Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 31

Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 31 UMRÆÐAN MENNTUN er eitt mikilvægasta tækið til að tryggja jöfn tækifæri þegnanna. Miklu skiptir því að allir sem áhuga hafa og getu eigi þess kost að sækja sér menntun að lokn- um grunn- eða fram- haldsskóla. Í dag er ekki svo, einhver hundruð ungmenna komast ekki í skóla í haust samkvæmt fréttum í síðasta mánuði. Enginn veit hversu mikill þessi fjöldi er en að mati for- manns Skólameist- arafélags Íslands er hópurinn sem ekki fær skólavist í framhalds- skólum líklega „mjög stór“. Og langflestir háskólanna vísuðu frá fjölda nem- enda. Ef marka má viðtöl við for- svarsmenn skóla í júní sl. gætu þetta verið á bilinu tvö til fjögur hundruð manns sem ekki komast í framhalds- eða háskóla í haust. Viðbótarkostn- aður ríkisins af hverjum nemanda næmi um það bil sex til sjöhundruð þúsund krónur á ári. Að tryggja öll- um skólavist gæti því kostað árlega um 150 til 250 milljónir króna, sem allir sjá að er ekki há upphæð, sem hlutfall af heildarútgjöldum ríkisins sem eru um 400 milljarðar árlega. Það er að vísu svo að aldrei hafa fleiri nemendur sótt nám í fram- halds- og háskólum landsins. En Heimdallur, félag ungra sjálfstæð- ismanna í Reykjavík, hefur sagt, að við þær aðstæður sem við búum í dag, mikinn hagvöxt og góða stöðu ríkissjóðs, á að gera betur. Heim- dallur skoraði í liðinni viku á menntamála- og fjármálaráðherra að leita allra leiða til að gera ungu fólki sem getu hefur og áhuga, kleift að hefja nám í haust. Þess má geta að Heimdallur lagði á síðasta hausti fram ítarlegar niðurskurðartillögur á fjárlögum ríkisins, svo ungt fólk í Sjálfstæðisflokknum verður ekki sakað um ábyrgðarleysi í ríkisfjár- málum. Af hverju? Menntun er ekki einungis lykill að jöfnum tækifærum, en rannsóknir sýna að hún hefur mikil áhrif á ævi- tekjur einstaklinga. Menntun virðist hafa jákvæð áhrif á svo ótalmargt annað í lífi þeirra. Jákvæð tengsl eru milli menntunar fólks og heilsufars, mennt- unar og þátttöku í margs konar fé- lagsstarfi og -tengslum. En tvennt það síðastnefnda hefur verið skilgreint sem fé- lagsauður samfélaga (social capital) og sett á bekk með efnislegum auði og mannauði (human capital), vegna margvíslegra jákvæðra áhrifa á traust í sam- félögum og almenna hagsæld. Menntun og skólaganga ungs fólks vinnur einnig gegn and- félagslegri hegðan svo sem lög- brotum, sem kosta samfélög mikið. Öll þessi atriði varða því bæði ein- staklinginn sjálfan, en ekki síður það samfélag sem hann býr í, auk vel- þekktra áhrifa menntunarstigs í samfélögum á efnahags- og at- vinnuþróun þeirra. Af hverju ungir sjálfstæðismenn? Ungir sjálfstæðismenn eru þekkt- ari fyrir annað en að fara fram á aukin útgjöld og umsvif ríkisins. Það á líka að vera þannig, en um mennt- un ungs fólks gildir annað. Útgjöld ríkisins til menntunar ungs fólks eru fjárfesting, ekki rekstrarkostnaður. Þau eru fjárfesting í ungu fólki og getu þess og framtíð. Fjárfesting sem skilar sér margfalt, ekki bara fyrir þann sem menntar sig heldur samfélagið allt. Að hve miklu leyti einkaaðilar eigi síðan að sjá um menntakerfið og að hve miklu leyti einstaklingar eigi að bera af því kostnaðinn sjálfir með skólagjöldum er svo önnur umræða og efni í aðra blaðagrein. Allir eigi kost á skólavist í framhalds- og háskólum Bolli Thoroddsen fjallar um menntamál ’Menntun er fjárfestingí getu og framtíð ungs fólks. Sjálfstæðismenn eiga að standa vörð um þá fjárfestingu.‘ Bolli Thoroddsen Höfundur er formaður Heimdallar og verkfræðinemi við Háskóla Íslands. Austurmörk 4, Hveragerði, www.byr.is sími 568 9800 Dynskógar 26 Í einkasölu er 186 fm einbýlishús með stórum bílskúr, þremur svefnherb. og aukaherbergi í kjallara. Bílskúrinn er stór og lofthæð mikil. Gott hús á einstaklega góðum og fallegum stað. Verð- tilboð Austurmörk 98 fm iðnaðarhúsnæði á besta stað í Hveragerði. Verð 5.400.000. Lækjarbrún 2 OPIÐ HÚS Í DAG í tilefni 50 ára afmælis HNLFÍ frá kl.13-17. Við kaup á þessum húsum gera kaupendur þjónustusamning við Heilsustofnunina sem veitir aðgang að þeirri þjónustu sem þar er í boði. Lyngheiði Höfum í einkasölu 139 fm einbýlishús innarlega í botnlanga á góðum stað í bænum. Húsið er bjart og vel skipulagt, með fjórum svefnherb. Garðurinn er gróinn og mjög snyrtilegur. Verð 21.900.000. Breiðumörk Glæsileg 3ja herb íbúð á jarðhæð í hjarta bæjarins. Eignin er ný og er fullfrágengin að utan sem innan. Verð 17.800.000. Dynskógar Í einkasölu er 147 fm einbýlishús með 61 fm bílskúr. Í garðinum er stór verönd, nuddpottur, lítil sundlaug og grillkofi. Verð 23.800.000. HVERAGERÐI Soffía Theodórsdóttir löggiltur fasteignasali LAUGARÁSVEGUR - EINSTAKT TÆKIFÆRI Guðrún Árnadóttir, lögg. fasteignasali. Upplýsingar gefur Brynjar Harðarson, gsm 840 4040. Höfum fengið í sölu eitt af þessum eftirsóttu og einstaklega vel staðsettu einbýlishúsum við rætur Laugardalsins en þessi nærvera skapar einstaka umgjörð um húsið. Frá húsinu er mjög fallegt útsýni. Húsið er u.þ.b. 400 fm að stærð með tvöföldum innb. bílskúr. Húsið er mjög skemmtilega hannað með stórum og björtum stofum og rúmgóðum herbergjum, arni í stofu og glæsilegum snúnum stiga milli hæða. Húsið býður upp á fjölbreytta nýting- armöguleika og t.d. má auðveldlega hafa aukaíbúð á neðri hæðinni með sérinngangi. Hús- ið er til afhendingar mjög fljótlega. Draumur náttúruunnandans Einstök fasteign við sjávarsíðuna á Miðjarðarhafseyjunni Möltu Frábært útsýni - Ósnortin náttúra Til sölu sérlega fallegt hús í klassískum stíl með öllum nútíma þægindum staðsett á friðuðu náttúrusvæði Til að fá frekari upplýsingar hafið samband (á ensku): E-Mail: Rosemarie.Hecht@johbarth.de Fax: 0049 / 911 / 54 89 160 TIL LEIGU - VEISLUSALUR ÞJÓNUSTUHÆÐ - 104 REYKJAVÍK Til leigu um 340 fm atvinnuhúsnæði/þjónustuhæð í góðu húsi. Björt og skemmtileg hæð með miklu útsýni. Eignin er innréttuð sem veislusalur útbúin hljóðkerfi og eldhúsi. Til staðar eru sæti og búnaður fyrir allt að 180 manns. Hentar einnig sem kennslu- og nám- skeiðssalur. Tilvalið fyrir félagasamtök. Hægt er að breyta innra skipulagi og innrétta skrifstofur með tölvulögnum henti það starfseminni. Upplýsingar veitir Árni í síma 892 4243. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.