Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.07.2005, Qupperneq 48
48 SUNNUDAGUR 24. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ ER nauðsynlegur þáttur í lífi hvers ungs manns að hafa á ein- hverju tímabili verið reiður. Af þess- ari plötu að dæma get ég mér þess til að hljómsveitin Pan sé á því tíma- skeiði, þegar hugleiðingar um rétt- læti, ranglæti og önnur siðferðisleg álitamál, leita hvað sterkast á hug- ann – með til- heyrandi sand- roki og ást á þungu rokki. Upphafslag Virg- ins „Look, listen, kneel, pray“ er nokkuð dæmigert fyrir þessa plötu; mörgum stefnum er att saman og áhrifa margra hljómsveita má greina á þeim þrem- ur mínútum sem lagið lifir. Allur hljóðfæraleikur á plötunni er prýði- legur og Halldór Arnar Guðnason söngvari sýnir að þar fer mjög fram- bærilegur rokksöngvari á ferð. Text- arnir eru flestir í þunglyndari kant- inum og yfirleitt á nokkuð góðri ensku, þó þeir höfði ekki beinlínis til undirritaðs. Gítarleikur er yfirleitt yfirveg- aður og traustvekjandi en það væri kannski ofsögum sagt að kalla hann frumlegan. Bassaleik og hljóm- borðsleik er hvergi ábótavant en bassahljómurinn er í sumum lögum helst til máttlaus. Það skemmtilegasta við þessa plötu er kannski hversu augljós hún er í tilvitnunum sínum til áhrifavalda og hversu hispurlaus hún er í stefnu- breytingum, bæði innan laganna og á milli þeirra. Það er ljóst að mikill metnaður hefur farið í gerð hennar og raddsetningarnar og marglaga gítarleikurinn benda til þess að hún hafi ekki verið gerð í snarhasti. Hins vegar hefði í sumum lögum mátt endurskoða einstaka trommuleik og söngvers. Þessi plata fellur sjálfsagt hörðum rokkaðdáendum í geð en með tíð, tíma og annarri plötu, ætti Pan að geta höfðað til enn stærri hóps. Óspjallað rokk TÓNLIST Geisladiskur Pan eru Halldór Örn Guðnason: söngur og gítar, Gunnar Þór Pálsson: hljómborð, raddir og gítar, Björgvin Benediktsson: á gítar, Guðbjartur Karl Reynisson: bassa og Garðar Borgþórsson: trommur og raddir. Lög eftir Pan, textar eftir Halldór Örn Guðnason. Hljóðritað í Panlandi af Gunna Who og Pan. Pan gefur út. Pan – Virgins  Höskuldur Ólafsson SÖNGKONAN Emilíana Torrini hélt tónleika fyrir fullu húsi á skemmtistaðnum Nasa síðastliðið fimmtudagskvöld. Tónleikarnir voru þeir fyrstu af fimm sem söng- konan heldur hér á landi á viku tímabili. Nú um helgina lá leið hennar út á land, til Bolungavíkur, á Borg- arfjörð eystra og á Akureyri auk þess sem hún heldur tónleika í Frí- kirkjunni 26. júlí. Tónleikarnir á Nasa voru þeir fyrstu sem Emilíana hefur haldið hér á landi í langan tíma og áhorf- endur því eftirvæntingfullir. Það var ekki annað að sjá en að gestir kynnu vel að meta það sem fyrir þá var leikið og sungið og fóru hinir sáttustu út í sumarnóttina. Leikurinn hefst á Nasa Emilíana Torrini söng af mikilli innlifun. Morgunblaðið/Þorkell Tónlist | Tónleikar Emilíönu Torrini Fréttir á SMS Létt og skemmtileg rómantísk gamanmynd með Óskarsverðlaunaleikkonunni, Kim Basinger og hinum kynþokkafulla John Corbett úr “Sex and the City þáttunum.” tt til r tí r r l l i i, i i r i f ll r tt r t it tt . Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“ Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd með ensku tali. THE PERFECT MAN kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30 - 8.30 - 10.30 MADAGASCAR m/ísl.tali. kl. 12 - 2.30 - 4.30 - 6.30 ELVIS HAS LEFT THE BUILDING kl. 4.30 - 8.30 - 10.30 WHO´S YOUR DADDY kl. 6.30 - 8.30 - 10.30 B.i. 14 ára. SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 2.30 með ensku tali B.i. 16 ára. B.i. 16 ára. B.i.14 B.i. 12 B.i. 12 -KVIKMYNDIR.IS  -KVIKMYNDIR.IS  KRINGLAN DARK WATER kl. 5.50 - 8 og 10.15 b.i. 12 Madagascar enskt tal kl. 6 - 8 og 10 Elvis has left the building kl. 8 og 10 Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12 Voksne Mennesker kl. 5.45 -S.V. Mbl.  -Steinunn/ Blaðið  Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Nýjasti teiknimyndasmellurinn frá höfundum og framleiðendum „Shrek“ og „Sharktale“ Ekki missa af einni skemmtilegustu mynd sumarsins.Sýnd bæði með íslensku og ensku tali.  -S.V. Mbl.  -Steinunn/ Blaðið  MEÐ ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANUM JENNIFER CONNELLY MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES) MAGNAÐUR OG SÁLFRÆÐILEGUR DRAUGATRYLLIR FRÁ MEISTARALEIKSTJÓRANUM WALTER SALLES (MOTORCYCLE DIARIES) SUMAR RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA SUMA RÁÐGÁTUR BORGAR SIG EKKI AÐ UPPLÝSA HÁDEGISBÍÓ 400 KR. MIÐAVERÐ Á A     -KVIKMYNDIR.IS 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.