Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 21 starfi við félagsþjónustuna á hverjum stað. Þá eru haldin svo- kölluð „opin hús“ kirkjunum þar sem boðið er m.a. upp á leikfimi, föndur, fræðslu, helgistundir, bibl- íulestra, söng, mat og kaffi. „Með- al annars hefur verið efnt til skemmtilegra heimsókna yngstu kynslóða til þeirra, sem eldri eru og dveljast á öldrunarstofnunum. Í kirkjum eru haldnir reglulegir AA og Al-anon fundir og vinsæl Alfa-námskeið þar sem fólk hittist vikulega og fer yfir grundvall- bygging og afþreying Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Flosason saxófónleikari. Gunnar Gunnarsson, organisti í Laugarneskirkju. ÞAÐ ER nóg að gera hjá sr. Jó- hönnu Sigmarsdóttur en hún starf- ar sem prestur í fimm sóknum, heldur utan um sumarbúðir kirkj- unnar á Eiðum og er starfandi pró- fastur í Múlaprófastsdæmi. Jóhanna er prestur í Eiða- prestakalli sem er nokkuð víð- feðmt og nær yfir fimm sóknir með samtals hátt í 500 sókn- arbörnum. Hún reynir að messa reglulega í öllum þeim fimm kirkjum sem eru í prestakallinu og segir nauðsynlegt að eiga góðan bíl og hafa gaman af að keyra. Jóhanna segir það hafa verið mikla gæfu að þegar hún og Lára G. Oddsdóttir, prestur í Valþjófs- staðarprestakalli, hófu störf hafi strax í upphafi tekist gott sam- starf við sr.Vigfús Ingvar Ingvars- son í Vallanesprestakalli sem þjón- ar m.a. á Egilsstöðum. Þetta samstarf hafi þau þrjú svo þróað enn frekar og það sé afskaplega mikilvægt. Jóhönnu finnst margt spennandi vera að gerast innan þjóðkirkjunnar sem gaman sé að fá að taka þátt í. Fræðslustarfið er henni ofarlega í huga og sem dæmi um það sem verið er að gera á þeim vettvangi sýnir hún mér kver sem guðfeðgin fá afhent við skírn og Bænabók barnanna sem er nýútgefin. Hluti af starfi hennar er að halda utan um sumarbúðir kirkj- unnar á Eiðum ár hvert. Þær starfa í um fimm vikur á hverju sumri og er nú nýlokið. Hátt í 200 börn víða af Austurlandi komu í sumarbúðirnar að þessu sinni sem er heldur meira en í fyrra. Starfið í sumarbúðunum skiptist í leik og fræðslu, hver hópur dvelur í tæpa viku og segir Jóhanna að vel hafi gengið í sumar. Ásamt samstarfsprestum sínum í næstu prestaköllum hefur Jó- hanna reynt að koma til móts við þá sem dvelja eystra við virkj- unarframkvæmdir á hálendinu. Hún hefur ásamt sr. Láru heimsótt fólk á vinnusvæðinu við Kárahnjúka eftir að slys og áföll hafa orðið, en frá upphafi framkvæmdanna hafi Egilsstaðakirkja staðið þessu fólki opin. Þar hafi allnokkrar kaþólskar guðsþjónustur verið haldnar, enda flestir starfsmennirnir kaþólskir, en prestur hafi þá komið frá Akureyri. Í framtíðinni langar Jóhönnu að sjá samstarf presta á svæðinu og sóknarbarna þeirra eflast ennþá frekar. Það hafi skilað miklu en enn sé þar óunnið verk, sérstaklega í fræðslumálum. Hún sér Egilsstaða- kirkju fyrir sér sem Héraðskirkju og starfsmiðstöð fyrir svæðið í framtíðinni. Þar sem Jóhanna þjónar í fimm kirkjum stenst ég ekki mátið að spyrja hana hvar sé skemmtilegast að messa? Það eru þó ekki kirkjurnar heldur fólkið sem er henni efst í huga ef marka má svarið. Maður gerir ekki upp á milli barnanna sinna og ennþá síð- ur sóknarbarnanna sinna! Sumarbúðir og áfallahjálp Séra Jóhanna Sigmarsdóttir, prestur í fimm sóknum Eiða- prestakalls og starfandi prófastur í Múlaprófastsdæmi, sagði Ásgrími Inga Arngrímssyni að samstarf við presta í nær- liggjandi sóknum væri mikilvægt í kirkjustarfinu. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir fyrir framan Eiðakirkju. Í FRAMTÍÐARSÝN, sem Þjóðkirkjan hefur markað sér, segir: „Þjóð- kirkjan er lifandi og kröftug hreyf- ing fólks, sem á samleið í trúnni á Guð sem Jesús Kristur birtir og boðar. Þjóð kirkjan er sýnilegt, lit- ríkt og vaxandi samfélag, sem vek- ur og nærir kristna trúariðkun og andlegt líf. Þjóðkirkjan er vett- vangur samtals í þjóðfélaginu um þýðingarmikil málefni í ljósi krist- innar trúar og siðferðis. Þjóðkirkjan virkjar fólk í starfi sínu og eflir það til þjónustu við Guð og náungann.“ Í ljósi þessa hefur Þjóðkirkjan verið að sækja fram og sinnir nú orðið fjölmörgum félagslegum verk- efnum í öllum aldurshópum utan fastra skylduverkefna, sem fela í sér messuhald, uppfræðslu og sál- gæslu. „Kröftug hreyfing fólks“ 
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.