Morgunblaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.07.2005, Blaðsíða 10
10 F MÁNUDAGUR 11. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Jón Guðmundsson sölustjóri Hof fasteignasala Síðumúla 24 Sími 564 6464 Fax 564 6466 Guðmundur Björn Steinþórsson löggiltur fasteignasali www.hofid.is EIGNIR VIKUNNAR Hraunbær - Með aukaherb. Vorum að fá í sölu 118 fm endaíbúð á 2. hæð í nýlega viðgerðu húsi. Hol og stofa með ljósum flísum á gólfi, rúmgott eldhús með upphafl. innr. Íbúðin er innréttuð með þremur svefnherbergjum en þau gætu verið fjög- ur, auk íbúðarherbergis í kjallara. Góðar suðursvalir. Fallegur verðlaunagarður í suður. Verð 19,8 millj. Þorláksgeisli - Nýtt Vorum að fá í sölu glæsilega 4ra herbergja 114 fm íbúð á 4. og efstu hæð í fjölbýlishúsi með lyftu og sér stæði í lokaðri bílageymslu. Þrjú rúmgóð herbergi með skápum og flísalagt baðherbergi með kari og sturtu. Fallegt eldhús með eyju og stofa með arni og útgangi á suðursvalir. Verð 25,4 millj. Skerjabraut - Seltjarnarnesi Vorum að fá í sölu 2ja til 3ja herbergja íbúð á efri hæð í litlu tvíbýlishúsi með sérinngangi. Íbúðin skiptist í baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhús með eldri innréttingu, tvær bjartar og góðar stofur og gott svefnherbergi. Geymsluris fylgir íbúð. Verð 12,8 millj. Naustabryggja - Lyfta Vorum að fá í sölu glæsilega 104 fm 3ja herbergja nýja íbúð á 2. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu og stæði í bílageymslu. Gott eldhús með fallegri innréttingu og rúmgóð og björt stofa með svölum út af. Tvö rúmgóð herbergi með skápum og flísalagt baðherbergi með baðkari. Þvottaherbergi í íbúð. Parket og flísar. Eignin er laus. Verð 22,9 millj Jöklafold - Endahús Glæsilegt endaraðhús á þremur pöllum. Fjögur góð svefnherbergi með skápum og tvö flísalögð bað- herbergi. Glæsilegt eldhús með eyju og opið inn í bjarta stofu og borðstofu með suðursvölum út af. Allar innréttingar fyrsta flokks. Parket og flísar á gólfum. Verð 39 millj. Hvassaleiti - Laus Mjög góð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Opin og björt íbúð með tveimur til þremur svefnherbergjum. Flísalagt baðherbergi með þvottaaðstöðu. Opið eldhús. Björt og góð stofa með vestursvölum út af. Góð sameign. Sóleyjarimi - SÍÐUSTU HÚSIN Glæsileg 210 fm staðsteypt raðhús á tveimur hæðum á þessum frábæra stað. Lýsing: Á neðri hæð er bílskúr, forstofa, salerni, eldhús, stofa og borðstofa. Á efri hæð er hol, baðherbergi, þvottaher- bergi og 4 herbergi. Húsin skilast fullbúin að utan með steinuðum útveggjum og að innan fullbúin án gólfefna með vönduðum innréttingum. Lóð verður frágengin þ.e. bílastæði hellulagðt með hita- lögnum en lóð að öðru leyti tyrfð. Teikningar og allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Fjögur hús eft- ir. Verð frá 37 millj. Reykjavík - Hjá Fasteignasölu Brynjólfs Jónssonar er nú til sölu 79,4 ferm. íbúð á 3ju og efstu hæð í Efstalandi 20. „Þetta er sérlega glæsileg og mikið endurnýjuð íbúð, sem breytt hefur verið úr 4ra herb. í 2ja herb. íbúð með því að opna tvö svefnherbergi inn í hol, borðstofu og stofu,“ segir Brynjólfur Jónsson. „Auðvelt er að breyta íbúðinni aftur í 4ra herb. íbúð.“ Gengið er upp eina og hálfa hæð. Forstofa er með parketi á gólfi og skáp. Borðstofa er stór með parketi á gólfi, en var áður tvö svefnherbergi. Opið er inn í suðurstofu með parketi á gólfi og út frá henni eru mjög góðar suð- ursvalir. Af svölum og úr stofu er gott útsýni yfir Fossvogsdalinn og til Bláfjalla. Eldhús er með parketi á gólfi, borðkrók, glugga og eldri innrétt- ingu. Baðherbergi er endurnýjað og glæsilegt, með flísum á gólfi og á veggjum, innréttingu, sturtu- klefa og tengi fyrir þvottavél. Hjónaherbergi er með dúk á gólfi og góðum skápum. Í kjallara er um 5 ferm. sérgeymsla með glugga og hillum. Einnig er í kjall- ara sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi og sameiginleg hjólageymsla. Lóðin við húsið er falleg og ræktuð. „Íbúðin er til af- hendingar strax,“ sagði Brynjólfur Jónsson að lokum. Ásett verð er 19,9 millj. kr. Efstaland 20 Í þessu fjölbýlishúsi í Efstalandi 20 er Fasteignasala Brynjólfs Jónssonar með til sölu 3ja herb. 74,4 ferm. íbúð á 3ju og efstu hæð. Ásett verð er 19,9 millj. kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.