Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 17
hjá okkur herji flensa einungis á fólk
að vetrarlagi.
„Menn fylgjast mjög vel með
gangi mála og um leið og talið er að
einhver hættumerki séu á ferðinni
verður gripið til ráðstafana eins og
hægt er. Við stöndum mun betur að
vígi nú en áður vegna þess hve vel
við getum fylgst með þróuninni og
ég tel enga ástæðu fyrir okkur til
þess að hafa sérstakar áhyggjur af
þessu,“ sagði Haraldur Briem.
Hann bendir á að fuglaflensa, eins
og sú sem nú geisar í Asíu og borist
hefur til Evrópuhluta Rússlands,
hafi komið upp undanfarna áratugi
og fuglar drepist vegna þess, t.d. á
Vesturlöndum. Sjúkdómurinn sé
hins vegar tiltölulega nýr af nálinni í
Suðaustur-Asíu. „Hér í Evrópu er
hægt að stöðva útbreiðslu veirunnar
með því að slátra fugli, sem nánast
eingöngu er ræktaður í stórum iðn-
fyrirtækjum, en í Asíu er nálægð
fólks og dýra miklu meiri. Þar er al-
gengt að menn, svín, gæsir og endur
séu í einni bendu.“
Geta lært af mistökunum
Sérfræðingar á þessu sviði telja
Evrópubúa geta komið í veg fyrir
þau mistök sem urðu þess valdandi
að H5N1 veiran festi rætur í ali-
fuglastofnum Asíu á sínum tíma, en
engu að síður geti hætta verið á
heimsfaraldri.
Að sögn Financial Times í vikunni
er talið að flestir þeirra 112 manna,
sem sýkst hafa af veirunni í Asíu síð-
an 2003, hafi smitast beint frá sýkt-
um fuglum. Það sem sérfræðingar
óttast mest, skv. frásögn blaðsins, er
að stökkbreyting verði á veirunni;
líklegast er að það yrði með þeim
hætti að skepna, líklegast svín eins
og Haraldur Briem benti á, smitaðist
bæði af fuglaflensu og inflúensu sem
herjar á mannskepnuna, og þannig
yrði til nýtt afbrigði sem ekkert mót-
efni væri til við.
Valdhafar víða um lönd undirbúa
nú hvernig bregðast skuli við flens-
unni, en WHO telur bestu leiðina til
þess að koma í veg fyrir faraldur sé
að útrýma fuglaflensu úr alifuglum.
Með árvekni og góðu eftirliti séu
miklar líkur á því að hægt verði að
koma í veg fyrir að flensan berist í
alifugla í Vestur-Evrópu. Ástandið í
álfunni sé einfaldlega allt annað en í
þeim hlutum Asíu, þar sem flensan
kom fyrst upp. Þar hafi menn ann-
aðhvort ekki áttað sig á hættunni eða
hreinlega kært sig kollótta.
„Þegar horft er til baka er ljóst að
meginvandamálið í Asíu var hversu
seint fréttist [af fuglaflensunni],
hversu ógegnsætt kerfið er og
hversu illa svæðið er búið undir
óvænt áföll eins og þetta,“ hafði Fin-
ancial Times eftir Hans Wagner,
sérfræðingi hjá Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna, FAO, en hann starfar í Bang-
kok í Taílandi. Yfirvöld þar í landi
þvertóku fyrir að þarlendir alifuglar
væru sýktir, allt þar til fyrsti mað-
urinn lést úr fuglaflensu síðla jan-
úarmánaðar í fyrra.
Þegar stjórnvöld í Taílandi og öðr-
um Asíuríkjum viðurkenndu loks að
vandinn færi fyrir hendi hafði veiran
þegar breiðst út til stórra svæða þar
sem milljónir bænda rækta alifugla.
„Það var tilkynnt allt of seint [um
fuglaflensuna], og þegar það var
gert var orðið of seint að snúa þróun-
inni við,“ hefur blaðið eftir Peter
Cordingley, talsmanni WHO í Man-
ila á Filippseyjum.
Þrátt fyrir að þegar hafi 150 millj-
ón fuglar drepist eða verið slátrað
hafa stjórnvöld í Asíuríkjum enn
ekki náð tökum á vandamálinu og
ekki virðist hafa tekist að gera fólki
grein fyrir því hve vandinn er alvar-
legur, t.d. hve hættulegt er að slátra
fuglum með þeim hætti sem lengi
hefur tíðkast á svæðinu.
Í Evrópu fer alifuglarækt ein-
göngu fram innandyra, í kirfilega
einangruðu húsnæði.
„Ástandið þar er allt annað en í
Asíu,“ segir Wagner. „Hér [í Asíu] er
aðalvandinn fólginn í því að beina
litlum og meðalstórum framleiðend-
um inn á réttar brautir og sú stað-
reynd að nánast er ómögulegt að
koma á almennilegu eftirliti. Í Vest-
ur- Evrópu er þessi framleiðsla nán-
ast eingöngu í höndum stórra fyr-
irtækja þar sem öryggið er sett á
oddinn.“
Þrátt fyrir að aðeins sé vitað um
fáein dæmi þess að fólk hafi smitast
af fuglaflensunni í Asíu á síðustu
mánuðum býst WHO við því að til-
fellum fjölgi þegar kólnar í veðri með
haustinu. Og þó Evrópubúar verði að
vera á varðbergi, segir Cordingley,
talsmaður WHO á Filippseyjum sem
áður var vitnað í, að það yrði mjög
slæmt „ef hugsanleg ógnun við Evr-
ópu verður til þess að dregur úr at-
hygli og fjármagni til þess að vinna
bug á raunverulega vandamálinu í
Asíu.“
faraldur
skapti@mbl.is
Reuters
Verkamenn búa sig undir að slátra fugli í síðasta mánuði, þar sem veiran fannst í
kjúklingum í grennd við heimili þriggja Indónesa sem létust af völdum hennar.
’Það var tilkynnt alltof seint um fugla-
flensuna, og þegar
það var gert var orð-
ið of seint að snúa
þróuninni við.‘
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 17
www.urvalutsyn.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
A
U
G
L
†
S
IN
G
A
S
T
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
R
V
2
9
3
3
0
0
8
/2
0
0
5 49.900 kr. í viku*
59.900 kr. í tvær vikur*
Sumartilboð í september!
Bókaðu strax
á www.urvalutsyn.is
Gríptu tækifærið og bókaðu
strax glæsilega gististaði
Úrvals-Útsýnar á frábæru verði í haust.
Lengdu sumarið og njóttu sólar í september!
* Netverð á mann, óháð fjölda áfanga- eða gististaða,
þó ekki færri en tveir í gistingu.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn.