Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 39 Toyota Avensis árg. '98, ek. 156 þús. km. Beinskiptur. Verð 670 þús. Áhvílandi lán 390.000 þús. Geislaspilari, samlæsing, rafdrifn. rúður. S. 892 4767/ 863 0153. Varahlutir Jeppapartasala Þórðar, Tangarhöfða 2, sími 587 5058 Nýlega rifnir Patrol '95. Legacy '90-'99, Grand Vitara '00, Kia Sportage '02, Pajero V6 92', Terr- ano II '99, Cherokee '93, Nissan P/up '93, Vitara '89-'97, Impreza '97, Isuzu pickup '91 o.fl. Dodge Ram 3500 árg. '03, ek. 80 þ. km, leður, cruise, rafm. í öllu. Vsk-bíll. V. 3.750 þ. eða 2.300 þ. án vsk í beinni sölu . Áhv. ca 1,8 m. Uppl. í s. 820 8096. 130.000 kr. og gott lán. Renault Laguna station árg. 1999, ekinn 83.000 km. Nýskoðaður á góðum kjörum. Upplýsingar í síma 899 7890. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl M. Benz ML500 Sport árg. 2002. Glæsilegur bíll hlaðinn auka- búnaði: Sportpakki, þæginda- pakki, sóllúga, dráttarbeisli, ssk. o.mfl. Bíllinn er sem nýr. Ekinn 80 þ. km. Verð 3,9 m. Sími 821 2066. Sjálfskiptur og ódýr. Peugeot 406 árgerð 1998. 4 dyra, 2000 cc vél, ekinn 84.000 km. Ný- skoðaður. Upplýsingar í síma 899 7890. Mjög góð 78 fm íbúð á 3. hæð, íbúð 0303, í góðu fjöl- býli í vesturbænum. Íbúðin skiptist í hol, rúmgóða stofu með útgengi á suðursvalir, eldhús nýlega tekið í gegn með góðri innréttingu, baðher- bergi, flísalagt í hólf og gólf og tvö herbergi, bæði með skáp- um. Þvottaaðstaða. í íbúð. Parket á gólfum. Sér geymsla í kj. Verð 17,5 millj. Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14.30- 16.30. Verið velkomin FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali. Meistaravellir 31- 3ja herb. íbúð Opið hús frá kl. 14.30-16.30 Þegar ég nálgaðist kom aðplastpokamávinum styggð sem dugði til að honum tókst að komast á loft með pokann í eft- irdragi. En hann flaug ekki langt, plastpokinn fyllt- ist af lofti svo mávinum fataðist flugið og hrapaði ofan í ána. Þar barðist hann svolitla stund um í vatn- inu en tókst svo að komast upp á stein með pokann. Ekki hafði tekið betra við, pokinn var nú fullur af vatni og greinilega hræðilega þungur. Ég hef séð marga furðuslegna og vandræðalega um dagana, en fáir hafa þó komist í hálfkvisti við þennan ógæfusama fugl sem greinileg skildi ekkert hvað komið hefði fyrir sig. Þótt ég sé ekki aðdáandi fugla síðan svarta unga- hænan réðst á mig þegar ég var 5 ára á bæjarhlaðinu þar sem ég var í sveit þá fylltist nú hjarta mitt eigi síður af meðaumkvun. En kjarkur minn var ekki að sama skapi mikill, ég velti fyrir mér að fara úr skóm og sokkum og bretta upp buxnaskálmarnar og vaða út í ána til að bjarga fuglinum úr plast- pokanum en fann á samri stundu innra með mér að líklega myndi hvorki ég né fuglinn vera nægilega hjartasterk til að sú björgunar- aðgerð tækist giftusamlega. Nú var úr vöndu að ráða en þá fékk ég skyndilega hugljómun. Ég var með farsímann minn og hringdi umsvifalaust í 112 og náði þar í sérlega viðmótsgóðan mann. Ég baðst afsökunar á ónæðinu og sagðist ekki vera viss um að ég væri að hringja í réttan aðila, kannski væri neyð fugla ekki á könnu 112, en maðurinn róaði mig með það sama og sagðist ætla að gefa mér samband við aðila sem gæti séð um slíkt mál, ég þyrfti bara að bíða dálitla stund. „Ég er að verða búin með kred- itið mitt í símanum,“ sagði ég – svona getur maður orðið fjárhags- lega þenkjandi jafnvel á örlaga- stundu. „Þú borgar ekkert fyrir þetta samtal,“ svaraði maðurinn blátt áfram og svo beið ég drjúga stund þar til í símann kom maður sem kvaðst vera allur af vilja gerður að hjálpa mávinum en væri staddur uppi á Kjalarnesi og því yrði fugl- inn og ég að bíða þar til hann kæmist á staðinn. Ég reyndi eftir föngum að gefa greinargóða lýs- ingu á umhverfinu sem var reynd- ar dálítið erfitt því fátt var þarna verulega einkennandi. Meðan þessu vatt fram fylgdist ég með fuglinum sem aftur og aft- ur datt ofan af steininum vegna þunga plastpokans sem hreinlega virtist á hverri stundu myndi hengja hann. Símtalinu lauk og ég tók mér stöðu til að bíða með hinum að- þrengda fugli þar til hjálp bærist. Tilraunir fuglsins til að ná fótfestu á steininum urðu æ örvænting- arfyllri og þar kom að hann rann ofan í ána og barst niður með henni svolítinn spöl. En þá gerðist kraftaverkið, höfuð hans fór alveg í kaf, ég tók andköf og hélt að hann væri að drukkna – en þess í stað var að hann bjargast. Hank- inn á plastpokanum rann ofan af höfðinu á honum niðri í straum- harðri ánni og hann var skyndilega laus við pokann. Honum skaut upp og ég gleymi seint undrunar- svipnum á fuglinum – hann trúði varla heppni sinni, að þyngdin sem hafði plagað hann væri horfin. Hann hristi sig og stjáklaði svolitla stund á steininum sem honum var nú að komast upp á, svo fór hann að blaka vængjunum og fyrr en varði hóf hann sig til flugs og flaug fagnandi á brott. Ég stóð eftir orðlaus af gleði. Ég gleymdi að mér hefur hingað til verið sérlega kalt til máva sem eiga það til að steypa sér niður að fótgangandi fólki og hræða næst- um úr því líftóruna. Ég gleymdi öllu nema gleðinni yfir björgun fuglsins úr þessum hræðilega háska og mér fannst að þetta atvik hlyti að vera afar góðs viti. Eftir að hafa horft á eftir mávinum hverfa með kröftugum vængjatökum inn í bláma fjar- lægðar hringdi ég enn í 112 – nú til þess nú að biðja fyrir skilaboð til mannsins á Kjalarnesinu þess efnis að sá sem lítur eftir liljum vallarins hefði orðið fyrri til og hrifið fuglinn úr heljargreipum plastpokans. Síðan hélt ég léttstíg áfram minni kvöldgöngu um Elliðaárdalinn og blessaði í hug- anum títtnefnda björgun og líka þá góðu menn sem höfðu tekið svona vel í að hjálpa nauðstöddum mávi. Þótt mér sé enn meinilla við vængjaslátt og fuglsgogga og viti vel að það er ekki allt fallegt sem mávurinn aðhefst í þessari tilveru þá mun ég seint gleyma örvænt- ingu hans og samkenndinni sem barátta hans vakti mér. Augu mín hafa opnast fyrir því að líka mávar geta átt bágt og þótt mig langi ekkert til þess að umgangast þá dagligdags er ég ekki lengur viss um að rétt sé að drepa þá unn- vörpum eins og margir vilja ef marka má blaðaumfjöllun um það mál nýlega. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR / Geta mávar líka átt bágt? Í heljargreipum plastpokans eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur Eitt góðviðriskvöld fyrir skömmu gekk ég stóran hring um Elliðaárdalinn. Leiðin lá um malbikaðan göngustíg meðfram ánni. Sem ég gekk þarna tók ég eftir miklu mávageri yfir gangstígnum og á honum miðjum stóð mávur og virtist eiga í miklum erfiðleikum með að komast á loft til félaga sinna. Það var ekki að kynja þótt brottflugið væri erfiðleikum bundið, um hálsinn hafði hann stóran, hvítan plastpoka sem hafði greinilega mjög slæm áhrif á flug- hæfni hans. Í DAG koma félagar úr Skóg- arkattaklúbbi Íslands saman og sýna gestum og gangandi skóg- arketti sína. Viðburðurinn fer fram við hesthús í Húsdýragarðinum í Reykjavík frá kl. 12 til 17 og verða kettirnir ýmist í búrum eða í beisli. Að öðru leyti verður hefðbundin dagskrá í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum, þar sem tækin verða keyrð og dýrum gefið. Nýtt á dagskránni í sumar er að fiskar eru fóðraðir í Sjávardýrasafni kl. 15. Garðurinn er opinn alla daga milli kl. 10 og 18. Skógarkettir til sýnis í Hús- dýragarðinum LANDSBANKINN og Íslands- banki bjóða nú upp á persónugerð greiðslukort. Í því felst að við- skiptavinir geta hannað sjálfir útlit kortanna, ráðið lit þeirra og skreytt með myndum úr eigin safni eða myndbanka, sem bank- arnir bjóða upp á. Félagar í XY-klúbbi Íslands- banka, sem eru á aldrinum 12 til 15 ára, geta nú fengið persónugerð debetkort endurgjaldslaust. Þjón- ustan mun svo bjóðast öðrum við- skiptavinum bankans á næstu vik- um. Pétur Blöndal, forstöðumaður kynningarmála og fjárfestatengsla Íslandsbanka, segir að meðlimir geti prófað að hanna kort á nýja vefnum, www.xy.is. „Þar verða reglulega ýmis tilboð, t.d. afsláttur á símakortum og boðsmiðar á frumsýningar. Einnig verður þar hægt að senda SMS og stofna XY- netfang.“ Birgitta Haukdal veitti fyrsta kortinu viðtöku í Íslandsbanka við Kirkjusand í gær. Mynd af Birg- ittu verður í myndabankanum á XY-vefnum og segir Pétur að bú- ast megi við að margir aðdáendur söngkonunnar muni nýta sér myndina í persónugerðu kortin sín. Persónugerðu kort Landsbank- ans ganga undir nafninu MITT KORT og verður þjónustan án endurgjalds fyrst um sinn. Að sögn Viggós Ásgeirssonar, mark- aðsstjóra Landsbankans, eru kort- in hugsuð sem framhald á þeirri þróun sem hefur gert mismunandi hringtóna og skjámyndir í farsím- um vinsæla. Hann segir hönn- unarmöguleikana nær ótakmark- aða og muni því reyna á sköpunargáfu korthafa. Hægt er að hefjast handa við að skapa sér eigið kort nú þegar hjá báðum bönkunum. Kortin verða svo tilbúin til afhendingar í byrjun ágúst. Hannaðu eigið greiðslukort Persónugerð greiðslukort Morgunblaðið/Eyþór BÓKIN Póstsaga Íslands 1873-1935 eftir Heimi Þorleifsson sagnfræðing sem kom út haustið 2004, fékk nýlega verðlaun í flokki fræðirita á frí- merkjasýningunni Nordia 2005 í Gautaborg. Eins og venja er til á slík- um sýningum voru þar sýnd fræðirit sem þykja hafa sérstakt gildi fyrir norræna og alþjóðlega póst- og sam- göngusögu. Meðal þeirra var Póst- saga Íslands 1873-1935, síðari bindi. Bókin fékk verðlaunin „stórt gyllt silfur“ og einkunnina 8,8 á tíu-skal- anum. Sérstök dómnefnd fjallar um ritin og gaf hún íslensku póstsögunni lofsamlega umsögn fyrir ítarlega rannsókn, skýra framsetningu, vand- aðar tilvitnanir og glæsilegt útlit. Fyrri bók höf- undar, Póstsaga Íslands 1776- 1873, sem kom út árið 1996 hefur einnig hlotið mjög góða dóma og við- urkenningar á frímerkjasýningunum erlendis. Höfundur fékk heiðursverð- laun á sýningunni Nordia 98 í Óðins- véum. Íslandspóstur gaf seinni bókina út en Póstur og sími þá fyrri. Sögufélag- ið, Fiscersundi 3, 101 Reykjavík, ann- ast dreifingu bókanna. Póstsaga Íslands fær verðlaun í flokki fræðirita FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN Sælu- dagar verður haldin í Vatnaskógi um verslunarmannahelgina og er boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Meðal at- riða eru Örn Árnason, Páll Rósinkrans og gospelkór KFUM og KFUK. Helga Braga treður upp sem Lóa hrekkjusvín og Ásta úr Stundinni okkar verður á staðnum. Þá flytur Pétur Þór Bene- diktsson frumsamið efni, auk þess sem Lalli töframaður skemmtir gestum. Kvöldvökur, gospelmessa, bátar og vatnafjör, varðeldur, veiðimennska, fræðslustundir um Simpson-fjölskylduna, trú, Ísrael og fleira verður einnig meðal dagskrár- atriða. Þá verður risabingó, íþrótta- mót og ratleikur, auk mikillar barna- og unglingadagskrár svo engum ætti að leiðast. Hátíðin er haldin af Skógarmönn- um KFUM og er án áfengis. Allar nánari upplýsingar er að finna á KFUM.is. Vatnaskógur býður uppá sæludaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.