Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 29
UMRÆÐAN
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17:30.
Sími 588 4477
Við eigum eftir 3 íbúðir í þessu glæsilega húsi, sem eru til afhendingar strax fullfrágengnar án
gólfefna og ein 4ra herb. íbúðin er fullbúin með öllum gólfefnum. Allar íbúðirnar skarta vönd-
uðum innréttingum frá Axis, flíslögðum vönduðum baðherb., flísar eru á forstofu og þvotta-
húsi. Hér er möguleiki að flytja inn strax. Verð frá 19,8-25,8 millj.
Einnig er mögulegt að fá lán hjá öðrum lánastofnunum. Kynnið ykkur mismunandi lánamöguleika.
Uppl. er hægt að fá í s. 896 5221, 896 5222 eða 899 1882 hjá sölumönnum Valhallar.
Lausar íbúðir til afhendingar strax við Þórðarsveig
Lyklar á skrifstofu
... í öruggum höndum
565 5522Reykjavíkuvegi 60 • Fax 565 5572
Opið: mán-fim 9-18 og fös 9-17
Gunnar Sv. Friðriksson hdl. löggiltur fasteinga- og skipasali
www.fasteignastofan.is • Allar eignir á mbl.is
Nýkomin í einkasölu glæsileg og rúmgóð 113 fm íbúð á 7. hæð í þessu
vinsæla lyftuhúsi, ásamt stæði í upphitaðri bílageymslu. Glæsilegt
útsýni. Góð gólfefni og innréttingar, suðursvalir. Fjölbýlið er klætt að
utan. Verð kr. 27,0 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Ívar í síma 861 2928.
Eyrarholt - Turninn
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
BOLLAGARÐAR
Einstaklega glæsilegt einbýlishús með sjávarútsýni og innbyggðum bílskúr við Bolla-
garða á Seltjarnarnesi. Eignin skiptist í forstofu, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús,
þvottahús, fjögur herbergi, sjónvarpshol, geymslu og baðherbergi. Falleg og vel hirt lóð.
Allar innréttingar, gólfefni og skipulag er hið vandaðasta, enda hefur húsið allt verið
endurnýjað á síðustu árum. 5167
HRAUNBRAUT - EINSTÖK STAÐSETNING
Mikið endurnýjað 170 fm einbýlishús með bílskúr á þessum eftirsótta stað í vesturbæ
Kópavogs. Eignin hefur verið mikið standsett, m.a. eldhús, bað, gólfefni, lagnir o.fl.
Timburpallur. Frábær garður. Stutt í alla þjónustu. Óbyggt svæði er á bak við húsið.
V. 40,0 m. 5178
SKAFTAHLÍÐ - SIGVALDAHÚS
Björt fimm herbergja 110,7 fm endaíbúð í Sigvaldablokkinni í Skaftahlíð. Íbúðin skiptist
í forstofu/hol, stórar samliggjandi stofur, nýstandsett eldhús, nýstandsett baðherbergi
og þrjú herbergi. Í kjallara fylgir sérgeymsla svo og sameiginlegt þvottahús, hjóla-
geymsla o.fl. Nýlegt parket er á öllum gólfum nema á baðherbergi en þar er grágrýti og
á barnaherbergjum en þar er linoleumdúkur. Ný hurð út á sameignargang. V. 23,0 m.
5160
BARÐASTAÐIR - GLÆSILEG ÍBÚÐ
Falleg 3ja herbergja 100 fm íbúð með sérinngangi á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýli á
þessum vinsæla stað í Grafarvogi. Húsið er nýmálað og lítur vel út. Snyrtileg lóð með
leiktækjum fyrir börnin. Um 2 mín. gangur í bæði leikskóla og nýjan grunnskóla. Stutt í
golf. Mjög fallegt útsýni til Esjunnar og yfir Flóann. 5168
HRINGBRAUT
129,9 fm íbúð á 1. hæð í litlu fjölbýlishúsi. Húsið er byggt árið 1937 og er steinsteypt.
Um er að ræða 5 herbergja bjarta íbúð sem skiptist í forstofu, gang, geymslu, 2 sam-
liggjandi stofur, þrjú góð herbergi og baðherbergi. Í kjallara fylgja tvær sérgeymslur og
hlutdeild í sameign. Gengið er úr þvottahúsi út á baklóð (þar er rými fyrir ruslatunnur).
V. 20,9 m. 5182
REKAGRANDI - BÍLSKÝLI
Falleg og vel staðsett 3ja herbergja 82 fm endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli við Reka-
granda, ásamt 27 fm stæði í bílageymslu. Eignin skiptist í forstofu, tvö herbergi, stofu,
eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla og hjólageymsla eru á jarðhæð. Tvennar svalir eru
á íbúðinni. V. 17,9 m. 4742
HOFTEIGUR - SÉRVERÖND
3ja herb. björt 78 fm íbúð í kjallara með sérvörnd sem gengið er í úr stofu. Tvö rúmgóð
herbergi. Endurnýjaðar lagnir o.fl. V. 14,7 m. 5165
EKKI alls fyrir löngu var greint
frá því í dagblöðum að fertugur
maður sem á við áfengisvanda að
etja hefði verið dæmdur í 45 daga
óskilorðsbundið fang-
elsi fyrir að stela einu
kjötlæri og fimm ost-
stykkjum í verslunum
í Reykjavík. Þess var
getið að verðmæti þýf-
isins hefði verið 4.580
krónur.
Eigum almennings
ráðstafað
Nú hefur alþjóð ver-
ið upplýst rækilega
um það hvernig ráð-
herrar handstýrðu
sölu Landsbankans,
Búnaðarbankans og VÍS til einka-
vina sinna. Landsbankinn lánaði
meira að segja vinum ráðherranna
milljarða til kaupanna áður en
Búnaðarbankinn var afhentur
framsóknarmönnum! Auðvitað á
fólk bágt með að trúa því að
æðstu menn þjóðarinnar hafi verið
að ráðstafa eigum almennings til
vina og kunningja. En staðreynd-
irnar tala sínu máli og framhjá því
verður ekki litið að einkavinirnir
efnuðust um marga milljarða á
þessum vafasömu viðskiptum.
Forsætisráðherra hefur sagt að
hann hafi aldrei efast um hæfi sitt
í einkavæðingarferlinu þrátt fyrir
stórfelld hagsmunatengsl, sem er
furðulegt í ljósi þess að maðurinn
er þaulreyndur stjórnmálamaður
og endurskoðandi og hefur m.a.
kennt þau fræði við háskóla. Rík-
isendurskoðandi var líka fljótur að
lýsa því yfir að það væri allsendis
óþarft að hugleiða vanhæfi for-
sætisráðherra í málinu. En það sjá
það allir sem vilja sjá, að ríkisend-
urskoðandi bregst algjörlega því
hlutverki sínu að veita stjórnvöld-
um aðhald, hann þjónar þeim
bara.
Skipa ætti rann-
sóknarnefnd
Að sjálfsögðu ætti
að skipa hlutlausa,
opinbera nefnd til að
rannsaka málið, en
það er afskaplega
erfitt vegna þess að
það er í höndum
meirihluta Alþingis
að skipa slíka nefnd
og sá sami meirihluti
kærir sig alls ekkert
um rannsókn. Þannig
getur meirihlutinn
staðið vörð um það
að eigið misferli verði ekki rann-
sakað. Það er hlutverk stjórn-
arandstöðunnar að veita stjórn-
völdum aðhald, en það er jafn
augljóst að þegar meirihlutinn
ræður alltaf hvað gera skal, þá
getur hann ýtt öllum óþægilegum
málum út af borðinu.
Því miður hefur einkavæðingin
verið einkavinavæðing til þessa og
það verður að stöðva. Viðskipti
með eigur almennings verða að
fara fram á fullkomlega opinn og
gagnsæjan hátt. Þegar valda-
hlutföll breytast á Alþingi hlýtur
það að verða fyrsta verkið að
skipa opinbera rannsóknarnefnd
sem rannsaki til hlítar öll vinnu-
brögð einkavæðingarnefndar frá
upphafi og viðskipti á hennar veg-
um.
Hinir háu herrar ræna heilu
bönkunum um hábjartan daginn,
frammi fyrir alþjóð og moka millj-
örðum til vina og vandamanna, en
eru aldrei kallaðir til ábyrgðar
gjörða sinna, ólíkt þeim sem var
gert að sitja í fangelsi fyrir að
taka kjötlæri og ost ófrjálsri
hendi.
Bankaræningjar
Margrét Sverrisdóttir
fjallar um sölu bankanna ’Hinir háu herrar rænaheilu bönkunum um há-
bjartan daginn, frammi
fyrir alþjóð og moka
milljörðum til vina og
vandamanna, en eru
aldrei kallaðir til
ábyrgðar …‘
Margrét Sverrisdóttir
Höfundur er framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið