Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 27

Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 27 Kapítalisminn hrósar sigri Checkpoint Charlie, á gatnamótum Fried- richstrasse og Zimm- erstrasse, var sú landamærastöð, sem flestir fóru um sem á annað borð var leyft var að fara milli Austur- og Vestur-Berlínar. Það var afkáraleg reynsla að ganga eftir Friedrichstrasse, gefa sig fram við verðina vestan megin, framvísa pappírum og láta vísa sér áfram yfir til austur-þýzkra landamæravarða, sem skoðuðu öll skilríki í krók og kring, leituðu í farangri og létu menn horfa upp í vélbyssuhlaup ef þeir þóttust ætla að flýta sér um of í gegnum stöðina; halda svo áfram göngunni eftir götunni, sem áfram bar sama nafn en leit út eins og hún væri í annarri borg og öðrum tíma. Í stað Benz og BMW-bíla í Vestur-Berlín komu reykspúandi Trabantar og Wartburgar alþýðulýðveldisins, enn voru skörð í húsaraðirnar við götuna, í búðunum var lítið til og vökul augu hers og lögreglu hvíldu á öllum. Í dag ganga menn norður Friedrichstrasse og hægja í bezta falli á göngunni til að virða fyrir sér varðskúrinn, sem enn stendur á miðri götunni sem minnismerki um horfinn tíma. Sumir staldra kannski við á áhrifamiklu, einka- reknu safni sem segir í máli og myndum sögu skiptingar borgarinnar, uppreisnarinnar í Austur-Berlín, byggingar múrsins og ótal hetjulegra flóttatilrauna, sem sumar tókust en aðrar leiddu til dauða eða fangelsisvistar. En svo er hægt að ganga áfram norður Fried- richstrasse, í átt að breiðgötunni Unter den Linden, og velta því fyrir sér hvernig vestrænt athafnalíf hefur gersamlega lagt undir sig þessa gömlu aðalgötu. Byggt hefur verið upp í götin og gott betur; mörg af ljótustu húsum kommúnistatímans hafa vikið fyrir öðrum og skárri byggingum. Bílar með tvígengisvél eru bannaðir í hinni nýju Berlín. Þar sem áður voru fremur búðir til málamynda en að þar fengist í rauninni eitthvað, er nú hægt að kaupa bókstaflega allt sem hugurinn girnist og öll frægustu vörumerki heimsins blasa við. Kapítalisminn hrósar sigri á Friedrichstrasse. Montbyggingar bíða niðurrifs Byggingarnar, sem áður voru helzta stolt kommúnista- klíkunnar, sem stjórnaði Austur-Þýzkalandi, eru nú aðallega til vandræða í borgarskipulaginu. Við Schloss- platz, eða Hallartorg, sem hefur endurheimt sitt forna nafn eftir fáeina áratugi sem Marx- Engels-Platz, stendur hinn hryllilegi kumbaldi Palast der Republik. Lýðveldishöllin var þing- hús Alþýðulýðveldisins. Hún er nú lokuð og tóm vegna asbestmengunar og bíður niðurrifs. Á sama stað stóð áður hin forna höll Prússa- konunga, Berliner Stadtschloss. Hún slapp til- tölulega lítið skemmd úr stríðinu en forystu- menn Alþýðulýðveldisins létu brjóta hana niður árið 1951, réttum 500 árum eftir að bygging hennar hófst, til að byggja hina skelfi- lega ljótu lýðveldishöll – sögðu konungshöllina tákn um „prússneska hernaðarhyggju“. (Á sín- um tíma var þó lítinn mun að sjá á Berlín und- ir stjórn kommúnista og t.d. á tímum her- mannakonungsins Friðriks Vilhjálms I að því leyti að þar varð varla þverfótað fyrir mars- érandi hersveitum, sem áttu að sýna mátt rík- isins.) Nú er hafin hreyfing fyrir því að end- urbyggja konungshöllina, en ekki hefur tekizt að fjármagna þann draum. Steinsnar austar, á Alexanderplatz, skrifuðu Austur-Berlínarbúar eigin sögu á sínum tíma; þar komu þeir saman á mótmælafundum í nóv- ember 1989, sem urðu til þess að stjórnin gafst upp og gaf þegnum sínum ferðafrelsi. Eftir það varð hrun Alþýðulýðveldisins ekki umflúið. Við torgið eru menn nú byrjaðir að brjóta nið- ur suma steinsteyputurnana sem mynduðu „viðskiptahverfi“ gömlu Austur-Berlínar. Breiðgatan, sem liggur í suðaustur frá torginu, Karl Marx-Allee, hefur hins vegar verið friðuð sem dæmi um sósíalískan arkitektúr. Sú ákvörðun er í anda Berlínarbúa, að strika ekki yfir ljótu kaflana í sögunni, heldur að minnast þeirra og gera að víti til varnaðar. Berlín er borg, sem þeir sem vilja muna – og læra af sögunni – ættu að kynnast. Berlín glímir við sinn skammt af vanda- málum; fjármál borgarinnar eru í mesta ólestri eftir allar hinar dýru framkvæmdir síðustu ára og atvinnuleysið er gífurlegt, ekki sízt í austur- hlutanum. En krafturinn, sem býr í hinni sam- einuðu Berlín, er algjör andstæða við það þrúgandi andrúmsloft, sem þar ríkti á dögum kalda stríðsins. Berlín er ekki lengur á jaðr- inum, ekki útvörður Vesturlanda á svæði óvin- arins. Hún er á ný orðin miðpunktur á meg- inlandi Evrópu og sýnir í hnotskurn þá möguleika, sem felast í falli járntjaldsins og innreið lýðræðis og markaðshagkerfis í Aust- ur-Evrópu eftir áratuga niðurlægingu stríðs og harðstjórnar. ESB og aust- urstækkunin Það er því enginn staður betur til þess fallinn að ræða um stækkun Evrópusam- bandsins til austurs en einmitt Berlín. Aust- urstækkunin snýst öðru fremur um endursam- einingu Evrópu; útflutning friðar, lýðræðis og velmegunar, sem ríkt hefur í Vestur-Evrópu frá því um miðja síðustu öld, til austurhluta meginlandsins. Olli Rehn, sem fer með málefni stækkunar ESB í framkvæmdastjórn sambandsins, flutti fyrirlestur í Berlín fyrr í mánuðinum á vegum Institut für Europäische Politik, eins og sagt hefur verið frá hér í blaðinu. Rehn fjallaði þar um þau vandkvæði, sem frekari stækkunar- áform væru komin í vegna niðurstöðu þjóð- aratkvæðagreiðslnanna um stjórnarskrá ESB í Hollandi og Frakklandi. Framkvæmdastjórinn viðurkenndi hiklaust að óánægja með stækk- unina hefði verið ein af ástæðum þess að stjórnarskráin féll. Fólk hefði m.a. óttazt að verkafólk frá Austur-Evrópu kæmi og tæki störf þess, auk þess sem andúð á Tyrkjum og hugsanlegri aðild þeirra hefði haft sitt að segja. Raunar þurfti ekki annað en að hlusta á spurningar þýzkra embættismanna og sér- fræðinga á eftir erindi Rehns til að átta sig á að efasemdirnar um frekari stækkun ESB eru víðar en í Frakklandi og Hollandi. Framkvæmdastjórinn benti hins vegar á að atvinnuleysi, vandi velferðarríkisins og áhrif hnattvæðingar á vinnumarkaðinn hefðu ekkert með stækkun Evrópusambandsins að gera. Hann nefndi hið fræga dæmi um pólsku pípu- lagningamennina, sem sagðir hafa verið taka vinnu frá frönskum pípurum, og benti á að það vantaði þúsundir pípulagningamanna í Frakk- landi til að anna verkefnum. Fall járntjaldsins og stækkun Evrópusambandsins í framhaldi af því hefði skilað ríkjum Vestur-Evrópu efna- hagslegum ávinningi, ekkert síður en fyrrum austantjaldslöndum. „Flauelsbyltingarnar í Mið- og Austur-Evr- ópu árið 1989 opnuðu markað 100 milljóna manna fyrir fyrirtækjum Vestur-Evrópu. Stór- kostleg viðskiptatækifæri urðu til þeirra vegna, til dæmis fyrir franskar stórmarkaða- keðjur, hollenzka framleiðendur símabúnaðar og matvælafyrirtæki, og fyrir ótal fyrirtæki þýzku millistéttarinnar, sem selja vörur sínar í Mið- og Austur-Evrópu,“ sagði Rehn. Hann sagði að fyrst og fremst væri stækkun Evrópusambandsins þó spurning um öryggis- mál á tímum, sem með réttu eða röngu væru kenndir við átök menningarheima. Rehn vísaði m.a. til hryðjuverkanna í London og hinnar nýju ógnar, sem Vesturlöndum stafar af ísl- ömskum öfgamönnum. Hann rifjaði upp að á tíma kalda stríðsins hefði tvenns konar stefna þótt nauðsynleg í samskiptum við Sovétríkin; annars vegar að halda þeim í skefjum með öll- um ráðum, hins vegar að efna til tengsla og samstarfs við þjóðirnar handan við járntjaldið. Þessi stefna hefði átt ríkan þátt í að Berl- ínarmúrinn féll. Rehn sagði að svipuð stefna væri nauðsynleg í samskiptum Íslams og Vesturlanda. „Evrópu- sambandið mun sýna staðfestu gegn hryðju- verkum og halda hvers konar öfgabókstafstrú rækilega í skefjum. En um leið munum við halda áfram að byggja brýr til hófsamra afla innan Íslam, sem virða lýðræðisleg gildi,“ sagði Rehn og bætti við að þetta væri ekki sízt ástæðan fyrir því að Tyrklandi hefði verið heit- ið viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Að hindra uppgang öfgastefnanna Í umræðum að erindi Rehns loknu benti hann á að þeir, sem mest hefðu fagnað eftir að Frakkar og Hollendingar felldu stjórnarskrá Evrópusambandsins, hefðu verið þrír hópar; þjóðernisöfgamenn í ríkjunum á vestanverðum Balkanskaga, bókstafstrúar- menn í Tyrklandi og ákveðinn hluti stjórn- málastéttarinnar í Rússlandi. Þessum öflum þætti það ekki verra, að Evrópusambandinu mistækist það ætlunarverk sitt að stækka enn til austurs svæði lýðræðis, mannréttinda og frjálsra viðskipta. Framkvæmdastjórinn vitnaði til Konrads Adenauers, sem sagði: „Mannkynssagan er líka summa þess, sem hefði mátt forðast.“ Og hann hélt áfram: „Væri ESB betur sett án ríkja Mið- og Austur-Evrópu, þar sem stöð- ugleiki, lýðræði og æ meiri velsæld ríkir nú? Væri ESB betur sett ef Tyrkland sneri við okkur baki og hafnaði gildum lýðræðisins? Höfum við efni á að vesturhluti Balkanskagans verði nýtt gettó í Evrópu? Þetta er það sem við hættum á, ef við hættum við stækkun sam- bandsins.“ Olli Rehn hefur rétt fyrir sér. Stækkun Evr- ópusambandsins snýst ekki sízt um að halda áfram að bæta fyrir þann skaða, sem tvær heimsstyrjaldir og tvær öfgastefnur alræðis- sinna, nazisminn og kommúnisminn, hafa unnið í Evrópu. Með því að útiloka löndin í Austur- og Suðaustur-Evrópu frá aðild að sambandinu eiga menn á hættu að öfgastefnurnar, hvort sem þær kenna sig við þjóðerni, trúarbrögð eða einhvern isma, nái fótfestu á ný. Í Berlín verður það einkar áþreifanlegt að stækkun Evrópusambandsins og áframhald- andi útbreiðsla þeirra gilda, sem það stendur fyrir, hefur ekkert með pólska pípulagninga- menn eða tyrkneska verkamenn að gera. Málið snýst um að koma í veg fyrir að þeir skelfilegu atburðir, sem eru skráðir óafmáanlega í sögu þessarar stórmerkilegu, evrópsku milljóna- borgar, endurtaki sig nokkurn tímann. Evrópa þarf á að halda stjórnmálaleiðtogum, sem geta útskýrt þennan raunveruleika fyrir kjósendum sínum. AP Horft úr loftbelg yfir Potsdamer-torgi norður eftir Ebertstrasse í Berlín, þar sem múrinn stóð áður. Fremst er minnismerkið um fórnarlömb helfararinnar, þá bygg- ingarlóð bandaríska sendiráðsins. Næst kemur Brandenborgarhliðið og Pariser Platz, þar sem sendiráð Bretlands og Frakklands hafa flutt inn í nýjar byggingar. Fjærst sést þinghúsið, Reichstag, og skrifstofubyggingar þingsins, sem tengdar eru saman með brú yfir ána Spree. „Í Berlín verður það einkar áþreifanlegt að stækkun Evrópu- sambandsins og áframhaldandi út- breiðsla þeirra gilda, sem það stendur fyrir, hefur ekkert með pólska pípulagningamenn eða tyrkneska verkamenn að gera. Málið snýst um að koma í veg fyrir að þeir skelfilegu at- burðir, sem eru skráðir óafmáan- lega í sögu þessarar stórmerkilegu, evr- ópsku milljónaborg- ar, endurtaki sig nokkurn tímann.“ Laugardagur 23. júlí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.