Morgunblaðið - 08.07.2005, Page 17
P &#H
$ ." /
&
0
> &
&
�C
""
Q."
&
) .#/
/1 7& "3
3+; .<+8
/1 7& "3
"'#.
>
&
R ."" /
&
= && + 18
0;
+ &#S A
&
& = &.
/4 C
#& .&#'
0 " &
(
' -
'+
./0'+
'+') 0'",
,1+
.23423
9
' "";
, .
%00. 0
&' A ; D%AF
A
".
A.&"
isútvarpsins, hafði eftir lækni, sem
sinnti hinum særðu, að 10 manns að
minnsta kosti hefðu látið lífið og
reynist það rétt er tala látinna komin
á fimmta tuginn.
Bandarískir lögreglu- og leyni-
þjónustumenn, sem starfa náið með
Bretum, ónefndur franskur embætt-
ismaður og Giuseppe Pisanu, innan-
ríkisráðherra Ítalíu, kváðust allir
hafa fyrir því heimildir að tala lát-
inna væri hátt í 50.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
eftir árásirnar hefðu um 300 manns
verið flutt með sjúkrabílum á ýmis
sjúkrahús í Lundúnum en um 400
manns hefðu komið sér þangað sjálf.
Sagði hann að sumir væru alvarlega
særðir og vart hugað líf. Tölur yfir
látna gætu því hækkað.
Samhæfð árás
Ian Blair, yfirmaður lögreglunnar
í Lundúnum, staðfesti í gær að fund-
ist hefðu leifar eða ummerki um
sprengiefni á einum staðnum og
fréttir voru um, að þau hefðu líka
fundist á öðrum. Sagði Blair að flest
benti til að um skipulagða og sam-
hæfða hryðjuverkaárás hefði verið
að ræða. Í gærkvöldi var hins vegar
ekki orðið ljóst hvort um væri að
ræða sjálfsmorðsárásir eða hvort
sprengjurnar hefðu verið skildar eft-
ir í lestunum og strætisvagninum.
Lundúnabúar slegnir
en héldu ró sinni
Þrátt fyrir hryðjuverkin og blóð-
baðið, sem þeim fylgdi, virtust flestir
Lundúnabúar halda ró sinni og var
furðumargt fólk á götum úti annars
staðar en þar sem lögreglan hafði
girt þær af. Var fólk eðlilega mjög
slegið en margir höfðu á orði að þeir
ætluðu sér ekki að láta hryðjuverka-
menn stjórna lífi sínu.
Rekstur alls jarðlestakerfisins í
borginni var stöðvaður eftir hryðju-
verkin og er ekki búist við að hann
verði kominn í lag fyrr en eftir
nokkra daga. Akstri strætisvagna
var hins vegar haldið áfram í öðrum
hverfum en þeim, sem voru vett-
vangur árásanna. Farsímakerfið í
borginni var að mestu lamað í gær
vegna gífurlegs álags og vegna þess
að símafyrirtækin létu lögregluna og
aðrar almannavarnasveitir hafa all-
an forgang.
Dálitlar truflanir urðu í gær hjá
nokkrum fyrirtækjum í fjármála-
hverfinu, City, en þar voru flestir
komnir til vinnu áður en sprengjurn-
ar sprungu. Að öðru leyti var starf-
semin að mestu með venjulegum
hætti að sögn.
Miklar vangaveltur hafa verið um
áhrif hryðjuverkanna á ferðaiðnað-
inn í Lundúnum en sérfræðingar spá
því að þau verði ekki mikil. Fólk sé
orðið svo miklu sjóaðra en fyrir fáum
árum og meti nú áhættuna með
raunsærri hætti.
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 17
SJÚKRAFLUTNINGAMENN flytja
slasaða burt frá King’s Cross-
lestarstöðinni. Sprenging sem varð
í lest í göngum við stöðina varð
a.m.k. 21 að bana og slasaði fjöl-
marga til viðbótar. Fjöldi fólks sat
auk þess fastur í göngunum og
þurfti að brjóta sér leið út úr vögn-
um sínum til að komast út í göngin
og þaðan inn á stöðina og út.Fyrsta
sprengjan sprakk á Liver-pool
Street-stöðinni sem er skammt suð-
austur af King’s Cross. Fimm mín-
útur liðu á milli sprenginganna. Á
King’s Cross sprakk sprengjan rétt
fyrir klukkan átta að íslenskum
tíma í gærmorgun. Fréttir seint í
gærkvöldi hermdu að blóðbaðið
hefði orðið mest á King’s Cross, 21
var sagður hafa farist þar í lest sem
var á Picadilly-línunni svonefndu.
21 fórst í
sprengingu
við King’s
Cross