Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 48

Morgunblaðið - 08.07.2005, Side 48
Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Geirmundur Valtýsson og hljómsveit í kvöld Í TILEFNI af 75 ára afmæli Sól- heima ætlar Leikfélag Sólheima að bjóða landsmönnum að sjá leikþátt- inn um baráttu Sesselju Hreindísar Sigmundsdóttur, stofnanda Sól- heima, á morgun kl. 15.00 í Íþrótta- leikhúsinu. Ein af feluhetjum Íslands Sesselja var einungis 28 ára gömul þegar hún stofnaði Sólheima en það var árið 1930. Hún kom vel menntuð til Íslands eftir að hafa stundað nám í uppeldisfræðum er- lendis. Edda Björgvinsdóttir leik- kona hefur verið með annan fótinn í Sólheimum undanfarin ár. Hún segir að Sesselja sé ein af felu- hetjum Íslands og frumkvöðull á sínu sviði á Norðurlöndum. „Fyrstu börnin komu til hennar á afmæl- isdaginn hennar, 5. júlí 1930. Hún hafði fengið sjálfboðaliða til að að- stoða sig við að byggja Sólheima- húsið og kirkjan studdi einnig við starfið.“ Börnin og Sesselja bjuggu í tjöldum fram í nóvember sem að sögn Eddu voru hituð með vatni úr hver. „Síðan þá hefur ýmislegt gerst. Mest áberandi er lífræna ræktunin, listræna starfið og blöndunin en leiklistarstarfið hefur verið í öndvegi í 74 ár,“ segir Edda um starfsemina í Sólheimum fyrr og nú. Um helgina verður fluttur leik- þáttur í Sólheimum sem tileinkaður er Sesselju: „Dramatískasti hluti starfsins hennar var baráttan fyrir því að fá að halda þessu starfi gangandi,“ segir Edda en leikþátt- urinn fjallar um þessa baráttu. Fyrir fimm árum var hann frum- sýndur á 70 ára afmæli Sólheima. Leikarar í sýningunni endurspegla samfélagið í Sólheimum að sögn Eddu en þar leika saman fatlaðir, ófatlaðir, börn og fullorðnir. „Sess- elja reyndi að hafa samfélagið eins eðlilegt og mögulegt var og hún lagði mikla áherslu á listsköpun. Þetta litla samfélag, sem blandað var fötluðum og ófötluðum, þótti svo torkennilegt og sérstakt.“ Eins og að labba inn í Disney-mynd Eftir viku verður Kaffi- húsakabarett sumarleikhússins sýndur í kaffihúsinu Grænu könn- unni á Sólheimum. Þar verða tekin nokkur lög úr Hárinu og Latabæ og hefst sýningin kl. 15. Edda segir að síðustu dagar hafa farið í und- irbúning á sýningunum sem fram- undan eru. Hún hvetur alla þá sem ekki hafa komið í Sólheima til að drífa sig að koma og upplifa galdrana sem þar er að finna. „Að koma hingað er eins og að labba inn í Disney-mynd þar sem gleði og hjartahlýja ræður ríkjum. Það vita þeir sem áður hafa komið og von- andi að sem flestir líti við á Sól- heimum næstu tvær helgar.“ Margt er að skoða á staðnum og til dæmis er Sólheimakirkja nývígð. Hún er opin almenningi alla daga en næsta sunnudag verður leiðsögn um kirkjuna milli kl. 15.30 og 18.00. Leiklist | Leikfélag Sólheima heiðrar minningu Sesselju Stofnandi og frumkvöðull Morgunblaðið/RAX Uppsetning Leikfélags Sólheima á Latabæ fékk frábærar viðtökur. Leikþáttur sem tileinkaður er minningu Sesselju, stofnanda Sólheima, verður sýndur á morgun á Sólheimum. Eftir Guðrúnu Birnu Kjartansdóttur gudrunbirna@mbl.is 48 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Í FRÉTTATILKYNNINGU frá Nýlistasafninu segir m.a. eftirfar- andi: „Welove er hópur erlendra og íslenskra listamanna sem kem- ur saman á Íslandi í nafni vinátt- unnar til að lifa, skapa og elska. Sköpunarferlið er jafn mikilvægt og sjálf útkoman. Við vinnum með kaótík, hraða, greddu og glimrandi fjör. Í hópnum eru bæði villtir náttúruunnendur og tryllt partí- dýr.“ Hér er um að ræða bæði ís- lenska og erlenda listamenn, fólk sem hefur sýnt saman erlendis, a.m.k. að hluta til en kemur nú saman hér heima til að vinna í skemmtilegu samstarfi. Lista- mennirnir eru Tammo Rist, David Schumm, Piotr Wolf, Jan Molzber- ger, Lisa C.B. Lie, Voin de Voin, Joseph Marzolla, Julie Coutureau, Berglind Ágústsdóttir og Ásgrím- ur Már Friðriksson. Að íslensku listamönnunum undanskildum er áhorfendum látið það eftir að ráða í þjóðerni listamannanna, en þeir virðast allir vera af evrópskum uppruna af nöfnunum að dæma. Nú var ég svo heppin að heyra út- varpsviðtal Jórunnar Sigurð- ardóttur við Berglindi Ágústs- dóttur í tilefni sýningarinnar og það kom mér því ekki á óvart þeg- ar ég fór að skoða að sýningin er hugsuð sem ein heild, verkin eru ómerkt og engin leið að sjá hvað er eftir hvern. Mikil áhersla var lögð á flæðishugsun bæði hvað varðar sköpunarferli og framsetn- ingu verka og sú hugsun skilar sér vel á sýningunni. Undanfarin ár hafa ungir mynd- listarmenn lagt nokkuð upp úr því að hafa það gaman saman, lifa og leika í senn og helst fá áhorfendur til að taka þátt í fjörinu, a.m.k. að nafninu til. Hvort það tekst er síð- an misjafnt en hér hefur tekist með ágætum að ná fram markmið- inu um hressilega, lifandi og mátu- lega hráa og grófa sýningu, sem snertir marga fleti. Þrátt fyrir áhersluna á skemmtilegheitin fer ekki á milli mála að hér eru alvar- legir listamenn á ferð sem liggur margt á hjarta, hvort sem um er að ræða stöðu trúarinnar í sam- félaginu, tengsl manns og náttúru, framtíð málverksins, innrás tækn- innar í mannlegt samfélag eða áhrif tungumálsins á mannleg sam- skipti svo eitthvað sé nefnt. Þetta er sérstaklega kraftmikil sýning þar sem kæruleysisleg framsetn- ing sumra verkanna nær ekki að fela alvöruna að baki. Áhorfandinn tekur auðveldlega þátt í og finnur vel fyrir þeim sköpunarkrafti og eldmóði sem liggur til grundvallar. Spurningin sem vaknar við skoð- un sýningarinnar er síðan sú hvort þessi „gamansami“ hugsunarháttur listamanna af yngri kynslóðinni fari ekki bráðum að renna sitt skeið, eða hvort hér sé um kyn- slóðabundið fyrirbæri að ræða sem endurtekur sig jafnan með nýjum kynslóðum. Það er ekki í tísku að gera listaverk sem eiga að endast. „Ég kæri mig ekki um að gera ein- hver mónument,“ sagði t.a.m. Mar- grét Blöndal listakona í viðtali en list hennar er dæmigerð fyrir það besta sem þessi ónefnda liststefna kemur fram með, listin sem byggir á fagurfræði hversdagsins, á að finna hið ljóðræna, dularfulla, kraftmikla og ekki síst skemmti- lega í daglegu umhverfi. Í áð- urnefndu viðtali sagði Berglind Ágústsdóttir m.a. að sýningin ætti að vera dálítið eins og að fara í kaffi til vina, afslöppuð og allt í lagi þó ekki sé búið að taka til. Slík heimsókn heppnast einmitt vel þegar listamenn af mörgu þjóðerni koma saman, þá erum við laus við þá sjálfhverfu sem getur hugs- anlega myndast þegar listamenn af sama bakgrunni vinna saman á svipaðan hátt. Þetta partí hefur tekist vel og þó að um mjög ólíka listamenn sé að ræða nær sýningin sem heild að skapa eitt lifandi listaverk sem nær tökum á áhorfandanum og skemmtir honum um leið. Morgunblaðið/Eyþór „Spurningin sem vaknar við skoðun sýningarinnar er síðan sú hvort þessi „gamansami“ hugsunarháttur listamanna af yngri kynslóðinni fari ekki bráðum að renna sitt skeið, eða hvort hér sé um kynslóðabundið fyrirbæri að ræða sem endurtekur sig jafnan með nýjum kynslóðum.“ List með kaffinu MYNDLIST Nýlistasafnið Samsýning tíu listamanna. Til 24. júlí. Opið frá miðvikudegi til sunnudags frá kl. 13–17. WeloveIceland Ragna Sigurðardóttir Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 9. júlí kl. 12.00: Bjørn Andor Drage, orgel 10. júlí kl. 20.00: Norski organistinn Bjørn Andor Drage leikur norska og franska orgeltónlist. Sumartónleikar í Skálholtskirkju 31. starfsár, 2. júlí - 7. ágúst 2005 www.sumartonleikar.is Laugardagur 9. júlí: Kl. 14:00 Erindi í Skálholtsskóla: Hljómeyki í 20 sumur Guðfinna Dóra Ólafsdóttir og Rúnar Einarsson Kl. 14:55 Tónlistarsmiðja unga fólksins í Skálholtsskóla Kl. 15:00 Sönghópurinn Hljómeyki: Verk eftir Jórunni Viðar, staðartónskáld 2005 Kl. 17:00 Nordic Affect: Í kjölfar sónötunnar Tónlist frá frumdögum barokksins Sunnudagur 10. júlí: Kl. 15:00 Nordic Affect: Endurtekin dagskrá frá laugardegi Kl. 17:00 Guðsþjónusta: Heyr þú oss himnum á í úts. Önnu Þorvaldsdóttur frumflutt. Einnig flutt tónlist af tónleikum helgarinnar. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.