Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á AÐALFUNDI Landverndar í maí sl. var samþykkt ályktun um mikilvægi þess að reglur Evrópu- sambandsins sem gilda um merkingar á mat- vælum og fóðri úr erfðabreyttum líf- verum verði innleiddar hér á landi án tafar þannig að íslenskir neytendur fái sambæri- legar upplýsingar og leiðsögn um þessi mál og neytendur í löndum ESB. Erfðabreyttar afurð- ir, fóður og matvæli eru nú þegar flutt inn hingað til lands og þá fyrst og fremst frá Bandaríkj- unum. Framleiðendur landbúnaðar- afurða og neytendur almennt eru ómeðvitaðir um þessar vörur þar sem þær eru allar ómerktar. Í Evr- ópu hafa lengi verið í gildi reglur um merkingar, enda talið sjálfsagt að neytendur hafi þessar upplýsingar og hafi þá val. Nýlega bárust þau já- kvæðu tíðindi að til stæði að innleiða löggjöf um slíkar merkingar hérlendis nú í haust. Jafnframt taldi aðal- fundur Landverndar að gæta þyrfti mikillar varúðar við tilraunir þar sem notaðar eru erfðabreyttar lífverur og að ekki væri ráðlegt að þeim sé sleppt út í íslenskt umhverfi nema að fyrir liggi vís- indaleg fullvissa fyrir því að það valdi ekki skaða í lífríki landsins. Fundurinn taldi óráð- legt að heimila það að sleppa erfða- breyttum lífverum út í íslenskt um- hverfi á grundvelli núgildandi laga þar sem þau eru ekki í samræmi við nýrri og strangari reglur Evrópu- sambandsins. Árið 1996 voru samþykkt lög hér- lendis um erfðabreyttar lífverur og ári síðar var gefin út reglugerð sem m.a. fjallar um það að sleppa þeim út í umhverfið. Á grundvelli þessar laga hefur þegar verið heimilað að sleppa út í íslenskt umhverfi í til- raunaskyni. Evrópusambandið sam- þykkti nýja tilskipun um þetta mál árið 2001. Þessi tilskipun hefur enn ekki verið lögfest á Íslandi. Verði hún lögfest verða gerðar enn strangari kröfur en áður vegna heimilda um að sleppa erfðabreytt- um lífverum. Miklar vonir hafa verið bundnar við erfðatæknina, bæði með hliðsjón af nauðsyn þess að koma á móts við vaxandi matvælaþörf Jarðarbúa og til framleiðslu lyfja. En það er nauð- synlegt að sýna mikla varúð þegar maðurinn með sinni takmörkuðu þekkingu fer að gera breytingar á grundvallarþáttum í framþróun líf- vera. Meðal vísindamanna eru afar skiptar skoðanir um þá áhættu sem fylgir því að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið og virðist því skynsamlegt að láta náttúruna njóta vafans. Þá vekur þetta mál einnig margar erfiðar siðferðilegar spurn- ingar. Víða í Evrópu eru notaðar erfða- breyttar plöntur vegna tilrauna með matvælaframleiðslu. Eftir því sem næst verður komist hefur ekkert land í Evrópu hafið útiræktun á plöntum sem bera lyfjavirk efni sem þróuð hafa verið með erfðatækni nema Ísland. Það að sleppa mann- gerðum lyfjavirkum efnum út í nátt- úruna vekur ákveðnar áhyggjur. Vissulega er gætt varúðar við þessa ræktun hér á landi og fyrstu rann- sóknir sem gerðar hafa verið benda til þess að hættan á að þessar jurtir víxlfrjóvgist við aðrar plöntur sé hverfandi. En vísindamenn með sér- þekkingu sem Landvernd hefur ráð- fært sig við telja að þrátt fyrir þess- ar rannsóknir séu ekki öll kurl komin til grafar og ekki sé hægt að útiloka mengun. Þar sem hér er um mikilvægt umhverfismál að ræða er það hlutverk Landverndar að stuðla að gagnrýnni umræðu um það. Í grein í Morgunblaðinu 17. júlí sl. („Sérkennileg umræða um erfða- tækni“) kom fram gagnrýni á að- komu Landverndar að umræðu um þetta mál og reynt að draga úr trú- verðuleika eins þeirra sérfræðinga sem hafa komið til landsins í því skyni að efla gagnrýna umræðu um það. Efnislega eru í greininni rang- færslur um starfsferil sérfræðings- ins dr. Antoniou. Réttar upplýsingar um starfsferil dr. Antoniou má finna á www.erfdabreytt.net. Af greininni má einnig ráða að hér á landi hafi verið innleiddar þær reglur um það að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið sem Evrópusambandið byggir á. Það er ekki rétt. Að lokum telur höfundur um- ræddrar greinar að fyrirtækið Orf Líftækni sé gert að skotspæni í þessari umfjöllun. Ég vil því árétta að Landvernd hefur átt uppbyggileg samskipti við fyrirtækið og ber virð- ingu fyrir þeim hæfu vísindamönn- um sem þar starfa. Það er hlutverk Landverndar að vera málsvari um- hverfisverndar og gagnrýni samtak- anna á það að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið beinist að þeim aðilum sem hafa heimilað slíkt, en ekki að fyrirtækinu sjálfu sem vinnur að mikilsverðum og gagn- legum rannsóknum á sviði erfða- tækni. Erfðabreyttar lífverur og umhverfisvernd Björgólfur Thorsteinsson fjallar um að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið ’Það að sleppa manngerðum lyfja- virkum efnum út í nátt- úruna vekur ákveðnar áhyggjur.‘ Björgólfur Thorsteinsson Höfundur er rekstrarhagfræðingur og formaður Landverndar. Ölduslóð 21 - Hafnarfirði Opið hús í dag frá kl 16-17. Vorum að fá í einkasölu einbýlishús sem skiptist í tvær íbúðir. Góð og barnvæn staðsetning í rólegu hverfi í Hafnarfirði. Tvö fastanúmer. Á 1. hæð er 3ja herb. 71,6 fm íbúð og rúmgott vaskhús, en á 2. hæðinni er 4ra herb. 86 fm íbúð. Samtals 157,6 fm. Tilvalin eign fyrir tvær samhentar fjöl- skyldur eða stórfjölskylduna. Bílskúrsréttur og teikningar af bílskúr. Gróð- urhús í garði. Fallegur garður í mikilli rækt. Mjög skemmtileg eign sem býður upp á mikla möguleika. Snyrtilegt hús og vel um gengið, en kominn tími á ákveðið viðhald / upplyftingu. Verð 32,9 millj. Allar nánari upplýsingar á DP FASTEIGNUM í síma 561 7765 eða dp@dpfasteignir.is. HB FASTEIGNIR Sími 534 4400 • Hús Verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali LINDASMÁRI 45, KÓPAVOGI - 3. HÆÐ OG RIS. VERÐ 32,9. MILLJ. OPIÐ HÚS Í DAG FRÁ KL. 18.00-19.00 • 151,4 fm • 4-5 svefnherb. • Rúmgóð stofa • Suðvestur svalir • Falleg gólfefni • Þvottahús í íbúð • Góð staðsetning • Barnvænt hverfi Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali, sími 821- 4400 Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Hæð í Hlíðunum óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 130-160 fm hæð í Hlíðunum. Nánari uppl. veita Sverrir eða Hákon. Íbúð í Kópavogi óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 110-130 fm íbúð í nýlegri blokk í Kópavogi. Nánari uppl. veita Sverrir og Hákon. 800-1.200 fm lagerhúsnæði óskast. Höfum verið beðnir um að útvega 800-1.200 fm lagerhúsnæði með góðri lofthæð til kaups. Nánari uppl. veita Óskar og Sverrir. Iðnaðarhúsnæði í Garðabæ óskast. 250-400 fm iðnaðarhúsnæði með góðri lofthæð í Garðabæ óskast. Nánari uppl. veitir Sverrir Kristinsson. Einbýlishús í Garðabæ óskast - staðgreiðsla. 180-280 fm einbýlishús, helst á einni hæð óskast sem fyrst. Staðgreiðsla í boði. Allar uppl. veitir Sverrir. Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast - staðgreiðsla. Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 150-200 fm einbýlishús á einni hæð á Seltjarnarnesi. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir. Íbúð við Espigerði óskast - staðgreiðsla. Traustur kaupandi óskar eftir 110 fm íbúð við Espigerði. Nánari uppl. veitir Sverrir. Sérhæð við miðborgina óskast. Fjársterkur kaupandi óskar eftir 150-200 fm hæð sem næst miðborginni. Staðgreiðsla. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir. Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast - rýming eftir 1 ár. Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð við Hæðargarð eða í háhýsi við Sólheima. Staðgreiðsla í boði. Eignin þarf ekki að losna fyrr en eftir 1 ár. Nánari uppl. veitir Sverrir. „Penthouse“ í miðborginni óskast - staðgreiðsla Óskum eftir 200-250 fm „penthouse“-íbúð eða (efstu) sérhæð í miðborginni eða í nágrenni hennar. Rétt eign má kosta 40-75 millj. Nánari upplýsingar veitir Sverrir. Íbúð við Kirkjusand óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm íbúð við Kirkjusand. Nánari uppl. veitir Sverrir. Hæð í Hlíðunum eða Kleppsholti óskast. Traustur kaupandi óskar eftir 120-140 fm hæð í Hlíðunum. Sverrir veitir nánari upplýsingar. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Upplýsingar veita Sverrir Kristinsson og Hákon Jónsson. Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur flestar stærðir raðhúsa og einbýlishúsa víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu. Einnig vantar flestar stærðir og gerðir íbúða. Traustir kaupendur. Dæmi úr kaupendaskrá: Barmahlíð 32 - hægri hurð Opið hús í dag milli kl. 16:00 og 19:00 Mjög björt og falleg 123 fm sérhæð í Hlíðunum með sérinngangi og mögu- leika á byggingu bílskúrs á bílastæði við lóð. Að sögn eiganda þarf bara að sækja um aftur. Búið er að endurnýja alla glugga og gler í íbúðinni. Komið inn í forstofu með flísum á gólfi. Hol rúmgott með linoleum-dúk á gólfi. Út frá holi eru tvær hurðargeymslur, önnur undir stiga og hin var gestasalerni áður og hægt væri að breyta því aftur eða setja þar þvotta- herbergi. Inn af holi er eldhúsið sem er með linoleum-dúk á gólfi og nýlegri fallegri innréttingu og einnig nýleg tæki í eldhúsinu, glerplata er öðru meg- in á milli innréttinga og hinu megin er stálplata, borðkrókur við glugga, uppþvottavél fylgir með. Herbergjagangur er með parketi á gólfi og stór- um rúmgóðum fataskápum á heilum vegg. Barnaherbergi með parketi á gólfi. Baðherbergið er með mósaíkflísum á gólfi og veggjum, upphengt salerni, baðkar og gluggi. Hjónaherbergið er með parketi á gólfi og út- gengt á suðursvalir og niður stiga á lóðina, sem er vaxin háum trjám og býður uppá ýmsa möguleika. Stofan og borðstofan er með gegnheilu stafaparketi. Innaf borðstofu er sjónvarpsherbergi með samskonar parketi á gólfi. Innaf sjónvarpsherberginu er eitt svefnherbergi (skrifstofa í dag) með parketi á gólfi. Í sameign fylgir ein köld geymsla á jarðhæð og í risi er rúmgóð geymsla með hillum. Þvottaherbergið er í risinu og er sameigin- legt með öðrum í húsinu. Snyrtileg sameig. Góð eign á vinsælum stað í Hlíðunum. Sölumenn Kletts fasteignasölu taka á móti áhugasömum kaupendum frá kl. 16:00 til 19:00 Landsins mesta úrval af yfirhöfnum Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16 Mörkinni 6, sími 588 5518

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.