Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 08.07.2005, Blaðsíða 44
Dagbók Í dag er föstudagur 8. júlí, 189. dagur ársins 2005 Víkverji var á dög-unum staddur á Shellmóti í Eyjum þar sem níu og tíu ára gutt- ar öttu kappi í knatt- spyrnu. Mótið hefur fyrir löngu skapað sér fastan sess í huga 6. flokksdrengja og var nú haldið í 22. skiptið. Þetta er sannkölluð fótboltaveisla frá morgni til kvölds, í heila fimm daga, og fátt til sparað í móts- haldinu hjá Eyjamönn- um. Víkverji gladdist yfir góðu gengi sinna manna, sem var reyndar langt umfram væntingar, auk þess sem veðrið var bara ágætt. Að vísu smávindur og smárigning en ekkert miðað við síðasta ár þegar rokið, rigningin og kuldinn voru í öndvegi. Hið eina sem skyggði á gleði Víkverji þessa daga var að upp- götva hvað metnaður og kappsemi getur byrgt harðfullorðnu fólki sýn. Mót af þessu tagi eru í raun orðin keppni foreldra miklu frekar en leik- ur milli ungra og efnilegra knatt- spyrnukappa, enda viðurkenndu mótshaldarar að þeir hefðu aldrei upplifað jafn erfitt mót þar sem klögumálin gengu á víxl og óánægja með keppnisfyrir- komulagið blossaði upp. Víkverji man þá daga er hann stundaði fótbolta í yngri flokk- unum að foreldrar voru varla sjáanlegir. Ef einhverjir mættu á æfingu eða leik voru hinir sömu litnir horn- auga og guttarnir hálf- partinn skömmuðust sín fyrir nærveru pabba gamla eða mömmu, hvað þá afa eða ömmu. Nú fylgja foreldrar börnum sín- um undantekningalítið í alla leiki og standa hrópandi á hliðarlínunni. Allt er þetta gott og blessað en fólk verð- ur að kunna sér takmörk þegar kem- ur að kröfum um árangur og háttvísi utan vallar. Víkverji varð vitni að ótrúlegri hegðun harðfullorðins fólks á þessu Shellmóti og er Eyja- mönnum vorkunn að þurfa að kljást við þetta fólk. Að standa í karpi og rífast yfir styrkleika og úrslitum í leikjum tíu ára gutta er auðvitað með ólíkindum. Eyjamenn ætla að endurskoða mótshaldið og vonandi verður foreldrum haldið sem mest frá. Shellmótsmenn mættu einnig íhuga að stytta þessa ágætu keppni. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      Reykjavík | Síðasta föstudagsflipp skapandi sumarstarfa verður í dag milli kl. 13 og 15. Flippað verður á ýmsum stöðum í miðbæ höfuðborgarinnar. Það er um að gera að skella sér í bæinn og upplifa kraft og sköpunargleði unga fólksins. Tónleikar verða víðs vegar um bæinn, til dæmis í Apótekinum, Iðnó, á Lækjartorgi, í verslun Sævars Kars. Einnig verður Götuleikhúsið á ferð- inni og hægt verður að skoða ljósmyndir og myndlist. Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna á www.hitthusid.is. Föstudagsflipp í miðbænum Ljósmynd/Jorri MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.600 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottin, hef ég sál mína. (Sálm. 86, 4.) Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Í DAG FESTI ÉG HÖFUÐIÐ Í RUSLADALLI ÉG SKIL SVO FESTI ÉG RUS- LADALLINN Í RUSLATUNNU JÁ, JÁ TUNNAN FESTIST SVO Í RUSLAGÁMI VINDUM OKKUR BARA STRAX AÐ ÞVÍ ÞEGAR RUSLIÐ VAR URÐAÐ ÉG ER ORÐIN ÞREYTT Á AÐ VERA HUNSUÐ! SVONA FÆRÐU ÞIG FRÁ PÍANÓINU ÞVÍ ÉG ÆTLA AÐ SPARKA Í ÞAÐ HVÍ? MÉR LÍÐUR STRAX BETUR ÉG TRÚI EKKI AÐ MAMMA HAFI SENT MIG Í SUNDKENNSLU HÉR STEND ÉG KLUKKAN NÍU AÐ MORGNI OG FRÝS Í HEL. ÞAÐ EINA SEM GÆTI VERIÐ VERRA VÆRI AÐ ILLKVITTNA BARNFÓSTRAN MÍN... STJÓRNAÐI ÞESSUM SUNDTÍMA HÆ KALVIN HJÓNABÖND ERU BARA FYRIR TURTILDÚFUR! PSSST... ÉG VISSI EKKI EINU SINNI AÐ FUGLAR FÆRU Á STEFNUMÓT ÉG ELTI BARA JEPPA, ÞEIR VERÐA FYRR BENSÍNLAUSIR EF ÉG ÆTLA MÉR AÐ SKRIFA BÓK ÞÁ ÞARF ÉG AÐ GEFA MÉR TÍMA TIL ÞESS ÉG ÞYRFTI AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ HJÁLPA MÉR JÁ, ENDILEGA ABBY, BARA NEFNDU ÞAÐ GÆTIRÐU SVÆFT KRAKKANA Á ÞRIÐJUDAGINN? EN ÞÁ MISSI ÉG AF BRÁÐA- VAKTINNI EF ÉG SÉ KÓNGULÓARMANNINN... ÞÁ GENG ÉG FRÁ STJÓRANUM BÍDDU, ÞÚ HEYRÐIR HVAÐ HANN SAGÐI VERTU RÓLEGUR, HANN SÉR MIG EKKI ÞVÍ ÉG VERÐ Í GERFI PETER PARKER
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.