Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 24

Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 24
24 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ A ð höndla tíðarand- ann og breyting- ar á honum er eins og að halda í kvöldroðann eftir að sólin er sezt. Það sem við héld- um að við hefðum tök á gengur okkur úr greipum. Þeg- ar menn gera úttekt á tíðaranda í nú- tímanum og bera saman við, til að mynda árin um miðja síðustu öld, er eins víst að þeir sem eru nógu gamlir til að hafa næga yfirsýn, séu ekki lengur nægilega klárir í kollinum, eða þá hitt að þeir sem yngri eru og oftast með lengri skólagöngu að baki, byggi sínar niðurstöður á áliti annarra. Í Lesbók Morgunblaðsins birtist fyrir nokkrum árum greinaflokkur um tíð- arandann eftir fræðimenn og prófess- ora, og ég las hann samvizkusamlega. Margt var þar spaklega sagt. En þeg- ar hinir spakvitru höfðu sagt skoðun sína og maður reyndi að átta sig, varð reynslan, hvað mig snerti, sú að ég mundi ekki eftir neinu sérstöku. Ég ætla mér ekki þá dul að reyna að útskýra breytingar á tíðaranda á síðustu áratugum. Heildarmyndin af því næst aldrei. En með einstöku dæmum má sýna framá einhverjar af þeim breytingum sem orðið hafa. Að heilsa og kveðja Tíðarandinn birtist til að mynda í því hvernig fólk heilsast og kveður. Erlendir ferðamenn á 19. öld hafa lýst því, og þótti það sérkennilegt, að Íslendingar heilsuðust þá alltaf með kossi. Það fór mikill tími í það við kirkju að fólkið kyssti ekki bara prestinn, heldur kysstust allir í söfn- uðinum. Að messu lokinni kysstust síðan allir aftur. Þessi venja hafði tek- ið breytingum þegar kom framá 20. öld, og kom þá í staðinn að allir heils- uðust mjög hátíðlega með handa- bandi. Líklega hefur einhvern tímann orðið einskonar uppreisn gegn því að kyssa alla, jafnt kunnuga sem ókunnuga. Ungt fólk þess tíma, sem nú er orðið gamalt, tók þá svo ein- dregna afstöðu gegn því að heilsa með kossi að það heilsaði ekki einu sinni foreldrum sínum eða systkinum á þann hátt. En þetta gerðist ekki samtímis alls staðar og ég man eftir bónda úr Laugardal sem flutti austur í Bisk- upstungur þar sem þessi breyting hafði þá átt sér stað. Bóndinn heilsaði nágrönnum sínum í Tungunum æv- inlega að hætti hins nýja tíðaranda með handabandi, en ef hann brá sér vestur yfir Brúará og hitti Laugdæl- inga, heilsaði hann þeim með kossi eins og þar tíðkaðist þá enn. Ég upplifði það sem breytingu á tíðaranda á stríðsárunum síðari þeg- ar fólk hætti að heilsa með handa- bandi og fór að „kasta kveðju“ eins og það var kallað. Maður einn sem ég þekkti vel hafði búið í Reykjavík á stríðsárunum, en flutti síðan austur í Biskupstungur og fór að búa þar. Vakti þá talsverða athygli að hann kastaði bara kveðju á fólk, hvar sem hann kom, jafnvel foreldrum sínum heilsaði hann þannig. Hann sagði bara „sælt veri fólkið“ á sinn glað- beitta hátt og lét það duga. Mörgum þótti þetta samt afar snubbótt kveðja og ég held að hún hafi aldrei fengið al- mennt fylgi. Líklega voru mjólkurbíl- stjórinn og áætlunarbílstjórinn þeir einu sem alltaf var heilsað þannig. Þetta kann að hafa verið eitthvað breytilegt eftir landshlutum; til að mynda sagði mér Húnvetningur að þar í sveit kysstust allir um og fyrir 1950, nema hvað menn heilsuðu prestinum með handabandi. Ég upplifi breyttan tíðaranda núna, og jafnvel á síðustu áratugum, í því að það hefur gengið í endurlífgun lífdaganna að heilsast með kossi eða faðmlagi. En að sjálfsögðu gerir fólk greinarmun á því hver á í hlut. Mér finnst nú loksins að þetta hafi færzt í eðlilegt horf frá því að vera ögn vand- ræðalegt. Maður kastar ef til vill kveðju á þá sem maður hittir oftar en einu sinni á dag eða einhvern ótiltek- inn fjölda, sem til dæmis mætir sam- an á fund. En handabandið er ennþá í fullu gildi og sumum, ekki sízt alþing- ismönnum, þykir vissara að ganga á röðina og heilsa öllum á fjölmennum fundi með handabandi. Þar við hefur bæzt að fólk heilsar nánum ættingj- um og vinum með faðmlagi, kossi eða „knúsi“. Í því eins og mörgu öðru hef- ur kvenþjóðin forystu og enn sem komið er virðast karlar öllu tregari til að taka upp þetta kveðjuform. Er tíðarandinn tilbúinn? Þetta kann að virðast skrýtin spurning; tíðarandinn er vitaskuld alltaf tilbúinn með því að eitthvað í umhverfinu leiðir af sér breyttan hugsunarhátt. Það gerist ómeðvitað, en er hugsanlegt að hægt sé með brellum áróðursmeistara að hafa veruleg áhrif þar á? Því minnist ég á þetta að einhvers- konar áherzlubreyting kann að hafa orðið á skopskyni eða húmor lands- manna. Ég velti fyrir mér hvort það hafi gerzt „afþvíbara“ eða hvort sú áherzlubreyting hafi beinlínis verið búin til í fjölmiðlum og á auglýsinga- stofum. Hér á ég við þá sífellt auknu tilhneigingu í auglýsingum og skemmtiþáttum að tefla fram því sem áður var kölluð aulafyndni. Ég verð ekki var við aukningu á þessari fyndni hjá fólki almennt, en ímynd- arsmiðir, auglýsingahönnuðir og sumir svokallaðir skemmtikraftar reyna þetta mjög. Augljóst er að ég á þar við sjónvarpsþætti eins og Tví- höfða, Svínasúpuna, Strákana og fleira af sama tagi; oftast með sama fólkinu. Sama fólk með samskonar aulafyndni er síðan notað í auglýsing- ar og verður jafnvel „andlit“ stórra fyrirtækja. Nýlega var gerð úttekt á þessu fyr- irbæri í Lesbókargrein og þar var niðurstaðan sú að eftirspurnin væri fyrir hendi og að þetta væri nú orðinn viðtekinn hluti af íslenzkum húmor. Aulafyndni er eins og nafnið gefur til kynna, aulaleg, og þar er gert út á þá hugmynd að heimska sé sniðug. Ég hef ekkert sérstaklega á móti Strák- unum; einn þeirra er líklega alvöru húmoristi, en í heild þykir mér þessi framleiðsla skelfilega leiðinleg. Alveg skil ég að þeir reyni að gera sér mat úr því að einhver hluti af markaðnum kallar á þetta, en síður er skiljanlegt þegar forráðamenn virðulegs fyrir- tækis eins og Símans gera Strákana að einskonar andliti fyrirtækisins. Inni á þjónustustöðvum Símans verð- ur ekki þverfótað fyrir stækkuðum myndum af þeim, lúðalegum og hálf- berum. Ég get aðeins sagt fyrir sjálf- an mig að þetta verkar einungis nei- kvætt og líklega alveg þveröfugt við það sem ætlunin er. Mér finnst að Brynjólfur og Rannveig skuldi okkur skýringu á því hversvegna þau telja ímynd aulans svona frábæra. Það er svo annað mál að Íslend- ingum hefur alla tíð verið margt bet- ur gefið en fínlegt skopskyn, sem til að mynda einkennir bæði danskan og enskan húmor og getur birzt í lúmsk- SJÓNARHÓLAR OG SJÓNARMIÐ 2 Tíðarandinn er skrýtin Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson Gömul og af sér gengin útihús í Hraunholtum, innst í Hnappadal. Í baksýn er Oddastaðavatn. Því miður hefur íbúðarhús Magnúsar Sumarliða verið jafnað við jörðu; húsið sem hann reiddi þúsund hestburði af möl í til að láta draum sinn rætast. Eitt sinn var til siðs að erf- iða í vinnunni, en nú er púl- að í líkamsræktarstöðvum. Eitt sinn heilsuðust allir með kossi, en síðan hélt handabandið innreið sína. Og hvaðan kemur skyndi- lega aulafyndnin? Gísli Sig- urðsson fjallar um síbreyti- legan tíðarandann. Uppi við hlíð Fagraskógarfjalls, á bak við Barnaborgarhraun, sem hér sést, er eyðijörðin Syðri-Skógar, þar sem Magnús bóndi Hallbjörnsson ók allri möl langa leið í hjólbörum til þess að geta byggt sitt hús. Afskekkt jörð og þó miðsvæðis í Hnappadal. Íbúðarhúsið á Syðri-Rauðamel stendur eitt á þessari jörð. Túninu er haldið í ræktun og slegið þó að hér sé ekki búskapur. Uppi á hraunbrúninni sést Ytri-Rauðamelskúla. ’Það er svo annaðmál að Íslend- ingum hefur alla tíð verið margt betur gefið en fín- legt skopskyn.‘

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.