Morgunblaðið - 24.07.2005, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
H
ljómstveitin The Mag-
ic Numbers er skipuð
tvennum systkinum,
þeim Romeo og Mich-
ele Stodart og Sean
og Angela Gannon. Sveitin gaf fyrr í
sumar út sína fyrstu breiðskífu, sam-
nefnda hljómsveitinni, og hefur hún
fengið lofsamlega dóma víða um
heim. Platan var á dögunum tilnefnd
ásamt 11 öðrum til Mercury-
verðlaunanna, en þau eru af mörgum
talin virtustu verðlaun sem veitt eru
í popptónlist í Bretlandi.
The Magic Numbers þeysast nú
heimshorna á milli og halda tónleika,
en það þykir þeim að eigin sögn afar
gaman.
Þegar blaðamaður náði tali af
Michele Stodart var hún þreytuleg
og rám í röddinni. Stíf tónleika-
ferðalög undanfarna mánuði eru ef
til vill farin að segja til sín.
„Fyrir utan smáþreytu hef ég það
annars mjög fínt,“ fullvissar hún
blaðamann um.
Nú hafið þið fengið mjög góða
dóma fyrir ykkar fyrstu plötu, er það
ekki bara tóm hamingja?
„Jú, og það hefur verið alveg frá-
bært að fylgja henni eftir. Fólk er
farið að þekkja lögin á tónleikum
með okkur og er tilbúið að syngja
með sem er mjög gaman.“
Skipta viðtökurnar miklu máli,
semjið þið fyrir ykkur sjálf eða með
áheyrendur í huga?
„Maður þarf auðvitað að vera 100
prósent ánægður með þá tónlist sem
maður er að gera til að hafa ánægju
af því að deila henni með öðrum. Já-
kvæð gagnrýni og umfjöllun hefur
auðvitað hjálpað okkur mjög mikið,
fleiri mæta á tónleika með okkur og
hlusta á tónlistina okkar og það er
það sem við stefnum að auðvitað.“
Urðu óvart hljómsveit
The Magic Numbers hafa spilað
saman í nær tvö ár. Fjórmenning-
arnir hittust fyrst þegar Stodart-
systkinin fluttust til London en áður
höfðu þau alist upp í Trinidad og
einnig búið í New York í fimm ár.
„Við vorum öll skólasystkini og við
Angela urðum mjög góðar vinkonur.
Það var þó löngu áður en okkur datt
nokkurn tíma í hug að verða hljóm-
sveit,“ segir Michelle um fyrstu við-
kynningu þeirra af Gannon-
systkinunum. „Hljómsveitin varð
svo eiginlega bara til óvart. Við fór-
um að æfa saman og það gekk svona
rosalega vel. Eftir sex mánuði í stúd-
íói var þetta farið að hljóma vel hjá
okkur.“
En skyldi það ekki hafa nein áhrif
á samvinnu hljómsveitarinnar að
hún er mönnum tvennum systk-
inum?
„Þetta er allt mjög jarðbundið hjá
okkur og við höldum hvert öðru á
rétta sporinu,“ segir Michelle. Innst
inni viljum við öll það sama, verða
besta hljómsveit sem við mögulega
getum og gera tónlist sem við erum
fullkomlega ánægð með. Verandi öll
með sama markmið gengur þetta
ansi vel hjá okkur. Við erum auðvitað
alls ekki alltaf sammála og það getur
verið kostur að vera systkini, við
segjum alltaf það sem okkur býr í
brjósti svo andrúmsloftið hreinsast
fljótt.“
The Magic Numbers gáfu út smá-
skífuna Hymn For Her síðasta haust
í mjög takmörkuðu upplagi, einungis
500 eintökum. Þau rokseldust þó og
platan vakti talsverða athygli og spil-
un. Hvers vegna ætli sveitin hafi
beðið í heilt ár eftir að gefa út breið-
skífu eftir að hafa kvatt sér hljóðs
svo eftir var tekið?
„Við vildum senda frá okkur plötu
sem við yrðum fullkomlega ánægð
með,“ svarar Michelle af bragði. „Við
vildum því taka okkar tíma og gefa
hverju lagi fyrir sig allan þann tíma
sem það þurfti til að verða sem best í
flutningi. Fólk sem hafði áhuga á
tónlistinni okkar endaði á að þurfa
bíða nokkuð lengi eftir plötunni og á
móti vildum við reyna að gera hana
sem besta, bæði fyrir okkur og þau.“
Michelle segir þau fjórmenninga
mikla fullkomnunarsinna í tónlist-
arsköpun sinni.
„Ef það er eitthvert minnsta atriði
sem við erum ekki fullkomlega
ánægð með í lögunum okkar gerum
við þau aftur og aftur þar til við erum
ánægð. Annars myndi það trufla
okkur það sem eftir væri að hafa gef-
ið út eitthvað sem okkur finnst vera
hálfklárað,“ segir hún.
Endalaust tónleikaferðalag
Eins og áður sagði hefur sveitin
verið iðin við kolann þegar kemur að
spilamennsku undanfarin misseri.
„Við erum eiginlega búin að vera á
tónleikaferðalagi síðan við fjögur
urðum hljómsveitin The Magic
Numbers,“ segir Michelle og hlær.
„Það er samt gaman og mér finnst
mjög gaman að koma fram og spila.“
Auk spilagleðinnar má eflaust líka
rekja annríki sveitarinnar til hversu
bóngóðir liðsmenn eru við fyr-
irspurnum um að koma fram.
„Ég held að hver sem er geti feng-
ið okkur til að spila hvar sem er,“
fullyrðir Michelle. „Það þyrfti að
vera við mjög sérstakar aðstæður
sem við myndum hafna boði um að
koma fram.“
Blaðamaður stenst ekki mátið við
þessa yfirlýsingu og spyr hvort það
megi ekki bjóða þeim að koma til Ís-
lands og spila við tækifæri.
„Já, það er aldrei að vita nema við
gerum það einhvern tíma,“ segir
Michelle.
Tónlistin í blóðinu
Michelle segir þau systkinin hafa
alist upp við tónlist frá blautu barns-
beini.
„Mamma okkar syngur allan dag-
inn og hefur gert það frá því við
fæddumst. Hún hefur verið dugleg
að halda tónlist að okkur og það er
tvímælalaust henni að þakka hvað
við störfum við í dag,“ segir hún.
„Hún kom kannski óafvitandi
rytmanum inn í blóðið í okkur og það
hefur ekki enn tekist að losa okkur
við hann.“
The Magic Numbers var valin ein
af efnilegustu hljómsveitum ársins í
byrjun árs hjá BBC. Finnið þið fyrir
einhverri pressu um að ganga vel við
tilnefningar að þessi tagi?
„Nei, mér hefur aldrei fundist
neinn eða neitt utanaðkomandi vera
með neina pressu á að okkur gangi
vel. Ég held að pressan komi fyrst og
fremst frá okkur sjálfum,“ segir
Michelle. „Við reynum að vera sú
hljómsveit sem við erum stolt og
ánægð að vera í. Öll umfjöllun um
okkur hefur þó verið jákvæð meira
eða minna og það ber okkur að vera
þakklát fyrir, það er alls ekki sjálf-
gefið. Það er ótrúlega gaman þegar
vel gengur þó það sé það síðasta sem
við erum að hugsa um þegar við
semjum tónlistina okkar.“
Tónlist | Hljómsveitin The Magic Numbers
„Spilum fyrir
hvern sem er,
hvar sem er“
Michelle og Romeo Stodart og Sean og Angela Gannon: The Magic Numbers.
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
Sýnd kl. 8 B.i 16 ára
kl. 10.40
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i 16 ÁRA
H.L. MBL -H.L. MBL- . .
Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.
Sýnd kl 6, 8 og 10 B.i 16 ÁRA
Sýnd kl. 8 B.i 14 ÁRA Sýnd kl. 2 og 4
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
K&F XFM
H.L. - MBL.
Frá framleiðanda Texas Chainsaw Massacre
Kemur magnaðasta hrollvekja ársins!
Fór beint á toppinn í USA
Byggt á sannri sögu
I N N R Á S I N E R H A F I N !
T O M C R U I S E
MYND EFTIR Steven spielberg
Sýnd kl. 5.45
-Blaðið-S.V, MBL
-KVIKMYNDIR.IS
-Ó.Ö.H, DV
-Ó.H.T, RÁS 2
-Þ.Þ. FBL
-Blaðið
T.V. kvikmyndir.is
BLÓÐUG, BRÚTAL OG BRILLIANT!
Sýnd kl. 5.45 B.i 14 ára
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20
Þorir þú í bíó?
Frá framleiðanda
Texas Chainsaw Massacre
Kemur magnaðasta hrollvekja ársins!
Fór beint á toppinn í USA
Sýnd kl. 4 og 10.20 B.i 16 ára
Byggt á sannri sögu
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 13.30
Sími 564 0000
i l l. .
kl. 3, 5.30 og 8
Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.30
SKEMMTILEGASTA
STÓRMYND SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í
BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það
fangarnir gegn
vörðunum!
SKEMMTILEGASTA STÓRMYND SUMARSINS.
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
Nú eru það fangarnir
gegn vörðunum!
. .
Þorir þú í bíó?
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR.
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Sýnd kl. 2 og 4
SÍÐUS
TU SÝ
NING
AR
Sýnd kl. 2 og 10.20 B.i 10 ÁRA
TILBOÐ400 KR.