Morgunblaðið - 24.07.2005, Síða 11
Litið til heilsugæslunnar
Eitt af markmiðunum með stofnun þjónustu-
miðstöðvanna er að undirbúa borgina til að taka
við verkefnum frá ríkinu. Regína nefnir að lög-
regla hafi haft aðsetur í Miðgarði í Grafarvogi
frá árinu 2000. „Nýlega var gengið frá samningi
um aðsetur lögreglu í þjónustumiðstöðinni í
Breiðholti. Rétt eins og horft hefur verið til lög-
reglunnar hefur verið horft til heilsugæslunnar.
Það er mjög áhugavert að fylgjast með nýju
teymi á heilsugæslunni í Grafarvogi með sál-
fræðingi, félagsráðgjafa og iðjuþjálfa en þar er
náið samband við Miðgarð. Af öðrum verkefn-
um get ég nefnt tilraunaverkefni ríkis og
Reykjavíkurborgar í heimahjúkrun og heima-
þjónustu.
Þess má svo geta að staðið hafa yfir viðræður
við Tryggingastofnun ríkisins um ýmis samþætt
verkefni,“ segir hún og er spurð að því hvort
skipaður hafi verið starfshópur eins og gert sé
ráð fyrir í tillögu borgarstjóra í því skyni að
kanna frekari samþættingarmöguleika skóla,
leikskóla, frístundamiðstöðva og þjónustumið-
stöðva. „Nei, hann hefur því miður ekki verið
skipaður. Vonandi líður ekki á löngu þar til úr
því verður bætt því á þessum vettvangi er mikið
verk að vinna.“
Símsvörun allan sólarhringinn
„Þjónustumiðstöðvarnar eru í raun einn liður
í endurbótum á allri þjónustu og viðmóti borg-
arinnar gagnvart borgarbúum,“ segir Regína.
„Annar liður í breytingunni er að hægt er að ná
sambandi við allar stofnanir borgarinnar í gegn-
um eitt númer 4 11 11 11. Nú er meira að segja
búið að ganga frá því með samningi við Neyð-
arlínuna að svarað er í símanúmerið á nóttunni.
Borgarbúar geta því hringt og tilkynnt
skemmdir, umhverfisslys og beðið um neyðar-
þjónustu svo dæmi séu tekin í sama númeri 4 11
11 11 allan sólarhringinn.
Þriðja dæmið um endurbætur er átak í upp-
lýsingatækni. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að
steypa flestum tölvudeildum borgarinnar sam-
an í eina upplýsingatæknimiðstöð. Með því móti
er m.a. stutt við þróun í átt til meiri áherslu á
rafrænar umsóknir borgarbúum til enn frekara
hagræðis.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gerður G. Óskarsdóttir, sviðstjóri
menntasviðs, Lára Björnsdóttir, svið-
stjóri velferðarsviðs, Ómar Einarsson,
sviðstjóri íþrótta- og tómstundasviðs,
Regína Ásvaldsdóttir, sviðstjóri þjón-
ustu- og rekstrarsviðs, og Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri handsala
samninginn.
ago@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 11
EFTIR að velferðarsvið Reykjavíkurborgar tók
til starfa í húsnæði Leikskóla Reykjavíkur við
Tryggvagötu hefur verið unnið að ýmiss konar
lagfæringum í tengslum við stofnun þjónustu-
miðstöðvar Laugardals og Háaleitis í Síðumúla
39. Meðal annars hefur verið unnið að því að
bæta aðgengi fyrir fatlaða, lagfæra ýmislegt
innanhúss, gefa húsnæðinu nýtt yfirbragð og
fjarlægja ummerki um Félagsþjónustuna í
Reykjavík sem þar var áður til húsa, þ.á m.
skiltið við innganginn.
Aðalbjörg Traustadóttir, framkvæmdastjóri
þjónustumiðstöðvarinnar, segir starfsmennina
taka framkvæmdunum með stóískri ró. „Álagið
í starfseminni er með minna móti á sumrin,“
segir hún og tekur fram að á þjónustumiðstöð-
inni séu 43 starfsmenn sem flestir hafi áður
starfað hjá Félagsþjónustunni, Fræðslumiðstöð,
Leikskólum Reykjavíkur og Íþrótta- og tóm-
stundaráði. „Þar fyrir utan heyra um 300
starfsmenn á sjö starfsstöðvum fyrir aldraða
undir miðstöðina. Þó þessi hópur hafi í raun
fengið nýjan yfirmann reikna ég ekki með að
þeir finni mikið fyrir breytingunni fyrst um sinn.
Með tímanum geri ég ráð fyrir að þeir komi
meira inn í starfsemina, m.a. vegna stefnumót-
unarvinnu þjónustumiðstöðvarinnar í tengslum
við þekkingarstöðvarverkefni um málefni aldr-
aðra. Dæmi um verkefni af því tagi gæti verið
þróun nýrra úrræða fyrir aldraða.“
Aðalbjörg segir að stuðlað verði að auknu
samráði við aldraða með svokölluðum not-
endaráðum. „Notendaráðin verða skipuð bæði
starfsmönnum og notendum, þ.e. íbúum og/eða
þátttakendum í félagsstarfi. Þeirra hlutverk
verður ásamt forstöðumanni viðkomandi starfs-
stöðvar að vera ráðgefandi á hverjum stað.
Með notendaráðunum viljum við stuðla að
auknum áhrifum aldraðra á sitt eigið líf og þá
þjónustu sem þeir nota. Við teljum líka not-
endur besta til þess fallna að segja til um
hvaða þjónustu þörf sé á við ólíkar kringum-
stæður.“
Áhersla á aldraða og fatlaða
Flest verkefni þjónustumiðstöðvanna eru al-
menns eðlis. „Við sinnum upplýsingamiðlun,
móttöku umsókna, þjónustumati, félagsráðgjöf,
kennslu-, leikskóla-, sálfræði- og sérkennsluráð-
gjöf svo eitthvað sé nefnt auk hverfatengdra
verkefna,“ segir Aðalbjörg. „Ekki má heldur
gleyma aðstæðubundnum verkefnum eins og
aðstoð vegna þess sem er að gerast í sam-
félaginu á hverjum tíma, t.d. í tengslum við
langtímaatvinnuleysi, fjölmenningarleg verkefni
og sérstaka aðstoð vegna barna.“
Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
sinnir tveimur þekkingarstöðvaverkefnum, þ.e.
um málefni fatlaðra og aldraðra eins og áður
var komið inn á. „Þjónustumiðstöðin í Laug-
ardal og Háleiti er fjölmennasta þjónustusvæði
borgarinnar. Samanlagður íbúafjöldi hverfanna
tveggja nemur hátt í 30.000 manns eða 26%
heildaríbúafjölda borgarinnar. Hátt hlutfall aldr-
aðra og fatlaðra er ekki aðeins einkennandi fyr-
ir hverfin tvö. Hér eru fjölmargar stofnanir
tengdar þessum tveimur hópum, t.d. sérhæfður
leikskóli fyrir fötluð börn, tveir sérskólar og
ýmsar þjónustustofnanir fyrir aldraðra. Með til-
liti til þess var ákveðið að þjónustumiðstöðin
myndi taka að sér þekkingarstöðvarverkefni í
málaflokkum fatlaðra og aldraðra.“
Aldraðir fái að dvelja sem lengst heima hjá sér
Aðalbjörg segir að mótaðar hafi verið sér-
stakar áherslur fyrir hvorn málaflokkinn fyrir
sig. „Í þekkingarstöðvarverkefni um málefni
fatlaðra er sérstök áhersla lögð á snemmtæka
íhlutun, sérhæfða ráðgjöf, þjónustu við börn
með fötlun og samþætta fjölskylduþjónustu,“
segir hún og bendir á að rökin fyrir þessum
áherslu séu m.a. fólgin í háu hlutfalli barna og
öryrkja í hverfinu. „Í þekkingarstöðvarverkefni
um málefni aldraðra er sérstök áhersla lögð á
þjónustu við fólk í heimahúsum, sérhæfða þjón-
ustu, samþætta stuðningsþjónustu og þróun fé-
lagsstarfs. Veigamestu rökin fyrir þessum
áherslum er hátt hlutfall aldraðra í hverfinu, t.d.
búa 48% Reykvíkinga, 80 ára og eldri, í hverf-
inu. Þess má svo geta að stuðlað verður að
samþættingu heimaþjónustu og -hjúkrunar í því
skyni að gera öldruðum kleift að búa eins lengi
heima og þeir kjósa sjálfir.
Ég nefndi áðan að margar stofnanir og þjón-
usta við eldri borgara væru í hverfinu. Sem
dæmi er hægt að nefna að bæði matshópur
aldraðra sem sinnir vistunarmati í Reykjavík og
svæðisskrifstofa um málefni fatlaðra eru í þjón-
ustumiðstöðinni sjálfri.“
Allir hafi áhrif á mótun
Þjónustumiðstöðin tengist tveimur hverf-
isráðum þar sem svæði hennar nær yfir tvö
hverfi í borginni. „Bæði hverfaráð Laugardals
og Háaleitis hafa lýst yfir sérstökum áhuga á
að vinna með þjónustumiðstöðinni. Annars er
gaman að segja frá því að hverfisráð Laug-
ardals hefur sérstaklega velt fyrir sér þörfum
aldraðra og verða niðurstöður þeirrar vinnu
væntanlega kynntar með haustinu. Spennandi
verður að sjá hvaða hugmyndir þar verða reif-
aðar,“ segir Aðalbjörg og minnir á að aldraðir
séu ákaflega margbreytilegur hópur. „Ég get
nefnt að aldraðir eru misvel á sig komnir, t.d.
eru ungir aldraðir oft mjög vel á sig komnir
miðað við eldri aldraða. Með sama hætti er
efnaleg staða aldraðra ákaflega misjöfn. Sumir
aldraðir búa við mjög bág kjör á meðan aðrir
búa við góðan efnahag. Svo er gaman að fylgj-
ast með því hvernig þessi hópur hefur eignast
sterka málsvara á borð við fyrrverandi for-
svarsmenn á síðustu árum. Markmiðið er auð-
vitað að allir taki þátt í mótun samfélagsins
óháð aldri og getu. Samfélagið sé fyrir alla.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Aðalbjörg aðstoðar iðnaðarmann við að fjarlægja skilti með merki Félagsþjónustunnar í Reykjavík af
veggnum við aðaldyr þjónustumiðstöðvar Laugardals og Háaleitis í Síðumúla 39.
Allir taki þátt í
mótun samfélagsins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Unnið er að endurbótum á húsnæði þjónustu-
miðstöðvarinnar.
’Við gátum komið í veg fyrir þetta engerðum það ekki.‘Jan Egelend , yfirmaður neyðarmála hjá Sameinuðu
þjóðunum, um alvarlega hungursneyð í Níger þar sem
þurrkar og engisprettuplágur hafa eyðilagt uppskeru.
’Dýralæknar ferðast meira en aðrirmenn á Íslandi. Þetta fyrirtæki starfar
um allt land og þeir ferðast meira en aðrir
menn og hafa bæði gert það hér og gera
það í námi sínu erlendis í lestum og bif-
reiðum. Ég trúi því að þessi stutta leið
hér yfir heiðina sé þeim nú ekki stórt
mál.‘Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra um óánægju
starfsmanna embættis yfirdýralæknis með þá ákvörð-
un að staðsetja Landbúnaðarstofnun á Selfossi.
’Þetta var eitthvað svo eðlilegt – eins ogég þekkti hann vel, það er ekki spurning
að maður finnur sérstæðan kraft í nær-
veru hans.‘Sigríður Hulda Jónsdóttir sem hitti Nelson Mandela
óvænt á ferðalagi sínu í Suður-Afríku.
’Það sem gerir mönnum á Íslandikannski erfitt fyrir að sjá þetta í skýru
ljósi er að markaðurinn á Íslandi, þessi
litli markaður sem við höfum þar, hefur
verið að þenjast út á óskiljanlegan hátt á
undanförnum árum. Gjörsamlega and-
stætt því sem hefur gerst annars staðar.
En þar eru menn að leika sér í afar litlum
drullupolli. Ekki úti á hinu stóra hafi með
hinum stóru fiskum.‘Þetta sagði Kári Stefánsson, forstjóri deCODE Gene-
tics, en í vikunni voru fimm ár liðin frá skráningu de-
CODE á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn.
’Þetta fellur saman í tíma en á auðvitaðekki efnislega saman. Ég hætti af til-
teknum og tilgreindum ástæðum hjá 365
en allt aðrar ástæður lúta að því að ég
hyggst sækja um starf hjá Ríkisútvarp-
inu.‘Páll Magnússon eftir að hann sagði starfi sínu lausu
sem frétta- og sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 og sagðist
hyggja á að sækja um stöðu útvarpsstjóra.
’Ég hvet því aðila eins og íraska herinnog írösku lögregluna til að temja sér
sjálfsaga gagnvart írösku þjóðinni og láta
hvorki etja sér út í átök við hana né er-
lenda hernámsliðið þar sem það þjónar
ekki hagsmunum Íraks.‘Sjítaklerkurinn Moqtada al-Sard eftir að hundrað
manns létu lífið í sjálfsmorðsárásum í Írak.
’Við klárum verkið, hvernig sem alltfer.‘Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar, eftir
að ákveðið var að snúa við einum risaboranna í að-
rennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar vegna tafa og
erfiðleika sökum vatnsrennslis í göngunum.
’Mótmælendurnir voru með kaffi ogsmákökur og buðu bílstjórunum, enda
beindust aðgerðirnar ekki gegn þeim
heldur Impregilo, Alcoa og Lands-
virkjun.‘Ólafur Páll Sigurðsson sem fylgdist með andstæð-
ingum framkvæmdanna við Kárahnjúka hlekkja sig
við vinnuvélar í vikunni.
’Þetta er fullkomlega ólögmætt ogósanngjarnt og ég trúi því og treysti að
íslensk yfirvöld muni láta ísraelsk stjórn-
völd heyra og finna fyrir því að við sætt-
um okkur ekki við svona framkomu.‘Sveinn Rúnar Hauksson , formaður félagsins Ísland-
Palestína, um þær fréttir að Arna Ösp Magn-
úsardóttir hafi verið stöðvuð á flugvellinum í Ísrael,
yfirheyrð, haldið í 30 klukkustundir og síðan send úr
landi.
’Við lítum svo á að stjórnvöld verði aðtaka málið upp sérstaklega og ef hnign-
unin heldur áfram í þessum mikilvæga
geira er það ábyrgðarleysi að taka ekki
þetta mál til skoðunar.‘Aðalsteinn Á. Baldursson , formaður matvælasviðs
Starfsgreinasambandsins, í tilefni þess að hundruð
starfa í fiskvinnslu hafa tapast á seinustu mánuðum.
Ummæli vikunnar
Reuters