Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
,
NÝ EIGN Á SKRÁ
Bakkakot í landi Hólms í Reykjavík
Undirrituðum hefur ver-
ið falið að afla tilboða í
eignina Bakkakot í landi
Hólms ofan við Reykja-
vík (ca 5 mínútna akstur
frá Árbæjarhverfi). Um
er að ræða erfðaleigu-
samning um ca 0,7 ha
lands og standa á því 92
fm íbúðarhús, byggt 1958 og 132 fm fjárhús, byggt árið 1950.
Húsin þarfnast viðhalds. Nánari upplýsingar veitir undirrit-
aður á skrifstofutíma.
Pétur Kristinsson hdl.,
löggiltur fasteigna- og skipasali,
sími 438 1199, fax 438 1152, netfang pk@simnet.is
Heimasíða fasteignasölu, www.fasteignsnae.is
Fasteigna- og skipasala Snæfellsness,
Aðalgötu 2, 2. hæð, 340 Stykkishólmi,
sími 438 1199, fax 438 1152 • Heimasíða: www.fasteignsnae.is
Pétur Kristinsson hdl., löggiltur fasteigna- og skipasali.
Látraströnd - Seltjarnarnesi
Mjög fallegt og afar vel staðsett 252
fm einbýlishús með 28,4 fm innbyggð-
um bílskúr. Á aðalhæð eru m.a. stórt
hol með ofanbirtu, 3 rúmgóð herbergi,
stórar og bjartar stofur með útgangi á
verönd til suðurs, eldhús með miklum
innréttingum og góðum borðkrók og
flísalagt baðherb. auk gestaw.c. auk
herbergis og þvottaherbergis í kjallara. Verðlaunalóð með fjölda trjáa og
plantna. Hellulögð verönd og viðarverönd. Verð 70,0 millj.
Básbryggja
Glæsilegt 234 fm raðhús á fjórum
hæðum með 39 fm innb. tvöf. bílskúr í
Bryggjuhverfinu. Húsið er allt innréttað
á afar vandaðan og smekklegan hátt
og skiptist m.a. í stórt rými, sem í eru
eldhús og borðstofa, rúmgott bað-
herb. með hornbaðkari með nuddi auk
tveggja snyrtinga, stóra stofu og
fjögur herb. auk fataherbergis. Húsið
stendur á sjávarkambinum, álklætt að
utan og nýtur mikils útsýnis. Stór við-
arverönd til suðvesturs og flísalagðar
svalir út af hjónaherbergi. Verð 42,9
millj.
Suðurgata - Hafnarfirði
Nýkomið í sölu fallegt 232 fm einbýlis-
hús, sem er kjallari og tvær hæðir
ásamt 22,0 fm sérstæðum bílskúr.
Eignin skiptist m.a. í eldhús með góð-
um innréttingum, borðstofu og setu-
stofu með arni, flísalagt baðherbergi
auk gestaw.c. og fjölda herbergja.
Geymsluris. Gler og gluggar endurnýj-
aðir að mestu. Vel staðsett eign, mikil
veðursæld. Gott útsýni af efri hæð yfir
höfnina. Falleg, afgirt ræktuð lóð.
Stutt í skóla, sundlaug og þjónustu. Arkitekt: Einar Sveinsson. Verð 53,0 millj.
Miðborgin - efri sérhæð -
5 sérbílastæði
Mjög falleg 227 fm efri sérhæð í hjarta
miðborgarinnar ásamt 5 sérbílastæð-
um á lóð. Hæðin skiptist m.a. í stofu,
borðstofu, rúmgott eldhús, fjögur her-
bergi og stórt flísalagt baðherbergi
auk gestaw.c. Mikil lofthæð, stórar
svalir til suðurs og fallegt útsýni úr
stofum. Arinn í íbúð og innfelld lýsing í
öllum loftum. Hús nýmálað að utan. Verð 55,0 millj.
Skaftahlíð- efri hæð með bílskúr
Falleg og björt 122 fm 5 herb. efri
hæð ásamt 28 fm bílskúr í Hlíðunum.
Hæðin skiptist í forstofu, gesta-
w.c./þvottaherb., samliggjandi rúm-
góðar og bjartar stofur, eldhús með
borðaðstöðu, 3 herbergi og baðher-
bergi. Tvennar svalir í austur og suð-
vestur. Sérgeymsla í kjallara. Hiti í
hellulögðu plani fyrir framan hús. Laus
fljótlega. Verð 30,5 millj
Þórðarsveigur- 4ra herb. endaíbúð
Glæsileg 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð
auk sérstæðis í bílageymslu. Íbúðin
skiptist í 3 herbergi, eldhús, stofu,
baðherbergi, þvottaherbergi og for-
stofu og er öll innréttuð á vandaðan
máta með innréttingum og gólfefnum
úr ljósum viði. Stórar flísalagðar suð-
ursvalir út af stofu. Verð 23,9 millj.
EINBÝLISHÚS Í ÁSAHVERFI,
GARÐABÆ, ÓSKAST
Óskum eftir stóru einbýlishúsi
fyrir traustan kaupanda
með góðu útsýni í Ásahverfi í Garðabæ.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut - Til leigu
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Jarðhæð sem er samtals 856 fm en mögulegt er að skipta henni upp í ca. 545
og 311 fm. Mjög góð sameign í snyrtilegu lyftuhúsi. Húsnæðið uppfyllir allar
kröfur um nútíma skrifstofurekstur. Hentar vel fyrir hvers konar þjónustu
og/eða verslun. Góð aðkoma og næg bílastæði. Húsið er mjög vel staðsett og á
áberandi stað. Eigandi er Landsafl sem er sérhæft fasteignafélag.
Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson,
sími 588 4477 eða 822 8242
www.landsafl.is
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali
FORNHAGI 11 - LAUS STRAX
OPIÐ HÚS milli kl. 14 og 16
Björt og lítið niðurg. 86 fm 3ja-4ra
herbergja endaíbúð í kjallara í mikið
standsettu fjölbýli á mjög góðum
stað á Högunum. 2-3 herbergi,
rúmgóð stofa, eldhús og baðher-
bergi. Geymsla innan íbúðar. Húsið
hefur verið mikið endurnýjað m.a.
þak og klætt á 3 hliðar. ÍBÚÐIN ER
LAUS STRAX.
Verð 16,7 millj.
Sólrún sýnir íbúðina í dag, sunnudag, frá kl. 14-16.
GUNNARSBRAUT 40
NEÐRI SÉRHÆÐ OG BÍLSKÚR
OPIÐ HÚS milli kl. 14 og 16
Falleg 106 fm neðri sérhæð í þríbýli
(miðhæð) auk 25 fm bílskúrs (sam-
tals 131 fm) á einum besta stað í
Norðurmýrinni í Reykjavík. Íbúðin
skiptist í: Anddyri, hol, tvö góð her-
bergi, eldhús með borðkrók, rúm-
góða og bjarta stofu og flísalagt
baðherbergi. Parket og flísar á gólf-
um. Góð eign á mjög eftirsóttum
stað. LAUS TIL AFHENDINGAR
FLJÓTLEGA. Verð 25,9 millj.
Áslaug Nanna sýnir íbúðina í dag sunnudag frá kl. 14 - 16
BRÉF TIL
BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Bréf til blaðsins | mbl.is
ÞEGAR upp koma deilur eru oft
tvær eða fleiri hliðar á því máli og
vil ég á engan hátt gera lítið úr
skoðunum fólks vegna þessa máls
eða tala með og á móti. Ég hafði
ekki sett mig mikið inn í deiluna en
mætti á báða fundina sem haldnir
voru og fór með opnum huga á fyrri
fundinn og hugðist fræðast um mál-
ið eins og kostur væri en fannst ég
vera fastur inni í einhvers konar
farsa sem virtist engan enda ætla
að taka. Báðir þessir fundir fóru
ágætlega fram en ég hnaut þó um
það á síðari fundinum að mér fannst
fundarstjórinn greinilega vera með
ákveðna skoðun á þessu máli og
ávítaði hún þá sem töluðu á móti
einum deiluaðilanum, sóknarprest-
inum í Garðabæ, og fannst mér hún
koma illa fram og verða sér til
ákveðinnar minnkunar í mínum
augum. Einhverjir í salnum virtust
kætast við þetta, en mér var ekki
skemmt. Fundarstjórinn gerði eng-
ar athugasemdir við frammíköll og
skrípalæti og fannst mér sú fram-
koma ekki vera þeirra málstað til
framdráttar. Fundarstjórinn skrifar
grein í Velvakanda 18. ágúst sl. þar
sem hún er að gagnrýna grein sem
„Sóknarbarn í Garðabæ“ hafði
skrifað einhverju áður og var sá að-
ili meðal annars að gagnrýna fund-
arstjórnina eins og ég vil gera nú,
en ástæða þess að ég vil skrifa
þessa grein nú er sú að fundarstjór-
inn fer ekki með rétt mál í greininni
sinni en þar segir hún að tæplega
300 manns hafi mætt á fundinn og
er það ekki rétt en ég gerði laus-
lega talningu þar sem ég sat og
taldi ég aðeins rétt um 150 manns
og finnst mér rétt að leiðrétta það.
Annað sem ég vil gagnrýna varð-
andi fundarstjórnina er að ákveðin
ályktun var sögð hafa verið sam-
þykkt, en það er ekki alls kostar
rétt því að ályktunin var aldrei bor-
in undir atkvæði heldur fór fram
það sem oft er kallað „rússnesk
kosning“ því að lófatak hluta fund-
armanna var látið duga sem sam-
þykki fundarins en ekki handaupp-
réttingar. Ég sem fundarmaður
klappaði ekki og hefði ekki rétt upp
hönd ef kosið hefði verið en hrein-
lega þorði ekki að tala á móti þessu
á fundinum. Eftir fyrri fundinn var
ég á báðum áttum um það með
hverjum ég myndi taka afstöðu
vegna þessa máls en eftir seinni
fundinn má segja að ég hafi snúist
frekar á sveif með þeim sem eru
ekki með honum. Ég verð síðan að
segja að ég tek ofan fyrir organist-
anum og ritara sóknarnefndar að
þora að standa upp á fundinum og
segja frá hlutunum eins og málin
horfðu fyrir þeim. Þau eru að mínu
áliti menn fundarins og voru mál-
efnaleg og rökföst. Mér finnst stein-
inn taka úr þegar fundarstjórinn
fer með ósannindi í grein sinni og
hlýt að velta því fyrir mér hver seg-
ir satt og hver ekki. Ég viðurkenni
það fúslega að ég þori ekki að koma
fram undir nafni í þessari grein en í
svona viðkvæmu máli er betra að
standa utan við heldur en að koma
fram sem ákveðin persóna, og vona
ég að fólk virði það við mig. Sem
sóknarbarn í Garðasókn vona ég að
þessar deilur fari að taka enda
þannig að safnaðarstarf í Garða-
sókn geti gengið eðlilega. Af gefnu
tilefni þá vil ég taka það fram að ég
er ekki sá sem skrifaði grein undir
nafninu „Sóknarbarn í Garðabæ“.
GÍSLI B. ÍVARSSON,
Garðaflöt 5, 210 Garðabæ.
Deilumál í
Garðasókn
Frá Gísla B. Ívarssyni,
sóknarbarni í Garðasókn
Fáðu úrslitin
send í símann þinn