Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 19

Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 19
www.toyota.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 28 96 7 0 7/ 20 05 Toyota, Nýbýlavegi 4-8, sími 570 5070 Ég er Yaris Verð frá 1.299.000 kr. Þótt sköpunargleði endurspeglist í allri hönnun Yaris er hann raunveruleikinn uppmálaður. Yaris sker sig úr hvort heldur sem litið er til straumlínulögunar hans, óvenju þægilega hárrar sætisstöðu, mismunandi sætastillingar eða snjallrar geymsluhönnunar. Yaris er raunverulega hagkvæmur bíll í rekstri sem hentar annasömu borgarlífi einstaklinga sérlega vel. Komdu og reynsluaktu Yaris í raunveruleikanum og búðu þig undir óvænta ánægju. Raunveruleikinn uppmálaður MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 19 söngkona og takmörkuð leikkona. Breski leikarinn mélkisulegi Michael York átti að túlka rithöfundinn Brian Roberts (Is- herwood/Cliff) og Joel Grey var fenginn til að endurtaka verðlaunahlutverk sitt. Frammi- staða hans var jafnmögnuð og fyrr. Þess má raunar geta að Fosse hafði ekki ætlað sér að nota Grey í hlutverkið, en þurfti að sæta þeim afarkostum frá framleiðendum myndarinnar, að annaðhvort réði hann Grey eða fengi sjálfur reisupassann. Til allrar lukku lét hann undan, enda Grey ótvíræður burðarstólpi myndarinn- ar. Kvikmyndun fór fram í Þýskalandi og þannig fékk myndin á sig trúverðugri blæ en ella. Kabarett gerði stormandi lukku þegar hún var frumsýnd árið 1972 og sópaði að sér bæði áhorfendum og verðlaunum, þar á meðal átta Óskarsverðlaunum. The Godfather fékk aðeins þrjá Óskara við sama tækifæri, þó til allrar lukku verðlaun fyrir bestu myndina. Í verkinu er að finna lög sem hafa staðist hvassa tönn tímans, þar á meðal „Willkommen,“ „Life is a Cabaret,“ „Mein Herr,“ og vitanlega „Money (Makes The World Go Around)“. Og hver gleymir hinum ægifagra en um leið hrollvekj- andi söng Hitlers-æskunnar; Tomorrow Be- longs to Me. Heimspeki hinna kærulausu Kabarett var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu vor- ið 1973 og þá fór Edda Þórarinsdóttir með hlutverk Sally Bowles, Bessi Bjarnason lék siðameistarann og Sigmundur Örn Arngríms- son rithöfundinn Cliff. Blaðamaður Morgun- blaðsins sá æfingu á verkinu á sínum tíma og sagði verkið vera „sambland af gamni og al- vöru, ádeilu og kæruleysi þess, sem ef til vill byggir á víðsýnustu heimspekinni“. Sviðið er Berlín áður en nasistar hafa náð völdum en þó „eftir að klær nasismans eru byrjaðar að krafsa inn í sál þjóðlífsins“. Sally var sögð vera „óhóflega metnaðargjörn stúlka sem hugsar um það eitt að hljóta viðurkenningu á sviðinu og skirrist ekki við að beita í því skyni hvaða ráðum sem er … Hún lifir fyrir það eitt að leggja áhorfendur að fótum sér …“ Þess má geta að Edda Þórarinsdóttir leikur nú í Kabarett á nýjan leik, að þessu sinni hlut- verk leigusalans Fraulein Schroder. Spillt og illkvittin … Kabarett var síðar meir sett upp á Akureyri og loks af Leikfélagi Reykjavíkur fyrir ell- efu árum þar sem Ingvar E. Sigurðsson fór á kostum sem skemmtanastjórinn. Þá hafa ýmsar áhugamannauppfærslur verið settar upp og má til gamans nefna að þegar leiklist- arklúbbur Fjölbrautaskólans í Breiðholti sýndi verkið fyrri hluta vetrar 1980 tjáðu aðalleik- arnir sig um persónurnar og lágu ekki á skoð- unum sínum. Margrét Magnúsdóttir, er lék Sally, kvaðst vorkenna persónunni, hún væri „spillt og ákaf- lega illa farin. Ég vildi ekki vera í hennar spor- um“. Á sama hátt sagði Grétar Skúlason, er lék skemmtanastjórann, að hann væri „virkilega ógeðslegur náungi. Hann er illkvittinn og prettinn“. Bragð er að þá barnið finnur … Hrár og óvæginn Kabarett Verkið var sett upp á Broadway í Bandaríkj- unum árið 1987, að nýju í leikstjórn Hal Prince. Þá voru lítils háttar breytingar gerðar, svo sem öllum vafa eytt um að Cliff hneigðist til eigin kyns, en það var vægast sagt sagt undir rós í fyrri uppfærslunni. Sam Mendes, sem nú er víðkunnur fyrir leikstjórn kvikmyndanna Am- erican Beauty og Road to Perdition, ásamt því að vera maki leikkonunnar Kate Winslet, var síðan fenginn til að setja upp Kabarett í Lond- on árið 1993. Hann ákvað að sýningin yrði sett upp í raunverulegu kabarettumhverfi, öll um- gjörðin varð hrárri og óvægnari, og ríkuleg áhersla var lögð á þátt Berlínar þessa tíma, þegar Weimar-lýðveldið riðaði til falls og nas- istarnir vomuðu yfir væntanlegum rústunum. Uppsetningin sló í gegn og árið 1998 var Kabarett settur á svið að nýju í leikstjórn Sam Mendes, að þessu sinni á hinum sögufræga skemmtistað Studio 54 í New York. Í kjölfarið var farið í leikför um öll Bandaríkin er tókst með miklum ágætum. Leikhópurinn Á Senunni styðst öðrum þræði við umrædda leikgerð Mendes í uppsetningu sinni, er frumsýnd verð- ur 4. ágúst næst komandi. men! Bienvenue! Velkomin! Liza Minelli varð heimsfræg fyrir túlkun sína á hinni létt- lyndu kabarettsöngkonu Sally Bowles, í kvikmyndinni Cabaret árið 1972. Áður hafði henni verið sparkað úr hlutverki sínu ísöngleiknum á Broadway.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.