Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 41

Morgunblaðið - 24.07.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 41 DAGBÓK YOGA •YOGA • SUMAR YOGA YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, símar 588 5711 og 694 6103 www.yogaheilsa.is - yogaheilsa@yogaheilsa.is Líkamsæfingar, öndunaræfingar, slökun og hugleiðsla. Morguntímar, hádegistímar, síðdegistímar og kvöldtímar. Sértímar fyrir barnshafandi konur og fyrir byrjendur ALLIR YOGAUNNENDUR VELKOMNIR • Sérverslun - heildverslun með heimilisvörur. Ársvelta 170 mkr. Góð framlegð. • Lítil heildverslun með skó o.fl. Hentugt sem viðbót við tengdan rekstur. • Stór heildverslun með efnavörur, t.d. hreinsiefni. Ársvelta 340 mkr. • Trésmíðafyrirtæki sem framleiðir 5-8 sumarbústaði á ári. Góð verkefnastaða. • Stórt iðnfyrirtæki með matvæli sem byggir aðallega á útflutningi. • Heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 110 mkr. • Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Annatími framundan. Mikill hagnaður. • Deildir úr heildverslunum með ýmsar vörur. Hentugar sem viðbót fyrir heildverslanir. • Þekkt heildverslun - sérverslun með húsgögn og gjafavörur. Ársvelta 70 mkr. Góður hagnaður. • Rótgróin bókabúð í miðbænum. Góður rekstur. • Skipasmíðastöð (flotkvíar) í Svíþjóð. Ársvelta 900 mkr. Ágætur hagnaður. • Lítið vínumboðsfyrirtæki með tvær bjórtegundir í kjarna. Hentugt til sameiningar. • Verslanir í Kringlunni og í Smáralind. • Með betri blómabúðum landsins í úthverfi Reykjavíkur. • Ferðaskrifstofa með sérhæfðan rekstur. • Stórt iðnfyrirtæki. Ársvelta 450 mkr. • Fiskvinnsla í eigin húsnæði á Eyrarbakka. • Þekkt fataverslun við Laugaveg. Ársvelta 30 mkr. • Rótgróin heildverslun með sérhæfðar tæknivörur. Ársvelta 60 mkr. • Meðalstórt verktakafyrirtæki í jarðvinnu. Góð verkefnastaða. H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 ÚTSALA AUKIN AF SLÁTTUR H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I S Í M I 5 7 7 4 9 4 9 Afmælisþakkir Innilegar þakkir til allra, sem glöddu mig á 80 ára afmælinu með heimsóknum, gjöfum, skeytum og kveðjum. Guð blessi ykkur öll. Óskar G. Jónsson, Dalvík. Um Vegabréfaleik ESSO og fleira Í VELVAKANDA hinn 17.7. sl. er bréf frá K.E.Ó. þar sem kvartað er undan því að Olíufélagið ehf. ESSO svari ekki tölvupósti sem dagsettur er 2.7. sl. Því miður lenti umrætt bréf hjá starfsmanni sem var í fríi og er beðist velvirðingar á því. Bréfi K.E.Ó. hefur verið svarað en undirritaður óskar eftir að koma eftirfarandi á framfæri við Velvak- anda. Ábendingar K.E.Ó. snúa að vegabréfsleik ESSO en sá leikur hefur verið í gangi í mörg ár og hafa tugir þúsunda viðskiptavina félagsins tekið þátt í honum á hverju ári. Vegabréfsleikurinn er hugsaður sem skemmtun fyrir alla fjölskylduna og eru engar hömlur á að þegar fjölskyldan er á ferð geta allir haft sitt vegabréf og fengið stimpil. Við ákveðinn fjölda stimpla eru síðan vinningar sem höfða meira til yngri kynslóðarinnar en í lok sumars er dregið úr öllum inn- sendum vegabréfum þar sem veg- legir vinningar eru í boði. Í bréfi K.E.Ó. kom fram at- hugasemd varðandi löggildingu á sjálfsafgreiðslustöð félagsins á Drangsnesi. Sem svar við því þá er það rétt að löggilding er frá októ- ber 2003 og það skal löggilda dælu á hverju ári. Viðkomandi dæla var sett upp í febrúar sl. og áður en hún var send á staðinn var dælan prófuð af verktakanum sem sá um uppsetninguna. Þegar verktakinn hafði lokið sínum störfum var við- komandi dæla tilkynnt til Frum- herja sem hefur einkarétt í dag til löggildingar í umboði Löggilding- arstofu, það er síðan þess fyr- irtækis að ákveða hvenær er farið á staðinn. Til upplýsinga þá hafa margar þjóðir í kringum okkur tekið upp löggildingu á tveggja ára fresti enda sýnir reynslan að ekki er þörf á árlegri löggildingu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Lög- gildingarstofan ekki léð máls á slíku né að einfalda núverandi lög- gildingarferli sem myndi lækka kostnað umtalsvert. Heimir Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Neytendasviðs Olíufélagsins ehf. Páll Magnússon GETUR verið að Baugur ætli að koma manni inn á Ríkisútvarpið? Eftir að Baugur tók við dreif- ingu á Dagskránni hefur gengið illa að fá hana. Þórir Óskarsson, Stóragerði 11. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is 80 ÁRA afmæli. Í dag, sunnudag-inn 24. júlí, er áttræð Jóhanna Arnórsdóttir, Gullsmára 11, Kópavogi. Hún er að heiman. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 70 ÁRA afmæli. Í dag, 24. júlí, ersjötug Málhildur Sigurbjörns- dóttir. Hún tekur á móti gestum í Gafl- inum, Hafnarfirði, milli kl 17 – 20. EM ungmenna Norður ♠42 ♥-- V/Allir ♦G8762 ♣ÁG10852 Vestur Austur ♠98 ♠DG73 ♥G1053 ♥KD8764 ♦ÁK104 ♦3 ♣D73 ♣96 Suður ♠ÁK1065 ♥Á92 ♦D95 ♣K4 Almennt er skynsamlegt að treysta mótherjunum þegar þeir eru á hætt- unni – ef þeir reyna geimsögn ótil- neyddir er hún yfirleitt sögð til vinn- ings frekar en fórnar. Spilið að ofan er frá leik Dana og Ísraela á EM ungmenna og þannig gengu sagnir á öðru borðinu: Vestur Norður Austur Suður Azizi Schaltz Yossef Gjaldbæk Pass 2 grönd *Pass 5 tíglar Dobl Allir pass Opnun norðurs á tveimur gröndum sýndi láglitina, minnst 5-5 skiptingu, og punkta á bilinu 6-11. Daninn Gjald- bæk í suður átti góð spil og ákvað að skjóta á geim. Víkur þá sögunni til vesturs. Hann sér að geimið vinnst ekki með yfirslag, en ef hann doblar til sektar fær sagn- hafi upplýsingar um leguna, sem gæti skipt sköpum í úrvinnslunni. Eigi að síður ákvað Azizi að dobla. Útspilið var spaðanía og Gjaldbæk drap gosa austurs með ás. Hann spilaði tíguldrottningu í öðrum slag, sem vest- ur drap til að spila meiri spaða. Það sakaði sagnhafa lítt og Gjaldbæk lét næst tígulníuna rúlla. Vestur fékk næsta slag á hátígul, en Gjaldbæk tók síðasta trompið og tryggði sér ellefu slagi með því að svína fyrir laufdrottn- ingu: 750 í NS. Er dobl vesturs þá eintóm vitleysa? Ekki endilega, en útspilið er illa ígrundað. Með sterkan fjórlit í trompi er örugglega farsælast að spila upp á stytting og byrja á lengsta lit. Ef vest- ur hefði komið út með hjarta í byrjun hefði niðurstaðan orðið allt önnur og vörninni hagstæðari. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is BÓKIN Móðir í hjáverkum eftir Allison Pearson hefur fengið ákaflega góð- ar viðtökur og er nú þriðju vikuna í röð í efsta sæti sölulista á Ís- landi. Á frummál- inu heitir bók- in „I Dont Know How She Does It“ og segir frá þeirri togstreitu sem útivinnandi móðir þarf að glíma við. Höfundurinn fjallar um rótgróin viðhorf til kvenna og móðurhlutverksins og hvernig slíkt fer saman við frama á vinnumarkaði. Ekki er það aðeins á Íslandi sem bókin hefur fengið góðar viðtökur en hún hefur, að því er segir í tilkynningu frá Eddu- útgáfu, náð metsölu víða: bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Allison Pearson er búsett í Lundúnum, blaðamaður að að- alstarfi og skrifar reglulega dálk í Daily Telegraph og Evening Standard, auk þess sem hún starfar fyrir BBC-2 og kemur reglulega að sjónvarpi og útvarpi. Móðir í hjáverkum vinsæl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.