarð- arlestakerfinu. „Ef ég hefði ekki sótt símanúm- erið hefðum við sennilega verið komnir í „túbuna“ á leiðinni á Liv- erpool Street,“ segir Bragi en þar sprakk fyrsta sprengjan í gær. Hann segist hafa verið á leiðinni að sækja hóp ferðamanna á Stanstead- flugvöll sem var að koma til London til þess að fara á Queen-tónleika sem halda átti í Hyde Park í kvöld, en tónleikunum hefur nú verið af- lýst. Hann segir íslensku ferðalang- ana hafa lent í talsverðum vand- ræðum með að komast til borg- arinnar. Þeir þurftu að fara talsverða krókaleið til þess að kom- ast á áfangastað þar sem sam- göngur voru að mestu lamaðar. Hann segir ferðalangana þó hafa komist á leiðarenda áfallalaust. „Allar samgöngur eru í rúst og GSM-símakerfið var alveg ónýtt því það var svo mikið álag á því,“ segir Bragi spurður um ástandið í gær- kvöldi. „Það er hálfgerður doði yfir öllu. Veitingahús eru lokuð og það eru margir ferðamenn hér sem eru strand,“ segir Bragi. Aðspurður segir hann fjóra hafa hætt við af 16 manna hópi sem kem- ur á vegum ferðaskrifstofunnar í dag. Hann segist vonast til þess að atburðirnir í London komi ekki til með að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir ferðaþjónustuna í London. „En þetta á pottþétt eftir að hafa áhrif. Það tekur smá tíma fyrir fólk að treysta aftur borginni. Það kem- ur eflaust smá dýfa í þetta en svo vonandi jafnar þetta sig.“ Símanúmer varð þeim til happs SVERRIR Haukur Gunnlaugsson, sendiherra í London, sagði marga hafa sett sig í samband við utan- ríkisráðuneytið á Íslandi og sendi- ráðið í London til þess að spyrjast fyrir um Íslendinga í borginni í gær. Hann bendir á að reynt hafi verið að vísa sem flestum á utanríkisráðu- neytið hér heima til að leita upplýs- inga enda hafi símasamband í Lond- on verið afar erfitt. Í gærkvöldi hafði ekki spurst til þriggja Íslendinga sem eiga að vera staddir í London, að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns utan- ríkisráðherra. „Nú virðist ljóst að þessum fyrir- spurnum fækkar mjög og fækkaði mjög síðdegis í dag [gær]. Fólk með nútímatækni og farsíma hefur sjálf- sagt náð saman,“ segir Sverrir Haukur og bætir því við að allt hafi gengið meira og minna upp. „Það eru alltaf einhverjir sem eru að spyrja um aðila sem þeir eru ekki vissir um að séu í London og þess háttar. Væntanlega greiðist úr því á morgun [í dag],“ segir Sverrir og bætir því við að engar fréttir hafi borist um Íslendinga á sjúkrahúsum í London. Hann segir stóru spurninguna nú snúast um það hvernig borgin fari í gang á nýjan leik. „London byggir svo mikið á því að fólk noti almenn- ingssamgöngur. Neðanjarðarjárn- brautin tekur milljónir manna inn í borgina á hverjum degi og sömu- leiðis strætisvagnarnir. Við eigum eftir að sjá hvernig það gengur upp,“ sagði Sverrir og bætti því við að honum sýndist sem Bretar væru almennt mjög rólegir þrátt fyrir mikið óvissuástand. Sigurður Arnarsson, sendiráðs- prestur í London, sagði gærdaginn að mestu hafa farið í það að fylgjast með og afla upplýsinga um þá sem spurt var um. Hann sagði fólk hafa haldið ró sinni þrátt fyrir erfiðar að- stæður. Sigurður sagði líkt og Sverrir að símasambandið hefði ver- ið mjög erfitt í borginni en hefði verið að lagast með kvöldinu. Rúmlega 2.000 Íslendingar búa í London. Engar fréttir af Íslendingum á sjúkrahúsum í London Margir leituðu upplýsinga um afdrif Íslendinga hjá sendiráði Íslands í London YFIRTÖKUNEFND mun skoða hvort stofnast hefur yfir- tökuskylda í FL Group í kjölfar viðskipta með hlutabréf í félag- inu. Viðar Már Matthíasson, for- maður nefndarinnar, segir að yfirtökuskylda skapist hafi einn hluthafi, eða hann í samráði við aðra hluthafa, náð yfirráðum í félagi. Yfirtökunefnd hyggist því kanna hvort aðilar málsins eigi með sér samstarf eða sam- ráð um yfirráð í FL Group. Yfirtökuskylda skapast við yfirráð yfir 40% atkvæðisrétti í félagi. Þrír aðilar ráða nú nærri 66% hlut í FL Group, þ.e. Katla Investments SA, Baugur Group og Hannes Smárason, stjórnar- formaður FL Group. Umtals- verð viðskiptatengsl eru á milli þessara aðila, m.a. í gegnum Húsasmiðjuna, Og Vodafone og Mosaic Fashions. | 15 Skoða eigna- tengsl í FL Group

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.