Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 4
4 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.urvalutsyn.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
93
40
08
/2
00
5
Krít og
Santorini
5.—19. sept. og 19. sept.—3. okt.
Örfá sæti laus í hinar vinsælu ferðir Friðriks á vit mínóskrar
menningar. Beint flug til Krítar og dvalið á Helios allan tímann,
utan 2ja nátta á Santorini og einnar nætur í Matala.
Ógleymanleg upplifun með Friðriki G. Friðrikssyni.
157.880*kr.
Verð frá:
á mann m.v. 2 í stúdíói á Helios í 2 vikur.
Innif.: Flug, gisting án morgunv. á Krít og með morgunv.
á Santorini. 11 kvöldverðir, sigling til og frá Santorini,
allur akstur, kynnisferðir og íslensk fararstjórn.
Tryggðu þér bestu
kjörin og bókaðu strax.
Friðrik G. Friðriksson.
„FÓLK hefur verið að upplifa æv-
intýri í allt sumar í Þverá og
Kjarrá,“ segir Jón Ólafsson, einn
leigutaka árinnar. Í vikunni var
slegið veiðimetið frá 1979, en þá
veiddust 3.558 laxar. Þverá –
Kjarrá er í dag aflahæsta á lands-
ins á einhverju besta lax-
veiðisumri í manna minnum. Nú
hafa veiðst hátt í 3.700 laxar á
báðum svæðum árinnar en veitt
er með 14 stöngum, sjö á hvoru
svæði.
Óhætt er að segja að gríðargóð
veiði hafi verið í Kjarrá síðustu
daga, og mok á köflum, og einnig
allgóð veiði í Þverá. Holl sem
lauk veiðum í Kjarrá á hádegi á
föstudag veiddi 95 laxa við erf-
iðar aðstæður. Frost var á næt-
urnar og norðan rok, mikið vatn
og skolað. Mikið er af laxi á öllum
svæðum árinnar en hvað gjöf-
ulustu svæðin eru ýmsir strengir
á Gilsbakkaeyrum. Í kuldanum
voru laxarnir einkum að taka
þungar túpur sem veiddar voru
djúpt og einnig glöptust margir
af Sunray Shadow. Hollið þar á
undan naut betra veðurs og
veiddi 144 laxa. Hafa einstakar
stangir verið að ná á fjórða tug
laxa á þremur dögum. Eingöngu
er veitt með flugu í Þverá –
Kjarrá.
„Enginn bjóst við veiði sem
þessari í sumar, þótt við hefðum
verið bjartsýnir,“ sagði Jón.
„Þetta er rannsóknarefni fyrir
einhverja fiskifræðinga.“ Veiðin
er nærri þrefalt meiri en í fyrra
en meðaltalsveiði síðustu 20 ára
er um 1.900 laxar. Jón bætti við
að enginn hefði haldbærar skýr-
ingar á reiðum höndum, þótt
hann gerði ráð fyrir að að ein-
hverju leyti mætti þakka mildum
vetrum að undanförnu. Síðustu
fjögur ár hefðu margir veiðimenn
haft orð á því að mikið væri af
seiðum í ánni, sérstaklega efri
hlutanum, Kjarrá, þar sem upp-
eldisstöðvarnar virðast einkum
vera. Kjarrá er sjálfbær í seiðabú-
skapnum, engum seiðum er sleppt
í ána. Jón segir það hafa verið
reynt um tíma en það hafi ekki
haft neitt að segja. Náttúran sér
vel um sjálfa sig
Mjög áþekk veiði hefur verið í
þessum tveim svæðum árinnar
síðustu áratugi, kannski hefur
munað að 100 löxum við lok sum-
ars, en að þessu sinni hafa veiðst
um 600 löxum meira í Kjarrá; á
föstudag höfðu veiðimenn haft
hendur á 2.139 löxum á svæðinu.
Ekki er ólíklegt að með sama
áframhaldi veiðist yfir 4.000 laxar
í Þverá – Kjarrá í sumar, en veitt
er í Kjarrá til 5. september og í
Þverá nokkuð lengur, eða til 15.
Veiðimetið slegið í Þverá – Kjarrá
Morgunblaðið/Einar Falur
Guðmundur Guðjónsson tekst á við vænan lax í Mið-Rauðabergi á efsta svæði Kjarrár fyrir helgi. Gríðargóð veiði
hefur verið í Þverá – Kjarrá í allt sumar og er gamla veiðimetið frá 1979 fallið, en þá veiddust 3.558 laxar. Nú
nálgast veiðin 3.700 laxa og enn á eftir að veiða í ánum í september.
Ævintýraleg
veiði á enda-
sprettinum
STANGVEIÐI
„ÞAÐ voru miklu fremur verðleikar
Stefáns Jóns [Hafstein] en gallar
hans sem stjórnmálamanns sem ollu
því að á skrifstofu
þáverandi utan-
ríkisráðherra
réðst að hann varð
ekki fyrir valinu
sem eftirmaður
Þórólfs [Árnason-
ar],“ skrifar Össur
Skarphéðinsson,
þingmaður og
fyrrverandi for-
maður Samfylkingarinnar, á heima-
síðu sína í gær, laugardag. „Fram-
sóknarflokkurinn vildi einfaldlega
ekki taka þá áhættu að í Ráðhúsinu
yxi enn á ný upp hugsanlegur hers-
höfðingi úr liði Samfylkingarinnar.
Þetta er nú sannleikurinn í því máli
og enginn veit það betur en fyrrver-
andi formaður Samfylkingarinnar.“
Össur fjallar í pistlinum um þá
ákvörðun Stefáns Jóns að lýsa yfir
framboði í fyrsta sæti á lista Samfylk-
ingarinnar í komandi borgarstjórnar-
kosningum. Hann átelur þar jafn-
framt Steinunni V. Óskarsdóttur
borgarstjóra fyrir að segja við Rík-
isútvarpið að framboðið komi sér ekki
á óvart því Stefán Jón sé lengi búinn
að ganga með borgarstjórann í mag-
anum. Össur segir m.a. að það sé of-
ureðlilegt að Stefán Jón vilji láta
reyna á styrk sinn með lýðræðisleg-
um hætti „og síst ástæða til að tala
niður til hans af þeim sökum,“ skrifar
Össur.
Össur Skarphéðinsson
Framsókn
vildi ekki
Stefán Jón
GUÐRÚN Ebba Ólafsdóttir, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Borgarráði og Menntaráði,
telur víst að samþykkt Borgarráðs frá því á
fimmtudaginn um að falla frá hækkunum á
leikskólagjöldum, nái jafnt til hækkana sem
þegar hafi tekið gildi og þeirra sem áttu að
bresta á í september næstkomandi.
Morgunblaðið greindi frá því í gær að vafi
léki á að samþykktin næði til hækkana sem
þegar hafa tekið gildi, enda segir í tillögu Al-
freðs Þorsteinssonar sem Borgarráð sam-
þykkti á fimmtudaginn, að „fallið verði frá
fyrirhuguðum breytingum á gjaldskránni,
sem koma eiga til framkvæmda 1. september
nk.“.
Taka þarf af öll tvímæli
„Ég tel að ekki sé spurning að menn voru að samþykkja
að falla frá bæði hækkunum sem hafa tekið gildi og hækk-
unum sem áttu að koma til framkvæmda í september,“
segir Guðrún Ebba. „Við lögðum fram bókun á fundinum
þar sem við fögnum því að þeir sjái að sér og taki undir til-
lögu okkar og það var enginn sem mótmælti því.“
Tillaga sjálfstæðismanna, sem Guðrún Ebba vísar í, er
síðan í apríl og fól hún í sér að fallið yrði frá hækkunum á
leikskólagjöldum sem R-listinn samþykkti fjórum mán-
uðum fyrr. Þeirri tillögu var á sínum tíma vísað til Mennta-
ráðs en umræðu og afgreiðslu frestað. Alfreð lagði síðar til
tillögu sína sem nú hefur verið samþykkt.
„Mér finnst því mjög alvarlegt, og líka komið aftan að
okkur, ef í ljós kemur að samþykktin nái ekki til hækkana
sem þegar hafa tekið gildi,“ segir Guðrún Ebba. „Þetta
orðalag í tillögunni er hins vegar auðvitað klaufalegt og
það þarf að skýra línurnar og taka af öll tvímæli á næstu
dögum.“
Breytingar á gjaldskrá leikskólanna, sem leikskólaráð
samþykkti í október á síðasta ári, fólu í sér að einn af þrem-
ur gjaldflokkum yrði felldur niður og þar með áttu for-
eldrar þar sem annar aðilinn er í námi að fylgja gjaldskrá
sem gildir almennt um hjón og sambúðarfólk.
Að sögn Hrefnu Lindar Ásgeirsdóttur, sem situr í stjórn
Stúdentaráðs og hagsmunanefnd ráðsins, áttu leikskóla-
gjöld barna hjá foreldrum þar sem annar aðilinn er í námi
að hækka alls um 7.380 krónur á mánuði að meðaltali mið-
að við eitt barn á framfærslu. Þetta myndi fela í sér að út-
gjöld þessa hóps hækkuðu um 81.180 krónur á ári, en það
nemur hátt í mánaðar framfærslu námsmanns í hjóna-
bandi hjá LÍN.
Efast ekki um að fallið
hafi verið frá hækkunum
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
LÖGREGLUNNI í Keflavík var til-
kynnt um að neyðarblys hefði sést á
lofti út af Vogum um eittleytið aðfara-
nótt laugardags. Svo virðist sem blys-
inu hafi verið skotið frá hafnarsvæð-
inu í Vogum en einnig barst til-
kynning um blysið frá Sandgerði.
Könnun lögreglu leiddi í ljós að ekki
hefði verið tilkynnt um skip eða báta
sem var saknað og var ekki ljóst af
hálfu lögreglu hver skaut upp blysinu.
Neyðarblys
í Vogum
♦♦♦