Morgunblaðið - 24.07.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 24.07.2005, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 24. júlí kl. 20.00: Nýsjálenski orgelsnillingurinn Nigel Potts leikur fjölbreytta orgeltónlist. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70, 105 Rvk. www.lso.is - lso@lso.is Þriðjudagstónleikar 26. júlí kl. 20:30 Duo Landon Hlíf Sigurjónsdóttir og Hjörleifur Valsson fiðluleikarar flytja fiðludúó eftir Béla Bartók Í dag 24/7 kl. 14 uppselt 4. sýn. þri. 26/7 kl. 19 sæti laus 6. sýn. lau. 06/8 kl. 19 sæti laus ÞAÐ er í tísku að vera Íslendingur í útrás. Fyrirtæki fjárfesta í gríð og erg úti í heimi og varla líður dagur án þess að fréttir berist af enn meiri útbreiðslu íslenskra athafnamanna. Valgeir Þorvaldsson, fram- kvæmdastjóri Vesturfarasetursins á Hofsósi, lætur ekki sitt eftir liggja í þessum málum því nú er hafinn undirbúningur á nýstárlegri útrás sem byggist á hugviti og þekkingu á sviði menningartengdrar ferðaþjón- ustu. Í bígerð er að setja upp Vest- urfarasetur í norska bænum Stryn að fyrirmynd íslenska setursins á Hofsósi og til að kynna sér starf- semina kom til Íslands 50 manna sendinefnd frá Noregi. Valgeir segir forsvarsmenn bæj- arfélagsins í Stryn hafa frétt af ís- lensku starfseminni frá bróður hans, Sigurði Þorvaldssyni, sem býr í Noregi og svo hafi farið að þeir komu til að kanna aðstæður. Í fram- haldinu barst formlegt erindi frá Stryn þess efnis að Valgeir setti upp Vesturfarasetur þar í bæ. Verkfærið smíðað á Hofsósi En af hverju Stryn? „Stryn er ótrúlega mikill ferða- mannabær og þar fara í gegn um 800 þúsund ferðamenn árlega,“ út- skýrir Valgeir. „Það fór gríðarlegur fjöldi Norðmanna til Ameríku á sín- um tíma, eitthvað í kringum ein milljón og frá Stryn fóru um 3.000 manns. Bærinn hefur í raun allt til að bera fyrir þetta verkefni, nátt- úrufegurðin er mikil og fólkið gott. Þarna er líka margt fólk sem á skyldmenni í Ameríku og heldur tengsl þangað.“ Það er sama hugmyndafræðin sem liggur að baki í báðum löndum. Íslendingar og Norðmenn fóru meira og minna á sömu svæðin í Ameríku og Valgeir segir að í mörg- um tilfellum sé um afkomendur sama fólksins að ræða, bæði Íslend- inga og Norðmenn sem stofnuðu fjölskyldu vestra. Og mun Norðmönnum þá nýtast þessi hugmyndafræði vel? „Já, við styttum mjög leiðina fyrir þá því segja má að við höfum smíð- að verkfærið til að meðhöndla við- fangsefnið. Það er hægt að líkja þessu við að setja upp verksmiðju. Við gátum ekki keypt neinar vélar heldur þurftum að smíða þær sjálf,“ segir Valgeir. „Forsvarsmennirnir frá Stryn sáu hve mikil vinna hefur verið unn- in á Hofsósi síðastliðin tíu ár og þeim fannst auðvitað eftirsókn- arvert að losna við hana.“ Valgeir og hans starfsfólk hafa ákveðna þekkingu á þessum mark- aði og hafa stofnað til sambanda sem nýtast Norðmönnum vel. „Þetta er ákveðið vináttuverkefni milli þjóðanna og það er mjög gam- an að því. Það eru engar líkur á að við lendum í samkeppni því íslen- skættað fólk frá Ameríku kemur til Íslands og norskættaðir fara til Noregs,“ útskýrir Valgeir. Vinnuferlið á fullum krafti Nú þegar hefur verið farin vett- vangskönnunarferð til Stryn. Norð- menn eru komnir með afrakstur þeirrar ferðar í hendurnar og vinna nú að fjármögnun og skipulags- vinnu. Árni Páll Jóhannsson, leik- myndagerðarmaður, og Þröstur Skúli Valgeirsson, sonur Valgeirs, fóru með honum til Noregs í könn- unarleiðangurinn og þeir munu, ásamt öðrum, taka virkan þátt í þeirri miklu vinnu sem framundan er. Á næstu vikum verður undirrit- aður samningur á milli aðilanna sem að verkefninu standa og stefnt er að opnun Vesturfaraseturs vorið 2007. Búið er að ráðstafa gamla ráðhús- inu í Stryn undir verkefnið en það er staðsett í miðjum bænum með veglegu torgi fyrir framan. Hvernig verður vinnuferlið? „Ég mun hafa yfirumsjón með verkefninu en það er mikið af góðu fólki sem vinnur að þessu,“ segir Valgeir. „Það eru auðvitað ákveðin atriði sem Norðmenn þurfa að læra, t.d. varðandi fjármögnun og skipu- lag, svo að hinu nýja setri vegni vel í framtíðinni. Reynsla okkar hér ætti að verða þeim mikilvægt vega- nesti. Þó að uppbyggingin sé í grundvallaratriðum sú sama hefur hvor staður sín séreinkenni. Norð- menn hafa haldið ágætlega utan um söguna og við munum hafa aðgang að frábæru fólki í þeim efnum. Ég trúi því að hægt verði að setja upp bæði skemmtilega og fræðandi sýn- ingu.“ Hugmynd sem hentar víða Væri hægt að nýta þessa hug- myndafræði annars staðar í heim- inum? „Ég held að það sé alveg ný hug- mynd að selja þekkingu og hugvit í menningartengdri ferðamennsku úr landi og það er ekkert sem segir að ekki sé hægt að gera þetta í fleiri löndum. Fólk frá tuttugu Evr- ópulöndum fór til Ameríku í ein- hverjum mæli um aldamótin 1900 og á flestum þeim stöðum hvíla sömu meginrökin að baki.“ Það er ljóst að afkomendur fólks, sem fór til Vesturheims, hefur áhuga á að komast til upprunalands síns og Valgeir telur nauðsynlegt að veita því fólki þjónustu. Hann nefnir sem dæmi Pólland, en þaðan fór gríðarlegur fjöldi, og telur að það væri spennandi að fara þangað með hugmyndafræðina. „Írar hafa náð langt í þessum geira, hafa ákveðna sérstöðu og eru búnir að leggja mikla rækt við menningartengda ferðamennsku. Fjöldi Bandaríkjamanna fer þangað að leita uppruna síns,“ útskýrir Val- geir. Hann segir mikla áskorun að lokka þann stóra hóp ferðamanna sem til Stryn kemur inn í Vest- urfarahúsið því þeir sem þar fara um eru ekki einungis fólk af norsk- um ættum frá Ameríku heldur ferðamenn alls staðar að úr heim- inum. Nú í ágúst fer Valgeir til Noregs með bandarískri konu, sem mun vinna að fjáröflun fyrir norska Vest- urfarasetrið í Ameríku en lykilatriði segir hann vera að vinna með fólki sem þekkir vel inn á markaðinn. Áhugi almennra fjárfesta á þessum málum er ekki mikill og um er að ræða tiltölulega lítinn hóp fólks sem á mikla peninga. „Vesturfarasetrið á Hofsósi hefur náð ágætis árangri í öflun styrkja en auðvitað er þetta alltaf ákveðinn slagur,“ segir Valgeir. „Þetta er merkilegt að því leyti að við erum að vinna með heila heimsálfu og það er mjög dýrt að þjónusta svona stórt svæði.“ Gangandi gagnabanki Í sumar, líkt og síðustu fjögur sumur, er vestur-íslenski sagn- og ættfræðingurinn Nelson Gerrard staddur á Hofsósi en hann er sá maður sem hefur langmestu þekk- ingu á íslenskum ættum í Ameríku. „Hann er gangandi gagnabanki og man íslenskar ættir út og suður og hvernig þær tengjast inn til Am- eríku,“ lýsir Valgeir. „Við gefum fólki kost á því að hitta hann hér hjá okkur í sumar og fyrir þá sem leita að skyldmennum í Ameríku er hann algjör fjársjóður.“ Gerrard hannaði og safnaði meðal annars efni í sýninguna Þögul leift- ur, sem opnuð var á Vesturfarasetr- inu í fyrravor, þar sem sýndar eru 400 ljósmyndir af Íslendingum sem teknar voru í Ameríku fyrir alda- mótin 1900. Árlega heimsækja 10–12 þúsund manns setrið á Hofsósi og þar af kemur mikið af fólki að vestan. Ís- lendingar hafa einnig mikinn áhuga og Valgeir telur það vera í tísku að leita skyldmenna sinna í Ameríku og á Íslandi. Var eins mikill áhugi fyrir tíu ár- um? „Þegar við byrjuðum var sagt að þessi áhugi væri ekki lengur til staðar. Það væru bara nokkrir gamlir karlar og kerlingar í Am- eríku sem nenntu að hugsa um þessi mál, en sú var ekki raunin,“ segir Valgeir. „Nú þurfum við svo að rækta áhuga næstu kynslóða.“ Stórt sögulegt svæði Vesturfarasetrið á Hofsósi vinnur eftir ákveðnu svæðisskipulagi enda Norður-Ameríka ansi stór. Árið 2000 var opnuð sýning um Utah, Norður-Dakóta var viðfangs- efni sýningar sem var opnuð 2002 og nú er verið að undirbúa sýningu frá Bresku-Kólumbíu. „Áður en yfir lýkur vonast ég til að búið verði að fara um alla Norð- ur-Ameríku með skipulögðum hætti og tína saman heimildir um Íslend- inga sem fóru vestur,“ segir Val- geir. „Þetta er örugglega 100 ára vinna – ef vel gengur.“ Saga Vesturfara í Ameríku er mjög mikil og þangað ferðaðist fólk frá ýmsum löndum í von um betra líf. Vesturfarasetrið er mikilvæg menningaruppbót fyrir Ísland og verður það án efa líka fyrir Norð- menn. Í framtíðinni er svo aldrei að vita nema menningarfrömuðurinn Valgeir Þorvaldsson muni kynna fleiri þjóðum þessa skemmtilegu menningartengdu hugmyndafræði. Útrás | Íslenskt hugvit og þekking til Noregs „Við höfum smíðað verkfærið til að meðhöndla viðfangsefnið“ Ráðhúsið í Stryn, þar sem Vesturfarasetur þeirra Norðmanna verður opnað næsta sumar. Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.