Morgunblaðið - 24.07.2005, Side 30

Morgunblaðið - 24.07.2005, Side 30
30 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Skipholti 29a, 105 Reykjavík fax 530 6505 heimili@heimili. is Einar Guðmundsson, lögg. fast. Finnbogi Hilmarsson, lögg. fast. Bogi Pétursson, lögg. fast. sími 530 6500 Fulltrúar frá Faberca í Kanada verða á staðnum og veita faglegar ráðleggingar. Margra ára reynsla og þróun við íslenskar að- stæður skila sér í frá- bærum viðhaldsfríum húsum. Umboðsaðilar á ÍslandiDalvegur 22 • 200 Kópavogur Sími 515 2700 OPIÐ HÚS Í dag á milli kl 14:00 og 19:00 að Dalvegi 22 í Kópavogi Austurgata - Vogum Vatnsleysu Hraunhamar fasteignasala kynnir í einkasölu nýtt, glæsilegt fullbúið einbýli á einni hæð, 125 fermetrar ásamt 26 fermetra innbyggðum bílskúr, samtals um 151,7 fermetrar, vel staðsett við Austurgötu númer 2, Vogum Vatnsleysustrandarhreppi. Um er að ræða nýtt einbýli sem hef- ur verið innréttað á mjög smekklegan hátt með vönduð- um innréttingum og gólfefnum. Lýsing eignar: Forstofa með skáp. Gott þvottahús. Hol, stofa með útgangi út í garð. Eldhús opið inn í stofu með glæsilegri sérsmíðaðri innréttingu. Tvö góð herbergi með skápum. Glæsilegt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með baðkari og sturtuklefa, glæsileg innrétting á baði. Allar innréttingar sérsmíð- aðar úr eik frá RH innréttingum. Gólfefni eru parket og flísar. Góður bílskúr. Glæsilegur garður. Eignin er fullbúin og til afhendingar strax. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Kári Fanndal Guðbrandsson, Sigrún Sigurpálsdóttir, lögg. fasteignasali. TRAUST ÞJÓNUSTA Í ÁRATUGI S. 562 1200 F. 562 1251 EINBÝLISHÚS - EINSTAKT TÆKIFÆRI! Okkur hjá Fasteignasölunni Garði er sönn ánægja að kynna vandlátum kaupendum einstakan valkost í kaupum á einbýl- ishúsi! Húsið er steinsteypt, ein hæð með tvöföldum bílskúr, samtals 252,1 fm. Húsið skiptist í glæsilegar stofur og eld- hús (gengið niður 3 þrep), hjónaherbergi með sérbaði, 3 barnaherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottaherbergi og and- dyri. Hátt til lofts. Mahóní-gluggar og steinvatnsbretti. Geng- ið er út á lóð úr stofu, eldhúsi, hjónaherbergi og tveim öðr- um stöðum. Selst fokhelt, frágengið utan. Mjög vandaður frágangur. Staðsetningin er hreint frábær. Húsið stendur nokkuð hátt við Ásgarð í Mosfellsbæ. Hér njóta sín allir helstu kostir þess að búa í „sveit í borg“. Mjög víðáttumikið og fagurt útsýni er úr húsinu. Veitum fúslega allar frekari upplýsingar GRAFALVARLEGT mál er ef atvinulífið við Eyjafjörð getur ekki tekið við og nýtt þá fjármuni sem Kaupfélag Eyfirðinga hefur fram að bjóða. Í stað þess að standa sjálft fyrir fjölbreyttum atvinnu- rekstri eins og Kaup- félag Eyfirðinga gerði á árum áður miðast hlutverk þess nú við að taka þátt í fjárfest- ingum og ávaxta fjár- muni sem er einkum ætlað að hafa jákvæð áhrif á atvinnulíf og byggð á bökkum Eyja- fjarðar. Í samþykktum félagsins eru ákvæði sem binda hendur stjórnenda þess nokk- uð þegar fjárfestingar eru annars vegar. Félaginu er gert að stuðla að atvinnuuppbyggingu og byggðafestu í eyfirskum byggð- um og má segja að þessi kvöð eða fremur hlutverk sé arfur frá fyrri tíð ásamt þeim sjónarmiðum sem starfsemi félagsins byggðist jafnan á. Af þeim sökum hafa stjórnendur félagsins sýnt áhuga á ýmsum byggðaverkefnum, allt frá útgáfu norðlensks fréttablaðs og prent- smiðjureksturs á Akureyri til jarð- ganga á milli Eyjafjarðar- og Þing- eyjarsveita og lagningu þjóðvegar um hálendi Íslands á milli lands- fjórðunganna fyrir norðan og sunn- an. Efasemdir um opinber störf Að undanförnu hefur komið fram áhugi af hálfu forráðamenna Kaup- félags Eyfirðinga á að styðja við flutning opinberra stofnana eða starfa á þeirra vegum til Akureyr- ar. M.a. með því að festa kaup á húsnæði til þess að bjóða stofn- unum afnot af og þá trúlega fyrir hagstæðara endurgjald en þær þurfa að greiða á markaði í höf- uðborginni. Ég hef stundum látið í ljósi efasemdir um tilgang þess að fá eða lokka opinber störf eða stofnanir út á land vegna þess að þær skipta jafnan ekki sköpum í atvinnulífi bæja eða byggðarlaga nema þá þar sem um fámenni er að ræða. Þrátt fyrir það tek ég undir að starfsemi opinberra stofn- ana getur aukið fjölbreytni at- vinnulífs á landsbyggðinni. Í því sambandi má nefna staðsetningu nýrrar landbúnaðarstofnunar á Selfossi, staðsetningu Rann- sóknastofnunar landbúnaðarins í tengslum við Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri, Byggðastofnun á Sauðárkróki og Land- mælingar ríkisins á Akranesi. Vissulega myndi hluti af starf- semi Fiskistofu eða Hagstofunnar, svo dæma sé getið, auka nokkuð fjölbreytni at- vinnulífs á Akureyri og yrði að því leyti já- kvæð líkt og starf- semi stofnana sem tengjast Háskólanum á Akureyri án þess þó að skipta sköpum í því fjölmenna byggð- arlagi sem Eyjafjarðarsvæðið er. Pólitískt viðfangsefni Einhvers staðar þurfa eftirlits- stofnanir þjóðfélagsins að vera og frá byggðasjónarmiðum séð er æskilegt að þær dreifist nokkuð um landið. Staðsetning þeirra á að vera sjálfsagt og eðlilegt viðfangs- efni stjórnvalda á hverjum tíma en síður viðfangsefni fjárfestingaraðila að bjóða stofnunum kostakjör til að lokka starfsemi þeirra til einhverra staða. Ákveðinnar tregðu hefur oft- ast gætt þegar staðsetningu op- inberra stofnana hefur borið á góma. Rætur hennar hafa þó frem- ur legið innan stofnananna sjálfra en í viðhorfum stjórnmálamanna, einkum vegna þess að starfsfólk stofnananna hefur ekki viljað flytj- ast af höfuðborgarsvæðinu. For- svarsmenn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar buðu fyrir nokkrum árum hagstofustjóra að flytja er- indi um þetta efni á hádegisfundi í fundaröð félagsins um atvinnumál. Hann afþakkað boðið og var vart hægt að túlka það á annan veg en að hann teldi málefnið ekki vera til umræðu. Sjávarútvegsráðherra hefur nú sýnt hugmyndum um starfsemi Fiskistofu á Akureyri áhuga en minna er vitað um af- stöðu forstöðumanns eftirlitsstofn- unarinnar sjálfrar eða starfsfólks hennar í því efni. Grafalvarlegt mál Ástæður þess að forráðamenn Kaupfélags Eyfirðinga eru farnir að horfa í þessa átt er fyrst og fremst skortur á góðum fjárfest- ingar- og atvinnukostum sem þjón- að geta samþykktum og mark- miðum félagsins um að leggja fjármuni til atvinnuuppbyggingar í héraði og auka byggðafestu. Það er grafalvarlegt mál fyrir byggð eins og Eyjafjörð með um 25 þúsund íbúa og hlýtur að vekja áhyggjur þeirra að atvinnulífinu virðist svo um megn að nýta fjármuni sem til eru á svæðinu að kalla verði eftir opinberum eftirlitsstörfum og bjóða þeim kostakjör. Lengst af hefur umræðan um að flytja rík- isstofnanir eða hluta af starfsemi þeirra út á land stafað af því að ekki hafa verið til fjármunir til þess að efla atvinnulíf. Í þessu til- viki eru þeir fyrir hendi en þá vantar sjálfa atvinnukostina. Arður af starfsemi ríkisstofnana verður alltaf óbeinn. Hann skilar sér eink- um í greiðslum fyrir afnot af hús- næði, í opinberum gjöldum starfs- fólks til viðkomandi sveitarfélags eða sveitarfélaga og kaupum stofn- ana, starfsfólks og fjölskyldna þeirra á lífsnauðsynjum og dag- legri þjónustu. Efling atvinnulífs og byggðafesta byggist aldrei nema að takmörkuðu leyti á eft- irlitsstofnunum þótt þær geti að vissu leyti aukið fjölbreytni at- vinnuflórunnar. Hér er ekki við forsvarsmenn Kaupfélag Eyfirð- inga að sakast sem þurfa að koma fjármunum í umferð atvinnulífsins og eru bundnir af samþykktum og stefnumörkun félagsins. Félagið hefur fjárahagslega burði til þess að standa að baki öflugu atvinnulífi og byggðafestu. Því er það at- vinnulífsins að koma til móts við félagið. Grafalvarlegt mál Þórður Ingimarsson fjallar um atvinnusvæðið Eyjafjörð ’Staðsetning þeirra áað vera sjálfsagt og eðli- legt viðfangsefni stjórn- valda á hverjum tíma…‘ Þórður Ingimarsson Höfundur er blaðamaður.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.