Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 36
36 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9.00-17.30.
Til sýnis sunnudag og mánudag milli kl. 19 og
21 glæsileg 4-5 herb. íbúð á 3ju hæð (efstu) í
vönduðu litlu fjölbýlishúsi. Íbúðin er fullbúin á
vandaðan hátt. 3 rúmgóð svefnherbergi. Rúmgott eldhús og stofa með
útgengi á suðursvalir. Vandað flísalagt baðherbergi með baðkari og
sturtuklefa. Stutt í skóla og alla þjónustu, læknamiðstöð o.fl. Parket. Íbúðin
er laus fljótlega. Guðrún Árný og Jens á bjöllu. Verð 24,9 m.
Lautasmári 22
Opið hús, sunnudag og mánudag, frá kl. 19-21
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
DÍSARÁS 16 – RAÐHÚS
OPIÐ HÚS MILLI KL .14 og 16
Gott endaraðhús á 2 hæðum ásamt rúmgóðum tvöföldum bílskúr innst í botnlanga á
góðum stað í Seláshverfi. Á neðri hæð; fremri forstofa, hol, gestasnyrting, stofa með
arni, borðstofa, eldhús með borðkrók og þar innaf þvottahús með útgengi í garð.
Vandaður stigi til efri hæðar þar sem nú eru 5-6 herbergi og flísalagt baðherbergi.
Tvennar flísalagðar svalir. Geymsluris. Innréttingar og innihurðir eru af eldri en vand-
aðri gerð. Bílskúrinn er tvöfaldur með gluggum. Grónir garðar báðum megin húss.
Staðsetning er frábær, ofarlega í Elliðaárdalnum. Öll þjónusta er í göngufæri, s.s.
grunnskóli, leikskólar, sundlaug, íþróttir, verslanir, heilsugæsla, bankar o.fl. Þetta er
fjölskylduvæn og vönduð eign sem ber öll merki um gott viðhald í gegnum tíðina.
Verð 42,9 millj.
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
RÉTTARHOLTSVEGUR 77 – RAÐHÚS
OPIÐ HÚS MILLI KL. 14 OG 17
109 fm talsvert endurnýjað raðhús á 3 hæðum. Aðalinngangur í húsið er á miðhæð
sem skiptist í flísalagða forstofu, hol, eldhús með borðkrók og stofu með útgengi í
suðurgarð. Á efri hæð eru 3 góð svefnherbergi og flísalagt baðherbergi. Í kjallara er
vinnuherbergi og þvottahús. Húsið er mikið endurnýjað m.a. nýlega gert við þak, gler
og glugga, skolplagnir o.fl. Verð 24,8 millj.
ESKIHLÍÐ - OPIÐ HÚS Í DAG
SUNNUDAGINN 28. ÁGÚST
MILLI KL. 15:00-17:00
Falleg sérhæð við Eskihlíð í Reykjavík ásamt bílskúr. Eignin er
samtals 132 fm, þar af er bílskúr 32 fm. Komið er inn í forstofu,
flísar á gólfi, inn af forstofu er barnaherbergi með parketi á gólfi,
einnig er skápur í herbergi. Gengið er úr forstofu í hol, parket er á
gólfi, skápur er í holi. Stofa og borðstofa með parketi. Sjónvarps-
stofa með parketi á gólfi. Gengið er út á vestursvalir úr stofu. Ann-
að barnaherbergi innaf holi og er það með dúk á gólfi. Hjónaher-
bergi er með skápum, parket er á gólfi. Eldhús er með náttúruflís-
um á gólfi, nýleg hvít innrétting, nýleg tæki, borðkrókur. Baðher-
bergi er með flísum í hólf og gólf, falleg hvít innrétting er inn á
baði, sturtuklefi. Gengið er niður í kjallara þar sem sameiginlegt
þvottahús er staðsett. Tvær geymslur eru í kjallara, önnur köld,
þær eru samanlagt um 10-12 fm. Þessir fm eru ekki inni í skráð-
um fermetrum þannig að í raun er íbúðin og bílskúr um 142-4 fm.
Garður er sameiginlegur. Bílskúr er með hita og rafmagni ásamt
rennandi vatni.
Kristján Ólafsson, hrl. og löggildur fasteignasali
EIGENDUR ÍBÚÐARINNAR TAKA Á MÓTI GESTUM. KRISTJÁN
ÓLAFSSON, LÖGGILTUR FASTEIGNASALI. Kær kveðja.
Svavar Geir Svavarsson, sölumaður, gsm 821 5401,
e-mail svavar@fk.is . Fasteignasalan Klettur, Skeifunni 11,
2. hæð, 108 Reykjavík, sími 534 5400, fax 534 5409.Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Glæsilegt einbýli á 2 hæðum, alls líklega ca
250 fm með öllu. Á efri hæð eru auk bílskúrs,
eitt mjög stórt herbergi, glæsilegar stofur og
eldhús. Niðri eru þrjú rúmgóð herbergi og bað
ásamt stórri aðstöðu sem innrétta má fyrir
tómstundir. Allar innréttingar sérlega glæsileg-
ar. Útsýni yfir Reykjanes, Flóann og borgina.
Einstaklega vandað hús. V. 56 m. 6955
ERLUÁS - HAFNARFJÖRÐUR
ÓTRÚLEGT ÚTSÝNI
EINS og alþjóð hefir orðið vör við
eftir birtingu upplýsinga vegna
skattálagningar fyrir síðasta ár hafa
margir tjáð sig um það fyrirkomulag
að birta þær tölur er þar koma fram,
einum finnst sjálfsagt að almenn-
ingur fái að sjá hvað einn og annar
hefir úr að spila, en aðrir eru alveg á
móti því að verið sé að hnýsast í
hvað þeir hafi á milli handa að moða
úr. Þar er einn stjórnmálaflokkur
sem sker sig alveg úr og segir að
engan varði um hvað menn og fyrir-
tæki greiði í skatt. Út af öllum þess-
um vangaveltum langar mig að deila
með alþjóð samtali tveggja aðila
sem eru einmitt að velta þessum
málum fyrir sér. Annar aðilinn er
allvenjulegur Jón en hinn hefir
stöðu sinnar vegna töluvert betri
yfirsýn.
Jón spurði hvort það væru ein-
göngu galnir róttæklingar og frjáls-
lyndiskommatittir reykjandi dóp
sem væru að mótmæla eyðileggingu
umhverfis og hvað væri til ráða til
að koma í veg fyrir þessa eyðilegg-
ingu. Og svarið var, að afnema alla
peninga, eða að koma í veg fyrir að
hægt væri að gera þá ósýnilega eins
og nú væri gert í stórum stíl.
Jón vildi fá nánari skýringu á
þessu allra nýjasta fyrirkomulagi.
Flestir fara í felur með það sem þeir
skammast sín fyrir og vilja ekki láta
aðra vita. Þess vegna fela flestir
kynhneigð sína og nánast allir fela
peningana sína, þar sem þetta eru
þeirra einkamál. Þar er vandinn
fólginn. Ef allir vissu allt í einu allt
um fjárhag hvers og eins yrði
örugglega allt vitlausara en menn
hafa áður séð.
Eftir svo sem einn eða tvo mánuði
mætti aftur á móti reikna með að
sanngirni og réttlæti mundi ríkja og
ósvikin umhyggja fyrir almannahag
í samskiptum manna á milli, sem er
ekki hægt að segja að sé í dag, því
markaðurinn á svo auðvelt með að
fela peninga og það í bókstaflegri
merkingu, það geta snjallir endur-
skoðendur gert. Þetta gefur svig-
rúm fyrir alls kyns óréttlæti og
undirferli. Fyrirtæki hóta starfs-
mönnum uppsögn ef þeir segja frá
launum sínum og þau greiða tveim-
ur aðilum í samskonar starfi mishá
laun, því annar er sagður langtum
dýrmætari, fljótari að hugsa, skyn-
ugri og greinilega langtum færari
og ekki síst hefir hann það sem hinn
kemur ekki til með að hafa, og „hvað
er það?“ spyr Jón, alveg að springa
úr áhuga. Það er typpi. Jón er alveg
forviða, hafði ekki gert sér grein
fyrir að Guð hefði skapað okkur
svona misjöfn að hæfileikum. Það
yrði augljóslega erfiðara að komast
upp með það launamisræmi er við-
gengst í dag ef þetta kerfi yrði ofan
á, fólk myndi ekki sætta sig við það.
En hvað varðandi greiðslu fyrir
vöru og þjónustu? Það færi allt fram
með innskriftar- og skuldfærslu-
kerfi, allar tekjur kæmu fram og
ekkert væri hægt að kaupa án inn-
eignar. Enginn annar gjaldgengur
miðill yrði notaður. Allur kostnaður
yrði sýnilegur, vörur yrðu með
tveimur verðmiðum, kostnaður og
endanlegt verð vörunnar. Og hvað
með skatta? Þetta kerfi, sem yrði að
sjálfsögðu Heimsgreiðslukerfi,
mundi draga 10% af hagnaði af
tekjum þeirra er mæltust til þess af
fúsum og frjálsum vilja. Hver mundi
ekki greiða 10% af hagnaði ef allir
gætu séð hver vildi ekki leggja í
púkkið þegar allt væri sýnilegt,
kerfið mundi gera öllum ókleift að
gera eitthvað sem aðrir mættu ekki
sjá, það mundi enginn hagnýta sér,
fullnota sér, og þeir sterkustu lifa af,
því markmið samfélagsins yrði að
afkoma allra yrði tryggð. Allt sýni-
legt, allt gegnsætt. Sýnileiki er ein-
ungis annað nafn á sannleika.
Finndu sannleikann, því hann gerir
þig frjálsan. Stjórnvöld, fyrirtæki og
valdafólk vita þetta augljóslega,
þess vegna forðast þau að láta sann-
leikann vera grundvöll pólitísks, fé-
lagslegs eða efnahagslegs kerfis
sem þau setja á laggirnar. Svo mörg
voru þau orð. Fyrir nokkrum árum
komu tveir ungir menn með tillögu
sem var mjög í þessa áttina, en voru
með töluna 5%. Það hlustaði að
sjálfsögðu enginn á slíkt óráðshjal.
En er ekki oft fáránleikinn í dag
veruleikinn á morgun? Ég gat þess í
upphafi að þetta væri samtal
tveggja og það er að finna í bóka-
flokki, sem er til þess að gera ný-
þýddur á íslensku og heitir sam-
ræður við Guð og er sennilega í
flestum almenningsbókasöfnum.
Þetta samtal er úr bók 2, 16. kafla.
Ég hvet alla forvitna til að lesa bæk-
ur þessar.
MAGNÚS JÓHANNSSON,
Keflavík.
Birting upp úr skattskrám
Frá Magnúsi Jóhannssyni