Morgunblaðið - 28.08.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 29
í Kaupmannahöfn, hönnuð af erlend-
um arkitekt í 200 ár. Þeir sem áhuga
hafa á húsagerðarlist ættu svo ekki
að láta sýninguna um turnana:
„Dream of Tower“ í Arkitektasafninu
að Strandgötu 27 framhjá sér fara,
hún er konfekt fyrir augað. Hin vel
hannaða og skilvirka bók sem fæst á
staðnum um sögu háhýsa frá upphafi
vega fram á daginn í dag er frábær
viðbót.
Við austurenda götunnar áNorður-Atlantshafs-bryggju eru færeyskirlistamenn að reyna að
sanna sig í núlistum. Árleg kynning á
ungum framsæknum hönnuðum
stendur yfir í hönnunarsafninu í ná-
grenni hornsins á H.C. Andersen
Boulevard og Stormgade, og sem
fyrr vekja hugmyndir þeirra um
hjálpartæki fyrir sjúka og fatlaða
óskipta athygli, einkum sérhönnuð
bifreið sem í einu og öllu er hugsuð
fyrir fólk í hjólastól.
Framúrskarandi sýning á verkum
fuglamálaranna Johannes Larsens
(1867-1961) og hins sænska Bruno
Liljefors (1860-1939) hefur staðið yfir
á Örkinni í Ishøj frá 28. maí og lýkur
11. september. Þeir kunnu sitt fag til
fullnustu og höfðu hæfileikana til að
bregða í þá veru upp yndisþokka-
fullum myndheimi kringum allt fiðrað
í lofti, láði og legi að betur hefur
trauðla verið gert á Norðurlöndum.
Báðir skotveiðimenn sem þekktu
myndefni sín og atferli fugla eins og
best gerist.
Danir hafa loks eignast safn yfir
400 ára sögu gyðinga í Danmörku en
þeir reyndust allt frá dögum Krist-
jáns fjórða umburðarlyndari í þeirra
garð en aðrar þjóðir álfunnar og hafa
notið góðs af. Safnið er staðsett undir
gamla lestrarsal Konunglegu bók-
hlöðunnar, arkitektinn enginn annar
en hinn heimsþekkti Daniel Liebes-
kind, sem hannaði verðlaunatillöguna
að skýjakljúfnum sem rísa mun úr
rústum Tvíburaturnanna í New York
og Gyðingasafnið í Berlín svo eitt-
hvað sé nefnt. Sem vænta má er fag-
lega að verki staðið og fellur innrétt-
ingin meistaralega að hinni gömlu.
Síðasta sýningin sem ég skoðaði og
lyfti mér í háar hæðir var nýopnuð í
Þjóðminjasafninu og ber hið lýsandi
nafn: Himmelskiven og Solvognen, /
Goðsagnaheimur bronsaldar. Um er
að ræða Himnaskífuna frá Nebra í
Sachsen-Anhalt, Mið-Þýskalandi,
Sólvagninn frá Trundholm, heims-
fræði og sólguði. Sólina og stjörnu-
fræði. Hinn óvænti fundur Himna-
skífunnar í Nebra 2002, rúmum
hundrað árum eftir að bóndi nokkur
sem var að plægja akur sinn rakst á
Sólvagninn úti í mýri í Odsherred í
Danmörku, hefur leitt margt nýtt og
óvænt í ljós og vakið upp margar
spurningar sem enn er verið að vinna
úr. Himnaskífan staðfestir að menn
vissu öllu meira um gang himintungla
en álitið hefur verið, og hún gefur
dýpri innsýn en áður inn í samfélag
og hugarheim forfeðranna.
Einhvern tíma heyrði ég sögu af metnaðargjörnum stjórn-málamanni sem mjög var í mun að heilla hugsanlegakjósendur í dreifbýliskjördæmi þar sem hann var aðbjóða sig fram til setu á Alþingi í fyrsta sinn. Sagan var áþá leið að hann hefði ferðast milli bæja ásamt aðstoð-
armanni sínum og innt fólk eftir því hvað það teldi helst skorta til að
bæta lífskjörin í sveitinni, en aðstoðarmaðurinn festi atriðin svo
jafnharðan á blað. Margir nefndu vegabætur, ræsagerð, brúarsmíð,
viðbyggingu við gamla skólahúsið og fleira í þeim dúr.
Á einum bænum í dalnum varð á vegi stjórnmálafrömuðarins
roskinn kjósandi sem taldi að það væri nú eiginlega bara allt ósköp
indælt þarna inni á milli fjallanna, og ekkert sérstakt sem vanhag-
aði um, enda sitjandi þingmenn mestu sóma-
menn og útvegagóðir. Þegar frambjóðandinn
gekk á hann um einhverjar óskir, sagði hann
eftir langa mæðu með blik í auga að ef hann
ætti að láta sér detta eitthvað í hug til frekari
þæginda þá væri það auðvitað alvöru-
flugvöllur niðri við ána upp á að skjótast suð-
ur. Hláturinn kraumaði í skrifaranum, en þingmannsefnið sneri sér
ábúðarfullt að honum og sagði: „Skrifaðu flugvöll“.
Mér varð hugsað til þessarar sögu á dögunum þegar menn ruku
enn einu sinni í blöðin með þá dómadagsvitleysu að vilja byggja nýj-
an Reykjavíkurflugvöll, steinsnar frá þeim gamla, á svokölluðum
Lönguskerjum. Þegar maður heyrir hugmyndir af þessu tagi þá
fær maður það á tilfinninguna að það séu hagsmunir verktakafyr-
irtækja sem stýri ekki aðeins umræðunni, heldur líka fjárfesting-
arstefnu stjórnvalda. Auðvitað er endalaus fjármokstur í stór-
framkvæmdir frábær kostur frá þeim sjónarhóli.
Núverandi Reykjavíkurflugvöllur er vitaskuld á förum eftir ein-
hver ár og það blasir við að eðlilegustu viðbrögðin hljóta að vera
frekari uppbygging flugmannvirkja í Keflavík og ekki síður upp-
bygging samgangna þangað frá höfuðborginni. Í því samhengi er
vert að hafa til hliðsjónar samgöngurnar milli Gardemoen-
flugvallar og miðbæjar Oslóborgar, þar sem um hliðstæða vega-
lengd er að ræða, sem flestir fara á tuttugu mínútum í lest.
Þjóð sem hefur hvorki efni á að byggja tónlistarhús, framleiða
leikið sjónvarpsefni á eigin tungumáli né viðhalda helstu örygg-
istækjum íslenskra sjómanna en finnst sjálfsagt að byggja stóra,
nýja flugvelli hvern um annan þveran á sama landsvæði þarf sann-
arlega að hugsa sinn gang.
Í gegnum árin hefur verið hlegið að fyrrnefndri sögu af metn-
aðargjarna þingmannsefninu. Kannski er sú tíð að renna upp að slík
saga veki ekki hlátur lengur, heldur fremur aðdáun á framsýni og
stórhug stjórnmálaskörungsins.
Skrifaðu flugvöll
á Lönguskerjum
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Sveinbjörn
I. Baldvinsson
Borgarveisla
í haust
Heimsferðir bjóða flug til margra fallegustu og eftirsóttustu borga Evrópu í
haust. Kauptu flugsæti eða flug og gistingu á einstökum kjörum - skelltu
þér í borgarveislu og upplifðu fegurð og stemningu einstakra borga.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri
sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Kíktu með í veisluna áður en allt selst upp!
Frá kr. 31.190
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
í 3 nætur, mánud.-fimmtud., 7. nóv., með 8.000
kr. bókunarafslætti.
Prag
29. sept. • 3. okt. • 6. okt.
10. okt. • 13. okt. • 17. okt.
7. nóv. • 10. nóv. • 14. nóv.
17. nóv. • 21. nóv.
Frá kr. 33.190
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli
í 3 nætur, mánud.-fimmtud., 17. okt., með 8.000
kr. bókunarafslætti.
Búdapest
2. okt. • 6. okt. • 10. okt.
13. okt. • 17. okt. • 20. okt.
24. okt. • 27. okt. • 31. okt.
Frá kr. 49.990
Flug, skattar og gisting í tvíbýli í 4 nætur á Hotel
Wyspianski 10. nóv. Netverð á mann.
Kraká
20. okt. • 3. nóv.
10. nóv. - aukaflug
Frá kr. 51.190
Flug, skattar og gisting í tvíbýli í 4 nætur á Hotel
Wilhelmshof 29. sept. Netverð á mann.
Vín
29. sept. • 3. nóv.
Frá kr. 51.190
Flug, skattar og gisting í tvíbýli í 3 nætur á Hotel
City. Netverð á mann.
Ljubljana
24. nóv.
Frá kr. 29.990
Flugsæti með sköttum, tilboð 3. okt. með
heimflugi 9. okt. Netverð á mann.
Barcelona
30. sept. • 3. okt. • 9. okt.
20. okt. • 23. okt. • 27. okt.
31. okt. • 3. nóv.
*Uppselt er í ferðir sem strikað er yfir.