Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 2
2 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HALDA FAST VIÐ SITT
Samningamenn súnní-araba eru
harðir í afstöðu sinni til draga að
nýrri stjórnarskrá Íraks. Vilja þeir
ekki að hugtakið sambandsstjórn-
arstefna komi nokkurs staðar fram í
stjórnarskránni, næsta þjóðkjörna
þingi verði gefinn kostur á að taka
málið upp aftur.
Sjítar og Kúrdar hafa samþykkt
að fresta því að koma á sambands-
stjórnarstefnu fram yfir kosningar
um miðjan desember, en krefjast
þess þó að á hana verði minnst í
stjórnarskrárdrögunum.
Ekki ástæða til að óttast
Haraldur Briem, smitsjúkdóma-
læknir hjá Landlæknisembættinu,
segir að Íslendingar þurfi ekki að
hafa sérstakar áhyggjur vegna
fuglaflensunnar sem geisað hefur í
Asíu undanfarin misseri og hefur nú
borist vestur til Evrópuhluta Rúss-
lands. Hann segir að íslensk heil-
brigðisyfirvöld fylgist vel með þróun
mála og um leið og hættumerki
verði á ferðinni verði gripið til ráð-
stafana.
Hættulegur innflutningur
Brennisteinssýra er mjög hættu-
leg í flutningi, að sögn Jakobs Krist-
inssonar, dósents í eiturefnafræði
við Háskóla Íslands. Lithái var tek-
inn á Keflavíkurflugvelli á mánudag
með tvær flöskur af brennisteins-
sýru. Jakob segir efnið ætandi; það
éti sig t.d. í gegnum málma og ál en
við það ferli myndast eiturgufur.
Litháinn var með flöskurnar í hand-
farangri og ljóst að stórhættulegt
var að flytja efnið til landsins með
þeim hætti, að sögn Jóhanns R.
Benediktssonar, sýslumanns á
Keflavíkurflugvelli.
Brennisteinssýra er mikið notuð í
iðnaði hér á landi og er efnið t.d. í
öllum bílarafgeymum, en sérstakt
leyfi þarf til að flytja efnið til lands-
ins. Þá er það meginuppistaðan í
svonefndum stíflueyði sem fæst m.a.
í flestum byggingavöruverslunum.
Alvarlega slösuð
Kona liggur alvarlega slösuð á
gjörgæsludeild Landspítala – há-
skólasjúkrahúss, eftir að eldur kom
upp í húsnæði hennar á laugardags-
morgun. Slökkviliðsmenn björguðu
henni úr húsinu eftir að hafa fundið
hana meðvitundarlausa á gólfinu.
Samkvæmt upplýsingum frá LSH
hlaut konan brunasár auk reykeitr-
unar. Sjö aðrir íbúar hússins kom-
ust af sjálfsdáðum úr húsinu.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Minningar 42/46
Ummæli vikunnar12 Hugvekja 42
Veiði 23 Myndasögur 48
Sjónspegill 28/29 Dagbók 48/52
Hugsað upphátt 29 Víkverji 48
Menning 30/31, 52/61 Staður og stund 52
Forystugrein 32 Leikhús 52
Reykjavíkurbréf 32 Bíó 58/61
Umræðan 34/39 Sjónvarp 62
Bréf 34/37 Staksteinar 63
Auðlesið efni 41 Veður 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HINN heimsþekkti bandaríski
hljóðfærasmiður Stewart Spector er
staddur hér á landi. Hann kom fær-
andi hendi, því hann gaf Pálma
Gunnarssyni tónlistarmanni nýjan
og glæsilegan rafmagnsbassa. Pálmi
þakkaði fyrir sig með því að bjóða
Spector í laxveiði en þeir eiga það
sameiginlegt að vera miklir áhuga-
menn um fluguveiði. Pálmi hefur átt
Spector-bassa í um 20 ár og notað
hann mikið í gegnum tíðina, ekki síst
í hljóðverum. Gamli bassinn er hins
vegar farinn að láta á sjá og Pálmi
var því farinn að huga að því að fá
sér nýjan og hafði rætt það við
Andrés Helgason í Tónastöðinni.
Blaðamaður Morgunblaðsins hitti
þá Pálma, Andrés og Spector í veiði-
húsinu við Reykjadalsá í S-Þing-
eyjarsýslu og fékk þar að heyra af
þessu máli. Andrés, sem einnig er
mikill áhugamaður um fluguveiði,
hafði milligöngu um komu þessa
bandaríska gests til landsins en
hann hefur verslað með hljóðfæri frá
Spector og kannaðist við hann. „Ég
var að spjalla við karlinn á hljóð-
færasýningu erlendis og þar kom
fram þessi mikli áhugi hans á flugu-
veiði og að hann hefði átt sér þann
draum lengi að komast í veiði á Ís-
landi. Ég sagði honum frá því að
Pálmi, sem ætti 20 ára gamlan
Spector-bassa, væri farinn að huga
að því að fá sér nýjan og jafnframt
að hann væri mikil veiðiáhugamað-
ur. Einnig benti ég honum á að
skoða vefsíðu Pálma, þar sem hann
fjallar mikið um veiði, þannig að það
má segja að fluguveiðin hafi sam-
einað þá félaga,“ sagði Andrés.
Spector átti varla orð til þess að
lýsa þeirri upplifun að vera nú loks-
ins kominn í veiði á Íslandi en hann
hefur stundað fluguveiði víða um
heim. Pálmi var hins vegar í skýj-
unum yfir nýja bassanum og sagðist
aldrei hafa séð jafn fallegt hljóðfæri.
„Þessi gripur á eftir að fylgja mér
um ókomin ár. Nú getur sá gamli
fengið smá hjúkrun en hann á eftir
að fylgja mér áfram.“ Pálmi sagðist
margoft hafa reynt að skipta um
bassa í gegnum tíðina en það hafi
ekki virkað og hann alltaf farið á
þann gamla rauða. „Hann hefur
reynst mér hreint ótrúlega vel og
þau eru ófá lögin sem hafa verið spil-
uð á hann.“
Spector kom til vikudvalar á Ís-
landi sl. fimmtudag og ætlar hann að
nota tímann til þess að veiða með
Pálma í Reykjadalsá og víðar. „Ég
vona að við getum veitt upp á hvern
einasta dag,“ sagði Spector og hann
sagðist jafnframt hlakka til að heyra
Pálma spila á nýja bassann. Honum
fannst ekki síður merkilegt að heyra
að gamli bassinn skyldi hafa verið
þetta lengi í notkun. „Það var kom-
inn tími á að Pálmi fengi nýjan
bassa. Þessi nýi er mjög frábrugðinn
þeim gamla en hann á eftir að njóta
þess að spila á hann, jafnvel næstu
20 árin.“ Bassinn er af gerðinni
Spector NS 2A, smíðaður úr hlyni og
hannaður af Ned Steinberger, vini
Spectors, en hefur þróast í áranna
rás.
Smíðaði fyrsta bassann
í svefnherberginu heima
Stewart Spector er enginn ný-
græðingur í hljóðfæraframleiðslu.
Hann smíðaði sinn fyrsta bassa í
svefnherberginu heima hjá sér í
New York árið 1974 og stofnaði sitt
eigið fyrirtæki tveimur árum síðar
og byrjaði smátt. Hann rekur nú
hljóðfæraverkstæði rétt við bæinn
Woodstock um 100 mílur norður af
New York og einnig verkstæði í
Tékklandi, Kóreu og Kína og smíðar
einnig gítara. Spector leikur sjálfur
á hljóðfæri, gítar, píanó og bassa og
spilar í hljómsveit með nokkrum vin-
um sínum.
„Ég er ekki góður tónlistarmaður
en finnst það mikil forréttindi að
geta lifað í tónlistarheimum á þann
hátt sem ég hef gert undanfarna
áratugi. Eitt það besta við tónlistar-
iðnaðinn er að hann er alþjóðlegur,
ég hef því átt þess kost að heim-
sækja fjölmörg lönd, hitta yndislegt
fólk og eignast fjölmarga vini. Það er
heldur ekkert eins ánægjulegt og að
vita af ánægðum viðskiptavinum,“
segir Spector.
Keypti gamla bassann í Rín
Pálmi keypti gamla bassann í
versluninni Rín í Reykjavík fyrir um
20 árum. „Það kom sending til lands-
ins, annar vegar Spector-bassar frá
Bandaríkjunum og hins vegar frá
Kóreu, sem voru ódýrari. Ég prófaði
þá alla en féll fyrir þessum frá Kór-
eu, því hann passaði mér alveg. Ég
fékk þessa sömu tilfinningu þegar ég
prófaði nýja bassann,“ sagði Pálmi
Gunnarsson.
Stewart Spector færði Pálma Gunnarssyni nýjan bassa að gjöf
Fluguveiðin sameinaði þá
félaga á bökkum Reykjadalsár
Eftir Kristján Kristjánsson
krkr@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Pálmi með nýja bassann sinn og Spector með þann gamla rauða í veiðihúsinu við Reykjadalsá.
JÓN Loftsson, skógræktarstjóri, segir að trjágróður
hafi komið mjög vel út í sumar. „Það er gaman að vera
skógræktarstjóri núna,“ segir Jón og spurður um hvort
sumarið sé betra en undanfarin ár segir hann svo vera.
„Fyrir norðan og austan hafa síðustu fjögur ár verið
mikil maðkaár, sem er óvenjulangt tímabil,“ segir Jón.
„Skógurinn er hins vegar nánast hreinn núna, eins og
við köllum það, og lítur afskaplega vel út. Vöxtur er
með mesta lagi.“
Aðspurður hvort kuldi í byrjun sumars hafi ekki haft
áhrif á trjágróður segir hann að þrátt fyrir að kuldi
hafi verið nokkur í byrjun sumars hafi hitastig aðeins
farið niður undir frostmark og tré þoli það.
„Í fyrra fengum við tíu stiga frost eftir að skógurinn
var sprunginn og það er hræðilegt,“ segir Jón. „Þá er
skógurinn í raun bara að ná sér það sem eftir lifir sum-
ars. Það gerðist ekki núna.“
Næsta sumar lofar góðu
Jón segir maðk hafa verið lítinn um allt land og að
skordýraplágur síðustu ára hafi ekki látið á sér kræla í
sumar. Hann segir vöxt nokkuð mismunandi bæði eftir
tegundum og landshlutum, til dæmis eftir því hvernig
væta hafi verið, en segir skóg fyrir austan til dæmis
sjaldan hafa verið fallegri.
„Lerki kemur mjög vel út hér á Fljótsdalshéraði,
enda er það ein af okkar aðaltegundum,“ segir Jón.
„Sitkagreni fyrir vestan hefur líka margt hátt í eins
metra árssprota og þá ganga hlutirnir hratt fyrir sig.
Það er almennt hægt að segja að það sé mjög góður
vöxtur í trjám um land allt.“
Vöxtur barrtrjáa tekur að nokkru leyti mið af ár-
ferði árið á undan og segir Jón að næsta sumar lofi
góðu.
„Brumið sem er að verða til þessa dagana segir
nokkuð um hvernig þetta verður næsta sumar,“ segir
Jón. „Þetta er endalaus ánægja og hefur ekki verið
svona jafngott í langan tíma ef litið er á landið í heild
sinni.“
Jón Loftsson segir góða trjásprettu um allt land
„Gaman að
vera skógrækt-
arstjóri núna“
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
BOLLI Thoroddsen, formaður
Heimdallar, segir meiri líkur en
minni á því að hann gefi kost á sér í
prófkjöri sjálfstæðismanna vegna
komandi borgarstjórnarkosninga.
Hann hafi starfað með borgarstjórn-
arflokknum og hafi áhuga á mál-
efnum borgarinnar.
Hann kveðst þó í samtali við
Morgunblaðið vilja bíða með end-
anlega yfirlýsingu fram yfir aðal-
fund Heimdallar sem haldinn verður
innan tíðar. Hann hyggist þar sækj-
ast eftir endurkjöri sem formaður
félagsins. Heillavænlegra sé að há
ekki stríð á tvennum vígstöðvum.
Líkur á framboði
Bolla Thoroddsen
LÖGREGLAN í Keflavík kærði fjóra
ökumenn fyrir hraðakstur á Skóla-
vegi í Keflavík í vikunni. Í götunni er
30 km hámarkshraði vegna grunn-
skóla sem þar eru staðsettir og hef-
ur lögreglan verið með strangt eft-
irlit þar nú í byrjun skólaársins. Sá
sem hraðast ók var tekinn á 70 km
hraða og á yfir höfði sér ökuleyfis-
sviptingu og 30 þúsund kr. sekt.
Lögreglan í Keflavík segist munu
fylgjast grannt með því að ökumenn
virði reglur um hámarkshraða í
kringum skóla og víðar í bænum.
Hraðakstur
við skóla