Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 17
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í ágúst og byrjun september. Þú bókar
og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða
allan tímann.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Costa del Sol
Mallorca
Benidorm
Portúgal
24. og 31. ágúst eða 7. sept.
frá kr. 39.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 39.990 í viku
Verð kr. 49.990 í 2 vikur
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára. Flug, gisting,
skattar. Netverð.
Verð kr. 49.990 í viku
Verð kr. 59.990 í 2 vikur
M.v. 2 í stúdíó/íbúð. Flug, gisting,
skattar. Netverð.
nefnist „gay-politics,“ eða þau póli-
tísku mál er snerta samkyn-
hneigða sérstaklega.
„Í kjölfar styrjaldarinnar riðl-
uðust hin hefðbundnum kynjahlut-
verk að mörgu leyti. Karlarnir
höfðu hjúfrað sig að hverjum öðr-
um í skotgröfunum og konurnar
klipptu á sér hárið og fóru út á
vinnumarkinn til að vinna það sem
áður voru hefðbundin karlastörf.
Samkynhneigð átti sér blómatíma.
Árið 1932 voru 160 skemmtistaðir
fyrir samkynhneigða í Berlín, í
dag eru þeir kannski 60 talsins.
Fyrir vikið er þetta tímabil í
ákveðnum rósrauðum bjarma í
augum samkynhneigðra, og oft
hefur maður velt því fyrir sér
hvort gaman hefði verið að upplifa
þetta skeið sögunnar. Síðan rýnir
maður betur í tímabilið og ým-
islegt kemur í ljós, ekki allt geðs-
legt.
En það er þó ljóst að þarna var
búið að stíga ákveðin skref í frjáls-
ræðsiátt fyrir samkynhneigða, sem
síðan voru keyrð til baka með
valdi og náðist ekki að stíga aftur
næstu fimmtíu árin. Og saga sam-
kynhneigðra í síðari heimsstyrj-
öldinni er hrikaleg, og um margt
ósögð. En þessar öfgar, þessir
skýru pólar, eru mjög heillandi.
Annars vegar er geðveikin og
stjórnleysið sem fylgir kabarett-
inum, og hins vegar þessar geð-
biluðu reglur nasismans. Við reyn-
um að koma þessu ástandi til skila
og erum ákaflega stolt af unnu
verki.“
Það sem persónurnar ekki vita…
Að þeirra sögn virðist hómósex-
úalisminn í raun hafa verið nánast
óheftur í Berlín á umræddu tíma-
bili og hommar og lesbíur komu
langt að til að upplifa þetta hafta-
leysi. „Þetta fólk lifði í núinu, en
síðan vitum við sem núna lifum
hvað gerðist örfáum árum síðar,
þegar nýir stjórnarherrar sögðu
að samkynhneigð væri ónáttúra
sem þyrfti að uppræta. Hommar
og lesbíur lentu síðan í útrýming-
og það er óhugnanlegt að lesa aug-
lýsingar frá þessum tíma, þar sem
menn voru jafnvel að selja aðgang
að fjölskyldu sinni í heild. Menn
gátu valið hvort þeir gömnuðu sér
með fjölskylduföðurnum, móður-
inni eða börnunum. Fyrir vikið
komu kynlífstúristar hvaðanæva
að, Bandaríkjunum, Sovétríkjun-
um, Japan, Englandi o.s.frv. til að
upplifa þetta. Þarna var ótrúlega
mikið af brotnu fólki, ægileg eitur-
lyfjaneysla og alls konar hörm-
ungar aðrar sem við þekkjum úr
nútímanum.“
Reynt að skilja ræturnar
Í upphafi æfingatímabilsins ein-
henti leikhópurinn sér í að fara í
saumana á bakgrunni verksins.
„Við töldum það vera lykillinn að
nálguninni að finna rætur verks-
ins, reyna að skilja og skynja þá
veröld sem Isherwood horfði á í
gegnum myndavélina sína á sínum
tíma,“ segir Felix.
Kolbrún segir að henni finnist
einkum markvert að reyna að
skilja jarðveginn fyrir það hömlu-
leysi sem ríkti í Berlín millistríðs-
áranna. „Af hverju gat þetta
gerst? Af hverju var samfélagið
með þessum ósköpum? Atburðirnir
eru líka í raun svo nálægt okkur í
tíma að maður verður hálfhræddur
stundum, og fer að velta fyrir sér
hvort það eru forsendurnar fyrir
álíka atburðum núna. Kannski var
Berlín þessa tímaskeiðs bara eins
og Bangkok nútímans eða einhver
annar staður þar sem kynlífsiðn-
aður þrífst illu heilli.“
Felix tekur undir þetta og segir
að þegar litið er yfir söngleiki fyrr
og síðar séu fáir með jafn sterka
sögu að baki og Kabarett. „Það er
gríðarlega skemmtilegt að hafa
jafn safaríkar bækur á bakvið
leikritið, efni sem hægt er að vefa
inn í verkið og skilning leikaranna
á persónunum og þeim heimi sem
þær spretta úr. Og hinn sögulega
bakgrunn finnur maður
sannarlega ekki í Galdrakarlinum í
Oz!“
Skemmtanastjórinn (Magnús Jónsson) er margslungin persóna og hefur alla
anga úti til að skemmta og hneyksla klúbbgesti, sumir angarnir virðast meira
að segja koma honum sjálfum á óvart.
Sally Bowles (Þórunn Lárusdóttir) er bresk millistéttarstúlka sem slæðst hef-
ur til Berlínar í leit að frægð og frama. Höfundur persónunnar sagði hana hafa
unnið að því hörðum höndum að verða að gálu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þótt öllum vafa sé búið að eyða um
kynhneigð Cliffs, sjá það ekki allir.
arbúðum eins og gyðingar og aðrir
hópar sem voru nasistum ekki
þóknanlegir. Þetta vita persónur
verksins hins vegar ekki, sem ger-
ir þennan söguspegil svo kraftmik-
inn sem raun ber vitni,“ segir Kol-
brún.
Hún bendir á að orka þeirra
sem voru að reyna að ná stjórn-
artaumunum á þessum tíma fór
mestmegnis í baráttu, innbyrðis og
hver við aðra, og því fékk t.d. lista-
lífið að blómstra óáreitt, óháð póli-
tískri reglusetningu eða siðabönn-
um. „Þess vegna myndaðist þetta
skapandi andrúmsloft sem gerir
tímabilið einstakt. Skuggahliðarn-
ar voru hins vegar margvíslegar,
t.d. var kynlífstúrisminn kominn á
fulla siglingu á þessum tíma. Ef-
laust má telja Isherwood til ferða-
manna af því tagi.
Við horfðum á kanadíska heim-
ildarmynd um siðferðilegt skipbrot
í ýmsum borgum á ýmsum tímum,
og þar kom m.a. fram að að kyn-
lífsvæðingin var mjög alvarleg á
umræddu skeiði. Fólk hafði lítið til
að selja á tímum gegndarlauss at-
vinnuleysis og kreppu, og því var
hörð keppni um að hafa í sig og á.
Fólk gat hins vegar selt kynlíf
Nasistar ástunduðu ekki
jafn dyggðugt líferni og þeir
predikuðu en þeir hömpuðu
hins vegar öllum stundum
fyrirmyndarmanninum.
HINN 9. nóvember árið 1918 lýsti sósíaldemókratinn Philipp
Scheidermann, fyrrum skraddari, yfir stofnun Weimar-
lýðveldsins, örfáum dögum eftir að Vilhjálmur keisari hafði af-
salað sér völdum. Lýðveldið var afsprengi fyrri heimsstyrj-
aldar, þegar stórveldin höfðu öll ráð Þýskalands í hendi sér og
nýttu tækifærið til að refsa því fyrir að vera upphafsþjóð
stríðsins með margskonar niðurlægingu og fjárkúgunum.
Fátækt, eymd og öfgar
Þýskaland var ekki burðugt fyrir og því auðveld bráð. 35%
af þjóðarauðnum höfðu étist upp stríðsárin fjögur. Alls höfðu
2,7 milljónir Þjóðverja farist í stríðinu, 8% þýskra karlmanna,
eða á að giska jafnmargir og Frakkar og Bretar misstu til
samans, og þetta voru einkum ungir menn, þeir sem áttu að
yrkja landið og erfa. Tvær milljónir barna voru munaðarlausar,
hálf milljón kvenna stóð uppi sem ekkjur og hálf fjórða milljón
manna var örkumla.
Ríkið missti stór landsvæði, þýska markið varð að verð-
lausum pappír og fátækt og atvinnuleysi varð hlutskipti fjöl-
margra íbúa. Stríðsskuldabréf, sem margir höfðu keypt, voru
nú einskis virði og sparifé landsmanna gufaði ört upp sam-
tímis því að vöruverð fjórfaldaðist á skömmum tíma. Óða-
verðbólga, einkum á árunum 1922–1923, jók enn á vandann.
Gömul rótgróin gildi, sem löngum höfðu verið haldreipi lands-
manna, molnuðu eins og uppþornaðar múmíur. Stjórnvöld
voru veikburða og nutu engrar lýðhylli; fjandmenn þeirra voru
fjölmargir og spruttu úr öllum pólitískum kimum þessa tíma-
bils, þannig að lítið pólitískt svigrúm var til umbóta. Ráða-
menn voru holdtekja hinna sigruðu, þeirra sem sett höfðu
nöfn sín undir Versalarsamninginn og þannig samþykkt að
land og þjóð sættu afarkostum.
Ekki bætti úr skák að meðan almenningur svalt auðguðust
stóriðnrekendur, einkum í málmframleiðslu, gríðarlega, og
einsog nýríkra er siður létu þeir mikið á sér bera og virtu hinn
snauða fjölda að vettugi, nema til þess eins að manna verk-
smiðjurnar fyrir lúsarlaun. Þannig kölluðu þeir fram hatur og
fyrirlitningu þeirra sem minna máttu sín. Smákaupmenn og
aðrir eigendur lítilla fyrirtækja urðu gjaldþrota í hrönnum,
margar stéttir, t.a.m. bændur, voru skattpíndar
Eldfimur vettvangur
Lýðveldið svokallaða skjögraði áfram allt til ársins 1933,
þegar nasistar stukku á og yfirbuguðu þessa veikburða
skepnu. En þrátt fyrir ástandið - eða kannski að hluta til
vegna þess - ríkti á fimmtán ára tímabili í landinu, og þar var
Berlín fremst í flokki, ótrúleg frjósemi í listum, menningu,
fræðum, hönnum og arkitektúr, samtímis því sem lífskjör
flestra Þjóðverja voru afleit. En þrátt fyrir óðaverðbólgu og
kreppu dró Berlín að sér fjölskrúðugan hóp menningarvita og
vandræðagemlinga, er sáu ótal ný tækifæri í ólgandi hring-
iðunni. Næturklúbbar og knæpur, kabarettsýningar, kynlífs-
iðnaður...
Þetta var eirðarlaus borg, eldfimur vettvangur nætur-
ævintýra, glæpa, örbirgðar, geðsýki, þjáninga, hungurs og
ráðvilltra sálna. Í þessu öngþveiti og upplausn gat allt gerst.
Weimar-lýðveld-
ið og upplausnin Adolf Hitler naut stuðnings geipiefnaðra iðnjöfra semtreystu honum til að halda hjólum framleiðslunnar
gangandi og koma í veg fyrir að kommúnistar næðu
stjórnartaumunum. Hann fyrirleit stjórnleysið og það
líferni sem einkenndi Weimar-lýðeldið.
Óðaverðbólgan sem ein-
kenndi eftirstríðsárin í
Þýskalandi gerði gjaldmiðil
landsins verðlausan með
öllu.