Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAKIÐ á salnum á Tímanum og
vatninu – en svo heitir stærsti sal-
urinn í Fossatúni við Grímsá í Borg-
arfirði – ætlaði hreinlega að rifa af,
þegar stappfullt hús klappaði dív-
unni Ragnheiði Gröndal og oktett
hennar lof í lófa eftir frábæra tón-
leika í sveitasælunni síðastliðinn
fimmtudag. Eftir flotta efnisskrá,
þar sem skiptust á jass- og blúslög,
voru gestir tregir til að sleppa þess-
um frábæru flytjendum af sviði en
urðu á endanum að láta undan.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Ragnheiður Gröndal sýnt og sannað
að þar fer eitthvert besta söngkonu-
efni sem hér hefur komið fram í ára-
raðir. Þó svo að kvefskítur virtist
hrjá hana á köflum lét hún það ekk-
ert á sig frá heldur reif sig í gegnum
hvert lagið á fætur öðru; ýmist á blíð-
an og angurværan hátt ellegar með
þrótti þannig að reif í raddböndin.
Nokkur laganna voru í nýjum,
skemmtilegum útsetningum Hauks,
bróður hennar, og var ekki annað að
heyra en þær féllu gestum jafn vel og
gamalkunnar standard-útsetningar.
Dívan var á tónleikunum studd
einvala liði; tveimur tenórsaxófón-
um, einum barítónsax og einum alt-
saxófón, auk gítars, bassa og
tromma. Þar var valinn maður í
hverju rúmi. Ef ekki voru tilþrif
Rangheiðar þá var boðið upp á hvert
snilldarsólóið af öðru. Og viðtök-
urnar létu ekki á sér standa. Ítrekað
braust út kröftugt lófatak eftir
mögnuð tilþrif flytjendanna.
Steinar Berg Ísleifsson og Ingi-
björg kona hans hafa með Fossatúni
skapað nýja vídd í íslenskri ferða-
þjónustuflóru. Tónlistarbóndi lýsir
e.t.v. starfinu hans best þessa dag-
ana. Auk þess að bjóða upp á lifandi
tónlist þrjú kvöld í viku þá er í
Fossatúni fyrirtaks veitingahús og
frábær þjónusta fyrir ferðamenn í
umhverfi sem vart á sinn líka í þess-
um geira. Nýjunginni hefur enda
verið vel tekið eins og best sást þetta
kvöld þar sem trauðla voru næg sæti.
Aukinheldur reka þau hjónin útgáfu-
fyrirtækið Steinsnar, sem átti tvær
af mest seldu plötum síðasta árs.
Tónlistaráhugafólk ætti að fylgj-
ast með því sem boðið verður upp á í
Fossatúni í sumar því skemmtilegri
kvöldstund er vart hægt að hugsa
sér. Malbikað alla leið úr höfuðborg-
inni heim að hlaði. Og óvitlaust að
kitla bragðlaukana í sveitasælunni
áður en hlustað er á góða tónlist.
Geggjað grúv
í Fossatúni
TÓNLIST
Tíminn og vatnið
Tónleikar
Sigurður Sverrisson
War of the Worlds kl. 6 - 8.30 - 11 b.i. 14
Batman Begins kl. 5.30 - 7.15 - 9 og 11 b.i. 12
Voksne Mennesker kl. 5.45
Crash kl. 8 og 10.15 b.i. 16
ÁLFABAKKI
BATMAN EINS OG ÞÚ HEFUR
ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
Nýr og miklu betri
leðurblökumaður.
H.L. / Mbl.
Loksins, Loksins
M.M.M / Xfm 91,9
Kvikmyndir.is
Gleymdu hinum.
Þetta er alvöru Batman
Ó.Ö.H / DV
Gleymið öllum hinum
Batman myndunum.
Þessi er málið
Andri Capone / X-FM 91,9
Þórarinn Þ / FBL
D.Ö.J. / Kvikmyndir.com
“Einn af stærstu smellum ársins.”
B.B. Blaðið
i f t r t ll r i .
. . l i
H.B. / SIRKUS
T O M C R U I S E
THE WAR OF THE WORLDS kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
THE WAR OF THE WORLDS VIP kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
WHO´S YOUR DADDY kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10 B.i. 14 ára.
BATMAN BEGINS kl. 3.30 - 4.30 - 5 - 6.30 - 7.30 - 8 - 9.30 - 10.30 B.i. 12 ára.
MYND EFTIR Steven spielberg
I N N R Á S I N E R H A F I N
„EKTA STÓRSLYSAMYND“
-Ó.Ö.H, DV
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.H.T, RÁS 2
„Innrásin er
girnileg
sumarskemmtun,
poppkornsmynd
af bestu gerð!“
-S.V, MBL
VINSÆ
LASTA
MYND
IN Á ÍS
LANDI
-
21.000
GEST
IR
Djörf grínmynd sem kemur
hormónunum af stað.
Ef þú fílaðir American Pie
seríuna áttu eftir að fíla þessa.
Honum stendur ekki á sama. i .
NORSKA leikkonan og leikstjórinn
Liv Ullmann er stödd hér á landi við
undirbúning á upptökum kvikmynd-
arinnar The Journey Home sem
gerð er eftir Slóð fiðrildanna, skáld-
sögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar.
Aðdragandi þessarar fyrstu ferðar
Ullmann til landsins á sér nokkra
forsögu. Fyrir um tveimur árum
kom inn á borð til hennar handrit að
myndinni sem henni bauðst að leik-
stýra.
„Þegar ég fór að kynna mér málið
fannst mér handritið alls ekki vera
samkvæmt bók Ólafs og afréð að
skrifa það upp á nýtt,“ sagði Ull-
mann í samtali við Morgunblaðið og
bætti við að bókin hefði haft mikil
áhrif á sig.
„Mér finnst heillandi þeir hlutir
sem eru stór partur af lífi fólks sem
það talar samt ekki um, þetta óá-
þreifanlega. Mér finnst Ólafur hafa
fangað þetta vel en fólkið í sögunni
hans segir eitt en meinar kannski
eitthvað annað. Mér fannst mjög
freistandi að reyna að fanga þetta í
bíómynd. Kvikmyndir geta nefnilega
fangað þetta augnablik hjá fólki þeg-
ar það brosir þótt það gráti innra
með sér.“
Land goðsagnanna
Myndin er framleidd af banda-
rísku og íslensku framleiðslufyrir-
tæki. Rúmur helmingur myndar-
innar verður tekinn upp hér á landi
og hefjast tökur í mars/apríl á næsta
ári. Ullmann segir aldrei neitt annað
hafa komið til greina en að taka svo
stóran hluta myndarinnar hér á
landi.
„Þetta er mynd um venjulegt fólk
frá Íslandi. Slíkar myndir hafa ekki
áður verið gerðar, að erlendir aðilar
komi til Íslands til að reyna að fanga
íslenskan raunveruleika fyrir stóran
markað. Ég held að það sé mikilvægt
að beita auga gestsins í þessu tilliti,“
segir hún. „Þetta verður ekki mynd í
anda James Bond því að það er ekki
Ísland. Myndin verður sönnun á því
hvers vegna Ísland er í hugum allra
enn land goðsagnanna. Þótt við sýn-
um ekki goðsagnirnar sjálfar sýnum
við fram á að þær lifa með fólkinu í
landinu.“
Eins og þeir sem lesið hafa Slóð
fiðrildanna vita fjallar sagan um ís-
lenska konu sem er búsett í Englandi
en afræður að fara til Íslands til að
gera upp ýmis mál úr fortíð sinni.
„Rætur hennar liggja allan tímann
á Íslandi og þegar hún er stödd í
Englandi skynjar maður það að hún
þarf að fara til Íslands einu sinni enn.
Það var því mjög mikilvægt að koma
hingað til lands þar sem rætur kon-
unnar liggja,“ segir Ullmann.
Fyrirtækið Saga film er meðfram-
leiðandi að myndinni og Ullmann ber
samstarfinu við starfsmenn fyrir-
tækisins sem og rithöfundinn Ólaf
Jóhann vel söguna.
„Ólafur hefur verið alveg frábær.
Það eru ekki allir höfundar eins og
hann þegar maður er að vinna með
sköpunarverk þeirra. Hann hefur
verið alveg einstaklega jákvæður og
þægilegur,“ segir Ullmann.
Þegar hefur aðalleikkona myndar-
innar verið ráðin en ekki verður gefið
upp að svo stöddu hver það er. Ull-
mann segir mjög líklegt að einhverjir
Íslendingar fari með hlutverk í
myndinni, sem hugsuð er bæði fyrir
evrópskan og bandarískan markað.
Kvikmyndir | Liv Ullmann undirbýr kvikmynd hér á landi
Markmiðið er að fanga
íslenskan raunveruleika
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson