Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hvernig heilsast? Glæsilegur blaðauki um heilsu og hollan lífsstíl fylgir Morgunblaðinu laugardaginn 3. september Meðal efnis er líkamsrækt, heilsufæði, jógaiðkun, betri svefn, sykurlaust mataræði, leiðir til að hætta að reykja, mikilvægi slökunar og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 12 miðvikudaginn 31. ágúst Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is Ö rtröðin á Heathrow flugvelli þegar ég hélt frá Lundúnum var eðlilega stórum meiri en á Reykja- víkurflugvelli og vegalengdirnar sömuleiðis, allt að fimmtán til tuttugu mínútna gangur að sumum brottfar- arhliðum. Hins vegar var flugferðin til Kaupmannahafnar með þægilegra móti, sætin rúmgóð og á skjánum gat maður fylgst með flugleiðinni frá upp- hafi til enda. Allir sem leggja land undir fót munu kannast við hugtakið andi stað- anna, Genius Loci, og vissulega eru umskiptin mikil þegar komið er frá einhverri stórborg Evrópu til Kaup- mannahafn- ar. Bæði hef- ur borgin sinn sérstaka þokka og kominn þangað finn- ur margur landinn ekki svo lítið fyrir uppruna sínum, úr mörgum kimanum andar íslensk saga. Þeirri kennd megum við síst við að glata, væri ígildi þess að hafna fortíð- inni og um leið jarðarskikanum sem norrænir standa á, viturlegast að vera hér í góðu sambandi og þá ekki síst á sviðum er hreifa við hugaraflinu. – Danir enn með allt á útopnu varð- andi H.C Andersen. Ævintýraskáldið krufið í bak og fyrir, allir þræðir lífs hans og sjálfs raktir upp í samræmi við núið, einkalíf hans og ástarbrími mæta síður en svo afgangi. Áhuginn á þessari hlið hans hefur að sjálfsögðu ratað til Ameríku og þannig hefur rit- höfundur nokkur, Jackie Wulkenlag- er að nafni, fundið hjá sér hvöt til að brjóta heilann um þessi atriði í ævi- sögu Andersens, sem hún er höf- undur að. Gengur meira að segja út frá því að kynlífsþarfir hans hafi verið náskyldar framúrstefnukynslóð dags- ins! Þá hafa menn ekki síður rakið upp alla sjúkdóma sem hann gekk með andlega sem líkamlega, bæði skjalfesta og meinta, og hér ekki ver- ið að skafa af hlutunum, getspekin sömuleiðis á fullu. Auðvitað hefur margt mjögspennandi komið fram ogmargar læsilegar bækurgefnar út. Tvær frumlegar urðu á vegi mínum að þessu sinni: „Et godt Humor“ eftir Jørgen Schrøder, sem fjallar um H.C. Andersen meðal vina og ekki vina undir grænni torfu í Assistens kirkjugarðinum og er byggð á dagbókum skáldsins. Garð- inn elskaði skáldið, heimsótti oft og er grafinn þar. Kemur beint og óbeint í kjölfarið af annarri bók eftir sama höfund, „Historier fra Assistens“, nokkurs konar menningarsögu í myndum og út kom ári fyrr. Hún vakti mikla athygli og fékk svo góðar viðtökur að hún var svo til ófáanleg og höfundurinn fékk þá hugmynd að skrifa aðra og nú tileinkaða H.C. Andersen. Báðar vel skrifaðar og á köflum hreinn skemmtilestur enda danski húmorinn alltaf skammt und- an. Að hinni bókinni, sem nefnist „H.C. Andersen svarer Neruda“, stóðu stofnun Pablo Neruda (1974) og Isabel Allende (2005), sem jafn- framt skrifar formála, en Johannes Møllehave og Karsten Eskildsen rit- stýrðu (2005). Gengur bókin út á að tengja saman tvo heima og tvö tíma- bil, tefla saman tveim bókmennta- heimum og tvennskonar rökræðu og lífsheimspeki og er að sjálfsögðu hrein ímyndun, fiktion. Afmælisárið hefur á marga veru leyst eitt og ann- að uppbyggjandi úr læðingi en óskilj- anleg mistök hafa líka átt sér stað líkt og þegar hátíðarnefndin reyndi ein- hverra hluta vegna að tryggja sér heimsfræga amerískra skemmti- krafta úr dægurmenningariðnaðinum á afmælishátíðina, sem þó einn af öðr- um gengu úr skaftinu. Nældi á síð- ustu stundu í Tinu Turner, sem tróð upp í smástund og tók litla milljón dollara fyrir viðvikið! Óumbeðinn skerfur Chilebúa er sýnu menningarlegri og öllu meira í anda skáldsins sem trúlega hefði lagt á bráðan flótta undan hávaðanum og látunum í kringum amerísku dívuna. Einneginn má telja hinn forvitnilega gjörning: „Alt dandser, tro mit Ord,“ sem hófst í Thorvaldsensafninu á út- mánuðum ólíkt meir í takt við það. Sýningin opnaði þarnæst í sölum Listasafns Fjónar í Óðinsvéum og verður þar fram til 31. október. Legg- ur verkið út af söngtexta Andersens frá 1832: „Spil lystig paa Violin,/ Alt dandser, tro mit Ord!/ Se, Jorden rundt om Solen/ Og Maanen om vor Jord;/ Vi dandse med hinanden,/ Selv Hjerter vil afsted,/ Og faae vi lidt i Panden,/ Saa dandser Stuen med.“ Enginn áhugasamur um æv-intýraskáldið má svo látasýninguna „Et eventyrligliv“ í Friðriksborgarhöll fram hjá sér fara auk þess sem það er jafnan ævintýri að sækja sjálfa höll- ina heim. Þá býður Thorvaldsensafnið upp á litla sýningu á dagbókum skáldsins og Nicolai Kirke slær um sig með innsetningunni: „H.C. And- ersen – En Livsverden“ og fékk til liðs við sig heimslistamenn eins og Ilya og Emiliu Kabakov ásamt Jos- eph Kossuth, en eitthvað hefur fram- kvæmdin farið fyrir ofan garð og neð- an hjá borgarbúum því salirnir voru galtómir er mig bar að, listnjótendur líkast til fullsaddir af innsetningum á þeim stað í bili. Af viðburðum á sýningavettvangi ótengdum Andersen er gnótt í borg- inni, þannig er Ríkislistasafnið með stóran gjörning á safneign sinn í nýju álmunni sem hlotið hefur nafnið „Highlights“. Tilefnið er að sú gamla er lokuð vegna endurnýjunar á bruna- og öryggiskerfinu og hafa menn tekið til bragðs að sópa lista- verkunum úr sölum hennar inn í þá nýju. Frá rjáfri niður á gólf og um alla veggi, svona líkt og tíðkaðist fyrir hundrað árum og meir! Fram- kvæmdin hafði að nokkru farið framhjá mér þar sem ég var í þeim mæli gagntekinn af sýningunni H.C. Andersen og Róm, þá ég var þar síð- ast. Afar lærdómsríkt að fá andrúmið í Róm frá tímum Thorvaldsens og gullaldarmálaranna dönsku beint framan í sig; Genius Loci. Upphengingar sem þessi voru eitur í beinum módernista á seinni helm- ingi fyrri aldar en eru að hluta aftur komnar í móð, „cool“ eins og ungir orða það, jafnvel á núlistasöfnum eins og MoMA, þó seint í þeim mæli sem í þessu tilviki. Mér til stórrar furðu leiddi framkvæmdin sitthvað í ljós sem ég hafði ekki tekið eins vel eftir áður, skynjaði jafnframt að sama átti við um fleiri meðal þeirra óvenju mörgu gesta sem reikuðu um salina daginn þann. Satt að segja næsta auð- velt að snúa sig úr hálsliðinum á staðnum, einstaka gestur hafði þó verið svo forsjáll að taka með sér kíki! Áberandi hvað Ejnar Nielsen (1872– 1956) tók sig vel út í þessu kraðaki, en hann var lærimeistari Jóns Eng- ilberts á Akademíunni í Höfn á sínum tíma, listupplagið þó allt annað. Hin dapurlegu viðföng Nielsens þykja gera list hans fráhrindandi, en um er að ræða afar áhrifamikla heimild um ástandið á tímunum, þá svo margur var að veslast upp úr tæringu og ekk- ert framundan nema vonleysi og dauði. Um framúrskarandi vel máluð og djúphugsuð málverk er að ræða svo naumast var betur gert á Norð- urlöndum þegar málarinn var upp á sitt besta. Þá ber að nefna kynningu á verkum franska arkitektsins Jean Nouvels á Lousiana, en hann sigraði í sam- keppni um nýja tónleikahöll Danska ríkisútvarpsins í Ørestaden og þykir tillaga hans með eindæmum glæsileg. Menn stóðu frammi fyrir arkitektúr á heimsvísu eins og það var orðað af dómnefndinni, sem telur að þetta muni verða athyglisverðasta bygging Kaupmannahöfn Útsýni yfir Hólminn efst úr turni „Vor Frelsers Kirke“, en þangað álpaðist greinarhöfundur óforvarendis. Himnaskífan frá Nebra, Sachsen-Anhalt, í Mið-Þýska- landi. Sól, máni, stjörnur og goðsöguleg fley.  Ameríski rithöfundurinn Jackie Wulkenlager hefur skrifað opinskáa ævisögu um H.C. Andersen, þar sem hún brýtur heilann um kynlíf hans sem hún álítur eiga sitthvað sameiginlegt með seinni tíma framúrstefnukynslóðum. Frá sýningu á teikningu ungra skopteiknara í Svarta demant- inum í tilefni árs H.C.Andersens, höfundur Bent Eskestad. SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson bragi@internet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.