Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 25
skepna MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 25 um orðaleikjum. Sá rammíslenzki húmor sem birtist í ritinu Íslenzk fyndni var oft frekar frumstæður, þó að undantekningar mætti finna. Svo- kallaður „verstöðvahúmor“ hefur allt- af átt fylgi að fagna og í framhaldi af honum hafa einstöku skemmtikraftar þróað klámfengna brandarasmíð, sem ég hef að minnsta kosti ekki smekk fyrir. Eitt af því sem Halldór Laxness gerði uppreisn gegn og hafði ímugust á í íslenzku samfélagi var allur þessi ruddalegi og frumstæði húmor, enda var hann sjálfur íðilfínn húmoristi og beitti honum við ólíklegustu aðstæð- ur, samanber „Nokkuð fleira sem ég get gert fyrir yður?“ eftir að ökuníð- ingur hafði neytt hann til að aka út í skurð. Þó að Laxness væri áhrifamik- ill tókst honum ekki að umbreyta skopskyni landans og sama má segja um hinn sérstæða húmor Þórbergs. Tíðarandinn er skrýtin skepna, en ljóst er að eftir því sem fjölmiðlar verða áhrifameiri verður auðveldara að hafa áhrif á hann. Frá mínum sjón- arhóli lítur hann bærilega út og mér finnst margt í tíðarandanum mun skárra en það var fyrir nokkrum ára- tugum. Mér lízt þó einna verst á hvernig tilslökunarstefna í skólum og í fjölmiðlum fer með móðurmálið. Þó að ég hafi haft lúmskt gaman að þátt- um Sylvíu Nætur, vona ég bara að talsmáti hennar verði engum að fyr- irmynd. Það eru vond tíðindi, ef sönn eru, að margir kennarar séu hættir að nenna að andæfa og líti á klúðrið og málleys- urnar sem „eðlilega þróun“. Á Morg- unblaðinu hafa menn haft metnað til að hlú að góðu, íslenzku ritmáli og vonandi er sú stefna enn við lýði. En mig rak í rogastanz nýlega þegar vit- laus fallbeyging í fyrirsögn æpti á les- endur í Tímaritinu, en vona að það hafi bara verið einstakt óhapp og þau verða alltaf, hvernig sem maður vand- ar sig. Að byggja hús Á umliðnum áratugum var sú af- staða nokkuð almenn að það að byggja yfir sig væri mesta stórvirki í lífi hvers manns. Það er dæmi um breyttan tíðaranda að í þessu efni hef- ur orðið mikil viðhorfsbreyting. Á stríðsárunum og lengi vel þar á eftir varð algengt, og eiginlega sjálfsagt, að húsbyggjendur ynnu sjálfir að öllu sem þeir gátu og þannig byggðist þá svo til allt Smáíbúðahverfið. Bæði í smærri bæjum, svo og til sveita, hefur það verið eins. Þá fóru menn beint úr vinnu á byggingarstað og þar var puðað framundir miðnættið. Eins og nærri má geta var margt í þeirri vinnu hreinræktað fúsk, en það þótti ekki koma að sök þá. Oft hefur verið vakin á því athygli uppá síðkastið að menn virðast vera hættir að byggja yfir sig sjálfir. Það er naumast til lengur að maður fái einfaldlega lóð og byggi sitt hús. Nú er byggingarbransinn látinn verktök- um eftir; byggingaheildsalar koma við sögu og flýta fyrir því að verktak- inn geti bara snúið sér að næsta verk- efni, en kaupin eru langoftast gerð hjá fasteignasölum. Með þessu móti vinna fagmenn bæði stórt og smátt og byggingar taka skemmri tíma. Þótt einhverjir vilji gjarnan standa í þessu sjálfir, og telji sig geta sparað fáeinar krónur, þá losnar fólk almennt við þá áraun sem húsbygging var. Aðeins hef ég einu sinni byggt yfir mig og mína eins og það var kallað; blokkaríbúð við Kleppsveg á árunum milli 1956 og 1960. Þá voru bílar ekki orðnir almenningseign og ég fór á reiðhjóli dag hvern úr vinnunni á byggingarstað og reyndi að gera eitt- hvað til gagns, en sóttist seint og mörg urðu mistökin. Svo var annar fúskari fenginn til að smíða eldhús- innréttingu, sem þótti svo afleit að henni var hent. Heilt sumar fór í að sparsla, slípa og lakkmála eldhús og bað; galin vinnubrögð sem fljótlega lögðust af þar á eftir. Þannig var þetta almennt og ég hygg að flestir af eldri kynslóðinni hafi reynslu af þessu frá yngri árum sínum. Sem betur fer hefur það að byggja hús færzt í skynsamlegra horf og þeir koma að verkinu sem til þess hafa kunnáttu og tæki og bankarnir sjá um að velta kostnaðinum út í framtíðina, helzt 40 ár. Treyst á handaflið Ég tel þó víst að það sem við upp- lifðum í íbúðabyggingum um og fyrir 1960 sé hreinasti barnaleikur hjá því sem menn komust í fyrr á síðustu öld. Ekki var það sízt þegar reynt var að steinsteypa hús á fyrstu þrem áratug- um aldarinnar. Innst í Hnappadal, þar sem enn er afskekkt byggð og var það í enn ríkari mæli fyrir um 75 ár- um, réðist bóndinn í Hraunholtum, Magnús Sumarliði Magnússon, í að byggja á jörðinni veglegt steinhús eftir þeirrar tíðar mælikvarða. Þetta hús reis árið 1930, í upphafi krepp- unnar miklu, en hefur því miður verið brotið niður. Vandamálið þarna var að ná í steypumöl, sem ekki var til í næsta nágrenni. Hinsvegar reyndist vera allgóð malarnáma vestur við Oddastaðavatn í nokkurra kílómetra fjarlægð. Meinið var að vegarlaust var þangað og á kafla var yfir úfið hraun að fara. En Magnús bóndi lét það ekki aftra sér. Hann fór á staðinn með nokkra áburðarhesta, mokaði mölinni í poka og hengdi á klakk. Engar smáræðis lyftingar það. Þannig reiddi hann heim möl í húsið og ekki dugði minna en þúsund hestburðir. Ég sé í anda flesta nútímamenn, jafnvel á bezta aldri, leika þetta eftir. Menn fá óðar í bakið ef þeir reyna á það eitthvað sem heitið getur og væru líklega búnir að vera eftir tíu poka. Þetta og margt fleira hafði ég upp- úr krafsinu á nýlegri ferð um Kol- beinsstaðahrepp og Hnappadal vegna væntanlegrar bókar um Snæfellsnes og Mýrar. Önnur merkileg afreks- saga úr þessari byggð er frá eyðibýl- inu Syðri-Skógum undir hlíð Fagra- skógarfjalls. Þar bjó einsetubóndinn Magnús Hallbjörnsson á árunum 1917-1967, en húsakynnin í afar litlum torfbæ hafa ugglaust ekki verið uppá marga fiska. Hálfsjötugur að aldri sneri Magnús sér að því að láta drauminn rætast og byggja hús og það skyldi vera steinsteypt. En það var sömu annmörkum háð og hjá Magnúsi Sumarliða í Hraunholtum, nefnilega þeim að möl í steypu var hvergi nálæg. Hún fannst að vísu í þriggja kílómetra fjarlægð, við farveg Hítarár, en hvort sem það var vegna þess að hér skorti hesta, eða Magnúsi hefur bara hugnast handaflið betur, þá fór svo að hann lagði af stað með hjólbörur, fyllti þær og einhvern veg- inn þrælaðist hann með þær heim. Ekki einu sinni, eins og nærri má geta, heldur líklega nokkur hundruð sinnum, en um það er engar upplýs- ingar að hafa. Húsið í Syðri-Skógum stendur enn og vissulega er það ekki stórt. Magn- ús lét það snúa eins og tíðkast hafði þegar torfbæir voru byggðir; gaflinn sneri fram. Á mælikvarða nútíðar hef- ur ekki þurft nein ósköp af steypu í húsið, en trúlega hefur Magnús orðið að fara æði margar ferðir með hjól- börurnar sínar. Þegar þeir unnu afrek sín í hús- byggingum Magnúsarnir tveir í Kol- beinsstaðahreppi, var líklega enn við lýði viss aðdáun á líkamlegu erfiði. Það var hluti af tíðarandanum og þótti bera vott um leti ef menn unnu sér í haginn til að minnka erfiði og fæstir vildu láta telja sig með letingj- um. Sú breyting hefur orðið á tíðar- andanum að nú vilja menn gjarnan erfiða hressilega í líkamsræktar- stöðvum en líkamlegt erfiði í vinnunni er ekki vinsælt og ber einungis vott um slæmt skipulag og ónóga tækni. Höfundur er rithöfundur og myndlistarmaður. Rannsóknasjóður Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Umsóknarfrestur 1. október 2005 Stjórn Rannsóknasjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum með umsóknafrest 1. október 2005. Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. Með hugtakinu vísindarannsóknum er átt við allar tegundir rannsókna; grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir. Rannsóknasjóður veitir styrki samkvæmt almennum áherslum Vísinda- og tækniráðs og á grundvelli faglegs mats á gæðum rannsóknarverkefna. Eftirfarandi atriði vega þungt samkvæmt almennri stefnu Vísinda- og tækniráðs frá 18. desember 2003 og síðari ályktunum ráðsins: • Að verkefnið stuðli að uppbyggingu á vísindalegri og tæknilegri þekkingu. • Að verkefnið hafi mikið gildi og miði að vel skilgreindum ávinningi fyrir íslenskt samfélag eða atvinnulíf. • Að verkefnið stuðli að myndun rannsóknarhópa og þekkingarklasa og stuðli að samvinnu milli háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja. • Að verkefnið feli í sér þjálfun ungra vísinda- og tæknimanna. • Að verkefnið stuðli að alþjóðlegri sóknargetu íslenskra vísindamanna og aukinni þátttöku í alþjóðasamstarfi á sviði vísinda. Rannsóknasjóður veitir þrenns konar styrki með umsóknafrest 1. október: • Öndvegisstyrki. • Verkefnisstyrki. • Rannsóknastöðustyrki. Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur sem hlutu styrk til verkefna árið 2005 með áætlun um framhald á árinu 2006 skulu senda áfangaskýrslu til sjóðsins eigi síðar en 1. nóvember 2005. Ítarlegar upplýsingar um styrkina og umsóknareyðublöð fyrir hverja styrktegund er að finna á heimasíðu Rannís (www.rannis.is). Þar er einnig úthlutunarstefna Rannsóknasjóðs birt í heild sinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.