Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Ö rlögin höguðu því þannig að ég fæddist í Brighton á Englandi,“ seg- ir Hilmar Foss og horfir á mig í gegnum gler- augun í nýrri skrifstofu sinni í Garða- stræti 34 í Reykjavík. Væri þetta í skáldsögu mætti kalla fæðingu Hilm- ars í Englandi „vísun“ örlaganna, – Hilmar hefur starfað sem löggiltur dómtúlkur og þýðandi á enska tungu í nær 60 ár og starfaði fyrir bresk yf- irvöld sem aðstoðarmaður Péturs Benediktssonar í „fastanefndinni“, sem sá um málefni tengd Íslandi í London á stríðsárunum. Dvölin í stríðshrjáðri stórborginni varð hon- um eldskírn í ýmsu tilliti. Hilmar er þekktur miðbæjarmað- ur í Reykjavík og honum finnst að eigin sögn hann beinlínis vera horfinn úr skarkala miðborgarlífsins hér í Garðastræti, kominn úr húsakynnum sínum í Hafnarstræti 11, þar sem hann rak skrifstofu í 58 ár og hingað í „kyrrðina“, eins og hann orðar það. Vel byggt og vandað hús „Móðir mín, Elísabet Lára Krist- jánsdóttir Foss, byggði húsið Hafn- arstræti 11 árið 1929, fjórar hæðir, vel byggt og vandað og þar hefur fjöldi fyrirtækja verið með starfsemi sína í áranna rás, – á fyrstu árunum var rafvirkjabúð á neðstu hæð og þar rak móðir mín einnig lífstykkjabúð. Hún sérhæfði sig í að sauma lífstykki og var við nám sitt í Bretlandi þegar ég fæddist. Faðir minn var ágætis- maðurinn Magnús Scheving Thor- steinsson. Foreldrar mínir voru ekki gift og þegar við mamma komum frá Bretlandi fórum við til afa míns Kristjáns Jónssonar fyrrverandi Ís- landsráðherra og háyfirdómara, þar sem við áttum heimili fyrstu æviár mín eða þar til hann dó 1926. Móðir mín hafði verið gift áður ágætum manni sem bar ættarnafnið Foss og fékk ég nafn hans við skírn. Sú skírn var síðasta prestverk Jóns Þorkelssonar dómkirkjuprests. Eina systur átti ég sammæðra og fjögur systkini af föðurnum.“ Eftir lát afa síns ólst Hilmar upp hjá móður sinni í Hafnarstræti 11. „Frændi minn Jón Þórarinsson var nánast jafnaldri minn, munaði fjórum mánuðum, við ólumst upp nánast eins og tvíburar. Jón varð síðar apótekari í Iðunnarapóteki en hann lést 1975, aðeins 55 ára að aldri. Við, eins og mjög margir Reykjavíkurdrengir, tókum þátt í kirkjulegu starfi hjá séra Friðrik Friðrikssyni og varð ég síðar einskonar ritari hans þegar hann var orðinn blindur á sínum efri árum. Starfaði á stríðsárum í London Ég stundað nám í gagnfræðaskóla Reykvíkinga, einn vetur í Mennta- skólanum í Reykjavík og tvo vetur í Verslunarskóla Íslands. Í september 1938 fór ég til systur minnar sem var gift í London og fór í skóla þar til að undirbúa mig fyrir nám við London School of Economics, þar sem ég hugðist leggja stund á hagfræði og stjórnmálafræði. Þetta voru undarlegir tímar, allir óttuðust stríð en forystumenn töldu sig hafa samið við Hitler um varn- arlínu við Karpatafjöll. Allt reyndist blekking og stríðið skall á 1939 þegar Þjóðverjar réðust á Pólland. Hinn ágæti skóli sem ég ætlaði í var lokaður vegna styrjaldarinnar. Íslensk viðskiptasendinefnd var í Lundúnum haustið 1939 en náði ekki samningum utan það að sett var á stofn fastanefnd til að ráða fram úr einstökum málum. Sveinn Björnsson var sendinefndarformaður, hann og frændi minn Haraldur Guðmunds- son, þá forseti sameinaðs þings, leit- uðu að vinnu fyrir mig, þar sem skól- inn var ekki starfandi, og í framhaldi af því var ég boðaður á fund í húsa- kynnum skólans, sem ég hugðist sækja. Þar var þá þegar rekið stríðs- viðskiptaráðuneyti. Þar var ég ráðinn af Bretum með 200 punda árslaunum án eftirlaunaréttinda í starf og lán- aður af ráðuneytisins hálfu Pétri Benediktssyni, fulltrúa íslenska nefndarhlutans, sem þá var að opna skrifstofu að 14 Ryder Street, í húsi Charity Commission. Um þetta sagði Pétur í viðtali við Morgunblaðið 1969, skömmu áður en hann andaðist: „Bretarnir áttu að sjá okkur fyrir húsnæði og var mér og aðstoðar- manni mínum Hilmari Foss, holað niður í húsakynnum þar sem fá- tækrafulltrúar Lundúnaborgar höfðu áður ráðið ríkjum.“ 9. apríl 1940 hernámu Þjóðverjar Danmörku og daginn eftir kom skeyti frá Íslandi til Péturs um að hann væri skipaður sendifulltrúi til bráðabirgða og varð skrifstofan við Ryderstræti því sendiráð án starfs- liðs eða viðunandi húsnæðis. Bryn- hildur Sörensen var ráðin til skrif- stofustarfa og fluttum við þrjú í heldur veglegri aðstöðu í sama húsi. Nokkru síðar flutti breski flugher- inn með starfsemi í húsið og var það þá girt af með gaddavírsrúllum og vopnaðir verðir settir við innganginn. Þetta var erfitt ástand og nokkru síð- ar fékkst húsnæði í sendiráðshverf- inu Belgravia. Tók Pétur á leigu hús- ið 6 West Eaton Place með öllum húsbúnaði, en eigandi þess hvarf til herþjónustu í Miðausturlöndum. Með hernáminu breyttust verkefnin Að morgni 10. maí 1940 heyrði ég í útvarpsfréttum að breskar hersveitir hefðu gengið á land í Reykjavík. Ég varð afskaplega feginn að Þjóðverjar urðu ekki fyrri til. Með hernámi Breta á Íslandi breyttust verkefni okkar og urðu viðameiri.“ 14. ágúst 1941 birtist viðtal við Hilmar Foss í Morgunblaðinu: „Menn venjast loftárásum, verða forlagatrúar og láta hávaðann og sprengjulætin ekkert á sig fá,“ segir Hilmar og segir þar með í stórum dráttum hvernig það var að vera í loftárásarhættu Lundúnaborgar. Hilmar kveður þennan tíma enn vera sér ofarlega í minni. „Ekki síður eru mér hin nánu samskipti við Pétur Benediktsson minnisstæð, það var fátt sem raskaði ró hans undir þess- um óvenjulegu kringumstæðum. Hann hafði mikið sálarþrek og tók óhikað erfiðar ákvarðanir án þess að hafa möguleika á að ráðfæra sig við eldri og reyndari menn. Þegar hlé varð á störfum okkar sátum við gjarna tveir á tali, þennan stórbrotna eymdarvetur, þegar dauði og djöful- gangur voru allajafna á næsta leyti og svo margur ókunnugur átti um sárt að binda, mátti glögglega finna hvernig hjarta hans sló. Í samfélagi við þennan góðvin minn öðlaðist ég staðfestu þess, sem ég hef jafnan síð- an talið mikilvægast,“ segir Hilmar. Brann rétt fyrir jól 1941 Þótt Þjóðverjar hefðu orðið of sein- ir að hernema Ísland komust skyld- menni Hilmars eigi að síður í mikla lífshættu rétt fyrir jólin 1941. „Þá brann hús móður minnar og var hún og systursynir mínir auk fleira fólks í mikilli lífshættu um tíma,“ segir Hilmar. 24. desember 1941 segir Morgun- blaðið svo frá þessum mikla bruna: „Húsið, sem kviknaði í, var 4 hæða steinhús, vandað að gerð. En eldur- inn sem þar geisaði, fór um stofuhæð- ina, snerti ekki nema stiga og stiga- ganga á næstu tveim hæðum, en seildist upp á þakhæð og eyddi þar öllum innanstokksmunum og var hætt komið, að þar brynni fólk inni.“ Í fréttinni er rakið hvernig eldur- inn kviknaði af logandi sígarettu sem fleygt var í ruslið og breiddi sig út með örskotshraða, þrátt fyrir að frú Elísabet reyndi í upphafi að stöðva úrbreiðslu hans. Undir eins og logaði upp úr ruslakörfunni náði eldurinn í pappírssnið og gervisilki í lífstykkja- vinnustofunni og þá blossaði upp mikið bál. Með naumindum tókst að bjarga móður Hilmars, frændum hans og öðru fólki með aðstoð íslenskra og breskra slökkviliðsmanna. Breyttir tímar og hjónaband Hilmar kom heim frá Bretlandi með mótorbátnum Helga frá Vest- mannaeyjum til þess að aðstoða móð- ur sína í þeim hremmingum sem af brunanum leiddi. „Þórarinn móðurbróðir minn og Mammonsdýrkun mikil en manngildið minna Í 58 ár hafði Hilmar Foss skrifstofu sína í húsi sem móðir hans byggði í Hafn- arstræti 11. Nú hefur hann flutt sig um set, upp í „kyrrðina“ í Garðastræti 34. Hann segir Guðrúnu Guðlaugsdóttur frá at- hyglisverðum ferli sínum í Bretlandi og sem þýðandi og dómtúlkur í miðbæ Reykjavíkur. Morgunblaðið/Eyþór Hilmar Foss er kominn úr ys og þys miðborgarinnar eftir að hann færði skrifstofu sína í Garðastræti 34. Morgunblaðið/Jim Smart Feðgarnir Hilmar F. Foss verslunarrekandi og Hilmar Foss, dómtúlkur og skjala- þýðandi, á skrifstofu Hilmars í Hafnarstræti 11.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.