Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 1

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 1
STOFNAÐ 1913 231. TBL. 93. ÁRG. SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Ástarsamband bíls og manns Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Seann William Scott | Menning 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350 Bagdad. AP, AFP. | Samningamenn súnní- araba eru harðir í afstöðu sinni til draga að nýrri stjórnarskrá Íraks. Vilja þeir ekki að hugtakið sambandsstjórnarstefna komi nokkurs staðar fram í stjórnarskránni, næsta þjóðkjörna þingi verði gefinn kostur á að taka málið upp aftur. Sjítar og Kúrdar hafa samþykkt að fresta því að koma á sambandsstjórnarstefnu fram yfir kosningar um miðjan desember, en krefjast þess þó að á hana verði minnst í stjórnarskrárdrögunum. Tillaga súnnítanna kveður þó á um að „hvergi verði minnst á umdæmi eða um- dæmisstjórnir“. Óttast þeir að sam- bandsstjórnarstefna í Írak leiði ekki aðeins til þess að komið verði á fót miklu sjíta-ríki í suðurhluta landsins, heldur ýti það undir óskir Kúrda um að fá að stækka umdæmi sitt í norðurhlutanum, þar sem olíufram- leiðsla fer að mestu fram. Óttast súnnítar að þetta yrði til þess að þeir fengju ekki að njóta olíuauðsins í norðri eða suðri. 1.000 föngum sleppt Talsmenn bandaríska hersins tilkynntu í gær að 1.000 föngum, að langmestu leyti súnnítum, hefði undanfarna þrjá daga verið sleppt úr Abu Ghraib-fangelsinu í Írak. Höfðu flestir þeirra verið marga mánuði í fangelsinu án þess að þeim hefði verið birt ákæra. Leiða margir að því líkur að þetta sé gert til að blíðka súnnítana eftir að sjítar og Kúrdar slitu viðræðum við þá og sögðust ætla að leggja stjórnarskrárdrögin fyrir þingið í dag þrátt fyrir mótmæli súnníta. Ákvörðun sjíta og Kúrda er mikið reið- arslag fyrir bandarísk stjórnvöld, sem hafa lýst því yfir að þátttaka súnníta í stjórn- arskrárferlinu sé gríðarlega mikilvæg. Sjá þau það sem leið til að tæla þá frá því að halda uppreisn sinni til streitu. Súnnítar halda fast við sitt KNAPAR sjást hér sitja asna sína á árlegum asnakappreiðum í eyðimörk í Turpan, sem er í norðvesturhluta Kína. Ár hvert gleðjast Turp- anar og halda Vínberjahátíðina með glæsi- brag, en asnakappreiðarnar hafa lengi verið órjúfanlegur hluti af henni. Reuters Geysast áfram á fótfráum ösnum HARALDUR Briem, smitsjúk- dómalæknir hjá Landlæknisemb- ættinu, telur Íslendinga ekki þurfa að hafa sérstakar áhyggjur vegna fuglaflensunnar sem geisað hefur í Asíu undanfarin misseri, og hefur nú borist vestur til Evrópuhluta Rússlands. Í Asíu hafa 62 menn látist til þessa úr fuglaflensunni, sem fyrst kom upp í Suður-Kóreu síðla árs 2003. Reiknað er með að fuglaflensan berist með farfuglum vestur að Svartahafi strax í næsta mánuði, en sérfræðingar á vegum Evrópu- sambandsins (ESB) telja engu að síður óhætt að hafa kjúklinga og annan fiðurfénað utandyra í lönd- um álfunnar. Debby Reynolds, yfirmaður dýralækningamála hjá ESB, segir það skoðun sérfræðinganna, sem hittust á föstudag, að ekki væri ástæða til þess að setja almennt bann við því að halda fiðurfénað ut- andyra. „Hættan á því að fugla- flensan breiðist út til Evrópu með farfuglum frá Rússlandi, er fremur lítil,“ sagði hún eftir fundinn. Umfang flensunnar sem hér um ræðir, og kom fyrst upp í Suður- Kóreu 2003, er mun meira en áður þekkist; bæði hafa fleiri dýr smit- ast en áður og á stærra svæði. Til þessa hafa alls um 150 milljónir fugla drepist úr veikinni eða verið slátrað í því skyni að hefta út- breiðslu hennar, skv. upplýsingum á heimasíðu WHO, Alþjóða heil- brigðismálastofnunarinnar. WHO telur talsverða hættu á heimsfaraldri, en hins vegar sé ómögulegt að spá um það hvenær slíkur faraldur geti hafist og hversu alvarlegur hann yrði. Þar segir að gripið hafi verið til allra mögulegra aðgerða gegn slíkum faraldri, nema að því leyti að ekki sé til mótefni gegn því ef að við stökkbreytingu yrði til nýtt af- brigði veirunnar sem smitast myndi manna á milli. „Menn fylgjast mjög vel með gangi mála og um leið og talið er að einhver hættumerki séu á ferðinni verður gripið til ráðstafana eins og hægt er. Við stöndum mun betur að vígi nú en áður vegna þess hve vel við getum fylgst með þróuninni og ég tel enga ástæðu fyrir okkur að hafa sérstakar áhyggjur af þessu,“ segir Haraldur Briem. Reiknað með að fuglaflensan berist vestur að Svartahafi með farfuglum í næsta mánuði Ekki ástæða til að hafa áhyggjur hér Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is  Dregur úr ótta við | 16 Reuters Los Angeles. AP. | Hugsanlegt er, að bráðlega verði skylt í Kaliforníu að láta sérstaka viðvörun fylgja frönskum kartöflum og kartöfluflögum. Er þess krafist í máli, sem Bill Lockyer, dómsmálaráð- herra ríkisins, hefur höfðað gegn níu skyndibitakeðjum og framleiðendum slíkra mat- væla. Lockyer fer fram á, að McDonald’s, Burger King, Wendy’s, Frito Lay og fleiri fyrirtæki vari viðskiptavini sína við því, að í frönskum kartöflum og kartöfluflögum geti verið akrýlamíð, sem sumir telja, að sé krabba- meinsvaldandi. Akrýlamíð myndast í mat- vælum við mikinn hita, ekki síst djúpsteikingu, og hafa sumar rannsóknir sýnt, að efnið getur valdið krabba- meini, en í öðrum hefur ekki tekist að sýna fram á þau tengsl. Er þetta nú til sér- stakrar skoðunar hjá banda- ríska matvælaeftirlitinu. Vill Lockyer að almenningi verði gerð grein fyrir hættunni. Varað við frönskum kartöflum BRETAR ætla að taka höndum saman við önnur ríki gegn Bandaríkjastjórn, sem virð- ist vilja kasta burt flestum þeim hornstein- um, sem starfsemi Sameinuðu þjóðanna hefur hingað til byggst á, meðal annars baráttunni gegn fátækt. Kom þetta fram í breska dagblaðinu The Guardian í gær en það hafði eftir talsmanni breska utanríkisráðu- neytisins, að breska stjórnin og Evrópusam- bandið, sem Bretar stýra um þessar mundir, styddu þær „metnaðarfullu umbótatillög- ur“, sem Kofi Annan, framkvæmdastjóri SÞ, mun leggja fram í allsherjarþinginu í næsta mánuði. Sagði hann, að alls ekki mætti hvika frá fyrri samþykktum, til dæmis G8-fundarins í Gleneagles í júlí og Þúsaldarfundar SÞ fyrir rúmum fimm árum. John Bolton, hinn nýi sendiherra Banda- ríkjanna hjá SÞ, hefur lagt fram 750 breyt- ingartillögur við umbótatillögur Annans og verða þær ræddar á allsherjarþinginu 14.– 16. september. Blair gegn Bush hjá SÞ John Bolton ♦♦♦ Tímaritið og Atvinna í dag Tímaritið | Þeir rufu þögnina  Ægilega fín, hún Solveig mín  Töffari kvikmyndasögunnar  Bröndótt stundarbrjálæði  Kaktusinn frá Kalah- arí  Líkamsrækt og hollusta Atvinna | Smekkfullt blað af auglýsingum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.